Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.1997, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.1997, Blaðsíða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 15. JANÚAR 1997 Fréttir Annað uppboð ákveðið á sláturhúsi PatreksQarðar samkvæmt ákvæðum í lögum: Gert til að bjarga hagsmunum bæjarins - segir bæjarritari „Sýslumannsembættið hefur sam- þykkt kröfu bæjarstjómar um að annað uppboð fari fram á sláturhús- inu. Það var ákveðið samkvæmt ákvæðum í 27. grein uppboðslaga þar sem tilboð var langt undir eðli- legu uppboðsandvirði eignarinnar. Tilboðið var meira að segja langt frá því að ná upp í lögveðskröfur á eigninni. Þetta er gert til að verja hagsmuni bæjarins," segir Haukur Már Sigurðarson, bæjarritari Vest- urbyggðar, en ákveðið var í gær að halda annað uppboð á sláturhúsi Patreksfjarðar. Eins og kom fram í DV var upp- boð haldið á eigninni fyrir viku og keypti Oddur Guðmundsson slátur- hússijóri hana fyrir aðeins 700 þús- und krónur en fasteignamatið var rúmar 29 milljónir króna og bruna- - ætla að bjarga eigin klúðri, segir sláturhússtjóri sem keypti eignina á 700 þúsund bótamat rúmar 114 milljónir. A upp- boðinu mættu engir fulltrúar bæjar- stjómar Vestimbyggðar þó að bær- inn ætti tæplega tveggja milijóna króna kröfu í sláturhúsið. Eignin var því mjög óvænt slegin Oddi sem gerði hæsta tilboð í hana. „Það sem olli því að fulltrúar bæj- arstjómar mættu ekki á uppboðið og gerðu tilboð var misskilningur á milli mín og þeirra aðila sem áttu kröfur í eignina um hvar hugsan- legt boð mundi enda. Ég taldi mig fullvissan um það klukkan 3 sl. miö- vikudag að við þyrftum ekki að hafa áhyggjur af okkar gildu lögveðskröf- um enda höfum við þurft að gera það fyrr en nú. Það kom þó á daginn að við töpuðum þeirri lögveðskröfu. Það skýrist á bæjarstjómarfundi á morgun hvert framhaldið verður og hvort bærinn mun bjóða í eignina á komandi uppboði sem fer fram eftir viku,“ segir Haukur Már. Bjarga eigin klúöri „Ég er auðvitað mjög ósáttur við þessa niðurstöðu og það er ljóst að bæjarstjóm er að reyna að bjarga eigin klúðri. Mér skilst að bæjar- stjóm ætli að skoða nánar hvað hún muni gera en ég get ekki ímyndað mér að hún sé að krefjast annars uppboðs nema hún ætli þá að bjóða í eignina. Ég mun skoða mín mál betur frá lagalegum grundvelli," segir Oddur Guðmundsson sem keypti sláturhúsið fyrir 700 þúsimd krónur á uppboðinu fyrir viku. „Þetta er mikill klaufaskapm- hjá bæjarstjóm að bjóða ekki alla vega þá upphæð sem hún átti þama í kröfum. Þá finnst mér einnig mjög skrítið af hverju Stofnlánadeild landbúnaðarins skuli gefa húsið en hún átti stærstu kröfúna í því. Mér finnst hins vegar eðlilegt að bæjar- stjóm krefjist þess að fá annað upp- boð því hún er að tapa þama pen- ingum og er að reyna að bjarga sér út úr vandræðunum. Ég skil vel að bændur hafi ekki boðið í sláturhús- ið því þeir era orðnir langþreyttir á eilífum töpum þar í sambandi við slátran," segir Kristján Þórðarson, bóndi á Breiðalæk og fyrrverandi oddviti á Barðaströnd, vegna máls- ins. Stofnlánadeild landbúnaðarins var stærsti kröfuhafi sláturhússins með um 10 milljóna króna kröfu. Leifur Jóhannesson, framkvæmda- stjóri Stofnlánadeildar, segir að það hafi ekki borgað sig að taka við hús- inu því enginn grundvöllur sé fyrir rekstri þess. „Við töpum þama um 10 milljón- um og auðvitað er það mjög súrt. Við töldum engan grundvöll fyrir því að reka sláturhús þarna. Það er fátt fé þama og bændur era komnir út og suður til að slátra. Það virðist einfaldlega ekki vera markaður til að reka þetta hús,“ segir Leifur. „Stofnlánadeildin hefur áður reynt að reka þetta hús án árangurs og saga þessa sláturhúss er búin að vera tómt vesen. Mér hefði fundist eðlilegt aö bæjarstjóm hefði boðið í eignina, alla vega það sem samsvar- ar hennar kröfum í henni en hún fær nú annað tækifæri fýrst að ann- að uppboð fer fram,“ segir Leifur. -RR Vatnsmál á Grundartanga: Ekkert vatnsból getur fullnægt vatnsþörf álvers - segir Dagmar Vala Hjörleifsdóttir heilbrigðisfulltrúi „Ekkert einasta vatnsból umhverf- is Grundartanga getur fullnægt vatnsþörf þessa iðnaðarsvæðis og svo virðist sem Hollustuvemd megi ekki minnast á þessa staðreynd, það sé ekki í hennar verkahring að fjalla um vatnstökumál heldur einungis mengunarþáttinn, þótt vatnstöku- málin séu raunveruleg aðalforsenda þess að hægt sé að leyfa þessa starf- semi á þessum staö,“ segir Dagmar Vala