Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1997, Qupperneq 9
ÞRIÐJUDAGUR 7. JANÚAR 1997
9
Breski auðjöfurinn Richard Branson:
Ætlar umhverfis
jörðina í loftbelg
DV
Margrét Dana-
drottning í 24
ára gömlum kjól
Ekki verður
annað sagt um
Margréti Þór-
hildi Dana-
drottningu en
hún sé nýtin
þegar fót eru
annars vegar.
Drottningin var
í 24 ára gömlum
kjól í nýárshófinu sem hún hélt
fyrir erlenda sendiherra í Kaup-
mannahöfn.
Kjóllinn var saumaður fyrir
drottningu fyrir opinbera heim-
sókn hennar til Svíþjóðar í janú-
ar 1973 en árið 1986 var svo saum-
aður við hann jakki með minka-
skinnsbryddingum. Kjóllinn hef-
ur verið mikið notaður alla tíð.
Danir með 60
prósent af vind-
myllumarkaði
Danskir vindmylluframleið-
endur gera það gott um þessar
mundir og hafa náð undir sig sí-
fellt stærri hluta heimsmarkað-
arins. Á nýliðnu ári voru 60 pró-
sent seldra vindmylla dönsk en
45 prósent á árinu 1995.
Velta dönsku vindmyllufyrir-
tækjanna vai- á fimmta tug millj-
arða íslenskra króna í fyrra.
Margar ástæðar eru fyrir vel-
gengni dönsku fyrirtækjanna en
ein er sú að helsti keppinautur
þeirra, bandarískt fyrirtæki,
varð gjaldþrota síðastliðið vor.
En þrátt fyrir góðæri hjá Dönum
hefur ekki orðið aukning á mark-
aðinum í heild.
Ástralir hafa los-
að sig við bann-
aðar byssur
Ástralir hafa skilað inn rúm-
lega 250 þúsund bönnuðum byss-
um í kjölfar fjöldamorðaima í
Port Arthur á Tasmaniu í apríl
þegar 35 voru skotnir til bana af
einum og sama manninum.
Stjómvöld greiða fyrir byss-
urnar og til þessa hafa um sem
svarar sex milljörðum króna ver-
ið greiddir út. Byssur af öllum
stærður og gerðum hafa verið af-
hentar yfirvöldum.
Byssueigendur efndu til mót-
mælafunda þegar samþykkt voril
lög sem bönnuðu nánast allar
gerðir af hálfsjálfvirkum byssum
en samkvæmt skoðanakönnun-
mn studdu nærri 90 prðsent þjóð-
arinnar herferðina gegn byssu-
eign í kjölfar fjöldamorðanna.
Rússlandsstjórn
hörð gegn
stækkun NATO
Boris Jeltsín
Rússlandsfor-
seti og aðrir
leiðtogar lands-
ins itrekuðu
eftir fund í gær
andstöðu sína
við áform Atl-
antshafsbanda-
lagsins (NATO)
um stækkun til austurs.
Jeltsín kvaddi Viktor Tsjerno-
myrdín forsætisráðherra,
Anatólí Tsjúbaís starfsmanna-
stjóra, utanríkisráðherra sinn og
öryggismálastjóra á sinn fund eft-
ir að talsmaður stjórnvalda hafði
upplýst að ekki hefðu nein tíð-
indi gerst á fundum með Kohl
Þýskalandskanslara um helgina.
Itar-Tass fréttastofan sagði að
leiðtogarnir hefðu rætt leiðir til
samstarfs við NATO en einnig
hvernig þeir ættu að bregðast við
ef bandalagið gerði alvöru úr því
að taka fyrrum bandamenn Sov-
étríkjanna í sínar raðir.
Reuter
Breski auðjöfurinn Richard Bran-
son hyggst í dag hefja ferð sína um-
hverfis hnöttinn í loftbelg. Áætlað
er að ferðin taki 2 til 3 vikur.
Branson ætlar að leggja í ferðina
frá Marokkó í risastórum loftbelg
sem í gær var tekinn úr geymslu í
Marrakesh. Samkvæmt veðurspá í
gær voru skilyrðin til ferðarinnar
þau bestu sem verið hafa síðastliðin
fimm ár.
Yfir 300 marokkóskir hermenn
aðstoðuðu í gær um 40 breska
tæknimenn við að búa loftbelginn
undir förina. Var loftbelgurinn fyllt-
ur af 30 þúsund rúmmetrum af hel-
Leiðtogar ísraela og Palestínu-
manna sátu stífa fundi með Denn-
is Ross, sendimanni bandarískra
stjórnvalda, fram á rauðanótt en
fréttir hermdu að samkomulag um
brottflutning ísraelskra hermanna
frá Vesturbakkabænum Hebron
væri svo gott sem í höfn.
Ross ræddi við Benjamin Net-
anyahu, forsætisráðherra ísraels, í
nótt til að skýra honum frá gangi
mála í viðræðum við Yasser Ara-
fat, forseta Palestínumanna, fyrr
um kvöldið.
„Þeir eru að ræða ýmsa þætti
Hebron samkomulagsins," sögðu
starfsmenn á skrifstofu Netanya-
hus. „Á þessu stigi er ekkert frek-
ar á dagskránni.“
Palestínumenn sögðu í gærkvöld
að hægt yrði að halda fund með
leiðtogunum tveimur innan fárra
íum og heitu lofti og mun hann
stíga upp í 10 þúsund metra hæð
yfír Atlasfjöllin, að því er Branson
greindi frá í gær.
