Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.1997, Qupperneq 6
6
MIÐVIKUDAGUR 15. JANÚAR 1997
Viðskipti
Nýjung viö kaup og rekstur bíla:
Heimilisbílar á kaupleigu
-„Fislétt Qármögnun“, segir framkvæmdastjóri Brimborgar
Egill Jóhannesson, framkvæmdastjóri Brimborgar, og Ægir Kópsson handsala fyrsta kaupleigusamninginn á fjöl-
skyldubíl. Bíllinn er nýr Ford Fiesta. Ægir fjármagnar bíllinn þannig aö gamli bíllinn hans er tekinn upp ■ á 350 þús-
und krónur. Hann greiðir síöan rumlega 15 þús. kr. á mánuöi í 24 mánuöi. DV-mynd PÖK
Rúnar Sigurösson, fram-
kvæmdastjóri Tæknivals, t.v., og
Kristján Jónsson rafmagnsveitu-
stjóri handsala samning um gerö
nýs viöskipta- og upplýsinga-
hugbúnaöar fyrir RARIK.
Tæknivals og RARIK:
Orkusöluhug-
búnaðurinn
endurnýjaður
RARIK og Tæknival hf. hafa
gert með sér samning um að
Tæknival endurnýi viðskipta- og
upplýsingahugbúnað fyrir orku-
sölu RARIK. Nýja kerfið verður
eitt stærsta og fullkomnasta við-
skipta- og upplýsingakerfi lands-
ins.
Nýja kerfið, sem nefnist
Kompakt, mun m.a. bjóða upp á
sveigjanlegar gjaldskrár og sér-
samninga um orkukaup. Notend-
ur geta fengið upplýsingar hjá
sjálfvirkri símsvörun sem gefur
upplýsingar um orkureikninga,
skuldastööu o.fl. Þá verða byggð-
ar upp heimasíður á Intemetinu
þar sem neytendur geta fengið
upplýsingar um orkuviðskipti,
reiknað út orkukostnað sinn og
beðiö um uppgjör, auk þess að fá
upplýsingar um starfsemi
RARIK og orkumál almennt.
Reiknað er með að nýi hughún-
aðurinn verði kominn í gagnið
um næstu áramót. -SÁ
„Við höfum valið að nefna þetta
nýja fyrirkomulag Fislétta fjár-
mögnun, en um er að ræða nýja leið
fyrir einstaklinga og fjölskyldur til
að fjármagna nýjan heimilisbíl á
svipaðan hátt og hefur tíðkast um
alllangt skeið í nágrannalöndunum
og í Bandaríkjunum," segir Egill Jó-
hannesson, framkvæmdastjóri
Brimborgar, sem hefur m.a. umboð
fyrir bíla frá Volvo, Ford og Dai-
hatsu.
Það eru Brimborg og Lýsing hf.
sem hófu samstarf um fjármögnun
fyrir einstaklinga á heimilisbílum
með sambærilegum hætti og fyrir-
tæki hafa fengið bíla á kaupleigu um
árabil. Að sögn Egils eru helstu ko-
stirnir við kaupleigu þeir að
greiöslubyrði er allt að 70% lægri en
þegar tekin eru hefðbundin bílalán,
t.d. hjá tryggingafélögum, miðað við
að lánstími sé sá sami. Eftir að Brim-
borg kynnti þessa nýju fjármögnun-
arleið í lok síðustu viku hafa fleiri
bílaumboð fylgt í kjölfarið.
Meðal annarra kosta sem þessi
fjármögnun heimilisbílsins hefur
umfram hefðbundin bílalán segir
Egill vera þá að stofnkostnaður er
mun lægri, sem og hlutfallslegur
kostnaður og mánaðarlegar greiðsl-
ur eru jafn háar allan greiöslutím-
ann. Þá þarf viðskiptavinurinn enga
ábyrgðarmenn.
Hin fislétta fjármögnun gengur
þannig fyrir sig í aðalatriðum, að
viðskiptavinur velur sér nýjan bíl
og leggur fram gamla bílinn sinn,
eða peninga sem innborgim sem
dregst frá kaupverði nýja bílsins.
Viðskiptavinurinn semur síðan um
lánstíma sem er allt að þrjú ár og sé
dæmi tekiö af því að keyptur er bíll
sem kostar eina milljón króna og
látinn bíll upp i sem metinn er á 250
þúsund krónur og gerður kaup-
leigusamningur um eftirstöðvamar
í t.d. 36 mánuði, þá gætu mánaðar-
legar greiðslur numið um 10-15 þús-
und krónum. Hægt er að semja um
mun styttri greiðslutíma og þá jafn-
framt þyngri greiðslubyrði. En
einnig er hægt að greiða inn á
samninginn hvenær samningstím-
ans sem er til að létta greiðslubyrð-
ina eða greiða hann upp með fúlln-
aðargreiðslu hvenær sem er á
samningstímanum
í lok samningstímans getur við-
skiptavinurinn framlengt samning-
inn um bilinn, eða látið hann upp í
nýjan bíl og gert nýjan fjármögnun-
arsamning, eða í þriðja lagi greitt
upp það sem fjármögnunarleigan á
hugscmlega enn í bílnum, hafi í upp-
hafi verið gerður samningur um að
greiða hann ekki upp á samnings-
tímanum, og þá eignast hann.
