Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.1997, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.1997, Blaðsíða 10
10 * TÍr (fnenning 1 tít MIÐVIKUDAGUR 15. JANÚAR 1997 Hinn þunglyndi texti Það er stórviðburður í hvert sinn þegar á prent kemur doktorsritgerð um islenskar nútímabókmenntir og þær eru raunar enn harla fáar. Þetta verk Dagnýjar Kristjáns- dóttur er rækilegasta athugun sem birst hefur á íslensku um íslenskar bókmenntir eftir stríð. Þó að í forgrunni séu skáldsögur Ragnheiöar Jónsdóttir fyrir fullorðna er hið stærra viðfangsefni bókmenntir kvenna á árunum 1945-1965 og raunar ís- lensk bókmenntasaga þessa skeiðs í heild sinni. í öðru lagi er ritið nýstárlegt að því leyti að þar er beitt sálfræðilegum aðferðum við bókmenntagreiningu og einnig femínískum aðferðum. Hvorugt hefur verið gert áður í íslensku fræðiriti af þessari stærð. Það er Bókmenntir Ármann Jakobsson því óhætt að segja að hér sé ekki ráðist á garðinn þar sem hann er lægstur, Dagný ryður ekki eina braut heldur margar. Um niðurstöður Dagnýjar er aðeins hægt að hafa fá orð hér en hún mun verja ritgerö sína á nýju ári og þá mun fara fram frekari umræða um þær. í stuttu máli eru þær þessar: Verk Ragnheiðar Jónsdóttur ein- kennast af þunglyndi. Flokkurinn um Þóru frá Hvammi, höfuðverk hennar, er eins konar neikvæð þroskasaga konu sem ekki tekst að ná eðlilegum þroska. Sama gildir á einn eða annan hátt um aðrar sögur Ragn- heiðar. Þar er áherslan á ósigra konunnar og takmarkanir. Dagný tengir túlkun sina á verkum Ragnheiðar með glæsibrag við margs kon- ar femínískar og sálfræðilegar kenningar og síðan við aðrar bókmenntir eftirstríðs- áranna og hlutskipti kvenna innan bók- menntasögunnar. Niðurstaðan er sú að samfé- lagsstaða kvenna sem fengust við skáldskap hafi haft talsverð áhrif á þunglyndi textans. Á árun- um 1945- 1965 voru konur sem fengust við skrift- ir þagaðar í hel. Þeim var ekki ætlaður staður í tvenns konar. Annars vegar er sjónum beint að einstaklingnum og sálarlífi hans, hins vegar að samfélaginu og aðstæðum þar. Þetta hafa þótt andstæður en hvort tveggja hefur verið viðfangsefni femínism- ans. í greiningu sinni tekst Dagnýju að tefla saman þessum andstæðum og sætta þær. Það er þrekvirki og nánast einsdæmi í íslenskri bók- menntaumfjöll- un. Kona verð- ur til er fyrir, þær sakir ein- ar ótvírætt, eitt mikil-, vægasta fræðirit um ís-, lenskar bók- mennt- 20. Dagný Kristjánsdóttir - hefur skrifaö frumlegt brautryöjendaverk. DV-mynd ÞÖK uppreisn módemismans og þrátt fyrir miklar vinsældir hafa því t.d. sögur Ragnheiðar Jóns- dóttur ekki verið hluti bókmenntasögu þessa tíma. Aðferðimar sem Dagný beitir eru þannig komið á þessari öld, öðru lagi má telja öraggt að í kjölfarið leiði grundvallar- breyting á íslenskri bókmenntasögu aldar. Nú hafa konur fengið þar stað. Um leið er verk Dagnýjar prýðilegt bók- menntaverk, spennandi frá upphafi til enda. Markmiðið mun vera að kynna ís- lenskum almenningi bókmenntafræði- kenningar sem mörgum hafa þótt harðsoðnar og það tekst. Þó að hér sé á ferð öndvegis fræðirit má einnig lesa bók- ina eins og skáldsögu. Jafnvel þeir sem ekki hafa lesið bækur Ragnheiðar geta því notið verksins og það á enda mun víðara erindi. Þetta rit hefur verið tilnefnt til íslensku bókmenntaverðlaunanna. Það