Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.1996, Síða 16
16
FIMMTUDAGUR 28. NÓVEMBER 1996
FIMMTUDAGUR 28. NÓVEMBER 1996
25
ínn. „I
fer ég
liöinu
íslensku leikmennirnir fagna sigrinum gegn Dönum
áhorfendum frábæran
Iþróttir
Iþróttir
1. riðill:
Noregur-Belgía.............30-17
Noregur 5 3 1 1 121-103 7
Tyrkland 4 2 1 1 96-92 5
Belgía 5 1 1 3 103-125 3
Rúmenía 4 1 1 2 85-85 3
2. riðill:
Ungverjal. 4 3 0 1 101-94 6
Litháen 4 3 0 1 109-100 6
Úkraína 4 1 1 2 84-81 3
Makedónia 4 0 1 3 80-99 1
3. riöill:
Tékkland
Hv.Rússl.
ísrael
Holland
4. riöill:
Slóvakia-Þýskaland........21-21
Þýskaland 5 3 1 1 115-109 7
Portúgal 4 3 0 1 101-88 6
Pólland 4 2 0 2 93-89 4
Slóvakía 5014 104-127 1
5. riöill:
tsland-Danmörk.............27-21
ísland 5 4 1 0 137-98 9
Danmörk 5 4 0 1 136-101 8
Grikkland 4 0 1 3 73-114 1
Eistland 4 0 0 4 78-111 0
6. riöill:
Ítalía-Austurríki .........24-20
Sviss-Slóvenia ............29-23
Sviss 5 3 0 2 122-114 6
Ítalía 5 3 0 2 98-100 6
Slóvenía 5 2 0 3 104-101 4
Austurríki 5 2 0 3 109-118 4
Ágætir mögu-
leikar á 2. sæti
Ljóst er að íslendingar eiga
ágæta möguleika á aö komast á
HM hafni þeir í 2. sæti í sínum
riðli.
Nokkrir leikir fóru fram í
gærkvöld. Öruggt er að lið í 2.
sæti í 6. og 1. riðli komast ekki
áfram á okkar kostnað og mjög
litlar líkur eru á að liðið í 2. sæti
í 4. riðli komist áfram.
Ljóst er að mjög hagstæð
markatala íslenska liðsins eykur
möguleika okkar til muna. -SK
Strákarnir komnir
hálfa leið til Japans
- eftir glæsilegan sigur á Dönum, 27-21. Frábær stemning í troðfullri Laugardalshöll
Frábær varnarleikur, góð
markvarsla og einstakur sigur-
vilji lögðu grunninn að sigri ís-
lendinga á Dönum, 27-21, í und-
ankepppni HM í handknattleik i
gær. Þar með lögðu íslensku
strákarnir fyrri hindrunina á
vegi sínum í átt að heimsmeist-
arakeppninni í Japan á næsti ári
en síðari hindrimina, sem verð-
ur að öllum likindum mun erfið-
ari, þurfa þeir að klífa yfir á
sunnudaginn þegar þeir mæta
Dönum í Álahorg.
íslendingar náðu strax góðum
tökum á leiknum og því taki
slepptu þeir ekki. Danir voru þó
aldrei langt undan en urðu að
játa sig sigraða á lokamínútun-
um og gáfust hreinlega upp fyrir
baráttuglöðu íslensku liði.
Varnarleikur íslenska liðsins
var frábær. Strákamir léku
vömina framarlega og það setti
sóknarleik Danana algjörlega úr
skorðum. Vörmin var mjög
hreyfanleg og áttu Danir í mesta
basli með að finna glufur á
henni. Það var snjall leikur hjá
Þorbimi Jenssyni að tefla fram
Bergsveini í markinu enda Berg-
sveinn ekki óvanur að eiga góð-
an leik gegn Dönum. Bergsveinn
þakkaði landsliðsþjálfaranum
traustið og átti stórleik í mark-
inu.
í mjög góðri liðsheild er á
engan hallað að telja Geir
Sveinsson sem mann leiksins.
Hann var hjartað í varnarleikn-
um og dugnaður hans og barátta
var aðdáunarverð. Þá var Geir
einnig mjög öflugur í sókninni,
skoraði 4 mörk, fiskaði tvö
vítaköst og húkkaði nokkra
Dani af leikvelli. Róhert Dura-
nona nýtti tækifæriö, sem hann
fékk verðskuldað, til fullnustu.
