Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.1997, Side 5
FIMMTUDAGUR 2. JANÚAR 1997
5
Fréttir
Vangaveltur um hver næstu skref verða tekin í málarekstri Sophiu Hansen:
Ráöuneyti biður um sjálf-
stætt mat frá Tyrklandi
- síðasti dómur vék sér undan að taka mið af umgengnisbrotum en vísaði til vilja dætranna
Utanríkisráðuneytið mun á næstu
dögum fá „sjálfstætt" lögfræðilegt
mat frá tyrkneskum lögfræðingi
vegna málareksturs Sophiu Hansen í
kjölfar dóms áfrýjunarréttar í
Ankara sem var óhagstæður henni.
Athygli vekur að í dóminum vikur
meirihluti dómaranna sér undan því
að taka afstöðu til umgengnisréttar-
brota Halims A1 en vísa til þess að
þau atriði geti hins vegar fengið úr-
lausn í refsimáli - á öðrum vettvangi
í réttarkerfinu. Dómararnir taka síð-
an mið af vilja dætranna sem lýstu
því yfrr í réttarhaldi í undirrétti
þann 13. júní að þær vildu vera hjá
fóður sínum.
Samkvæmt dómi áfrýjunarréttar-
ins tók meirihlutinn ekki mið af þvi
að dætumar em búnar að vera nán-
ast alveg aðskildar frá móður sinni í
tæp 5 ár og þannig hafi fóður tekist
að beita áhrifum og valdi sínu gagn-
vart þeim.
Dómurinn staðfesti niðurstöðu
héraðsdóms frá því í sumar um for-
sjá fóðurins en þar kom m.a. fram að
bömin séu komin yfír það skeið að
þurfa á móðurumhyggju að halda.
Til að fnllnægja þörfum móður gagn-
vart börnum sínum var hins vegar í
undirréttardóminum kveðið á um
tímabundna umgengni hennar við
dætur sínar í júlí og ágúst. Ekki ligg-
ur fyrir hvort sú niðurstaða á að
koma til framkvæmda á sumri kom-
anda eða hvort eldri úrskurður, sem
kvað á um helgarumgengni mæðgn-
anna, sem reyndar hefur verið þver-
brotinn, eigi að standa.
Minnihluti dómsins vildi að móð-
irin hefði forsjá yflr dætrum sínum.
Þeir fullyrtu í sératkvæði sínu að
niðurstaða þeirra byggðist ekki síst
á því að faðirinn hefði síendurtekið
látið undir höfuð leggjast að leyfa
dætrunum að umgangast móður
sína.
Varðandi framhald málsins hefur
komið til greina af hálfu Hasips Ka-
plans, lögmanns Sophiu, að telja ein-
hvern eða einhverja dómara áfrýjun-
arréttarins á að endurskoða niður-
stöðu sína. Einnig hefur verið rætt
um að áfrýja málinu til 45 manna
fullskipaðs Hæstaréttar Tyrklands. í
þriðja lagi hefur lögmaðurinn rætt
um að vísa málinu til mannréttinda-
dómstóls Evrópu.
-Ótt
Hlutabréf á hundraðföldu nafnverði?
Markaðsverð Sam-
herja 6-8 milljarðar
- segir forstöðumaður verðbréfamarkaðar
Guðrún Þóra, umsjónarmaður ferðamálabrautar, og Bryndís Bjarnadóttir, ráöskona skólans, sem einnig starfar við
kennslu, ásamt nemendum. DV-mynd Örn
Ferðaþjónustubraut í Hólaskóla
DV, Akureyri:
„Það er einfaldur útreikningur að
ef maður ber Samherja saman við
önnur félög hlýtur markaðsverð fyr-
irtækisins að verða á bilinu 6-8
milljarðar, út frá kvótaeign og svo
framvegis," segir Andri Teitsson,
forstöðumaður Verðbréfamarkaðar
íslandsbanka á Akureyri, en hann
hefur kynnt sér hugsanlegt sölu-
gengi hlutabréfa i útgerðarfyrirtæk-
inu Samherja hf. á Akureyri. Eig-
endur Samherja hafa boðað að eftir
samruna Samherja og nokkurra
dótturfyrirtækja í eitt félag sé stefnt
að því að hlutafé í hinu sameinaða
fyrirtæki verði boðið á hlutabréfa-
markaði fyrri hluta ársins 1997.
Andri segir að í sinum tölum taki
hann ekki tiliit til eignar Samherja
í erlendum fyrirtækjum. „Hlutaféð í
fyrirtækinu er ekki nema 64-65
milljónir króna þannig að miðað við
það verður sölugengi hlutabréfanna
100, nema menn ætli að gefa út jöfn-
unarbréf sem ég hef ekki hugmynd
um. Það má segja að þessi útreikn-
ingur fylgi reglu sem farið er eftir
um sölu á hlutabréfum í skyldum
fyrirtækjum. Ef upplausnarverð fé-
laganna er reiknað, hvað fengist fyr-
ir kvótann, skip, fasteignir o.þ.h. og
skuldir borgaðar, þá sést að félögin
eru að seljast frá 50-100% af þessu
mati. Þau félög sem eru með góða
afkomu og standa sig vel eru nær
hundrað prósentunum og það er í
rauninni hægt að setja Samherja
inn í það litróf sem færir manni út-
komuna 7-8 milljaröa."