er harla ólíklegt að svo frmnlegt og vel skrifað brautryðjendaverk í vísindum hreppi þau ekki. Dagný Kristjánsdóttir. Kona verður til. Um skáld- sögur Ragnheiðar Jónsdóttur fyrir fullorðna. Bókmenntafræðistofnun Hl og Háskólaútgáfan 1996. „Huldukona syngur áé Á sunnudagskvöldið hélt Arndís Halla Ásgeirsdóttir einsöngstónleika i Digraneskirkju og lék Jónas Inghmmd- arson með henni á píanó. Það var fyrst fyrir rúmri viku að ég heyrði þessarar ungu söngkonu getiö og fýlgdi sögunni að hér færi eitt mesta söngkonuefni sem heyrst hefði lengi. Það var líka auðfundið að eftirvænting lá í loftinu í þéttskipaðri kirkjunni og gestir að spyrja hveijir aðra, eins og íslendinga er háttur, hvað þeir vissu um söngkon- una. Amdís Halla hóf tónleikana á Allelu- ja úr Exultate jubilate eftir Mozart. Þar reyndi strax á fimi hennar í flúruðum kóloratúr, og söng hún þetta með glæsi- brag, ekki vottur af spennu eða óöryggi. Á eftir fylgdu þrjá óratoríuaríur eftir Hándel; aría Kleópötra úr Júlíusi Ses- ari, hið fallega Lascia chi’o piango úr Rínaldó og gleðióðurinn Oh, had I Jubals Lyre úr Jósúa. Rödd Amdísar Höllu nýtur sín afar vel í þessari tón- list, hún á létt með að syngja kóloratúr og gerir það með þeim þokka sem til þarf. Sex þýskir Ijóðasöngvar vora næstir, tveir eftir hvem þefrra Schubert, Mendelssohn og Brahms. Rödd Amdís- ar Höllu á síður heima í þýskum ljóða- söng en óperutónlist. Röddin er falleg og létt; - situr framarlega eins og sagt er, og vantar kannski meiri þrótt í ljóð- in. Þindarstuðningur var stundum naumur þegar farið var af efsta sviði raddarinnar á miðsviðið, og þá ekki jafn tandurhreint sungið og ella. Þetta átti sérstaklega við um lag Mendels- sohns Das erste Veilchen. Leikræn túlk- un var á mörkum þess að vera yfírdrif- in í gamansöngvunum Die Manner sind mechant eftir Schubert og Vergebliches Standchen eftir Brahms, en létt rödd söngkonunnar naut sín vel í þeim. Eftir hlé byrjaöi Amdís Halla á fjór- um íslenskum lögum. Lag Kaldalóns, Þú eina hjartans yndið mitt, var sungið með þokka; lög Jórannar Viðar, Karl sat undir kletti og Vort líf, hápunktur íslenska hluta tónleikanna. Túlkunin var hógvær og stillt en skil- aði vel öllum kenndum sem í ljóðinu eru fólgnar. Síðast á efnisskránni vora þrjár óp- eruaríur; In uomini in soldati, aría Despínu úr Cosi fan tutte eftir Mozart, Kommt ein Schlanker Bursch úr Der Freischútz eftir Weber og loks Quel gu- ardo il Cavaliere úr Don Pasquale eftir Donizetti. í þessum glæsiaríum var söngkonan sannarlega á heimavelli. Hún fór léttilega með erfiöan kóloratúr, söng músíkalskt og sýndi að hún er af- bragðs leikkona. Að vonum var mikið klappað og stappað og tónleikagestir risu úr sæt- um til að ítreka hrifningu sína. Þrjú aukalög fylgdu, eftir Schubert, Strauss og Puccini. Gaman veröur að fylgjast með Amdísi Höllu Ásgeirsdóttur í Tónlist Bergþóra Jónsdóttir Arndis Halla Ásgeirsdóttir - á erfiöustu hjallana aö baki. DV-mynd ÞÖK vora vel sungin en með helst til miklum leikræn- um tilþrifum. Hið fallega lag Páls ísólfssonar við ljóð Davíðs frá Fagraskógi, í dag skein sól, var framtíðinni. Röddin hæfir vel í svoköll- uö „soubrette" hlutverk þar sem reynir á léttleika, kómík og leikhæfileika. Það væri þó líka gaman að heyra hana t.d. í Rossini-hlutverkum eins og Rosinu