Dagblaðið Vísir - DV - 29.01.1997, Síða 24
36
MIÐVIKUDAGUR 29. JANUAR 1997
Tími rólegheit-
anna búinn
„Tími rólegheitanna er búinn.
Viö getum ekki leyft okkur leng-
ur að dúlla í þessu."
Valdimar Guðmundsson, form.
Verkalýðsfél. A-Húnvetninga, í
Degi-Tímanum.
Lengi má beitt járn...
„Ég hef verið mjög seinþreytt-
ur til átaka eins og verkafólk er
almennt. En lengi má beitt járn
brýna að bíti.“
Sigurður T. Sigurðsson, form.
Verkamannafél. Hlífar, i Degi-
Tímanum.
Ummæli
Steindautt
„Sennilega er mesta fréttin í
samningamálunum sú að það er
allt steindautt."
Halldór Björnsson, form. Dags-
brúnar, i DV.
Ýmist ágengir eða ábyrgir
„Fjölmiðlar á íslandi eru ým-
ist of ábyrgir eða of ágengir en
viö þurfum íjölmiðla sem eru
hvort tveggja."
Páll Þórhallsson lögfræöingur, í
Alþýðublaðinu.
Af því bara
„Þetta er okkar helsta
áhyggjuefni núna, ekki síst
vegna þess að fólk er ekki að
flytja héðan vegna atvinnuleysis
heldur af því er virðist „af því
bara“.“
Kristján L. Möller, bæjarfulltrúi
á Siglufirði, um fólksfækkun, í
Alþýðublaðinu.
Froskar eru yfirleitt mjög litlir og
fjöldi tegunda svo mikill að ná-
kvæm tala verður ekki búin til.
Froskar og
froskdýr
Geysilegur tjöldi tegunda er til
af froskum og froskdýrum.
Stærsta froskdýrið er kínverska
risasalamandran (Andrias davi-
dianus) sem lifir í Kína. Fullvax-
ið dýr er að meðaltali 114 cm að
lengd og vegur 25-30 kg. Stærsti
froskur sem þekkist er hinn
sjaldgæfi golíatfroskur (Gonraua
goliath) sem finnst í Kamerún og
Miðbaugs-Gíneu. Árið 1960
veiddist 3306 g kvenfroskur sem
reyndist vera 34 sentímetra lang-
ur. Smæsti froskurinn er örva-
eiturfroskurinn (Sminthillus
limbatus) sem lifir á Kúbu. Full-
vaxið dýr er 8,5-12,5 mm að
lengd. Smæsta froskdýrið er
stutthöfða kartan (Phsylliphryne
didactyla) sem lifir í Brasilíu.
Meðallengd fullvaxins dýrs er 9,8
mm.
Blessuð veröldin
Eitraðasti froskurinn
Virkasta eitur sem þekkist er
unnið úr seyti kirtla í húð gullna
örvaeiturfrosksins (Phyllobates
terribilis) sem lifir í Kólombiu.
Verða menn að nota þykka
hanska þegar þeir fást við frosk-
ana. Úr fullorðnum froski fæst
nægilegt eitur (1900
míkrógrömm) til að bana um
1500 manns.
Rigning og slydduél
Við strönd Grænlands vestur £if
Vestfjörðum er heldur vaxandi 995
mb lægð sem hreyfist norðaustur.
1045 mb hæð er yfir Bretlandseyj-
um.
Um landið vestanvert verður
Veðrið í dag
suiman og suðvestan stinningskaldi
eða allhvasst og rigning fram eftir
morgni en síðan allhvöss suðvestan-
átt með hvössum snjó- eða slyddué-
ljum. Þar léttir til með minnkandi
vestanátt í nótt. Austan til verður
suðvestan stinningskaldi eða all-
hvasst, skýjað og víða rigning fram
undir kvöld en síðan fer að létta til
með minnkandi vestanátt. Þó má
gera ráð fyrir éljum norðaustan til.
Veður fer kólnandi og í nótt verður
vægt frost um allt land.
Á höfuðborgarsvæðinu verður
sunnan og suðvestan stinningskaldi
eða allhvasst og súld eða rigning
fram eftir morgni en síðan allhvöss
suðvestanátt með slydduéljum. Létt-
ir til með minnkandi vestanátt í
nótt. Hiti 4 til 7 stig í fyrstu en síð-
an kólnandi, vægt frost í nótt.
