Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.1997, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.1997, Blaðsíða 9
ÞRIÐJUDAGUR 21. JANÚAR 1997 9 Utlönd Ekkert samkomulag við Rússa um stækkun NATO Javier Solana, framkvæmda- stjóri NATO, og Jevgení Príma- kov, utanríkis- ráðherra Rúss- lands, urðu sam- mála um það eft- ir flmm klukku- stunda langan fúnd í Moskvu í gær að samningaviðræður þeirra um breytt samskipti mundu halda áfram en að þær yröu langar og erf- iðar. Ekki tókst að leysa ágreining um stækkun bandalagsins til aust- urs. „Fundurinn var gagnlegur þótt ágreiningur sé enn um fjölda mála,“ sagði í stuttri yfirlýsingu frá rússneska utanríkisráðuneytinu. Embættismenn í Brussel, þar sem höfúðstöðvar NATO eru, sögðu að enn væri breitt bil milli aðila. Lítiil tími er þó til stefnu þar sem ráðgert er að á leiðtogafundi í Ma- drid í júlí verði Tékklandi, Ung- verjalandi og Póllandi boðin aðild. Ókeypis símtöl fyrir að hlusta á auglýsingar Sænska fyrirtækið Gratistelefon býður viðskiptavinum sínum ókeypis símtöl ef þeir sætta sig við að samtalið verði rofið reglulega með auglýsingum. Gerðar hafa verið tilraunir í tveimur bæjum, Lundi og Norrköping, frá því í nóvember og á hverjum degi af- greiðir fyrirtækið um 30 þúsund símtöl. Notendur verða fyrst að hringja í grænt númer fyrirtækisins og velja síðan númer þess sem þeir vilja tala við. Auglýsingar eru leiknar á meðan verið er að ná sambandi, síðan í 10 sekúndur eft- ir fyrstu mínútuna og loks á þriggja mínútna fresti. Ekki er hægt að tala saman á meöan aug- iýsingamar eru. Hnífar banvænni en byssurnar Morðingjar í Finnlandi taka kutana fram yfir byssumar við iðju sína. Á ári hverju em um 150 morð í Finnlandi og er rúmur helmingur þeirra framinn með hnífum eða öðmm eggvopnum en byssur eiga aðeins hlut að máli í 40 prósentum tilvika. Samt er byssueign almenn, samtals um 2,2 milijón stykki eða tæplega ein byssa á hveija tvo íbúa landsins. í undirbúningi em ný lög um aukið öryggi í geymslu skotvopna. Reuter Vladmimír Ílíts Lenín, stofnandi Sovétríkjanna, á ekki mjög upp á pallboröiö í heimalandi sínu nú og á þessari mynd má sjá brjóstmynd af leiötoganum inni á lóö málmbræðslu í Moskvu. Málmbræöslan framleiddi áöur þúsundir brjóstmynda af Lenfn en nú er starfsemin nánast engin vegna lítillar eftir- spurnar. Þaö er samt vissara aö sópa af honum snjónum. Símamynd Reuter Danska lögreglan staðfestir: Bréfasprengjurnar til breskra viðtakenda - valdabarátta innan rokkbransans ekki útilokuð er greinilegt að aðrir em að reyna að ná markaðnum." Danska lögreglan handtók sjö meinta nýnasista um helgina eftir að lagt var hald á þrjár bréfa- sprengjur sem póstlagðar vora í Sví- þjóð og áttu að fara til London. Var sprengiefnið falið í myndbandsspól- um. Að sögn lögreglunnar vom bréfa- sprengjurnar stílaðar á fyrrum ólympísku sundstjömuna Sharron Davies og andfasísk samtök sem berjast gegn öfgasinnuðum hægri mönnum. Bresk blöð hafa greint frá því að fyrram hnefaleikakappinn Frank Bruno og knattspymumaður- inn Paul Ince hafi átt að fá bréfa- sprengjumar. Brano og Ince era svartir en eiginkonur þeirra hvítar. Sharron Davies er hvít en hún er gift blökkumanninum Derek Redm- ond. Reuter Danska lögreglan greindi frá í gær að bréfasprengjumar, sem póst- lagðar vora af meintum nýnasist- um, hefðu verið ætlaðar breskum sjónvarpskynni, sem á svartan eig- inmann, og breskum andfasískum samtökum. Ein sprengjan var stíluð á bresku nýnasistasamtökin Combat 18 sem sendendur bréfa- sprengnanna era sjálfir bendlaðir við. Talið er að það hafi verið gert til að viila um fyrir mönnum hver hafi sent bréfasprengjumar og að sam- tökin hafi vitað fyrirfram um send- inguna. Sá möguleiki að um valda- baráttu innan Combat 18 sé að ræða er heldur ekki útilokaður. Breska lögreglan neitaði að tjá sig um upplýsingar dönsku lögreglunn- ar en talsmaður breskra gyðinga, Michael Whine, sagði í viðtali i danska sjónvarpinu að samtök sín hefðu fengið vitneskju um að bréfa- sprengjumar hefðu verið stílaðar á nýnasista. Sagði Whine að samtökin Combat 18 gegndu mikilvægu hlut- verki í nýnasistarokkiðnaðinum þcir sem valdabarátta væri háð. „Leiðtogamir í Bretlandi eiga allir yfir höfði sér réttarhöld á næstu mánuðum og era að endurskipu- leggja bisnessinn með tilliti til þess að þeir verði dæmdir í fangelsi. Það Garðatorgi 1 - Garð KENNARI: ORVILLE abæ - Sími 565-8898 Kl/fcA fl/ iJlnQ CVuM KENNARI: JIMMY RONALD ROUTLEY 4. DAN HIP HOP (feffij.aöir dans (tiifami tmom fyrir anýiÍKja, KENNARI: ORVILLE Indónesísk sjálfsvarnaríþrótt KENNARI: ANDREAS SCHMIDT FYRRV. LANDSLIÐSÞJÁLFARI ÞÝSKALANDS Skráning er hafin í &\ma 565-3333

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.