Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.1997, Qupperneq 19
10-70%
afsláttur
WMIISfAff
9 0 4 - 5 0 0 0
Verð aðeins 39,90 mín.
Þú þarft aðeins eitt símtai
í Lottósíma DV til að fá nýjustu
tölur í Lottó 5/38, Víkingalottó
og Kínó ?
I LOTTQsími
Útsala
Ljós og lampar
Rafkaup
ÁRMÚLA 24 - SÍMI: 568 1518
+'
MIÐVIKUDAGUR 15. JANUAR 1997 19
Fréttir
húss
vemdun hússins og tilgangurinn aö
endurbyggja það og koma þar upp
starfsemi sem tengist menningu eða
sögu héraðsins á einhvem hátt.
Að sögn Sveins Pálssonar, for-
manns félagsins, hefjast endurbæt-
ur á næstu mánuðum. Ætlunin er
að það verði byggt upp í þeirri
mynd sem það var upphaflega í Vík.
Sveinn segir ljóst aö endurbygging
hússins verði kostnaðarsöm og
komi til með að taka talsverðan
tíma.
„Engar ákvarðanir hafa verið
teknar um rekstur í húsinu en ýms-
ar hugmyndir hafa komið fram. Má
þar nefna verslunarminjasafn, safn
eða sýningarstað um sögu Kötlu-
gosa eða sögu sjósöknar, skip-
stranda og bjargana. En öllum er
frjálst að ganga í félagið og hafa þar
áhrif á gang mála“, sagði Sveinn.
-NH
Brydebúð í Vík í Mýrdal:
Starfsmenn Atlanta á Keflavíkurflugvelli, Guömundur Jón og Agnar.
DV-mynd ÆMK
Brydebúö í Vík. Nú stendur til að hefja húsiö til viröingar á ný.
DV-mynd Njöröur
Endurreisn fornfrægs
DVjVík:
Þrátt fyrir hafnleysi hefur Vík í
Mýrdal verið verslunarstaður frá
því á seinni hluta síðustu aldar.
Vörum til verslanna var skipað upp
á árabátum oft við erfiðar og hættu-
legar aðstæðm-, enda tók útræði frá
hinni sendu hafnlausu strönd
stundum sinn toll. Fyrsta verslunar-
húsið, sem reist var á sandinum,
stendur við aðalgötu þorpsins vest-
anverða.
Húsið var byggt í Vestmannaeyj-
um 1830-1831 af P.C. Knudtzon stór-
kaupmanni og Th. Thomsen kaup-
manni úr Hafnarfirði sem íbúðar-,
verslunar- og vöruhús. Verslunina
nefndu þeir Godthaab. 1894 kaupir
J.P.T. Bryde „grósser í Kaupmanna-
höfn“ eignir Godthaabsverslunar í
Eyjum. Árið eftir lét hann taka hús-
ið niður og flutti til Víkur í Mýrdal
sem hafði fengið löggildingu sem
verslunarstaður 2. desember árið
1887.
Á vegum Brydes var byrjað að
versla í Vík 1888. Húsið var endur-
reist þar sem verslunarhús. Má með
nokkrum sanni segja að húsið hafi
verið fyrsta varanlega byggingin
sem var reist í Vík. Er jafnframt eitt
elsta timburhús sem stendur á Suð-
urlandi fyrir utan Húsið á Eyrar-
bakka. Verslunarhúsið var i eigu
Brydeverslunar til 1914 en þá keypti
Þorsteinn Þorsteinsson, verslunar-
stjóri í Vik, það. Hann seldi svo
Kaupfélagi Skaftfellinga það 1926
sem rak verslun í því til 1981. Þá
var leigt Saumastofunni Kötlu.
Kaupfélagið seldi Byggðastofnun
húsið 1994 og síðan hefur engin
starfsemi verið í þvi.
Nú stendur til að hefia húsið til
virðingar á ný. í nóvember sl. stofn-
uðu nokkrir einstaklingar í Vík
„Menningarfélag um Brydebúð".
Hvatin að stofnunni var áhugi á
Keflavíkurflugvöllur:
Tveir menn annast
þar oll storfin
hjá Atlanta
DV, Suðurnesjum:
„Þetta er eitt starf hjá okkur og
allt innifalið í því sem þarf að gera.
Við sinnum flugfarþegum okkar,
Scunskiptum við Flugleiðir og allt
niður í það að skúra gólf. Það sem
þarf að gera er gert,“ sögðu þeir:>
Guðmundur Jón Helgason stöðvar-
stjóri og Agnar Gunnarsson, aðstoð-
arstöðvarstjóri Atlanta á Keflavík-
urflugvelli, í samtali við DV.
Þótt ótrúlegt megi virðast sinna
Guðmundur Jón og Agnar öllu
starfi og skipulagningu Atlanta á
Keflavíkurflugvelli. Margir halda að
starfsmenn séu miklu fleiri vegna
umsvifa fyrirtækisins þar. Sem
kunnugt er voru hjónin Amgrímur
Jóhannsson og Þóra Guðmundsdótt-
ir hjá Atlanta menn ársins 1996 í ísl.
viðskiptalífi hjá DV, Stöð 2 og Við-
skiptablaðinu.
Þó höfuðstöðvar fyrirtækisins
séu í Mosfellsbæ er mikið gert á
Keflavíkurflugvelli. Atlanta er með
aðstööu sína í húsnæði í eigu Olís
og leigir helming þess á móti Flug-
flutningum. Guðmundur Jón og
Agnar sinna öllu sem viðkemur Atl-
anta. Þeir sjá um að aðstoða flugfar-
þega ef eitthvað kemur upp á. Vélar
Atlanta eru stórar og taka allt að
500 farþega svo nóg er að gera.
Þá sjá þeir um allan frívörulager
og koma söluvamingi um borð. Allt
sem viðkemur flugvélum Atlanta á
Keflavíkurflugvelli er gert af þeim.
Félagið er með flugeldhús í Keflavík
þar sem flugvélamaturinn er gerður
og sjá þeir félagar um eftirlit með
honum þegar hann er settur um
borð.
„Þetta er mikil vinna og skemmti-
leg. Á sumrin þegar umsvifin eru
mest er unnið nánast alla daga vik-
unnar. Á veturna notum við meðal
annars tímann í alls konar frágang-
og undirbúning fyrir sumarið,"
sögðu Guömundur Jón og Agnar
-ÆMK
Menntamálaráðunevtið
Stuðningur við listastarfsemi
í fjárlögum 1997 er, eins og undanfarin ár, fjárveitingarliður sem ber
yfirskriftina „Listir, framlög“. Að því leyti sem skipting liðarins er ekki
ákveðin í fjárlögum ráðstafar menntamálaráðuneytið honum á grund-
velli umsókna til ýmissa verkefna á sviði lista og annarrar menningar-
starfsemi. Áriö 1997 er gert ráð fyrir, að ákvörðun um framlög af þess-
um lið verði tekin í febrúar, maí og október með hliðsjón af umsóknum
sem fyrir liggja hverju sinni við upphaf þessara mánaða.
Þetta er hér með tilkynnt til leiðbeiningar þeim sem hyggjast sækja um
styrk af framangreindum fjárlagalið.
Menntamálaráðuneytiö, 14.janúar 1997