Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.1997, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.1997, Blaðsíða 5
FIMMTUDAGUR 2. JANÚAR 1997 5 Fréttir Vangaveltur um hver næstu skref verða tekin í málarekstri Sophiu Hansen: Ráöuneyti biður um sjálf- stætt mat frá Tyrklandi - síðasti dómur vék sér undan að taka mið af umgengnisbrotum en vísaði til vilja dætranna Utanríkisráðuneytið mun á næstu dögum fá „sjálfstætt" lögfræðilegt mat frá tyrkneskum lögfræðingi vegna málareksturs Sophiu Hansen í kjölfar dóms áfrýjunarréttar í Ankara sem var óhagstæður henni. Athygli vekur að í dóminum vikur meirihluti dómaranna sér undan því að taka afstöðu til umgengnisréttar- brota Halims A1 en vísa til þess að þau atriði geti hins vegar fengið úr- lausn í refsimáli - á öðrum vettvangi í réttarkerfinu. Dómararnir taka síð- an mið af vilja dætranna sem lýstu því yfrr í réttarhaldi í undirrétti þann 13. júní að þær vildu vera hjá fóður sínum. Samkvæmt dómi áfrýjunarréttar- ins tók meirihlutinn ekki mið af þvi að dætumar em búnar að vera nán- ast alveg aðskildar frá móður sinni í tæp 5 ár og þannig hafi fóður tekist að beita áhrifum og valdi sínu gagn- vart þeim. Dómurinn staðfesti niðurstöðu héraðsdóms frá því í sumar um for- sjá fóðurins en þar kom m.a. fram að bömin séu komin yfír það skeið að þurfa á móðurumhyggju að halda. Til að fnllnægja þörfum móður gagn- vart börnum sínum var hins vegar í undirréttardóminum kveðið á um tímabundna umgengni hennar við dætur sínar í júlí og ágúst. Ekki ligg- ur fyrir hvort sú niðurstaða á að koma til framkvæmda á sumri kom- anda eða hvort eldri úrskurður, sem kvað á um helgarumgengni mæðgn- anna, sem reyndar hefur verið þver- brotinn, eigi að standa. Minnihluti dómsins vildi að móð- irin hefði forsjá yflr dætrum sínum. Þeir fullyrtu í sératkvæði sínu að niðurstaða þeirra byggðist ekki síst á því að faðirinn hefði síendurtekið látið undir höfuð leggjast að leyfa dætrunum að umgangast móður sína. Varðandi framhald málsins hefur komið til greina af hálfu Hasips Ka- plans, lögmanns Sophiu, að telja ein- hvern eða einhverja dómara áfrýjun- arréttarins á að endurskoða niður- stöðu sína. Einnig hefur verið rætt um að áfrýja málinu til 45 manna fullskipaðs Hæstaréttar Tyrklands. í þriðja lagi hefur lögmaðurinn rætt um að vísa málinu til mannréttinda- dómstóls Evrópu. -Ótt Hlutabréf á hundraðföldu nafnverði? Markaðsverð Sam- herja 6-8 milljarðar - segir forstöðumaður verðbréfamarkaðar Guðrún Þóra, umsjónarmaður ferðamálabrautar, og Bryndís Bjarnadóttir, ráöskona skólans, sem einnig starfar við kennslu, ásamt nemendum. DV-mynd Örn Ferðaþjónustubraut í Hólaskóla DV, Akureyri: „Það er einfaldur útreikningur að ef maður ber Samherja saman við önnur félög hlýtur markaðsverð fyr- irtækisins að verða á bilinu 6-8 milljarðar, út frá kvótaeign og svo framvegis," segir Andri Teitsson, forstöðumaður Verðbréfamarkaðar íslandsbanka á Akureyri, en hann hefur kynnt sér hugsanlegt sölu- gengi hlutabréfa i útgerðarfyrirtæk- inu Samherja hf. á Akureyri. Eig- endur Samherja hafa boðað að eftir samruna Samherja og nokkurra dótturfyrirtækja í eitt félag sé stefnt að því að hlutafé í hinu sameinaða fyrirtæki verði boðið á hlutabréfa- markaði fyrri hluta ársins 1997. Andri segir að í sinum tölum taki hann ekki tiliit til eignar Samherja í erlendum fyrirtækjum. „Hlutaféð í fyrirtækinu er ekki nema 64-65 milljónir króna þannig að miðað við það verður sölugengi hlutabréfanna 100, nema menn ætli að gefa út jöfn- unarbréf sem ég hef ekki hugmynd um. Það má segja að þessi útreikn- ingur fylgi reglu sem farið er eftir um sölu á hlutabréfum í skyldum fyrirtækjum. Ef upplausnarverð fé- laganna er reiknað, hvað fengist fyr- ir kvótann, skip, fasteignir o.