Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.1997, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.1997, Blaðsíða 28
gsonn Vignir Jóhannsson viö eitt verka sinna. Innblástur sóttur í frumöflin í Sparisjóði Reykjavíkur og nágrennis við Álfabakka 14, í Mjóddinni eru um þessar mund- ir sýnd verk eftir Vigni Jó- hannsson. Vignir fæddist á Ak- ureyri upp úr miðri öldinni. Eft- ir nám hér heima hóf hann nám í Rhode Island School of Design og lauk mastersgráðu þar árið 1981. Vignir var síðan búsettur í Bandaríkjunum þar sem hann hélt sýningar í mörgum virtum sýningarsölum en á síðasta ári flutti hann heim aftur. Sýningar Myndsköpun Vignis einkenn- ist af fjölbreytileik í efnistökum og útfærslu. Hann sækir inn- blástiu' sinn í frumöflin og bar- áttu mannsins við þau ásamt jafnvægisleit. Áður fyrr börðust kraftar hver við annan í mynd- um hans en nú vinna þeir sam- an í leit sinni að tærum sam- hljómi. Vignir hélt síðast einkasýn- ingu sína í fyrra í Gallerí Borg. Nefndist hún Land míns föður. Verk eftir Vigni eru í eigu ótal safna, stofnana og einstaklinga viðs vegar um Bandaríkin, Evr- ópu og Asíu. Ólafía Hrönn Jónsdóttir og Sig- rún Edda Björnsdóttir í hlutverk- um sínum. Kennarar óskast Þjóðleikhúsið sýnir í kvöld á Stóra sviðinu Kennarar óskast sem er nýjasta leikrit Ólafs Hauks Símonarsonar. Um er að ræða dramatískt verk með hnyttnum texta og skrautlegum persónum. í leikritinu er fyrst og fremst fjallað um fólk í litlu samfélagi úti á landi. Ákveðnir atburðir koma upp á yfirborðið þegar fólk að sunnan kemur til að kenna i skólanum. Þeir sem fyrir eru í plássinu þurfa þar af leiðandi að endurmeta stöðu sína. Ólafur fjaUar hér um fólk og viðbrögð þess við því sem upp kemur í verkinu. Leikhús Leikarar í Kennurum óskast eru Sigrún Edda Bjömsdóttir, Þröstur Leó Gunnarsson, Ólafia Hrönn Jónsdóttir, Öm Ámason, Hjálmar Hjálmarsson, Gunnar Eyjólfsson og Harpa Arnardótt- ir. Leikstjóri er Þórhallur Sig- urðsson. Um 500 km suður af landinu er kyrrstæð 1037 mb hæð. Milli Labrador og Grænlands er víðáttu- mikil og djúp lægð sem hreyfist lít- ið. Veðrið í dag I dag verður suðvestan- og vestan- átt, gola eða kaldi allra nyrst en annars hæg. Á Vesturlandi verður skýjað, sums staðar dálítil súld og hiti 2 til 7 stig. Annars verður bjart- viðri og hiti 0 til 4 stig. Á höfuðborgarsvæðinu verður hæg, suðlæg átt og dálítil súld af og til. Hiti 3 til 5 stig. Sólarlag í Reykjavík: 15.47 Sólarupprás á morgun: 11.16 Sfðdegisflóð í Reykjavík: 00.48 Árdegisflóð á morgun: 00.48 Veðrið kl. 6 í morgun: Akureyri léttskýjað 4 Akurnes heiðskírt 3 Bergstaðir úrkoma í grennd 5 Bolungarvík rigning 6 Egilsstaðir skýjað 1 Keflavíkurflugv. skýjað 4 Kirkjubkl. léttskýjað 5 Raufarhöfn alskýjað 3 Reykjavíit alskýjað 4 Stórhöfói léttskýjað 3 Helsinki snjókoma -6 Kaupmannah. snjókoma -4 Ósló léttskýjað - -10 Stokkhólmur léttskýjaö - -10 Þórshöfn skýjað 3 Amsterdam þokumóða - -13 Barcelona rigning 6 Chicago þokuruóningur 3 Frankfurt snjók. á síð.kls. - -13 Glasgow snjókoma -1 Hamborg heiðskírt - -17 London léttskýjaó -5 Madrid Malaga léttskýjað 8 Mallorca súld á síð.kls. 11 París þokumóða -7 Róm léttskýjað 12 Valencia rigning 7 New York alskýjaö -1 Orlando léttskýjaö 19 Nuuk skýjað 3 Vín þokumóða -8 Washington Winnipeg heiðskírt -7 Myndgáta Berjast um á hæl og hnakka. , - A4 SBM YERÐUt? 'A <JNDAN / á'íi FÖr/'s/ VÍNN<JR1£> Myndgátan hér aö ofan lýsir oröasambandi. FIMMTUDAGUR 2. JANÚAR 1997 Mel Gibson í hlutverki auðkýf- ingsins sem verður fyrir því aö syni hans er rænt. Lausnargjaldið í Lausnargjaldið sem Sam-bíó- in sýna leikur Mel Gibson, Tom Mullen, ríkan kaupsýslumann sem vanur er að stjóma eigin við- skiptasamningum og þykir harð- ur í hom að taka. Honum hefúr gengið vel og er ásamt eiginkonu og syni dæmi um fjölskyldu sem hefur allt sem hugurinn gimist. Öll velgengni verður þó lítils virði þegar syni hans er rænt og lausnargjalds krafist. í stað þess að fara eftir leiðbeiningum ræn- ingjans fer hann til lögreglunnar sem reynir björgun sem mistekst. Þegar svo er að allir vita hvað um er að vera tekur Tom til eigin ráða. Kvikmyndir Auk Mels Gibsons leika í myndinni Rene Russo, sem leikur eiginkonu hans, Gary Sinese, Del- roy Lindo og Lili Taylor. í hlut- verki sonarins er Brawley Nolte sem er sonur Nicks Nolte og þyk- ir hann standa sig sérstaklega vel. Leikstjóri er Ron Howard sem siðast gerði Apollo 13. Nýjar myndir: Háskólabió:Dragonheart Laugarásbíó: Jólahasar Kringlubíó: Lausnargjaldið Saga-bíó: Saga af morðingja Bíóhöllin: Jack Bíóborgin: Hringjarinn í Notre Dame Regnboginn: Svanaprinsessan Stjörnubíó: Matthildur Krossgáta T~ T~ T~ r 8 9 1 16 i TT mmm JT wmm 18 i Vi J 7U~ Lárétt: 1 borgun, 6 leit, 8 væta, 9 óð, 10 gæta, 11 hlákan, 13 hús, 15 band- ingja, 17 ákærir, 19 stök, 20 nýlega. Lóðrétt: 1 mont, 2 jórtur, 3 mjaka, 4 skrá, 5 dolluna, 6 slaga, 7 keraldið, 12 niður, 14 gubbi, 16 beita, 17 umdæmisstafir, 18 varúð. Lausn á síðustu krossgátu: Lárétt: 1 blökk, 6 þó, 8 lýti, 9 rás, 10 ýsu, 11 Móri, 13 aflagar, 16 næ, 17 grami, 18 trúan, 20 ið, 21 fall, 22 ara. Lóðrétt: blýant, 2 lýs, 3 ötul, 4 kimar, 5 krógana, 6 þá, 7 ósi, 12 ram- ir, 14 færa, 15 riða, 17 gúl, 19 al. Á NÆSTA SÖLUSTAÐ EÐA í ÁSKRIFT í SÍMA 550 5752

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.