Hjörleifsdóttir, heilbrigðisfull- trúi Akranessvæðis innan Vestur- landskjördæmis. Dagmar Vala segir viðbrögð iðn- aðarráðherra við rökum þeirra sem láta sig stóriðju á Grundartanga varða sýna fádæma virðingarleysi ráðherrans gagnvart þeim. Hann hafi lýst því yfir að vinna þeirra skipti engu máli vegna þess að búiö sé að ákveða að staðsetja stóriðju í Hvalfirði og þeirri ákvörðun verði ekki breytt. „Ég vil benda á að starfsleyfistil- lögur Hollustuvemdar era gerðar fyrir álver á Grandartanga og því hlýtur staðsetningin að skipta máli,“ segir Dagmar Vala. Dagmar Vala segir að í ljós hafi komið við athugun á starfsleyfistil- lögum Hollustuvemdar fyrir Colum- bia álverið á Grandartanga að rann- sóknavinna, sem fram átti að fara samkvæmt úrskurði skipulagsstjóra Byrjað er aö safna undlrskriftaiistum I Hvalflröi tll aö mótmæla byggingu álvers Columbia Ventures á Grundartanga. Samtök I þvf skynl veröa stofnuö f kvöld og munu Ifklega fá nafniö Björgum Hvalfiröi. Einn forvfgismanna hópsins, Linda Samúelsdóttlr, húsfreyja f Tungu f Svfnadal, kynnlr hér málstabinn fyrir Ingunnl Björnsdóttur, fbúa f Skilmannahreppi, f gær. DV-mynd BG verið gerð búijártalning á svæðinu í kring um Grandartanga eins og gerð var á sínum tíma í Eyjafirði, Reyðar- firði og á Vatnsleysuströnd í tengsl- um við hugsanlega staðsetningu ál- vers á þessum stöðum, sem hljóti þó að vera ein meginforsenda þess að um staðsetningu álversins, hafi ekki verið unnin. „Þeir taka ekki á vatns- tökumálunum og þau eru algerlega óleyst ennþá.“ Hún segir það ennfremur koma í ljós þegar starfsleyfistillögur Holl- ustuvemdar era lesnar að ekki hafi leyfa stóriðjustarfsemi í landbúnað- arhéraði. „Það hlýtur að þurfa að kanna hversu þéttur landbúnaður- inn er á þessu svæði og hvort annað svæði, t.d. Keilisnesið, sé þá ekki hentugra," segir Dagmar Vala Hjör- leifsdóttir heilbrigðisfulltrúi. Stuttar fréttir 8,7% upp í kröfur 8,7% fengust upp í almennar kröfur í þrotabú Kjötmiöstöövar- innar sem varð gjaldþrota árið 1988. Kröfúr voru 327,7 milljónir en 28,4 fengust greiddar. Við- skiptablaðið segir frá. Sameining blaöa Víkurblaðið á Húsavík verður fylgiblað Dags-Tímans á fimmtu- dögum framvegis. Jóhannes Sig- urjónsson, ritstjóri Víkurblaðs- ins, verður jafnframt blaðamaður Dags-Tímans á Húsavík. Forgangur til starfa hjá P&S Póstmannafélag Islands og Fé- lag ísl. símamanna hafa samið viö Póst og síma um að félags- menn hafi forgang til starfa hjá fyrirtækinu. Þak á kvótann RÚV sagði frá hugmyndum sjávarútvegsráðherra að setja þak á aflaheimildir, kvóta á kvóta ein- stakra sjávarútvegsfyrirtækja og hvort krefjast eigi dreifðrar eignaraðildar í sjávarútvegsfyrir- tækjum sem eiga mikinn kvóta. Þórarni V. ekki sjálfrátt Framkvæmdastjóra VSÍ er hreinlega ekki sjálfrátt að bjóða 1,5% hækkun lægstu launa. Tilboð VSÍ er svívirðilegt, segir Sigurður T. Sigurðsson, formaöur Hlífar í Hafiiarfirði, í Alþýðublaðinu. Atlaga aö landsbyggðinni Sjávarútvegsráðherra gagnrýnir mnmæli formanns Alþýðuflokks- ins um að fjárfestingar lífeyris- sjóða í sjávarútvegsfyrirtækjum séu ótraustar. Þau séu atlaga að landsbyggðinni. RÚV segir frá.-SÁ j rödd FOLKSINS m904 1600 rétft að staðsetja álver í Hvalfirðinum? Bandaríski körfuboltinn í nótt: Houston vann loksins New York Úrslit í NBA-deildinni í nótt: Boston-Golden State .... 116-108 Atlanta-Mlnnesota........95-93 Houston-New York........106-86 Chicago-Washington .... 108-107 Phoenix-Denver.........110-101 Portland-Detroit.........95-86 LA Lakers-Vancouver .... 91-81 Sacramento-Indiana......105-98 Atlanta vaim sinn 7. leik í nótt gegn Minnesota í jöfniun leik. Steve Smith skoraöi 26 stig fyrir Atlanta en fyrir Minnesota skoraði Tom Gugliotta 22 stig. Chicago haföi af nauman sigur gegn Washington, þökk sé Michael Jordan sem gerði 39 stig fyrir Chicago. Chris Webber skoraði 33 stig fyrir Bullets. Kevin Johnson geröi 25 stig og Cedric Ceballos 23 þegar Phoenix lagöi Denver. Laphonso Ellis gerði 33 stig fyrir Den- ver. Sacramento hafi af sigur gegn Indiana i framlengingu. Mitch Richmond gerði 7 stig í framlengingunni fyrir Scramento, en alls 37 í leiknum. Antonio Davis skoraöi 30 stig fyrir Indiana. Houston vann New York í fyrsta sinn siðan í úrslitum 1994. Barkley gerði 29 fyrir Houston og tók 12 fráköst. Shaquille O’Neal gerði 24 stig fyrir Lakers gegn Vancouver í Forum. -JKS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.