þ.h. og skuldir borgaðar, þá sést að félögin eru að seljast frá 50-100% af þessu mati. Þau félög sem eru með góða afkomu og standa sig vel eru nær hundrað prósentunum og það er í rauninni hægt að setja Samherja inn í það litróf sem færir manni út- komuna 7-8 milljaröa." Samkvæmt þínum útreikningum þarf ekki að selja mikið af bréfum í fyrirtækinu til að fá inn í það millj- arða í hlutafé? „Nei, einmitt. Eigendumir gætu t.d. selt fyrir um 2 milljarða og átt samt sem áður um 80% í félaginu eða eitthvað í þeim dúr. En vissu- lega kæmi það mér ekki á óvart þótt þeir gæfu út jöfnunarhlutabréf til að fá þetta eitthvað niður, það fæst ekki hver sem er til að kaupa hluta- bréf á genginu 100 þótt í þessu til- felli gæti það verið sanngjarnt." „Ég er búinn að fara i gegnum kvótann á öllum skipunum og bera þetta samaft við öll sjávarútvegsfyr- irtækin sem eru á markaðnum," segir Andri. -gk DV, Fljótnm: í haust hófst kennsla á ferðaþjón- ustubraut við bændaskólann á Hól- um í Hjaltadal. Markmið með þessu námi er að mennta fólk til starfa við ferðaþjónustu í dreifbýli í anda sjálfbærrar ferðamennsku. Stefnt er að því að nemendur geti að loknu námi rekið fyrirtæki á sviði ferðaþjónustu. Jafnframt mið- ast námið við að nemendur geti haft frumkvæði um stofnun nýrra fyrir- tækja og tekið virkan þátt í þróun ferðamála i dreifbýli. Sex nemendur stunda nám á þessari nýju náms- braut. I lok kennslunnar fyrir jólin út- bjuggu nemendumir veisluborð og buðu heimafólki og nokkrum fleiri gestum til hádegisverðar. Voru þar veitingar mjög smekklega og marg- breytilega fram bornar af væntan- legu ferðaþjónustufólki. Gestir voru sammála um að þama hefði verið myndarlega og fagmannlega að verki staðið. Áætlað er að nemamir á ferða- þjónustubrautinni stundi nám á Hólum til vors að því loknu tekur við verknám hjá ferðaþjónustufyrir- tækjum í 12-15 vikur. Kennslufyrir- komulag er þannig að bóknám skiptist í eftirtalda þætti, gmnn- þekking, gestamóttaka, aðstaða og afþreying fyrir ferðamenn, rekstur, fyrirtækis, land og þjóð og lokaverk- efni. Fyrirlestrum er stillt í hóf en áhersla er lögð á sjálfstæða vinnu nemenda við að leysa margvisleg verkefni tengd ferðaþjónustu. Guð- rún Þóra Gunnarsdóttir og Helgi Thorarensen veita ferðaþjónustu- brautinni forstöðu. -ÖÞ Tilgangurinn með notkun nikótínlyfja er að draga úr fráhvarfseinkennum þegar reykingum er hætt. Lyfið má því aðeins nota að reykingum sé algjörlega hætt. Nicorette® tyggigúmmí inni- heldur nikótín sem losnar smám saman úr tyggigúmmíinu þegar tuggið er. Tyggja skal hægt og með hléum. Nicorette® tyggigúmmí er til í 2 mg og 4 mg styrkleika og í þremur mis- munandi bragðtegundum. Styrkleiki og meðferðarlengd er einstaklingsbundin. Algengur dagskammtur er 8-16 stk. Nikótínið í tyggigúmmíinu getur valdið aukaverkunum eins og t.d. svima, höfuðverk, hiksta, ertingu í munni, koki, vélinda og meltingaróþægindum. Ekki er ráðlegt að nota tyggigúmmíið lengur en 1 ár. Nicorette® forðaplástur inniheldur nikótín sem frásogast með jöfhum hraða úr forðaplástrinum í a.m.k. 16 klst. Algengustu aukaverkanir Nicorette® forðaplásturs eru svimi, höfuðverkur, verldr í liðum og vöðvum, einkenni sem líkjast inflúensu, kláði og útbrot undan plástrinum, aukin svitamyndun, svefntruflanir, óróleiki og depurð. Æskilegt er að hefja meðferð með Nicorette® forðaplástri með sterkasta plástrinum. Einn plástur er settur á að morgni og tekinn af fyrir svefn. Setja skal plásturinn á heila, hreina, hárlausa og þurra húð, á brjósti, hrygg, upphandlegg eða mjöðm og skipta um plástursstað á hverjum degi. Styrkleikinn á plástrinum er síðan minnkaður smám saman og fer það eftir nikótínþörf við- komandi á hverjum tíma. Nikótín getur valdið bráðum eitrunum hjá bömum og er efhið því alls ekki ætlað bömum. Gæta skal varúðar hjá þeim sem hafa hjarta- og æðasjúkdóma. Offískar konur og konur með barn á brjósti eiga ekki að nota lyfið. Lesið vandlega leiðbeiningar á fylgiseðli sem fylgir hverri pakkningu lyfsins. Framleiðandi: Pharmacia & Upjohn, Svíþjóð. Innflytjandi: Phamiaco hf., Hörgatúni 2, Garðabæ. NIODRETTE — *—-----------

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.