Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.1997, Blaðsíða 28
32
ÞRIÐJUDAGUR 21. JANÚAR 1997
Sviðsljós
Golden Globe-verðlaunin afhent á sunnudagskvöld:
Madonna er langflottust
stelpnanna í Hollywood
Madonna var virðuleikinn upp-
málaður en Lauren Bacall rak upp
vein. Hvar annars staðar en í
Hollywood, við afhendingu Golden
Globe-verðlaunanna?
„Ég hef verið svo ótrúlega lánsöm
undanfarið ár,“ sagði kynbomban,
söngkonan og leikkonan þegar hún
hafði tekið við verðlaunum fyrir
frammistöðuna í dans- og söngva-
myndinni Evitu. Þar átti Madonna
að sjálfsögðu við fæðingu frumburð-
ar síns og vinnuna við Evitu. Hún
var kjörin best leikkvenna í aðal-
hlutverki í söng- eða gamanmynd.
„Ég er að fríka út,“ sagði hin
gamalreynda Lauren Bacall sem
líka fékk verðlaun, fyrir aukahlut-
verk í kvikmynd. Lauren lék í
mynd Barbru Streisand, Spegillinn
hefur tvö andlit.
Já, það var mikið um dýrðir f
Hollywood þegar Golden Globe-
verðlaunin voru afhent á sunnu-
Madonna heldur á Golden Globe-
verðlaunagripnum sem leikkonan
Nicole Kidman afhenti henni.
dagskvöld, enda oft litið á verð-
launaveitingu þessa sem vísbend-
ingu um hvert óskarsverðlaunin
fara þegar þeim verður dreift í
mars.
Evita, mynd Alans Parkers, fór
heim með flest verölaun, eða þrenn,
verölaunin til Madonnu meðtalin.
Hún var kjörin besta myndin í
flokki söng- og gamanmynda og
einnig var hún verðlaunuð fyrir
besta lagið.
Tom Cruise var kjörinn besti
leikarinn í söng- eða gamanmynd
fyrir hlutverk sitt í Jerry Maguire.
Besti leikarinn í dramatískri mynd
var álitinn vera Geoffrey Rush í
Shine og besta leikkona í sama
flokki var Brenda Blethyn í Leynd-
armálum og lygum sem sýnd er í
Reykjavík um þessar mundir. Besti
leikstjórinn var kjörinn hinn tékk-
neski Milos Forman fyrir myndina
um klámkónginn Larry Flynt sem
bráðlega verður sýnd hér.
Golden Globe verðlaunin eru
einnig veitt fyrir besta sjónvarps-
efnið og í þeim flokki fengu góðvin-
ir okkar, þau Gillian Anderson og
David Duchovny úr Ráðgátum,
verðlaun sem bestu leikarar og
þáttaröðin var kjörin besta drama-
syrpan.
Það eru samtök erlendra frétta-
manna í Hollywood sem veita
Golden Globe-verðlaunin.
Játvarður opin-
berar trúlofun
sma í sumar
Yngsti sonur Elísabetar
drottningar, Játvarður prins,
ráðgerir að opinbera trúlofun
sína og Sophie Rhys-Jones í
sumar, að því er breska blaðið
Express greindi frá í gær.
Játvarður, sem er 32 ára, hef-
ur verið í ástarsambandi við
Sophie í þrjú ár. Þeir sem
grannt hafa fylgst með málefh-
um konungsfjölskyldunnar hafa
hins vegar bent á að hann hafi
beðið með aö opinbera trúlofun-
ina þar til fyrirtæki hans, sem
framleiðir sjónvarpsefhi, væri
komiö almennilega á koppinn.
Því er einnig haldið fram að
skilnaðir bræðra hans tveggja,
Karls og Andrews, hafi orðið til
þess að hann hafi viljað vera al-
veg viss um hug sinn.
Vinir okkar úr Ráðgátum, þau Gillian
Anderson og David Duchovny, áttu
verðlaunin svo sannarlega skilið.
Drottning rómantíkurinnar, sjón-
varpsleikkonan Jane Seymour, kem-
ur til Golden Globe-athafnarinnar.
Tom Cruise getur verið ánægður
með afrakstur síðasta árs, verðlaun
og fullt af peningum.
Helen Mirren reynir að bíta f verö-
launagripinn sinn.
Slmamyndir Reuter
Hagstœð kjör
Ef sama smáauglýsingin
er birt undir 2 dálkum sama
dag er 50% afsláttur
af annarri auglýsingunni
aW mill/ hirr,/,
1ns,
v.
yo,
*ÍL
Or
Smáauglýsingar
550 5000
Breski tískuhönnuöurinn Alexander McQueen vakti mikla athygli fyrir klæðnaðinn sem hann teiknaði fyrir franska
tískukónginn Givenchy og sýndur var í Parfs um helgina. Þar á meöal voru fallegar hvftar buxur meö gylltum hnöpp-
um og gulröndótt toppstykki, heldur efnisrýrt. McQueen hefur ekki áöur teiknaö fyrir Givenchy. Sfmamynd Reuter