í Rakaranum sem stundum er sungið af sóprönum þótt samið sé fyrir mezzó. Það er ekki auðvelt fyrir ungan söngvara að stíga í fyrsta sinni skrefið fram á sviðið þegar væntingarnar era óhemjumiklar. Amdís Halla býr að góðu; hefur fallega rödd, glæsilega og öragga framkomu og músíkalskt inn- sæi; hæfileika sem gefa vísbendingar um að mikils sé að vænta af henni í framtíðinni. Það sem á undan er gengið er námið, skólunin, með öllu sínu erfiði. Þefrri þrautagöngu lýkur seint fyrir söngvarann, en Amdís Halla á alla erfiöustu hjallana að baki. Útvarpstónleikar Á fimmtudagskvöldið efnir Ríkisútvarpið til tónleika með Sinfóníuhljómsveit íslands. Hljómsveitarstjóri verður Emilio Flavio Scogna frá Ítalíu, og ein- leikari er annar ítali. Það er Raf- ael Gintoli sem leikur fiðlu- konsert eftir argentínska tón- skáldið AIiciu Terzian. Enn frem- ur flytur hljómsveitin verk eftir Respighi og Ginastera. Hverjar eru ásynjur? En mestum tíöindum sætir frumflutningur á verki eftir Þor- kel Sigurbjömsson, Úr Gylfag- inningu. „Þetta er einn kafli úr Gylfaginningu," segir tónskáldið, „kafli 36, minnir mig, Hverjar eru ásynjumar? Verkið er fyrir söngrödd og hljómsveit og Ingi- björg Guðjónsdóttir syngur það með hljómsveitinni - og hún syngur á spænsku!" Blaðamaður hváir hissa og fær skýringu: „Jorge Luis^ Borges þýddi á sin- um tíma aUa, Gylfaginningu á| spænsku, og þeg- ar ekkja hans.l Maria, kom hing-l að fyrir fáeinumi árum langaðú menn til skemmta henni með'' því að flytja fyrir hana eitthvað úr þýðingunni. Þá setti ég saman þetta verk um kaflann um kven- þjóðina - Ingibjörg söng og Stein- unn Birna spilaði undir á píanó vestur í Norræna húsi. Ég var sjálfúr i útlöndum svo að ég hef aldrei heyrt það. í fyrra kom svo upp sú hug- mynd að það væri gaman að út- færa verkið nánar - fýrir hljóm- sveit og söngvara, þannig að strangt til tekið er þetta aðeins fmmflutningur á þessari gerð verksins." Það verður fróðlegt að heyra hvemig texti Snorra hljómar á spænsku. Tónleikarnir era í Há- skólabíói og hefjast kl. 20. Andblær Eitt af tímaritunum sem kom með háflóðinu rétt fyrir jól var Andblær, 5. hefti, og hefst á fal- legri ljóðrænni kveöju til tíma- ritsins frá Hákoni Aðalsteins- syni. Mörg önnur Ijóðskáld eiga efni í ritinu, meðal þeirra Þor- varður Hjálmarsson, sem birtir sýnishorn úr nýrri ljóðabók sinni, New Orleans árla morguns í desember, Óskar Ámi Óskarsson (sem birtir vægast sagt framlegt Ijóð sem heitir „Tveir hvítir kettir i snjó“), Kristján Þórð- ur Hrafhsson og Steinunn Ásmundsdótt- ir. Prósatextar eru af ólíku tagi, meðal annai-s smásög- ur eftir Anton Helga Jónsson, Rúnar Helga Vignisson, Kristján Kristjánsson og Bjama Bjama- son. Blendingur ljóðs og prósa er eftir Þröst Helgason sem heitir „Ólund skáldsögunnar“ og segir sögu skáldsagnaritunar á Vest- urlöndum á fimm síðum. Þetta gæti veriö þeim fyrirmynd sem nú gefa út þúsund síðna bók- menntasögur. Svona er raunsæja skáldsagan afgreidd snyrtilega: Þá vatt hún sér út í hversdaginn gekk um götur og torg og rannsakaði mannlifiö af nákvæmni. Hún tyftaði og tók til með ágætum árangri en fannst svo allt 1 einu þessi iðja ekki nógu merkileg lengur. Andblær hefur pósthólf 1542, 121 Reykjavík. Umsjón Silja Aðalsteinsdóttir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.