Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.1997, Blaðsíða 2
2
FIMMTUDAGUR 2. JANÚAR 1997
Fréttir
i>v
Tvítugur piltur banaði stjúpföður sínum á heimili þeirra í Sandgerði:
Stakk manninn í
hálsinn með hnífi
Tvltugur piltur játaði við yfir-
heyrslur hjá rannsóknarlögreglunni
í Keflavík í gær að hafa banað 32
ára gömlum manni sem var stjúp-
faðir hans. Hinn voveiflegi atburður
átti sér stað á heimili mannanna að
Brekkustíg 12 í Sandgerði á sjöunda
tímanum á nýársmorgun.
Móðir drengsins, sem einnig býr í
húsinu, tilkynnti lögreglu um at-
burðinn klukkan 6.30 um morgun-
inn. Pilturinn var handtekinn og
stóðu yfirheyrslur yfir í allan gær-
dag. Þar viöurkenndi hann að hafa
stungið stjúpfóður sinn í hálsinn
með hnífi. Hnífstungan skar í sund-
ur slagæð á hálsi og mun maðurinn
hafa látist samstundis.
Pilturinn var fjarverandi heimili
sínu fyrri hluta nýársnætur en kom
heim klukkan rúmlega 3. Fljótlega
eftir það upphófust deilur á milli
piltsins og stjúpföður hans en ekki
er enn ljóst vegna hvers. Deilum
þeirra lauk með því aö pilturinn
náði í hníf og stakk stjúpfóður sinn
til bana inni í stofu í húsinu. Að
- eftir deilur þeirra á milli á nýársnótt
sögn lögreglu voru báðir mennirnir
ölvaðir. Yfirheyrslur yfir piltinum
stóðu enn yfir seint í gærkvöldi.
„Þama virðist hafa átt sér stað
augnabliksæði. Við vitum ekki enn
nákvæmlega út á hvað deilumar
gengu sem leiddu til þessa hræði-
lega atburðar. Það er ekki vitað til
þess að þeir hafi deilt áður,“ sagði
John Hall, rannsóknarlögreglumað-
ur í Keflavík, við DV seint í gær-
kvöldi vegna rannsóknar málsins.
Að sögn Johns verður beiðni um
gæsluvarðhald yfir piltinum lögð
fram fyrir hádegi í dag og er niður-
stöðu að vænta frá dómara síðar í
dag eða á morgun. -RR
Brekkustígur 12 þar sem hinn
voveiflegi atburður átti sér
stað á sjöunda tímanum á
nýársmorgun. Tvítugur piltur
stakk stjúpföður sinn til bana
inni í stofu í húsinu sem var
heimili þeirra beggja.
DV-mynd ÆMK
Stuttar fréttir
Kúbuferðir á CNN
Sjónvarpsstöðin CNN sagði ít-
arlega frá Kúbuferðum íslend-
inga á síðasta ári og fyrirhuguð-
um ferðum þeirra þangað. Rætt
var viö þátttakendur í útsend-
ingunni sem var á gamlársdag.
Síðasti ríkisráðsfundur
1996
Ríkisráðsfundur var á Bessa-
stöðum á gamlársdag og staðfesti
forseti íslands fjárlög, lánsfjárlög
og fleiri lög. Á fúndinum var
þremur mönnum veitt lausn frá
embættum sínum og einn nýr
skipaður.
Völva spáir umbrotum
Völva Stöðvar 2 spáir óróa á
vinnumarkaði og verkfóllum og
að miklar þjóðfélagsbreytingar
hefjist á árinu. Pólitískir dagar
margra helstu stjómmálamanna
þjóðarinnar veröi taldir aö þeim
afstöðnum.
Reykvíkingar
105 þúsund
Reykvíkingar voru rúmlega
105 þúsund 1. des. sl. og hafði
fjölgaö um ríflega 1200 frá sama
tíma í fyrra. Konur eru rúmlega
2.000 fleiri en karlar í borginni.
Sjónvarpiö sagöi frá.
Systkini styrkt
Systkinin Sigrún og Þórarinn
Eldjám skiptu með sér árlegum
styrk rithöfundasjóðs Ríkisút-
varpsins sem veittur er á gaml-
ársdag.
Sophia maður ársins
Sophia Hansen var kjörinn
maður ársins 1995 af hlustendum
Rásar 2 hjá Ríkisútvarpinu. í
öðm sæti varð Ástþór Magnús-
son og Ólafur Ragnar Grímsson
forseti íslands i því þriðja.
Vélstjórar vilja hækkun
Almennur félagsfundur vél-
sfjóra á farskipum hefur skorað
á samninganefnd sína að hvika
ekki frá kröfu um verulega
hækkun grunnlauna í komandi
kjarasamningum. -SÁ
Guörún Agústsdóttir, forseti borgarstjórnar, varð 50 ára í gær og hélt hún upp á af
mæli sitt í safni Ásmundar Sveinssonar í Laugardalnum. Margt gesta kom til
myndarlegrar veislu og bárust afmælisbarninu gjafir. Á myndinni er Vilhjálmur Vil-
hjálmsson borgarfulltrúi að afhenda Guðrúnu gjöf frá þeim borgarfulltrúum sem
tilheyra Sjálfstæðisflokknum. Til hliðar við þau er Álfheiður Ingadóttir sem gegndi
stöðu veislustjóra í afmælinu. Vilhjálmur lét þess getið um leið og hann afhenti
Guðrúnu gjöfina að hún væri góður fundarstjóri og hefði kímnigáfu til að bera,
þannig að hann gæti bæði notið þess að hlusta á hana þegar hún væri að tala í al-
vöru og þegar hún væri að grínast. DV-mynd GTK
Samkomulag um ráöuneytisstjórastólinn:
Björn fær
starf sitt aft-
ur á árinu
- fer í tímabundið ráðgjafarstarf
Samkomulag tókst þann 30. des.
sl. mifli Bjöms Friðfinnssonar
ráðuneytisstjóra og Finns Ingólfs-
sonar iðnaðar- og viðskiptaráð-
herra um að Björn fengi ráðuneyt-
isstjórastarfið á ný innan árs.