Ólíkt hefðbundnum bUakaupum
verður sá sem fær sér nýjan bU á
kaupleigu ekki eigandi bUsins, bUl-
inn verður skráður eign fjármagn-
sleigufyrirtækisins, Lýsingar hf., en
viðskiptavinurinn skráður í bif-
reiðaskrá sem umráðamaður bUs-
ins. Meðan kaupleigusamningurinn
er í gUdi verður að kaskótryggja bU-
inn, en umráðamaður ræður sjálfur
hvar hann tryggir hann. -SÁ
Eimskipafélagiö:
Breytingar á
Austurlandi
Umboö Eimskipafélagsins á
Eskifirði, Fáskrúðsfirði og Seyð-
isfirði hafa hætt starfsemi frá
síðustu áramótum, en sú þjón-
usta sem þau veittu heyrir nú
undir svæðisskrifstsofu Eim-
skips á Austurlandi, sem er á
Eskifiröi. Félagið hefur ráðið
sérstakan starfsmann á Seyðis-
fiði, en á öðrum stöðum munu
verktakar sjá um lestun og losun
og aðra umsýslu með vöru.
í frétt frá Eimskip segir að
þessar breytingar séu liður í
uppbyggingu á aukinni þjónustu
við landsbyggðina og tengist m.a.
beinum siglingum til Evrópu frá
höfnum utan höfuðborgarsvæð-
isins og vaxandi starfsemi utan
þess. -SÁ
Áslaug Pólsdóttir kynningarróö-
gjafi.
Nýr kynningar-
ráðgjafi KOM
Áslaug Pálsdóttir hefur verið
ráðin kynningarráðgjafi hjá al-
mannatengslafyrirtækinu KOM
og er sérsvið hennar ráðgjöf í
markaðs- og neytendamálum
með áherslu á yngri kynslóðim-
ar, fjölmiðlasamskipti o.fl.
Áslaug Pálsdóttir er 23 ára
gömul og er að ljúka BA-námi frá
Háskóla íslands i stjómmála-
fræöi. -SÁ
Blendin viðbrögð við kaupleigu bíla:
Brimborg boðið að breyta auglýsingum
- Samkeppnisstofnun telur veigamiklar upplýsingar vanta um endanlegt verð og kostnað
Samkeppnisstofnun hefur boðið
Brimborg að breyta auglýsingum
um kaupleiguskilmála Brimborgar
og Lýsingar hf., sem fyrirtækin
kalla Fislétta fjármögnun, vegna
þess að ekki komi fram í þeim raun-
verulegur kostnaður viðskiptavin-
anna, endanlegt verð bíla sem
fengnir eru á kaupleigu, auk ýmiss
annars kostnaðar. Forsvarsmenn
Brimborgar segjast munu breyta
auglýsingunum i samræmi við kröf-
ur Samkeppnisstofnunar.
Neytendasamtökin hafa einnig
gert athugasemdir við auglýsing-
arnar vegna þess að ekki komi fram
í þeim endanlegt bílverð til kaup-
enda, né heldur að um sé að ræða
kaupleigusamning.
í frétt frá Neytendasamtökunum
segir að í auglýsingunum sé þess
ekki getið að menn þurfi að greiða
útborgun í bíl sem fenginn er með
Fisléttri fiármögnun, né sé þess get-
ið hve há útborgunin skuli vera. Þá
sé ekki gerð grein fyrir því að ein-
ungis sé veitt lán fyrir litlum hluta
kaupverðsins og að á lánstímanum
eigi kaupandi ekki bílinn, heldur
Lýsing hf. Eftir að umsömdum
leigutíma ljúki standi stór hluti
kaupverðsins enn eftir og til þess að
eignast bílinn verði kaupandi eða
leigjandi að greiða markaðsverð
bílsins eins og það er við lok láns-
tímans. -SÁ
Ný vél í íslenska flugflotann:
Islandsflug eignast ATR 42
- verður notuð í vöruflutninga á nóttunni og farþegaflug á daginn
„íslandsflug er að kaupa ATR 42
flugvél frá Frakklandi sem verður
afhent í þessari viku eða byrjun
næstu. Vélin er eins og sú sem félag-
ið rekur þegar, en hefur á leigu,“
segir Gunnar Þorvaldsson, fram-
kvæmdastjóri íslandsflugs, í samtali
viö DV.
Nýju flugvélinni verður fyrst flog-
ið til Bretlands þar sem henni verð-
ur breytt í samræmi við þarfir ís-
landsflugs og standsett í samræmi
við þær kröfur sem félagið gerir til
flugflota síns, að sögn Gunnars.
íslandsflug flýgur reglulegt vöru-
flutningaílug að næturlagi milli
Reykjavíkur og East Midland flug-
vallar við Bristol. ATR 42 flugvélar
félagsins taka hátt á fiórða tonn af
vamingi á þessari leið og eru hrað-
sendingar DHL stór hluti af flutn-
ingunum, auk margs konar vam-
ings. Fiskur er t.d. stór hluti þess
sem flutt er með vélunum frá ís-
landi, að sögn Gunnars.
Á daginn em og veröa ATR-flug-
vélamar notaðar í innanlandsflugi
félagsins. ATR-flugvélarnar eru
skrúfuþotur. Þær eru samevrópsk
framleiðsla og eru verksmiðjumar
að stærstum hluta í eigu Aerospat-
iale, sem m.a. framleiðir Airbus
breiðþotur. ATR 42 gerðin tekm' 46
farþega, en sem vöruflutningavél
ber hún allt að fimm tonn.
-SÁ
Starfs-
hvatning
Bókin Starfshvatning, sem er
fiórða bókin í ritröð forlagsins
Framtíðarsýnar, er komin út og
fiallar á hnitmiðaðan hátt um
starfshvatningu, að því er segir í
frétt frá Framtíðarsýn.
Bent er á árangursríkar leiðir
til að bæta frammistööu fyrir-
tækis í gegnum ánægt og vinnu-
fúst starfsfólk og leiðir til að
gera starfsfólk ánægt og vinnu-
fúst. -sÁ
1300
woa.
Olís
Olíufélagið
M
8,6
Skeljungur
Síldarvinnslan