Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.1997, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.1997, Blaðsíða 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 21. JANÚAR 1997 Mí' J JJ Hármissir: Fer rosalega á sálina á sumum - segir Eiríkur Þorsteinsson hársnyrtir Hér hefur sérhannað gipsmót verið lagt yfir skailablettinn. Síðan er hárið unnið eftir mótinu þannig að það falli algjörlega að höfuðlaginu. Þegar kemur fram á miðjan ald- ur fmna margir karlmenn fyrir því að hárið er farið að þynnast. En þeir eru fleiri sem þurfa að kljást við þetta vandamál, sumir karlmenn eru enn á táningsaldri þegar hármissirinn byijar og sum- ar konur hafa ekki farið varhluta af hármissi. Sumum er nokk sama og eru sælir og glaðir með sinn skalla en fyrir aðra getur hármiss- irinn orðið mikið áfall. Tilveran spjallaði við Eirík Þor- steinsson, hársnyrti og eiganda Apollo hárs Stúdío sem sérhæfir sig í aö hjálpa fólki sem á við þetta vandamál að stríða. Lyf virka takmarkað Fyrst vildi Tilveran fá að vita hvort til væru einhver lyf sem væru til hjálpar. „í kringum 1983 byrjuðu að koma fram efni sem eru framleidd úr blóðþrýstingslyfi. Það var gerð tilraun á fongum i Sing Sing með eitt af þessum efn- um og ég vissi til að prinsinn af Mónakó fór til Bandaríkjanna og keypti þetta efni á svörtum mark- aði, án árangurs. Þú getur kannski hangið á því hári sem þú ert með með því að nota þessi efni og stundum geta þau hjálpað til í blettaskallatilfellum. Hárvöxtur getur aukist hjá sumum en það er mjög sjaldgæft og þá venjulega hjá fólki sem á í veikindum eða miss- ir hárið af stressi. Hármissir er nefnilega ekki alltaf í genunum, það getur verið önnur ástæða fyrir honum.“ Ýmsar leiðir færar En þó að lyf dugi takmarkað er ýmsar aðrar leiðir færar eins og ísett hár, hártoppar og sérhannað hár. En hvernig er metið hvað er best fyrir hvem og einn? Eiríkur segir það að miklu leyti vera spurningu um peninga hvað menn vilji eyða miklu í að vera fínir. „Sérhannað hár er t.d. búið til úr raunverulegu mannshári, það er tekið nákvæmt gipsmót af hverjum og einum og hárið fram- leitt eftir því.“ Eiríkur segir fæsta vera nauðasköllótta, flestir séu með kraga eða þunnt hár og sé nýja hárið fest í það, c.a. einn sentímetra inn á hárið sem enn sé á. „Flestir koma með mjög ákveðn- ar hugmyndir um hvemig þeir vilja hafa sitt nýja hár. Sumir vilja bara hylja leiðinlegan „mána“ en halda samt kollvikum við enni, aðrir vilja gjaman fá hárið sem þeir höfðu á táningsaldri og enn aðrir vilja fá lítið hár í byijun og siðan auka það skref fyrir skref, jafnvel í nokkur ár, áður en full- komnum árangri er náð. í dag er þetta orðið það fullkom- ið að enginn á að geta séð annað en hér sé um raunverulegt hár að ræða. Það er þvegið eins og annað hár, þú ferð í sund og stundar íþróttir en það er æskilegast að sá sem setti það á sjái um snyrtingu á þvi. En þetta tekur tíma, það er tveggja mánaða ferli frá því mótið er tekið og þar til hárið er tilbúið. En svo mikið er víst að það er liðin tíð að menn þurfi að taka ofan hárið og sofa með það á nátt- borðinu,“ segir Eiríkur. Hártoppar eða ísetning En hvað með gömlu, góðu hár- toppana? Eiríkur segir þá vera svolítið öðruvísi. „Þeir eru t.d. framleiddir í takmörkuðu litaúr- vali og passa ails ekki á alla. Hár- toppar eru framleiddir í staðlaðri framleiðslu og passa alls ekki á þá sem eru með mjótt eða mjög breitt höfuð. Auk þess hylja þeir öll koll- vik, flestir menn eru með kollvik og ef þeir eru þannig frá náttúr- unnar hendi þá eiga þau að vera. í sérhönnuðu hári er tekið tillit til þeirra.