Dagblaðið Vísir - DV - 21.01.1997, Page 10
10
ÞRIÐJUDAGUR 21. JANÚAR 1997
Spurningin
Ertu farin/n aö huga
að sumarfríinu?
Hafliði Brynjólfsson afgreiðslu-
maður: Ég er ekki farinn að hugsa
svo langt.
Eyrún Jónsdóttir nemi: Ég ætla
bara að vinna og svo fer ég til
Kanada.
Saga Ýr Jónsdóttir nemi: Ég ætla
til útlanda, í skóla til Danmerkur.
Marta Loftsdóttir: Reyndar er ég
ekki farin að huga að því.
Elías Þórðarson: Já, ég ætla til út-
landa, til Danmerkur.
Hilmar Elíasson verkamaður: Ég
hugsa að ég ferðist innanlands eins
og ég er vanur.
Lesendur
Sundlaug í
Skerjafjörðinn
íbúi í Skerjafirði skrifar:
Fréttir hafa borist af því að
Skeljungur muni á næstunni, ég
veit ekki hvenær, flytjast úr
Skerjafirðinum með alla sina starf-
semi. Það hlýtur að vera gleðiefni
fyrir okkur sem þar búum þó í
sjálfu sér sé ekkert út á fyrirtækið
sjálft að setja. Nábýlið hefur verið
vandræðalaust en það er bara ekki
mjög spennandi að búa við hlið
fyrirtækis sem starfar i þessu fagi.
í gegnum Skerjafjörðinn liggur
ein mesta útivistaræð borgarinnar
og þar skokka tugir eða hundruð
manna í hverjum mánuði. Talað
hefur verið um að borgin hafi
áhuga á því að koma upp útivistar-
svæði í firðinum og ég geri það að
tillögu minni að þar verði komið
upp sundlaug. Margt útivistarfólk
myndi án efa fagna því ef slík
starfsemi kæmi þarna til þess að
þjóna þeim fjölmörgu sem þama
eiga leið um eða búa.
Nú kunna eflaust einhverjir að
segja að það eigi að byggja sund-
laugar á öðrum stöðum fyrst og að
Skerjafjörðurinn geti vart komið
til greina næstu áratugina. Þessu
vil ég mótmæla og bendi á það að
auk þess sem ég nefndi um stað-
setninguna fyrir útivistarfólkið
eru augljós söguleg rök sem mæla
með því að einmitt þama verði sett
niður sundlaug. Fyrsti sundskál-
inn í Reykjavík er einmitt talinn
hafa verið þama um aldamótin.
Auk þess er hefð fyrir því að fólk
baði sig á þessum slóðum. Flestir
Reykvíkingar, sem slitið hafa
barnsskónum, hafa eflaust ein-
hvern tíma baðað sig í Nauthóls-
víkinni.
Ég er á því að við byggjum yfír-
leitt allt of dýr sundlaugarmann-
virki, eins og Árbæjarlaugin er
augljóst dæmi um, og ég er ekkert
að fara fram á slíkt bmðl. Lítil
laug með lágmarksaðstöðu myndi
henta okkur vel í Skerjafirðinum.
Asbest í einangrun
Christen Sörensen hringdi:
Ég er íbúi í elliíbúðum að Norð-
urbrún 1 og ég er orðinn afar þreytt-
ur á því að ekkert er gert í því að
hér er að einhverju leyti einangrað
með asbesti. Það vita allir að þetta
efni er algerlega bannað og mér hef-
ur í langan tíma verið lofað að þetta
verði lagað. Enn hefur ekki verið
staðið við það.
Einu íbúamir hér sem hafa feng-
ið þetta lagið hafa því miöur fæstir
geta notið þess því ekkert hefur ver-
ið gert fyrr en fólk deyr. Þá er fyrst
farið í framkvæmdir.
Einn nágranni minn fór til lækn-
is og læknirinn fyrirskipaði að as-
bestið yrði að fjarlægja og að ná-
granni minn yrði að vera á hóteli
þar til það væri búið. Hann var
sendur í Hveragerði meðan unnið
var að viðgerðum og hann segir
ástandið allt annað og betra.
Annað sem mig langar til þess að
gera athugasemd við er að loftræst-
ing hefur ekki verið hreinsuð hér í
meira en ár og hér er allt stíflað og
nánast óvirkt. í sumar hafði steypa
dottið niður úr lofti í íbúð hér niðri
og þá var það lagað með því að líma
hana upp með límbandi. Þannig er
það enn, hvort sem fólk trúir því
eða ekki.
Mér finnst að þetta ástand þurfi
að laga áður en ég dey, ég borga jú
fyrir að búa hérna.
Svört skýrsla um áfengi
Jón Steinn skrifar:
Svört skýrsla um það hvernig
bömin okkar og unglingamir fara
með áfengi og eiturlyf hefur borist í
hendur fjölmiðlamanna og um hana
hefur verið rækilega fjallað. Fyrir-
sögnin í Morgunblaðinu 15 janúar
síðastliðinn ætti að vera okkur næg
hvatning til þess að taka sameigin-
lega á áranum og róa þann lífróður
sem þarf svo fleytan sökkvi ekki. „Of-
beldi og óæskilegt kynlíf fylgir
drykkju," segir i fyrirsögninni og síð-
an ver þetta ágæta blað heilli síðu til
þess að fjalla um þetta.
