Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.1997, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.1997, Blaðsíða 12
12 FIMMTUDAGUR 2. JANÚAR 1997 Spurningin Strengdir þú áramótaheit? Sigríður Bima Valsdóttir nemi: Nei, ég stend hvort sem er aldrei við það. Guðlaugur Ólafsson nemi: Nei, það geri ég ekki. Kristín Björk Bjamadóttir nemi: Já, ég ætla að hætta að reykja. Ágúst Friðriksson þrívíddar- hönnuður: Nei, til hvers? Lesendur Innlend verslun og yfirgangur stjórnvalda Neysluvörur á lægsta fáanlega verði samkeppnismarkaöarins, takk! Gísli Sigurðsson skrifar: Við íslendingar skerum okkur oft úr öðrum þjóðum þegar verslun og viðskipti eru annars vegar. Flestar nágrannaþjóðir okkar hafa sífellt haldið uppi merki frjálsrar verslun- ar í flestum greinum (þ.m.t. áfengis- sölu ef einhver lesenda þessara lína hefur ætlað að staldra við þann vöruflokk) og talið að efling inn- lendrar verslunar þjóni hagsmun- um heildarinnar best. Það olli því ekki stríðsátökum þótt Eftirlits- stofnun EFTA-ríkjanna ítrekaði frelsisákvæði í verslunarháttum ríkjanna sem falla undir eftirlit stofnunarinnar. Það varð hins vegar uppi fótur og fit þegar þessi sömu frelsisákvæði átti að lögleiða hér á landi. Ekki hjá aðilum verslunaminnar heldur rík- isvaldinu, sem vildi halda sínum hlut, hvað sem varðaði hagsmuni almennings. íslenskir kaupmenn og dreifingaraðilar erlendrar vöra hér á landi vora allt í einu komnir í verulega klemmu gagnvart erlend- um viðskiptamönnum sínum sem töldu ísland hafa sömu skyldum að gegna og önnur lýðfrjáls ríki í Evr- ópu. Þannig lögðu íslensk stjómvöld ólögmæt gjöld á innfluttar vörar, og sem leiddi til enn hærra vöraverðs hér innanlands en áður var. Afleið- ingamar bitnuðu ekki eingöngu á almenningi, hinum venjulega neyt- anda, heldur líka á innflytjendum, sem sumir hverjir urðu gjaldþrota og forsvarsmenn nokkurra fyrir- tækja hlutu dóma eins og ffægt er orðið - af endemum. Nú er svo komið að íslenska rík- ið hefur hlotið ákúrar og raunar dóma Eftirlitsstofnunar EFTA fyrir að fara offari og framkvæma lög- leysu gagnvart innfluttum vöram frá Evrópu. Svo langt hefur þetta gengið að nýlega hefur Félag ís- lenskra stórkaupmanna gert sér- staka samþykkt og beint þeim til- mælum til íslenskra stjómvalda að láta að fullu og öllu af yfirgangi sín- um gagnvart innlendri verslun og býður stjórnvöldum samvinnu um lausn allra deilumála sem enn era óleyst á þessu sviði. - Við ættum nú ekki annað eftir en að lenda á saka- mannabekk með þjóðum sem hlíta ekki lögum um frelsi og mannrétt- indi, svo mjög sem við höfum átalið þær þjóðir. Það era nefnilega líka mannréttindi að geta keypt neyslu- vörur á lægsta fáanlega verði sam- keppnismarkaðarins, ekki á lægsta lögþvingaða ríkisverðinu. Ástþór hrærir upp í kerfinu Bjöm Ámason skrifar: Hvað sem um Ástþór Magnússon, fyrrverandi frambjóöanda til for- seta og forsvarsmann Friðar 2000, má segja er það staðreynd að hann hefur hrært duglega upp í íslenska stjómkerfinu. Með framboði sínu til forsetaembættisins, sem hann að vísu átti ekki möguleika á að ná (og hann viðurkenndi strax í byrjun kosningabaráttunnar), skaut hann öðrum frambjóðendum ref fyrir rass. Þrír þeirra era enn skuldum vafnir og einn búinn að stofna op- inn bankareikning sér til handa en Ástþór greitt skuldir framboðs síns að fullu. Og nú hefur Ástþór bætt um bet- ur í uppróti sínu í kerfínu og kært Sparisjóð Reykjavíkur og nágrennis til bankaeftirlitsins fyrir falskan áburð á sig sem vanskilamann. Hann segir bankana að verða spila- víti hinna ríku gagnstætt því sem þeir eigi að vera - stuðningur við fólkið í landinu. í greinargerð frá sparisjóðsstjóra einum um það sem hann nefhir „Rangfærslur Ástþórs Magnússonar" fer lítið fyrir rök- semdafærslu og er hvergi komið inn á vanskilaskuldir Ástþórs. Eina bitastæða leiðréttingin er sú að nú- verandi stjómarformaður SPRON hafi gegnt því starfi sl. 20 ár! - Meira var það nú ekki hjá spari- sjóðsstjóranum. Sé þörf á verulegum „kerfis- skelfi“ á okkar dögum er Ástþór Magnússon jafngóður og hver annar í því hlutverki. Hann hefur - þegar þetta er ritað - verið tilnefndur af einni útvarpsstöðinni, ásamt öör- um, sem maður ársins, hvort sem hann svo hafnar