Hann átti mjög góðan leik og
segja má að hann hafi reynst það
leynivopn sem Þorbjörn þjálfari
ætlaði honum að verða í leikn-
um. Duranona skoraði þýðingar-
mikil mörk og góður leikur hans
virkaði sem vítamínsprauta á
aöra leikmenn Islands. Dagur
lék sinn besta leik í langan tíma,
byrjaði þó ekkert of vel en kom
sterkur upp og er greinilega að
komast í sitt gamla form. Dagur
stjórnaði spilinu vel og tók af
skarið þegar á reyndi. Ólafur
var mjög ógnandi og gerði góð
mörk en þessi hæfileikaríki leik-
maður má að ósekju gera meira
að því að skjóta á markið. Bjarki
komst vel frá sínu og sömuleiðis
Konráð en Valdimar var óhepp-
inn eftir góða byrjun. Patrekur
hefur aftur á móti oft leikið bet-
ur i sókninni en skilaði varnar-
leiknum mjög vel, sem og Júlíus
Jónasson.
„Ég var með 1-2 marka sigur í
huganum en ekki fimm. Við náð-
um að spila mjög öfluga vöm og
það virtist taka púðrið úr þeim.
Þeir skoruðu sjaldan auðveld
mörk á okkur en kannski vorum
við svolítið lélegir að verjast til
baka þegar við misstum boltann.
Við verðum að vera vel á verði
og koma vel undirbúnir fyrir
síðari leikinn.
Þeir eru ekki byrjendur í
þessu og við verðum að hafa
mótleik á þá. Við komum til með
að selja okkur mjög dýrt á
sunnudaginn. Nú er pressan
orðin meiri á Dönum og
það þurfum við að
nýta okkur. Við ætl-
um okkur að ná í
stig og það helst
tvö,“ sagði Þor
björn Jensson,
landsliðsþjálf-
ari eftir leik-
inn.
„Frábær vörnu „Skrefí á undanu „Eigum fullt inniu
„Það var gaman að fá að spila „Þetta var mjög góður sigur og „Vörnin hjá okkur gerði
þennan leik og ég finn mig alltaf það var frábært að spila í Höll- gæfumuninn og Duranona kom
vel gegn Dönum. Við unnum inni í þessari miklu stemningu. mjög sterkur inn í leikinn. Þessi
leikinn á frábærri vörn og sókn- Ég byrjaði ekkert sérlega vel en vörn virðist henta okkur mjög
arleikurinn var agaðari eftir því ég hélt áfram og hlutirnir fóru vel og Danimir voru í stökustu
sem á leikinn leið. Áhorfendur að ganga betur hjá mér. Ég er vandræðum með hana. Ég tel
stóðu sig meiri háttar vel og ég farinn að þekkja betur til strák- samt að við eigum fullt inni. Ég
vil nota tækifærið og þakka anna og sjálfstraustið eykst með sjálfur get gert betur og Patti
þeim fyrir framlag þeirra sem hverjum leiknum. Við náðum sömuleiðis og við komum til
var frábært. Það er alveg á upp góðri vöm og markvörslu og með að gera það á sunnudaginn.
hreinu að við vinnum leikinn á það skipti sköpum í þessum leik. Við eram ekkert smeykir fyrir
sunnudaginn. Það kemur ekkert Nú eram við komnir skrefi á þann leik og komum brjálaðir til
annað til greina eftir þennan undan Dönum og ætlum að full- leiks. Við viljum komast á HM
góða sigur. Danir munu ekki komna verkið á sunnudaginn og koma okkur á kortið í hand-
þola pressununa sem komin er á með sigri," sagði Róbert Dura- boltanum að nýju. Þaö munu all-
þá,“ sagði Bergsveinn Berg- nona sem lék í fyrsta sinn með ir leggja sig 110% fram í Ála-
sveinsson, sem átti frábæran landsliðinu í Laugardalshöll. borg,“ sagði Ólafur Stefánsson
leik í markinu. -GH -GH eftir leikinn. -GH
„Gekk að mestu leyti upp“
„Að langmestu leyti gekk það upp sem við ætluðum okkur að
gera í leiknum. Það voru kannski fullstuttar sóknir í fyrri hálfleik
en það lagaðist í þeim síðari. Það var fyrirfram vitað að þetta yrði
vinnusigur og spurningin um baráttu og skynsemi í leiðinni. Við
töluðum um það í hálfleik að tvö mörk væri ekki mikið og við
þyrftum að byrja vel í síðari hálfleik. Það gekk eftir og við náð-
um fljótlega fimm marka forskoti.
