Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.1997, Side 5
MIÐVIKUDAGUR 15. JANÚAR 1997
5
pv____________________________________________________________________________________Fréttir
Hjón sem keyptu sér orlofsrétt á Kanarleyjum:
Við vorum beitt grófum
blekkingum og féflett
- segja Ingibjörg Helgadóttir og Steingrímur Gíslason
Það er
ÚTSALA
Allt aó 50%
ur
„Þessi mál hafa lagst mjög þungt
á Ingu, þyngra en mig,“ segir Stein-
grímur Gíslason. „Ég vakna stund-
um á nóttunni og get ekki sofnað af
tilhugsuninni yfir þessu óréttlæti
sem við höfum orðið fyrir,“ segir
Ingibjörg Helgadóttir, kona Stein-
gríms, en þau hjónin urðu fyrir
þeirri reynslu að vera féflett af sölu-
fólki á Kanaríeyjum sem selur svo-
kallaðan orlofsrétt í hótelherbergj-
um, en DV hefur fjallað um
hliðstæða starfsemi sem um þessar
mundir er að reyna að ná fótfestu á
íslandi.
„Viö vorum féflett með grófum
blekkingum og sjónhverfmgum og
ástæða þess að við segjum DV sögu
okkar aJF þessum viðskiptum er að
við viljum stuðla að því að aðrir
gangi ekki í sömu gildru og við og
margir Qeiri hafa gert,“ segja þau
hjónin. Saga þeirra Ingibjargar og
Steingríms, sem bæði eru eftir-
launaþegar, hófst á Kanaríeyjum í
febrúar sl. er þau undirrituðu kaup-
samninga um svokallaðan orlofsrétt
eða orlofshlutdeild, en allar söluað-
ferðir og skilmálar voru nauðalíkir
þeim sem fólk hefur síðustu daga
fengið að kynnast hér á íslandi og
greint hefur verið frá i DV.
Fengu vinning
Ingihjörg og Steingrímur voru á
gangi á götu í þorpi á Kanaríeyjum
þegar stúlka gaf sig á tal við þau og
rétti að hvoru um sig skafmiða og
viti menn! 50 þúsund peseta vinn-
ingur kom í ljós á öðrum miðanum.
„Hvort viljiði heldur fá peningana
eða flugfarmiða á sólarströnd ann-
ars staðar, eða í þriðja lagi, fá heifl-
ar viku dvöl fyrir tvo á lúxushót-
eli?“ spurði stúlkan. „Peningana,"
sagði Inga, en því svaraði stúlkan
að til að fá vinninginn yrðu þau að
sjá af einum klukkutíma og sendi
þau síðan með leigubíl á hótel í
grenndinni til að kynnast orlofs-
hlutdeild sem þar var á boðstólum.
Eftir að hafa horft á myndband af
miklum glæsihótelum var þeim boð-
ið að skoða íbúð í hótelinu og að
þeim stæði til boða að kaupa í henni
eða öðrum íbúðum hótelsins orlofs-
hlutdeild. Þeim leist ágætlega á, en
vildu hugsa sig um, og óskuðu eftir
að fá vinninginn greiddan. Það var
því miður ekki hægt því að allir 50
þúsund peseta vinningarnir voru
einmitt nýbúnir og sama var að
segja um flugmiðana, en orlofshlut-
deilin var á þvílikum vildarkjörum
einmitt í dag að þau myndu stór-
tapa á því að skrifa ekki undir
strax. Það eina sem var eftir var
vikudvöl í einmitt þessu glæsihóteli
Umskipti hjá Skýrr í gær:
Skipt um forstjóra í snatri
- engar ástæöur gefnar upp
Dr. Jón Þór Þórhallsson lét
skyndilega af störfúm í gær sem for-
stjóri Skýrsluvéla ríkisins og
Reykjavíkurborgar, sem nú heitir
Skýrr hf., og nýr forstjóri, Stefán
Kæmested, tók við starfinu. í frétta-
tilkynningu frá fyrirtækinu segir að
stjóm þess og Jón Þór hafi orðið
ásátt um að hann láti af starfi.
Hallgrímur Snorrason Hagstofú-
stjóri er stjórnarformaður Skýrr og
í samtali við DV í gær vildi hann
ekki gefa upp ástæður uppsagnar-
innar, hvort hún væri að frum-
kvæði stjómar fyrirtækisins eða
forstjórans fyrrverandi eða hvaöa
aðdraganda hefði verið að henni.
Jón Þór Þórhallsson sagði sömuleið-
is að stjóm Skýrr og hann sjálfur
hefðu orðið ásátt um að ræða ekki
aðdraganda né ástæður uppsagnar-
innar við fiölmiðla.
Stefán Kæmested, nýr forstjóri
Skýrr, er viðskiptafræðingur frá HÍ
og hefúr starfað hjá Skýrr síðan
1982, síðast sem forstööumaður
stjómimardeildar fyrirtækisins.
Hann sagði við DV í gær að fyrir-
tækið stæði á viðkvæmum tímamót-
um og stjórn fyrirtækisins hefði
ákveðið að láta þessa breytingu á yf-
irstjóminni ganga mjög fljótt yfir til
að hún ylli sem minnstri röskun á
starfseminni.
Skjölin þýdd
Þegar heim var komið sl. vor
fengu hjónin öll skjöl sem þau höfðu
undir höndum vegna kaupanna
þýdd og þá staðfestist illur gmnur
þeirra. í Ijós kom að þau höfðu í
raun ekki keypt neitt nema óljóst
hugtak fyrir um 800 þúsund krónur.
„Við hefðum sannarlega heldur vilj-
að endumýja bílinn en þetta,“ segir
Steingrímur.
