Dagblaðið Vísir - DV - 07.01.1997, Síða 16
16
ÞRIÐJUDAGUR 7. JANÚAR 1997
-segja þeir Gunnlaugur Ingibergsson, formaður og ívar Fróði Guðnason, skemmtanastjóri
Svo lengi sem menn mima hafa ís-
lendingar sótt til Danmerkur, bæöi í
nám og starf, enda vorum við um
langan tíma undir stjóm þessarar
ágætu frændþjóðar okkar. Það eru
ekki margir áratugir síðan það þótti
býsna flnt að hafa dvalið í Dan-
mörku og „vera sigldur". Þó svo sá
tími sé liðinn er ekkert lát á að ís-
lendingar sæki til Danmerkur í nám
og starf.
Það hefur verið starfandi íslend-
ingafélag í Danmörku árum saman
en í desembermánuði sl. tóku
nokkrir áhugasamir íslending-
ar sig saman og stofnuðu nýtt
félag, Hagsmunasamtök ís-
lendinga á Norðurlöndum,
almennt kallað Landnáms-
menn. Um jól og áramót voru
staddir hér á landi formaður fé-
lagsins, Gunnlaugur Ingibergs-
son, og skemmtanastjóri þess,
ívar Fróði Guðnason. Tilverunni
lék forvitni á að vita meira um starf-
semi félagsins og fékk þá félaga í
spjall.
Ymislegt í boði
„Félagið sjálft var stofnað í
desember en mun fara í gang
og byrja að fá félaga inn nú á
árinu 1997. Við erum þrjú
stofnfélagamir, Þórdís Bach-
mann gjaldkeri, ívar og ég
sjálfur,“ segir Gunnlaugur.
„Markmiðið er að fá íslend-
inga til að koma saman og gera
skemmtilega hluti saman á
sanngjörnu verði. Það er ýmislegt
í boði, t.d. ódýrar ferðir til og frá
íslandi, ódýrar ferðir um Evrópu,
ódýrir fraktflutningar á búslóðum
og ýmislegt annað, t.d. böll sem
verða mánaðarlega og svo náttúr-
lega það sem fellur til hverju sinni.“
ívar segir mikið af íslendingum
sem fari út án þess að þekkja aðra
íslendinga sem búa í Danmörku.
„Félagið er til að hjálpa fólki með
ýmislegt, kynna fólk og hrista það
saman.“ Gunnlaugur vill meina að
þetta sé ákveðið vandamál í Dan-
mörku. „Það er eins og það sé svo
mikið af íslendingum sem sitji í
sínu skúmaskoti og viti ekki tengsl-
in og möguleikana í Kaupmanna-
höfn. í slíkum tilfellum er best að
leita til félaga, sérstaklega íslend-
ingafélaga, sem hafa réttu þekking-
una til þess að hjálpa löndum sínum
að koma sér áfram. Það er enginn að
segja að íslendingamir þurfi alltaf
að vera saman innan félagsins, það
er einnig hægt að benda fólki á
hluti. Eins og t.d. hvemig skuli skrá
sig í skóla, finna vinnu, leigja íbúð
og annað í þeim dúr.
Viljum ferðast saman
ívar segir félagslifið þegar
farið í gang en í febrúar
verður fyrsta hópferðin á
góðum kjörum; þá
um og fleim, t.d. 10% afslátt á öllum
mat og drykk á Pizza 67,“ segir ívar.
Félagið er ekki búið að starfa
lengi en nú þegar er mikið í boði og
em félagsmenn komnir með fulla
dagskrá auk margra hugmynda um
skemmtilega hluti. „Þess vegna er
svo mikilvægt að fá fólk
inn í félagið, fólk
sem getur bent á
hluti og komið
með uppá-
stungur. Allir
í félaginu eru
jafnir, það
■ '
'
Of margir lokaðir hópar
ívar segir Islendinga í Danmörku
eyða miklum tíma með öðmm ís-
lendingum. „En svo koma nýir aðil-
ar út og vilja komast inn í þessa
hópa og af hverju ekki að hafa félag
sem auðveldar þeim það ef þeir
vilja? Gunnlaugur bætir við að
hann hefði þegið slíkt félag þegar
hann flutti út. „Þess vegna finnst
mér sniðugt að hafa einn stóran hóp
þar sem aflir geta verið saman þó
þeir eigi sína einkavini utan þess.“
Gömul ríkisstofn-
un
En hvað með
gamla íslend-
ingafélagið,
stendur það sig
ekki?