Það er ekki spurning um að þeir koma til með að spila bet-
ur á sínum heimavelli heldur en þeir gerðu hér í Höllinni. Við
erum búnir að taka pressuna af okkur og setja hana á þá. Við
verðum að koma okkur niður á jörðina. Það er hálfleikur í stöð-
unni og við þurfum að stokka spUin upp á nýtt. Leikurinn á
sunnudaginn snýst um dagsform. Við höfum aUa burði tU að
leggja þá að veUi. Við höfum gott tUefni til að vinna. 1. desember
er á sunnudaginn og besti greiðinn við íslensku þjóðina á þeim
degi er að leggja Dani í Danmörku,"
sagði Geir Sveinsson, fyrirliði.
-GH
GH
Island
Danmörk
(12) 27
(10) 21
Þorbergur
Aöaisteinsson
fyrrv. landsliösþj álfar 1
Bergsveinn Bergsveins-
son átti snilldarleik gegn
Dönum , varði 19 skot og
fagnar hér sigrinum inni-
lega.
DV-mynd ÞOK
„Held að við
klárum þetta“
„Mér fannst þetta i raun aldrei
spurning. Danska liðið fór afar hægt
og æUaði að stýra hraðanum en
tókst það einfaldlega ekki. Um leið
og vörnin fór í gang og meiri ró kom
í sóknarleikinn var aldrei spuming
hvort liðið mundi vinna. Leikurinn í
Álaborg verður aUt öðruvísi. Þá
snýst dæmið við. Ef Danirnir fá
mennina sem voru meiddir inn aftur
verður þetta mjög erfitt. Mér finnst
íslenska liðið eiga miklu meira inni
og ég held aö við klárum þetta,“
sagði Þorbergur Aðalsteinsson, fyrr-
um landsliðsþjálfari, við DV eftir
leikinn.
Hverjir fannst þér leika best?
„Ég var mjög ánægður með
frammistöðu Bergsveins. Geir stóð
fyrir sínu að vanda og Dagur átti
glimrandi leik. Duranona kom á
óvart með góðum leik og skoraði
mjög þýðingarmikil rnörk," sagði
Þorbergur.
-GH
1-0, 3-4, 6-6, 9-7. 12-9, (12-10), 13-10, 15-12, 20-15, 22-19, 23-21, 27-21.
Mörk íslands: Róbrt Duranona 5, Ólafur Stefánsson 4, Dagur Sigurðsson 4, Geir Sveinsson
4, Valdimar Grimsson 4/3, Bjarki Sigurðsson 3, Konráö Olavsson 2, Patrekur Jóhannesson 1.
Varln skot: Bergsveinn Bergsveinsson 19/1.
Mörk Danmerkur: Nikolaj Jacobsen 6/2, Christian Hjermind 6/3, Morten Bjerre 4, Jan Paul-
sen 2, Klavs Jörgensen 1, Kasper Nielsen 1, Ian Fog 1.
Varin skot: Peter Nörklit 8, Sören Haagen 2.
Brottvfsanir: ísland 12 mín, Danmörk 12 min (Kasper Nielsen rautt spjald).
Dómarar: Miguel Amigo og Rodrigo Costas frá Spáni, frekar hliðhollir.
Áhorfendur: 3000 (uppselt kl. 17.30)
Maður leiksins: Geir Sveinsson ia; 5'
Island meö mun betri sóknarnýtingu
‘ ' nd var með 50 prósenta sóknamýtingu í gærkvöld, nýtti 27 sóknir af 54. Dan-
u hins vegar með 36,8 prósenta nýtingu, nýttu 21 sókn af 54.
iert Julian Duranona skoraði 5 mörk úr 9 skotum.
r Sveinsson skoraöi 4 mörk úr 5 skotum og fiskaði tvö vítaköst.
íur Sigurðsson skoraði 4 mörk úr 6 skotum.
fur -Stefánsson skoraði 4 mörk úr 8 skotum.
dimar Grímsson skoraði 4 mörk (þrjú vítaköst) úr 7 skotum.
rki Sigurðsson skoraði 3 mörk úr 5 skotum.
íráð Olavsson skoraði 2 mörk úr 3 skotum og fiskaði eitt vítakast.
rekur Jóhannesson skoraði 1 mark úr 3 skotum.
nd skoraði 9 mörk úr langskotum, 6 af línu (2 víti), 4 eftir gegnumbrot, 4 úr
upphlaupum og 4 úr homum (1 víti). Danir skoruðu 8 mörk úr langskotum,
lomum (2 víti), 4 úr hraðaupphlaupum (1 víti), 2 úr gegnumbrotum (2 víti)
flínu.
Veröur Claus Jacob Jensen meö á sunnudag?
us Jacob Jensen, skyttan hávaxna, gat ekki leikið með Dönum í gærkvöld.