þar eða ekki. Hans verður þó áreiðanlega minnst um ókomin ár sem mannsins sem kom, sá og sprengdi glufu í gljáfægðan kerfismúrinn. Engar fiskafurðir fullunnar á íslandi Ragnar skrifar: Þar sem enn hefur ekki tekist að fá upplýsingar, að því er mér sýnist, um hvar eða hvort íslenskur fisk- iðnaður fullvinni fiskafurðir þykist ég fullviss um að svo sé ekki. Að vísu hefur fréttum skotið upp koll- inum við og við að nú sé þessi eða hinn framleiðandinn aö senda frá sér fullunnar fiskafurðir. Þær frétt- ir hafa þó allar verið á sandi byggð- ar. Eins og t.d. fréttin um að frysti- hús á Dalvík og í Hrísey hefðu gert samning um reynslusölu á fullunn- um fiskafurðum til Frakklands. - Einber blekking. Þótt fiskflök séu skorin í bita og „brauðuð" - svo heimskulega sem það er orðað - er hér ekki um neina fullvinnslu að ræða og þaðan af síð- ur að tilbúnir fiskréttir séu fluttir út héðan á erlendan markað. Hinn blákaldi veruleiki er sá aö í vinnslu sjávarafurða hér á landi hefur nánast ekkert breyst frá árun- um fyrir 1950 þegar ég vann sem strákur í frystihúsi. Þá var t.d. ýsan einfaldlega flökuð og roðflett, flökin skorin í stykki og þeim pakkað í svonefndar 2 punda pakkningar og síðan fryst. - Svona er vinnslan enn þann dag í dag í aðalatriðum. Fisk- tegundum hefur eitthvaö fjölgað en það er allt og sumt! Vísitala hluta- bréfanna Axel skrifar: Er verið að blekkja almenning með hinni „stöðugu" visitölu hlutabréfa á verðbréfamarkað- inum? Nú er að fjara út sá ávinn- ingur sem fólk hefur af því að kaupa hlutabréf til skattafrá- drátts. Ógnarkraftur var í aug- lýsingum frá verðbréfamörkuð- um um að kaupa bréf fyrir ára- mótin. Og sum fyrirtæki auglýsa mikil hlutabréfaútboð. Ekki er þetta nógu traustvekjandi fyrir almenning. Fróðlegt verður þó að fylgjast meö því hvemig al- menningur lætur leiða sig nú. Órói á vinnumarkaði eykur ekki líkur á hækkun hlutabréfageng- is. Prestar á Þing- völlum - hringn- um lokað Svava skrifar: Mikill sirkus hafa prestaskipt- in á Þingvöllum orðið. Og það á stað sem einungis er messað upp á punt. Þarna gæti allt eins ver- ið prestur rétt á meðan opinber- ar heimsóknir erlendra fyrir- manna standa sem hæst. Þessi hringlandaháttur með prestana fram og til bíika líkist mest gríni úr gömlum myndum: Séra Heim- ir var inni, hann út og settur í Útvarpshúsið. Séra Hanna María sett inn og út aftur. Séra Heimir inn aftur sem gamall Ámesing- ur. Nú er að sjá hvað hann end- ist eystra. Sumir segja að þess verði ekki langt að bíða að hann víki öðru sinni. Þá verði sett inn séra Auður Eir Vilhjálmsdóttir. Og þá sé hringnum lokað og all- ir sáttir, að kaila. Um sinn a.m.k. Verslunarmenn víta stjórnvöld Halldór Einarsson hringdi: Mér þykir bera nýrra við þeg- ar Landssamband verslunar- manna sýnir stjómvöldum tenn- umar. Þar á bæ hefur ekki alltaf verið harkan í garð hægri stjórn- ar. En nú er öldin önnur. For- maður LÍV, hin skelegga Ingi- björg Guðmundsdóttir, telur rík- isstjórnina hafa spilað ótrúlega illa í lífeyrismálinu, fræga að endemum, fyrir hönd ríkisstarfs- manna. Hún krefst þess að allir sifji við sama borð í lífeyrismál- um og skal undir það tekið. En hún mætti taka undir kröfuna um eftirlaun 65 ára á fullum rétt- indum - ekki 70 ára eins og nú, og er hrópandi skammsýni fyrir hönd skjólstæðinga. Gaui litli lofar góðu Sigursteinn hringdi: Mér finnst hafa ræst úr hon- um Gauja litla sem er í megrun- arþoli hjá Dagsljósi Sjónvarps- ins. Hann hrinur niöur um tugi kílóa en upphefst að sama skapi í framgöngu og er nú kominn í ffamvarðarsveit Dagsljóss þar sem hann spyr mann og annan, þ.á m. forsætisráðherra, spjörun- um úr. Gaui í gráum fotum og glettinn að vanda lofar góðu sem arftaki Loga ef hann er á forum. Gaui er sem sé í góðum málum. Til hamingju, Gaui, og Dagsljóss- þáttur sem er allt annar og betri í vetur en í fyrravetur. Verslanir og létt- vínssala Margeir skrifar: Brátt rennur sú stund upp að léttvin og öl verður selt í öllum stærri matarverslunum. Nú ættu kaupmenn að taka sig sam- an og láta gera eins konar tákn- rænt pláss í verslunum sinum þar sem víni veröur raðað. Þar gæti t.d. staðið: Hér verður vín- inu komið fyrir!

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.