„Ég þekki
þau mál
ekki svo
vel en þær
s ö g u r
sem ég
h e f
heyrt
af því
er að
Þeir Gunnlaugur Ingibergsson og ívar Fróði Guðnason eru búsettir í Danmörku og hafa stofnað þar nýtt íslendinga-
félag af miklum áhuga og dugnaði.
til Berlínar fyrir 600 d. kr. Félags-
gjald er 10 krónur danskar á mán-
uði sem þeim félögum finnst vera
gjafverð. „Þetta er svo fljótt að
borga sig upp, þeir sem em t.d. að
fara til Berlínar era þegar famir að
njóta þess þar sem ferðin er svo
mikið niðurgreidd,“ segir Gunn-
laugur. Meðlimir fá kort sem Pizza
67 í Kaupmannahöfn hefur styrkt
kaup á og em ætluð sem afsláttar-
kort. „Þau kort gefa nú þegar alls
kyns afslætti á veitingastöðum, ferð-
Mikill fjöldi íslendinga er búsettur í Danmörku og vilja þeir Gunnlaugur og
ívar Fróði efta samkennd og samskipti meðal þeirra.
skiptir engu máli hvar í stiganum
þeir eru, hvort þeir era í stjórn eða
óbreyttir félagsmenn," segir ívar.
Snýst um vináttu
Hafa þeir fúndið fyrir áhuga?
,Jú, vissulega. Auðvitað vilja allir
hugsa málið, þaö hleypur enginn
inn i hlut sem hann þekkir ekki al-
veg strax. En við höfum skráð
marga og emm þegar komin með
mörg fyrirtæki á lista sem hyggjast
hjálpa okkur. Það sem er þegar
komið eru ódýrar flugferðir, ódýr
sjófrakt, íslenskar bækur og íslensk
tónlist á vildarkjömm og við erum
búnir að fá jákvæö svör hvað varð-
ar að flytja inn íslenska tónlistar-
menn til að skemmta á skemmti-
kvöldum. Þetta er beinagrind sem
við erum að byggja á og það eiga eft-
ir að bætast fuflt af öðrum hlutum
við sem koma í ljós síðar," segir
Gunnlaugur.
„Að hluta til snýst þetta allt um
peninga þvi það kostar að gera hlut-
ina og hópurinn verður að vera
ákveðið stór til að hægt sé að gera
þá. En aftur á móti verðum við líka
að gera okkur grein fyrir því að
þetta er fyrst og fremst spuming um
vináttu, það em allir vinir. Þetta er
fjölskyldufólk jafnt sem ungt fólk og
að sjálfsögðu skipuleggjum við dag-
skrána eftir þörfúm áflra. Við ætl-
um að halda spilakvöld jafn sem
villt teiti, það fer eftir þörfum félag-
anna.“
mer
DV-mynd ÞOK
fólk hefur ekki verið nógu ánægt,“
segir Gunnlaugur. „Jú, jú, auðvitað
er þetta fint félag. Það heldur 1. des-
ember ball og þorrablót sem em
ágæt en okkur finnst ekkert meira
en það gerast. Við höfúm nokkrum
sinnum farið niður í Jónshús, þar
hafa verið 5-6 hræður og engin
stemning. í raun finnst
minna á gamla ríkisstofn-
um.“
ívari finnst einnig að
starfsemin megi vera
meira miðsvæðis. „Það
eru viss kaffihús í mið-
borg Kaupmannahafnar
sem íslendingar sækja,
stundum geta verið yfir
20 íslendinga á einu
litlu kaffihúsi. Hvers
vegna ekki þá að semja
við ákveðið kaffihús
þar sem má fá íslensku
blöðin, gott verð á veit-
ingum o.fl.? Það er eitt-
hvað sem við ætlum að
reyna að ná fram þegar
félagamir verða fleiri.