- þokkalega bjartsýnn á að hann spili í Álaborg á sunnudag, honum fer fram
á degi,” sagði Ulf Schefvert, þjálfari Dana, við DV.
Óvænt íslandsferö hjá Jörgensen
s Eiberg Jörgensen lék sinn fyrsta landsleik fyrir Dani í gærkvöld og ís-
erðin var óvænt hjá honum. Hann kom ekki með liðinu á mánudag en var
ur til íslands á þriðjudag þegar ljóst var að Jensen væri úr leik.
Rene Boeriths gaf ekki kost á sér
e Boeriths, sá öflugi leikmaður, gaf ekki kost á sér í leikina við ísland en
spilar ekki með landsliðinu fyrr en í febrúar vegna náms. „Það er gott fyrir
ka liðiö, hann spilar alltaf vel gegn íslandi og er óvinsæll meöal leikmanna
sagði blaðamaður BT á leiknum við DV.
,Þetta er búinn aö vera ágætur tímiu
Schefvert hættir með danska liðið í febrúar eftir tæp fjögur ár við stjómvöl-
Þetta er búinn að vera ágætur tími og það var gaman að prófa þetta en nú
aftur heim,” sagði Schefvert við DV. Hann tekur við sænska úrvalsdeildar-
Kroppskultur en Schefvert þjálfaði áður lið Halmstad í Svíþjóð. -VS
Peter Nörklit, markvörður og fyrirliði Dana:
„Vonandi kemst ísland líka“
„Islenska liðið lék góðan hand-
bolta í kvöld, var betri aðilinn og
átti sigurinn skilinn. Vöm liðsins
var sterk og markmaðurinn góður
og við áttum í miklum vandræðum
með að koma okkur í nógu góð
færi. Vamarleikur okkar var ekki
nógu góður og þar munaði miklu
að Claus Jacob Jensen var ekki
með,” sagði Peter Nörklit, fyrirliði
Dana, við DV eftir leikinn í gær-
kvöld.
„íslenska liðið var að mestu eins
og ég bjóst við en Duranona var
okkur erfiður. Hann er stór og öfl-
ugur og erfitt að fá hann á móti
sér. Það er hins vegar ekkert mál
að spila við svona aðstæður, það er
betra að hafa 3000 áhorfendur á
móti sér en enga stemmningu.
Vonandi standa 2000 Danir svona
vel við bakið á okkur i Álaborg á
sunnudaginn.
Við verðum að vinna þann leik
og getum það. Við erum sterkir á
heimavelli og dómgæslan verður
sjálfsagt okkur í hag því áhorfend-
ur hafa alltaf áhrif á hana. Það
verður annar baráttuleikur, eins
og þessi, og við verðum að vera
ferskari og betur undirbúnir. Við
ætlum okkur til Japans og vonandi
kemst ísland líka þangað sem
besta liðið í öðra sæti. Ég held að
þessi sigur eigi að duga til þess,”
sagði Peter Nörklit. -VS
Ulf Schefvert, þjálfari Dana í samtali við DV:
Þarf toppleik til
útisigurs á íslandi
Schefvert og Nielsen spá í spilin.
„Það mátti alltaf búast
við þessum úrslitum hér
í Reykjavik. Það þarf að
ná toppleik til að vinna
útisigur á islenska lands-
liðinu,” sagði Ulf Schef-
vert, þjálfari Dana, við
DV
„Byrjunin var erflð,
við fengum á okkur
brottvísanir og vítaköst
og það fór mikið þrek i
upphafsmínútumar. Við
voram inni í leiknum
þegar staðan var 23-21 en
höfðum þá ekki heppn-
ina með okkur. íslenska
liðið kom mér lítið á
óvart, ég þekki alla leik-
mennina vel, en ég var
helst hissa á hve illa
Patrekur lék, og að ís-
lenska liðið fékk ekkert
gult spjald á fyrstu 18
mínútunum. Við áttum í
mestum vandræðum
með Geir en lékum ágæt-
lega á móti flestum öðr-
um.
I Álaborg á sunnudag
verður mikil pressa á
báðum liðum, Island og
Danmörk eru bæði í hópi
24 bestu liða heims og vel
það en sennilega þarf
annað þeirra að sitja
heima. Þetta era samt
skemmtilegustu leikirn-
ir, það er allt lagt undir
og leikurin í Álaborg
verður væntanlega síð-
asti stórleikur minn með
liðið,” sagði Schefvert.
-VS
róttafréttir eru einnig á bls. 26 og 27