Segja má að samningamir séu á
þann veg að allur réttur er seljan-
dans en allar skyldur em á herðum
kaupanda. Kaupverð hins tveggja
vikna árlega orlofsréttar er 14.000
pund eða eða 1.586.000 krónur. Til
viðbótar við það er hjónunum skylt
samkvæmt samningunum að greiða
á hverju ári 98 þúsund krónur í svo-
kallað stjómunargjald, 4.600 kr. fyr-
ir viðhald og 7.400 krónur í félags-
gjald til einhverra móðursamtaka
sem hótelið er sagt vera aðili að.
Vildu hætta viö - fengu ekki
Ingibjörg og Steingrímur höfðu
eftir að heim var komið samband
við lögmann en höfðu áður fengið
aðstoð ræðismanns íslands á
Kanaríeyjum og spænsku neytenda-
samtakanna sem öll hafa gengið í að
reyna að fá þessum kaupum rift fyr-
ir þeirra hönd og fjöldamargra ann-
arra sem hafa uppgötvað of seint að
hafa keypt köttinn í sekknum, en
söluaðilamir hafa hingað til harð-
neitað að sleppa viðskiptavinum
sínum úr snömnni og þvert á móti
hafa ítrekað hringt til þeirra hjóna í
Kópavoginn til að minna þau á að
þau séu stórskuldug og í vanskilum.
Lögmaðurinn hefúr skrifað sölufyr-
irtækinu bréf þar sem farið er fram
á riftun á þeim forsendum að þau
hjónin hafi verið nöiruð á ósvífinn
hátt til kaupanna og hótað málsókn
en hingað til án árangurs.
„Það er ósk okkar að geta losnað
úr þessu hið fyrsta, jafnvel þótt við
endurheimtum aldrei þá fjármuni
sem við höfúm þegar tapað. Þetta er
skelfíleg lífsreynsla að vera táldreg-
inn og svikinn á þennan máta og
við viljum segja sögu okkar svo að
aðrir gangi ekki í gildruna," segir
Steingrímur Gíslason.
-SÁ
„Ég vakna stundum á nóttunni og get ekki sofnaö af tilhugsuninni yfir þessu óréttlæti sem vió höfum orðið fyrir,"
segir Ingibjörg Helgadóttir, kona Steingríms Gíslasonar, en þau hjónin urðu fyrir þeirri reynslu að vera féflett af sölu-
fólki á Kanaríeyjum sem selur svokallaðan orlofsrétt í hótelherbergjum. „Við vorum féflett með grófum blekkingum
og sjónhverfingum og ástæða þess að við segjum DV sögu okkar af þessum viðskiptum er að við viljum stuðla að
því að aðrir gangi ekki í sömu gifdru og við og margir fleiri hafa gert,“ segja þau hjónin. DV-mynd ÞÖK
sem þau voru stödd í, en aðeins
gegn því að þau keyptu orlofshlut-
deild. Vinningurinn - vikudvölin -
myndi bætast við þeirra fyrstu „eig-
in“ orlofsdvöl.
Svo fór að þau keyptu tveggja
vikna orlofshlutdeild á staðnum og
greiddu fyrstu útborgun með
greiðslukorti, 2.500 pund, eða 285
þúsund krónur en eftirstöðvamar
áttu að greiðast á fjórum árum með
bankayfirfærslu frá íslandi.
Maöurinn frá Aöalskrifstofu
Við svo búið fóra þau Inga og
Steingrímur, en úti fyrir hótelinu
hittu þau mann sem spurði hvort
þau hefðu keypt orlofshlutdeild í
hótelinu. Þau sögðu svo vera. „Gott
mál,“ sagði maðurinn, „ég er nefni-
lega frá Aðalskrifstofunni hf. og mig
langar til að bjóða ykkur með mér
til að fara yfir samninginn og ganga
úr skugga um að allt sé löglegt og
rétt.“
Þau fóra með manninum á annað
hótel sem þeim þótti hetur staðsett
en það sem þau höfðu áður skoðað
og leist betur á en það fyrra. „Fínt,“
sagði maðurinn og kom með papp-
íra og sagði. „Þið fáið þá bara orlofs-
hlutdeild í lúxusíbúð hér í staðinn
fyrir hina, því samkvæmt spænsk-
um lögum má segja upp samningum
sem þessum innan 10 daga. Ég sé
bara um þetta fyrir ykkur, ekkert
mál, þið fáið svo endurgreiðsluna
senda heim til íslands," sagði mað-
urinn.
Að lokum skrifuðu þau hjónin
undir kaup á öðrum tveggja vikna
orlofsrétti á þessum nýja stað eftir
að hafa verið fúllvissuð um að kaup-
in á hinni gengju þá til baka. Fyrstu
útborgun greiddu þau með greiðslu-
korti, 2.800 bresk pund eða 319 þús-
und krónur. Endurgreiðslan úr
fyrri kaupunum er enn ókomin.
Skömmu síðar tekur aö læðast að
þeim grunur um að ekki sé allt með
felldu við þessi viðskipti og upp-
götva síðan að þau höfðu keypt tvær
orlofshlutdeildir í sitt hvoru hótel-
inu hjá sitt hvoru fyrirtækinu. Enn
vora þau fullvissuð um að fyrri
kaupin gengju til baka og endur-
greiðslan kæmi fyrr en varði og í
trausti þess greiddu þau fyrstu af-
borgun af síðari kaupunum í banka
eftir að heim var komið í fyrravor.
Sú greiðsla var önnur 2.800 pund,
eða 319 þúsund krónur og alls hafa
hjónin því greitt 923 þúsund krónur
fýrir það eitt að eiga svokallaðan
dvalarrétt í tvær vikur á ári á sólar-
strönd á Kanaríeyjum.
1