Sólarlag í Reykjavík: 17.06
Sólarupprás á morgun: 10.14
Síðdegisflóð í Reykjavík: 22.04
Árdegisflóð á morgun: 10.21
Veðrið kl. 6 í morgun:
Akureyri skýjað 11
Akurnes súld 6
Bergstaöir hálfskýjaö 8
Bolungarvík rigning 5
Egilsstaóir skýjaö 9
Keflavíkurflugv. þokumóöa 7
Kirkjubkl. rigning 7
Raufarhöfn skýjaö 4
Reykjavík alskýjaö 7
Stórhöfói súld 7
Helsinki skýjaó -11
Kaupmannah. léttskýjaö -2
Ósló skýjað -6
Stokkhólmur léttskýjaó 2
Þórshöfn skýjaö 9
Amsterdam þokuruóningur 2
Barcelona alskýjaó 8
Chicago heiöskírt -17
Frankfurt snjókoma 0
Glasgow skýjaö 4
Hamborg þoka 1
London mistur 5
Lúxemborg skýjað -0
Malaga hálfskýjaö 14
Mallorca skýjað 5
Miami léttskýjaö 21
París þokumóöa 0
Róm lágþokublettir 3
New York heiöskírt -1
Orlando þokumóða 15
Nuuk snjókoma -12
Vín snjókoma 1
Winnipeg heiöskírt -26
Þráinn Hafsteinsson frjálsíþróttaþjálfari:
Frjálsíþróttahöll varð til á tólf tímum
„Það má segja að frjálsíþrótta-
mótið í heild hafi farið fram úr öll-
um vonum. Við vonuðumst að
vísu eftir fleiri áhorfendum en ég
held að veðrið hafi þar átt sök.
Allt skipulag og umgjörð var alveg
eins og við höfðum viljað hafa það
og svo komu hin miklu afrek sem
þarna unnust sem bónus ofan á
allt saman," segir Þráinn Haf-
steinsson, íþróttafræðingur og yf-
irþjálfari hjá frjálsíþróttadeild ÍR.
Hann ásamt bróður sínum Vé-
steini Hafsteinssyni bar hita og
þunga af hinu glæsilega frjálsí-
þróttamóti sem haldið var í tilefni
afmælis ÍR í Laugardalshöllinni
um síðustu helgi.
Undirbúningur haföi staðið
lengi yfir: „Þetta var ákveðið í
september en mesta vinnan var í
desember og janúar. Fyrst var far-
ið að hafa samband við útlending-
ana og semja við þá og síðan var
áhlaup í sambandi við að koma
þessu á framfæri við fjölmiðla.
Síðasti sólarhringurinn fyrir mót-
ið fór síðan i að byggja frjáls-
íþróttahöll í LaugardalshöUinni.
Við fengum húsið kl. 17.00 á fóstu-
dagskvöldið og fórum heim klukk-
an rúmlega fimm um nóttina,
þetta var sem sagt tólf tíma töm
hjá þrjátiu manna liði.
Þráinn Hafsteinsson.
Eiginkona Þráins er hin kunna
frjálsiþróttakona Þórdís Gísladótt-
ir og gerði hún sér lítið fyrir og
Maður dagsins
sigraði í hástökkinu þótt hún væri
að keppa við þær bestu á Norður-
löndum: „Það að Þórdís skyldi
vinna var toppurinn fyrir mig.
Það bjóst enginn við að hún mynd-
ir sigra en eins og hennar er von
og vísa þá stendur hún sig aUtaf
best þegar pressan er mest og
stemningin er mikil. Ég hef komið
nálægt fijálsíþróttum á íslandi frá
þvi 1966 þegar ég fór að fara með
fóður mínum á mótin og hef aldrei
upplifað hér á landi á frjálsíþrótta-
móti aðra eins stemningu eins og
var í LaugardalshöUinni."
Þráinn er íþróttafræðingur að
mennt og kennir í Iðnskólaniun i
Hafnarfirði auk þess að þjálfa.
Hann segir frjálsar íþróttir vera í
mikiUi uppsveiflu: „Ég hef stjóm-
að uppbyggingunni hjá ÍR síðast-
liðin tvö ár og þaö hefur ekki ver-
ið erfitt að fá krakka tU að koma
tU okkar, fjöldinn hefur margfald-
ast þessi tvö ár enda er Reykjavík
nánast óplægður akur fyrir frjáls-
ar íþróttir og ég vinn í að plægja
þann akur. í fyrstu var lögð mikU
áhersla á að efla unglingastarfið
en í vetur hefur verið lögð meiri
áhersla á meistaraflokkinn og
fékk ég Véstein bróður minn til
liðs við mig. Hann tekur stóran
hluta af þjálfun meistarflokksins
og það er afskaplega gaman að
vinna aftur með honum.“
Þráinn sagði að lokum að það
væri þegar farið að skipuleggja
næsta mót, búið væri að sanna að
þetta væri hægt.- -HK
Myndgátan
Lausn á gátu nr. 1721:
Hefur mikið aðdráttarafl
Myndgátan hér að ofan lýsir orðasambandi.