Þangað til mun hann starfa í
stjómarráðinu sem sérstakur ráö-
gjafi ríkisstjómarinar og stjórn-
valda um framkvæmd samnings-
ins um EES og kynna hann innan
og utan ráðuneytanna. Fyrsti
vinnudagur Bjöms er í dag.
í samkomulaginu felst að Bjöm
taki aftur til starfa sem ráðuneyt-
isstjóri iönaðar- og viðskiptaráðu-
neytanna í síðasta lagi í lok ný-
byrjaðs árs en samkvæmt heimild-
um DV treysti Bjöm ekki sam-
komulagi við Finn Ingólfsson bet-
ur en svo að hann krafðist þess að
forsætisráðherra og utanríkisráð-
herra staðfestu einnig samkomu-
lagið með undirskriftum sínum og
féllust þeir á það. Þegar DV bar
þetta undir Bjöm vfldi hann
hvorki játa því né neita.
Bjöm Friðfinnsson sagði að full
þörf væri fyrir það ráðgjafarstarf
sem hann tækist nú á hendur og
kvaðst ekki sjá fram á verkefna-
skort. -SÁ
Áramótaboðskapur forsætisráðherra:
Skattalækkanir og hallalaus ríkissjóður
- tekjuskattar á einstaklinga farnir að draga úr vilja manna til að auka tekjur
Davíð Oddsson forsætisráðherra
boðaði skattalækkanir á einstak-
linga í áramótaávarpi sínu tfl þjóð-
cirinnar á gamlárskvöld. Hann sagði
að nefnd undir forystu ráðuneytis-
stjóra forsætisráðuneytis myndi á
næstu mánuðum kynna tiflögur um
skattkerfisbreytingar sem miðuðu
að því að lækka skatta einstaklinga
en jafnframt yrði leitast við að
marka skattalækkunarferil út kjör-
tímabilið. Forsenda þess væri sú að
áfram tækist að reka ríkissjóð hafla-
lausan. Það væri ábyrgðarleysi að
lækka skatta ef því fylgdi að ríkis-
sjóður safhaði skuldum.
Forsætisráðherra sagði að rík
nauðsyn væri á að lækka tekju- og
eignaskatta einstaklinga. Tekju-
skatturinn væri orðinn það hár að
hann væri farinn að draga úr vilja
manna til að leggja sig fram við að
afla aukinna tekna auk þess sem
færa mætti rök fyrir því að há skatt-
heimta ýtti undir skattsvik. Þá hefði
augljóslega verið of langt gengið í
sambandi við tekjutengingu bóta
sem komið hefði ifla við eflilifeyris-
þega en öll þessi mál yrðu tíl ítar-
legrar skoðunar á nýbyrjuðu ári.
í upphafi ávarps síns gerði forsæt-
isráöherra að umtalsefni þá mæli-
kvarða sem notaöir eru til að greina
árferði og rekstur þjóðarbúsins. Ný-
liðið ár hefði um fjölmargt verið hag-
fellt samkvæmt ýmsum slíkum mæ-
likvörðum. Þannig hefði veðurfar
verið gott og sjávarafli sá mesti sem
komið hefði á land. Hagvöxtur á ís-
landi hefði verið sá mesti í Evrópu,
eða ríflega þrefalt meiri en í löndum
Evrópusambandsins og tvöfalt hærri
en í iðnríkjunum. Þótt útgjöld ríkis-
ins hefðu orðiö meiri en áætlanir
gerðu ráð fyrir hefðu auknar tekjur
vegið þaö upp og gott betur.
Forsætisráðherra taldi að flest
benti til þess að hagvöxtur yrði
svipaður á nýbyrjuðu ári og var í
fyrra en slíkum vexti fylgdu vaxta-
verkir sem nauðsynlegt væri að
draga úr með því að stifla í hóf öðr-
um stórframkvæmdum en þeim sem
tengdust beint nýrri stóriðju. Nauð-
synlegt væri að eiga í handraðanum
mikilvæg nauðsynjaverk þegar hið
mikla fall yrði í stóriðjufram-
kvæmdum á árunum 1999 og 2000.
Davíð Oddsson sagði að nauðsyn-
legt væri fyrir Alþingi að gefa sér
góðan tíma við nýjar lagasetningar
þannig að þingnefndir fengju svig-
rúm tfl að vinna úr frumvörpum frá
ríkisvaldinu og einstökum þing-
mönnum. Þá væri það verðugt verk
fyrir þingið og einstök ráðimeyti að
hefja róttæka grisjun laga. Ekki
þyrfti einungis að fella niður lög
sem orðin væru úrelt heldur einnig
að losa þjóðina við lagaboð sem
gerðu tilveru hennar flóknari og
óþjálli en nauösyn bæri til. -SÁ