Við viljum ferskar
hugmyndir og virkt fólk.“ Gunn-
laugur segir að fljótt á giskað séu
komnir 20-30 félagar nú þegar og
það er ekki ennþá búið að stofna fé-
lagið formlega þó það sé til á papp-
ímnum. „Félagið á sína kennitölu
og sinn reikning en þegar við fórum
út aftur þá keyrum við allt í botn,
fáum heimilisföng hjá íslendingum
og skrifum þeim þar sem helstu
málefni félagsins em kynnt og síma-
númer þar sem hægt er að ná í okk-
ur og fá nánari upplýsingar. Mér
sýnist þetta lofa góðu en svo verður
tíminn að leiða í ljós hvað verður.
Við erum bara beinagrindur til að
byija með, það er enginn að segja að
við séum æviráðnir sem formaður
og skemmtanastjóri. Þegar virkir
aðilar eru komnir inn má gera
breytingar. Við emm í þessu af
áhuganum fyrst og fremst."
Litlir hlutir skipta máli
„Þórdís með mikla hæfileika og
mikil sambönd i Danmörku og er að
undirbúa vín- og snyrtivörukynn-
ingar og svo er hún að fara í gang
með förðunamámskeið fyrir stúlk-
ur. Það em svo margir svona litlir
hlutir sem skipta máli. Það eru
einmitt svona hlutir sem fólk er að
gera á íslandi, fara á briddsnám-
skeið og syoleiðis. Þetta þekkist
ekki meðal íslendinga í Danmörku.
Við erum fullir af hugmyndum og
viljum byggja þetta á íslenskum fyr-
irmyndum, hlutum sem eru að ger-
ast hér á landi. Ein hugmynd er t.d.
brandarakvöld. Sem Islendingur
ferðu einfaldlega ekki á dönsk
brandarakvöld,“ segir Gunnlaugur.
ívar tekur undir þetta og bætir við
að mörgum íslendingum, sem komi,
finnist líka erfitt að kynnast Dön-
um. „Þá geta þeir sem hafa búið þar
lengur létt undir með þeim ný-
komnu, t.d. með því að kynna þá
fyrir dönskum vinum sínum. Við
höfum verið þarna lengi og þekkjum
marga Dani og íslendinga þannig að
upplýsingastreymið verður mikið.“
Gunnlaugur vill ekki meina að
gamla íslendingafélagið sinni ekki
þessum þætti en honum finnst vera
nokkuð sterk námsmannalykt af
þvi. „Það er nefnilega mikið af Is-
lendingum sem ekki koma til Dan-
merkur til að fara i nám heldur til
að vinna. Við viljum blanda öllu
saman, hvort sem þú grefur skurði
eða ert í doktorsnámi.
Það er ekkert illt á milli félag-
anna en tíminn verður að leiða í ljós
hverjum gengur betur. Góður
punktur í almennu viðskiptalífi er
að sá sem er hræddur við nýjan
keppinaut er með samviskubit, sá
sem er góður og traustur þarf ekki
að hafa áhyggjur. Við kýlum á að
hafa aflt fjölbreytt og
ferskt. Það gætu
kannski þrír
strákar haft
samband
v i ð
áhuga á rúgbí og
vanta í lið, þá komum við því á
framfæri og kannski leynast
fleiri íslendingar sem vflja vera
með. Og ef tfl kemur að fólk hefur
áhugamál sem höfðar ekki til
margra innan félagsins þá reynum
við að koma því í samband við Dani
á sömu bylgjulengd. Við útilokum
ekkert sem er löglegt, heiðarlegt og
jákvætt," sögöu þeir félagar að lok-
um.
ggá