ÍR-Stjarnan í
handboltanum
Nokkuð hefur verið um frest-
anir á leikjum að undanfornu
vegna veðurs og er leikur dags-
ins í dag, viðureign ÍR og Stjöm-
unnar í 1. deild handboltans,
einn slíkur leikur. ÍR-liðið hefur
verið á uppleið að undanfórnu
íþróttir
en lék á mánudagskvöld erfiðan
leik við KA í undanúrslitum bik-
arkeppni HSÍ og má reikna með
að leikurinn sitji í því. Stjarnan
er með sterkt lið sem hefur átt
misjöfnu gengi að fagna. ÍR leik-
ur á heimavelli og búast má við
að leikurinn verði spennandi.
Leikurinn hefst kl. 20.
Útivera
Gengiö um virkjunar-
svæði Hitaveitunnar
Á miðvikudagskvöldgöngu
Hafnagönguhópsins verður farið
frá Hafnarhúsinu kl. 20 og gengið
með ströndinni inn að einni af
gömlu borholunum við Höfða.
Þaðan verður gengið um virkjun-
arsvæði Hitaveitunnar og að aðal-
bækistöð hennar við Bolholt. Þar
mun Einar Gunnlaugsson jarð-
fræðingur rifja upp i stuttu máli
sögu Hitaveitunnar og segja frá
starfsemi hennar í dag. Val verð-
ur um að ganga til baka eða fara
með SVR. Hugmyndin er að
seinna verði genginn í áfóngum
hitaveitustokkurinn upp i Mos-
fellsbæ, að elstu borholunni þar.
Uppruna jarðhitans á höfuð-
borgarsvæðinu má rekja til
útkulnaðar eldstöðvar (öskju) en
legu hennar kynnir Hafhagöngu-
hópurinn í annarri ferðaröð. Allir
eru velkomnir í ferð með Hafna-
gönguhópnum.
Bridge
I þessu spili eru spurning hvort
sagnhafi hefur einhverjar vísbend-
ingar til að fmna réttu spilaleiðina
til að standa samninginn. Gerum
ráð fyrir að AV séu góðir varnar-
spilarar og samningurinn fjórir
spaðar á suðurhöndina eftir þessar
sagnir. Norður gjafari og enginn á
hættu:
* D6543
V ÁG5
K7
* 1062
* 108
V K10932
■t D105
* G93
* ÁKG72
V 84
* 63
* ÁD74
Norður Austur Suður Vestur
pass pass 1 * 2 ♦
3 -t dobl 4 * p/h
Samningurinn er í harðara lagi
og lítur ekki vel út þegar útspil vest-
urs er tígulfjarki. Það kemur sagn-
hafa á óvart að kóngurinn heldur í
blindum en þá eru tveir efstu í
spaða teknir og síðan fer sagnhafi
að undirbúa endaspilun. Hann spil-
ar næst hjarta á gosann og austur
drepur á kónginn. Austur spilar
hjartatiunni til baka og austur setur
drottninguna. Sagnhafi tekur á ás,
trompar síðasta hjartað, spilar sig
inn í blindan á tromp og síðan laufi
með það fyrir augun að setja sjöuna.
En austur er vakandi og setur ní-
una. Sagnhafi setur drottninguna
heima og vestur á slaginn á kóng-
inn. í fjögurra spila endastöðu spil-
ar vestur laufi til baka. Sagnhafi
hefur um það að velja að setja tiuna
eða sexuna í blindum en hvora leið-
in á hann að velja? Það eru rök sem
mæla með því að setja sexuna í
blindum. Þau felast í þvi að ef vest-
ur á bæði KG í laufi hefði góður
varnarspilari í austur eflaust spilað
laufi til að koma í veg fyrir enda-
spilun þegar hann var inni á hjarta-
kóngi. Þess vegna er rétt að spila
upp á að gosinn sé hjá austri.
ísak Öm Sigurðsson
* 9
* D76
* ÁG9842
* K85