Er hugsanlegt að mönnum finnist
það eðlilegt og allt í lagi að 80%
fimmtán ára unglinga á íslandi hafi
neytt áfengis? Og það sem gerir okk-
ar börn öðravísi en annarra, miðað
við þessa könnun, er að þegar spurt
er hvort bömin hafi orðið drukkin
einu sinni eða oftar síðustu tólf mán-
LÍiÍilM þjónusta
allan sólarhringinn
Adeins 39,90 inmútan
- eða hringíð í síma
5000
milli kl. 14 og 16
Jón Steinn hefur áhyggjur af svartri skýrslu um áfengisneyslu ungdómsins
hér á landi.- Hér má sjá grein sem birtist í erlendu blaöi um að íslendingar
hafi sett heimsmet í drykkju á ákveöinni bjórtegund.
uðina er ísland í sjötta sæti í heimin-
um. Við erum neðarlega á listanum
yfir þá sem höfðu neytt áfengis og
því virðast okkar börn frekar drekka
sig fuO en börn víðast hvar annars
staðar i heiminum, með öðrum orð-
um; drykkjusiðimir hér eru verri.
Vandamálin sem fylgja áfenginu,
áðumefnd óæskileg kynlifsreynsla,
oft fíkniefni, innbrot og ofbeldi eru
mál sem við þurfum að staldra sér-
staklega við.
Af reynslunni vitum við að það
hefur ekkert að segja að hrópa, úlfur,
úlfur. AOir vita hvemig þá fer. Hins
vegar þurfa þeir sem vinna með ung-
lingunum og þeir sem stjóma hérna
í þessu landi að taka á þessum mál-
um, ekki með offorsi, heldur með
ákveðni og festu.
Vægur rasismi
Jón skrifar:
Mér hefúr þótt lítð um kyn-
þáttahatur hérlendis imdanfar-
in ár en því miður finnst mér
það vera að vaxa og festa rætur
meðal landsmanna. Mér hefúr
borist í hendur blað sem er gef-
ið út í Hveragerði og nefhist
Arísk upprisa. Þetta nýrstár-
lega blað er uppfullt af hatri
gagnvart minnihlutahópum
þjóðarinnar. Mér fannst það
nokkuð fyndið að slagorð þessa
blaðs skuli einmitt vera Hreint
land, fagurt land. En er það
virkilega þetta sem þjóðin viO?
Þó ég viðurkenni að í mér
blundi vægur rasismi finnt mér
þetta of langt gengið. Engum er
hollt að leggja hatur á náung-
ann og ég spyr hvaða tOgangi
það þjóni.
Allir með tyggjó
Kona hringdi:
Mig langar tfi þess að vetja
athygli landans á því að í dag
eru aOir með tyggigúmmí og
má einu gilda við hvaða tæki-
færi, í bíó, sundi, í sjónvarps-
viðtali eða jafnvel við jarðarfar-
ir. Mér finnst þetta ósmekklegt
og hefur aOtaf þótt vera ákveð-
inn sóðaskapur fólginn í því að
sjá fólk með þetta. Verst þykir
mér þegar ég sé fólk jórtra á
tyggigúmmíi viö útfarir. Mér
finnst það óvirðing við aðstand-
endur og hinn látna. Fólk í sjón-
varpi ætti að sjá sóma sinn í
því að taka út úr sér klessuna
áður en kveikt er á vélunum.
Laugarnar
of kaldar
Guðrún Guðmundsdóttir hringdi:
Sundlaugarnar í Reykjavík
eru of kaldar að mínu mati. Ég
fór fyrst að veita því athygli
þegar ég fór með erlenda vini
mína í svmd og þeir fóru að
undrast á því af hverju „aOt
heita vatnið okkar“ á íslandi
væri ekki heitara en þetta. Mér
finnst kynningin á hveraland-
inu okkar einhvern veginn
missa marks þegar við höfum
ekki einu sinni efhi á að hita
sundlaugarnar almennilega.
Dugar ekki
Borgarleikhúsið
Steindór hringdi:
Leikfélag Reykjavíkur hefur
mikið verið í umræðunni upp á
síðkastið og í kjölfar þeirrar
rnnræðu datt mér í að nýta
þyrfti Borgarleikhúsið betur.
Það er aOtaf verið að tala um að
byggja þurfi tónlistarhús. Það
er lika talað um að allt of dýrt
sé að setja upp sýningar sem
boðlegar eru hinum risastóra
sal og því stóra sviði sem er í
Borgarleikhúsinu. Er ekki hægt
að slá þessum vandamálum
saman og leysa þar með tónlist-
arhússvandann? Það hlýtur að
mega breyta salnum ef þurfa
þykir tO þess að bæta hljóðið.
Taprekstur á Borgarleikhúsinu
gefur ekki fyrirheit um að vel
myndi ganga að reka tónlistar-
hús.
Góð þjónusta
Hallgerður hringdi:
Ég er orðin gömul kona en
reyni samt að vera töluvert á
ferðinni á daginn. T0 þess nota
ég strætisvagnana og er afskap-
lega ánægð meö þá þjónustu
sem ég fæ þar. BOstjórarnir eru
upp tO hópa práðir og myndar-
legir menn sem vOja aOt fyrir
mig gera.