“ Ein leiðin enn er ísetning á hári en þá er gervihári úr trjákvoðu skotið i höfuðið með loftbyssu. „Þetta er sniðugt að því leytinu til að hárið getur þést hægt og rólega, allt eftir þvi hvað efnahagurinn leyfir.“ Hármissir óháður aldri Eiríkur segir upp og ofan hvem- ig menn taki hármissi, sumum sé alveg sama en aðrir taki þetta mjög nærri sér. „Þetta getur farið rosalega inn á sálina á mönnum, það sem ég fæ oftast að heyra þeg- ar menn hafa látið laga þetta er „af hverju gerði ég þetta ekki fyrr.“ En leita konur til Eiríks? „Karlar eru í miklum meiri- hluta en ég hef fengið til min kon- ur. Það eru þá konur sem eru virkilega með vandamál, konur sem t.d. hafa misst hárið af völd- um skurðaðgerða. En maður fær til sín karlmenn á öllum aldri, sá yngsti var 16 ára og sá elsti 71 árs. Áberandi hártoppar hræði- leg sjón „Ef hárleysið plagar mann þá er hægt að gera margt í dag og það eru alltof margir á götunum með ljóta og áberandi hártoppa. Það eru auðvitað viðbrigði þegar hálf- sköllóttur maður er kominn með þykkt og fínt hár og að sjálfsögðu taka allir eftir því. En ef það er vel gert þá gleymir fólk þessu fljótt. Það er nefnlega regla að ef fólk horfir á hárið á þér en ekki í aug- un á þér þegar þú ert með eitthvað þessu líkt á höfðinu þá sést það.“ En hvað finnst Eiríki síðan best við starfið? „Það sem er mest gefandi í þessu starfi er að vita til að fólki líður betur og er hamingusamt." -ggá Þetta módel er með sérhannað hár þó ómöguiegt sé fyrir mannsaugaö að nema það. DV-myndir Pjetur. mitt breyttist - segir 29 ára gamall maður með sérhannað hár Tilveran spjallaði við 29 ára gaml- an mann sem er með sérhannað hár þó það sé engin leið að sjá að hér sé um annað en hans eigið hár að ræða. Ég var 18 ára gamall þegar ég fór að missa hárið, kollvikin fóru sí- hækkandi. Þetta angraði mig rosa- lega, fór hreinlega á sálina á mér. Það er hrikalegt fyrir svona unga stráka að lenda í þessu. Ég fór að leita hjálpar, það var sett á mig gam- aldags hárkolla og þannig átti ég að labba út. En ég var ailtaf ákveðinn í að gera eitthvað af viti í málinu og ég var 19 ára þegar ég fékk fyrst sér- hannað hár. Litimir og magnið var vandlega ákveðið og þá fyrst varð ég ánægður. Það tók mig sex mánuði að venjast þessu en það kom samt hægt og rólega þar sem hárið var þykkt smátt og smátt. Allt breyttist, sjálfs- öryggið jókst, minnimáttarkenndin hvarf og mér byrjaði að líða vel. Hár- ið skiptir það miklu í sjálfsmynd manna. Ég geri allt sem ég vil í dag, fer í sund, fæ mér strípur og annað og hef aldrei verið spurður að því hvort hér sé ekki um mitt hár að ræða. Eftir 10 ár hef ég aldrei fundið fyrir efa hjá nokkrum manni. -ggá Mataræðið skiptir máli Lélegt mataræði kemur illilega niður á hárinu. Það er t.d. ástæðan fyrir því að lystarstolssjúklingar hafa í flest- um tilfellum þunnt og matt hár. Jámskortur og blóðleysi kemur einnig niður á fegurð hársins auk þess sem lang- tímanotkun sýklalyfja getur orsakað hárlos. í síðarnefhda tilvikinu geta B-vítamínskammtar hjálpað. Margir halda einnig fram að ungum, kvenkyns grænmetisætum sé hættara við hárlosi en öðrum. Það er mjög æskilegt að dagleg næring innihaldi prótein auk fimm skammta af grænmeti og ávöxtum. Sé tekið upp rétt mataræði má búast við auknum gljáa og aukinni þykkt en árangurinn kemur ekki strax, hann kemur ekki fýrr en eftir um það bil þrjá mánuði. En hann kemur! Það er bara um að gera að vera þolinmóður.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.