Samkvæmt þínum útreikningum
þarf ekki að selja mikið af bréfum í
fyrirtækinu til að fá inn í það millj-
arða í hlutafé?
„Nei, einmitt. Eigendumir gætu
t.d. selt fyrir um 2 milljarða og átt
samt sem áður um 80% í félaginu
eða eitthvað í þeim dúr. En vissu-
lega kæmi það mér ekki á óvart þótt
þeir gæfu út jöfnunarhlutabréf til
að fá þetta eitthvað niður, það fæst
ekki hver sem er til að kaupa hluta-
bréf á genginu 100 þótt í þessu til-
felli gæti það verið sanngjarnt."
„Ég er búinn að fara i gegnum
kvótann á öllum skipunum og bera
þetta samaft við öll sjávarútvegsfyr-
irtækin sem eru á markaðnum,"
segir Andri. -gk
DV, Fljótnm:
í haust hófst kennsla á ferðaþjón-
ustubraut við bændaskólann á Hól-
um í Hjaltadal. Markmið með þessu
námi er að mennta fólk til starfa við
ferðaþjónustu í dreifbýli í anda
sjálfbærrar ferðamennsku.
Stefnt er að því að nemendur geti
að loknu námi rekið fyrirtæki á
sviði ferðaþjónustu. Jafnframt mið-
ast námið við að nemendur geti haft
frumkvæði um stofnun nýrra fyrir-
tækja og tekið virkan þátt í þróun
ferðamála i dreifbýli. Sex nemendur
stunda nám á þessari nýju náms-
braut.
I lok kennslunnar fyrir jólin út-
bjuggu nemendumir veisluborð og
buðu heimafólki og nokkrum fleiri
gestum til hádegisverðar. Voru þar
veitingar mjög smekklega og marg-
breytilega fram bornar af væntan-
legu ferðaþjónustufólki. Gestir voru
sammála um að þama hefði verið
myndarlega og fagmannlega að
verki staðið.
Áætlað er að nemamir á ferða-
þjónustubrautinni stundi nám á
Hólum til vors að því loknu tekur
við verknám hjá ferðaþjónustufyrir-
tækjum í 12-15 vikur. Kennslufyrir-
komulag er þannig að bóknám
skiptist í eftirtalda þætti, gmnn-
þekking, gestamóttaka, aðstaða og
afþreying fyrir ferðamenn, rekstur,
fyrirtækis, land og þjóð og lokaverk-
efni. Fyrirlestrum er stillt í hóf en
áhersla er lögð á sjálfstæða vinnu
nemenda við að leysa margvisleg
verkefni tengd ferðaþjónustu. Guð-
rún Þóra Gunnarsdóttir og Helgi
Thorarensen veita ferðaþjónustu-
brautinni forstöðu. -ÖÞ
Tilgangurinn með notkun nikótínlyfja
er að draga úr fráhvarfseinkennum
þegar reykingum er hætt. Lyfið má því
aðeins nota að reykingum sé algjörlega
hætt. Nicorette® tyggigúmmí inni-
heldur nikótín sem losnar smám saman
úr tyggigúmmíinu þegar tuggið er.
Tyggja skal hægt og með hléum.
Nicorette® tyggigúmmí er til í 2 mg
og 4 mg styrkleika og í þremur mis-
munandi bragðtegundum. Styrkleiki og
meðferðarlengd er einstaklingsbundin.
Algengur dagskammtur er 8-16 stk.
Nikótínið í tyggigúmmíinu getur valdið
aukaverkunum eins og t.d. svima, höfuðverk, hiksta, ertingu í munni,
koki, vélinda og meltingaróþægindum. Ekki er ráðlegt að nota
tyggigúmmíið lengur en 1 ár.
Nicorette® forðaplástur inniheldur nikótín sem frásogast með
jöfhum hraða úr forðaplástrinum í a.m.k. 16 klst. Algengustu
aukaverkanir Nicorette® forðaplásturs eru svimi, höfuðverkur,
verldr í liðum og vöðvum, einkenni sem líkjast inflúensu, kláði og
útbrot undan plástrinum, aukin svitamyndun, svefntruflanir, óróleiki
og depurð. Æskilegt er að hefja meðferð með Nicorette®
forðaplástri með sterkasta plástrinum. Einn plástur er settur á að
morgni og tekinn af fyrir svefn. Setja skal plásturinn á heila, hreina,
hárlausa og þurra húð, á brjósti, hrygg, upphandlegg eða mjöðm og
skipta um plástursstað á hverjum degi. Styrkleikinn á plástrinum er
síðan minnkaður smám saman og fer það eftir nikótínþörf við-
komandi á hverjum tíma. Nikótín getur valdið bráðum eitrunum hjá
bömum og er efhið því alls ekki
ætlað bömum. Gæta skal varúðar
hjá þeim sem hafa hjarta- og
æðasjúkdóma. Offískar konur og
konur með barn á brjósti eiga
ekki að nota lyfið. Lesið vandlega
leiðbeiningar á fylgiseðli sem
fylgir hverri pakkningu lyfsins.
Framleiðandi:
Pharmacia & Upjohn, Svíþjóð.
Innflytjandi:
Phamiaco hf., Hörgatúni 2,
Garðabæ.
NIODRETTE
—
*—-----------