Tveir aðstoðarmenn verða með
Branson um borð. Er þetta í annað
sinn sem hann reynir að komast í
loftbelg umhverfis jörðina en í fyrra
skiptið varð að hætta við ferðina
vegna slæms veðurs. Ákveðið var
að leggja upp í ferðina frá Marokkó
vegna hraðra og suðlægra vinda.
Hraðinn er nauðsynlegur þar sem
Branson ætlar að keppa við banda-
ríska loftbelgsfarann Steve Fosset
sem ætlar að leggja í sina heims-
klukkustunda. Þeir Netanyahu og
Arafat hittust á laun á laugardags-
kvöld.
ísraelska útvarpið sagði að
Yitzhak Mordechai varnarmála-
ráðherra hefði greint þingnefnd
frá því að gengið hefði verið frá
samkomulagi um Hebron en að-
eins væri eftir að undirrita það.
Palestínskir embættismenn hafa
sagt að ágreiningurinn sem hefur
tafið fyrir undirritun samkomu-
lags snúist ekki um Hebron heldur
um afhendingu lands í sveitahér-
uðum Vesturbakkans í hendur
Palestínumönnum, eins og kveðið
'er á um í samningum ísraels og
PLO sem þegar hafa verið gerðir.
Afhending meginhluta Hebron
hefur tafist í tfu mánuði vegna ör-
yggismála. Borgin er helgur staður
í augum bæði gyðinga og múslíma
og þar búa um 400 landnemar gyð-
reisu frá Sviss ásamt tveimur að-
stoðarmönnum. „Ég er meðvitaður
um samkeppnina en ég get fullviss-
að ykkur um að við verðum 1 til 2
dögum á undan Steve Fosset,“ sagði
Branson á fundi með fréttamönnum
í gær.
Ef vel tekst til mun loftbelgurinn
fljúga yfir Alsír, Líbýu, Egyptaland,
Sádi-Arabíu, íran, Afganistan, Pa-
kistan, Indland, Hong Kong, Japan,
Kyrrahaf, Ameríku og Atlantshaf
áður en lent verður í Engiandi.
Heildarkostnaður við ferðina
verður 150 til 200 milljónir íslenskra
króna. Reuter
inga og um 120 þúsund Palestínu-
menn.
Reuter
______________Útlönd
Kveðst hafa
brugðist kon-
ungdæminu
„Ég hef gert
ýmislegt rangt
og það hefur
yerið svo í lang-
an tíma. Ég hef
brugðist drottn-
ingunni, fjöl-
skyldu minni,
þar á meðal Vil-
hjálmi og
Harry, og Camillu,“ hefur breska
blaðið Mirror eftir Karli Breta-
prinsi og vitnar þá í vin hans.
Prinsinn segist jafnvel hafa
brugðist Díönu.
Vinur Karls, sem ekki er nafn-
greindur, segir að prinsinn ætli
aö snúa blaðinu við. „Það gerist
ekki á einni nóttu. En héðan í frá
ætlar Karl að einbeita sér að því
að vinna fyrir aðra, einkum kon-
ungsfjölskylduna.
Samkvæmt niðurstööum ný-
legrar skoðanakönnunar telja 46
prósent aðspurðra að Karl verði
góður konungur. 36 prósent telja
að hann verði lélegur konungur.
Grænlendingar
vilja fiskveiði-
fulltrúa i Brussel
Samtök grænlenskra útvegs-
manna vilja að Grænlandi fái
sérstakan sjávarútvegsmálafull-
trúa í Brussel. Samtökin segja
nauðsynlegt fyrir Grænlendinga
að þekkja til allra smáatriða í
fiskveiðistefnu Evrópusambands-
ins ætli þeir að gera sér vonir um
að geta haft áhrif á neikvæð áhrif
hennar.
Samkvæmt samkomulagi milli
Evrópusambandsins og Græn-
lands greiðir sambandið með
peningum fyrir fiskveiðiréttindi 1
grænlenskri landhelgi. í sam-
komulaginu er einnig ákvæði um
að Grænlendingar bjóði Evrópu-
sambandinu allan þann fisk sem
þeir geta ekki veitt sjálfir áður en
þeir bjóða hann gegn fiskveiði-
réttindum í landhelgi annarra
þjóða.
Atvinnuleysi
minnkar í Fær-
eyjum
Atvinnuleys-
ið í Færeyjum,
sem var 25 pró-
sent í upphafi
ársins 1995, var
10 prósent um
síðustu áramót,
að því er Ed-
mund Joensen,
lögmaður Fær-
eyja, greindi frá í nýársræðu
sinni. Ræða lögmannsins ein-
kenndist af bjartsýni yfir því að
tekist hefði að rétta úr kútnum
fyrr en gert hafði verið ráð fyrir.
„Efnahagshrunið 1992 varð miklu
verra en nokkur okkar hafði
reiknað með. En þegar árið 1995
tókst okkur að snúa þróuninni
við. Og á síðasta ári náðist mikill
árangur,“ sagði lögmaðurinn.
|1| BORGARSTJÓRINN í REYKJAVÍK
Reykvíkingar!
Hirðing jólatrjáa hefst í dag þriðjudaginn 7. janúar.
Setjið jólatrén út fyrir lóðarmörk og verða þau þá fjarlægð.
Þá vil ég hvetja ykkur til að hirða upp leifar af skoteldum
og blysum í nágrenni ykkar.
Höldum borginni okkar hreinni.
Með nýárskveðju.
Borgarstjórinn í Reykjavík
Per Lindstrand, Rory McCarthy og Richard Branson ætla að leggja upp í hnattreisu í loftbelg í dag.
Símamynd Reuter
Samkomulag nánast í höfn:
Stífir fundir fram á rauða-
nótt um afhendingu Hebron