Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.1997, Qupperneq 24
24
MIÐVIKUDAGUR 15. JANÚAR 1997
- Fergie komin í
safaauglýsingu
Hertogaynjan af Jórvík er nú
komin út í auglýsingamennsk-
una á fullu. Fergie lék í 30 sek-
úndna sjónvarpsauglýsingu í
vikunni fyrir ávaxtadrykk frá
fyrirtækinu Ocean Spray. Aug-
lýsingin var tekin upp í Los
Angeles og herma fréttir að
Fergie hafi fengið sem svarar
um fimmtíu milljónum ís-
lenskra króna fyrir. Veitir sjálf-
sagt ekki af svona góðum laun-
um þar sem hún er skuldum vaf-
in.
Kennedy vill skilja við eiginkonuna:
skatta og f jármál
Carolyn er vonlaus
kokkur og eyðslukló
Það hriktir í stoðum hjónabands
Johns F. Kennedys yngri og Caro-
lyn Bessette þó ekki séu liðnir nema
tæpir fjórir mánuðir síðan þau voru
gefrn saman.
John, sem er sonur Johns Kenn-
edys, fyrrum Bandaríkjaforseta,
kvæntist Carolyn við leynilega at-
höfn á eyju undan strönd Georgíu
þann 21. september síðastliðinn. Ör-
yggisverðir girtu af stórt svæði til
að halda í burtu ljósmyndurum sem
voru tilbúnir að leggja mikið á sig
til að ná brúðkaupsmyndum af kyn-
þokkafyllsta karlinum í heiminum.
Reyndar voru þeir farnir að sitja
fyrir parinu fyrir brúðkaupið og
náðu mynd af Carolyn og John
stuttu fyrir vígsluna þar sem þau
voru að rífast í Central Park í New
York.
Grunnt virðist hafa verið á því
góða og fregnir herma að John hafi
beðið um ógildingu hjónabandsins
Carolyn og John meðan allt lék í lyndi.
aðeins þremur mánuðum eftir brúð-
kaupið. Þann 27. desember síðastlið-
inn á svo Carolyn að hafa haft sam-
band við frægan skilnaðarlögfræð-
ing í Hollywood og leitað ráða hjá
honum.
Sagt er að Carolyn hafi ekki sætt
sig við að komast ekki einu sinni út
í búðina á horninu án þess að fjöldi
ljósmyndara umkringdi hana. Hún
mun hafa beðið eiginmanninn um
hjálp. 1 síðasta mánuði kom hann
henni til hjálpar með því að slást
við ljósmyndara.
John hefur kvartað undan þvi
hvað eiginkonan eyðir miklum pen-
ingum í fatnað og er þar að auki
sagður hafa kallað hana slæman
kokk.
Og Carolyn mun ekki verða rík
komi til skilnaðar. Fyrir brúðkaup-
ið var gerður kaupmáli þar sem
kveðið er á um að ef hjónabandið
vari í 3 til 10 ár fái Carolyn sem
nemur um rúmum 100 milljónum
króna. Hún hefði hins vegar fengið
um 200 milljónir hefði hún unað í
hjónabandinu í meira en áratug.
Eftir fjögurra mánaða hjónaband
fengi Carolyn ekki nema 65 milljón-
ir. Þrátt fyrir að hafa undirritað
kaupmálann er Carolyn æf og ætlar
að fara fram á að minnsta kosti tí-
falda þá upphæð.
Strandvarðagellur
Fáklædd strandvarðagella.
fletta sig klæðum
Það er vandlifað sem strand-
varðagella. Það fengu nokkrar
stúlknanna svo sannarlega að reyna
fyrir skömmu þegar yfirmenn
þeirra, þar á meðal yfirstrandvörð-
urinn og súkkulaðifabrikkan David
Hasselhoff, helltu sér yfir þær fyrir
að fletta sig klæðum fyrir framan
myndatökuvélarnar. Ekki strand-
varðavélamar, nota bene.
„Framleiðendurnir urðu alveg
spólvitlausir. Þeir höfðu ekki hug-
mynd um að verið væri að gera
þetta myndband og nú er búið að
hóta þeim brottrekstri," segir heim-
ildarmaður sem er vel að sér i mál-
efnum strandvarðaþáttanna.
Hápunktur myndbandsupptö-
kunnar ku vera þegar hin dökk-
hærða Traci Bingham fór úr hvítum
sundbolnum og fórnaði þar með
sakleysinu og gekk nakin út í haf-
ölduna. Traci hefur tekið við af
Pamelu Anderson sem aðalgellan.
Aukablað um
Miðvikudaginn 29. janúar mun aukablað
um skatta og fjórmal fylgja DV.
Vinsamlegast athugib að síðasti skiladagur
auglýsinga er fimmtudagurinn 23. janúar.
Rómantískir gáfumenn eiga upp á pallborðiö hjá ítölsku tískukóngunum
þessa dagana. Peir sem ekki eru þessum eiginleikum gæddir geta því bara
keypt sér haust- og vetrarlínuna fyrir 1997 og látið reyna á það hvort fötin
skapi manninn. Hér sést búningur frá Gianfranco Ferré. Sfmamynd Reuter
Sharon Stone, kynbomban
sem vill ekki lengur vera það,
ætlar að leika í fjölskyldumynd.
Nánar tiltekið fer hún í föt ein-
stæðrar móður skarpgreinds en
fatlaðs drengs sem vex og vex á
ógnarhraða.
Debbie fær loks
stjörnu á
gangstéttina
Deöbie Reynolds lætur okkur
ekki í friði. Við munum öll eftir dá-
samlegri framkomu hennar í dans-
og söngvamyndinni Sungið i úrfell-
inu fyrir margt löngu og innan
skamms fáum við að sjá hana í
myndinni Móður. í vikunni fékk
svo Debbie stjömu i gangstéttina
frægu i Hollywood. Dóttir Debbiar,
Carrie Fisher, var með móður sinni
í tilefni dagsins. Stjörnuna fékk
Debbie fyrir sviðsleik.
Debbie Reynolds og Carrie Fisher.
Sharon Stone
einstæð móðir
BlaSið verður fjölbreytt og efnismikiS en í því verSur fjallaS
um flest þaS er viSkemur sköttum og fjármálum heimilanna,
m.a. skattframtöl, húsnæSislán, kreditkort, greiSsludreifingu,
leiSir til sparnaSar o.fl.
Þeim sem vilja er bent á aS koma fyrirspurnum, upplýsingum
og efni í blaSiS á framfæri viS Jóhönnu A.H. Jóhannsdóttur,
DV, fyrir 23. janúar. Bréfsíminn er 550-5020.
Þeir auglýsendur sem hafa áhuga á aS auglýsa í þessu
aukablaSi vinsamlega hafi samband viS Selmu Rut
Magnúsdóttur, auglýsingad. DV, hiS fyrsta í síma 550-5720.