Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1997, Síða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1997, Síða 7
FIMMTUDAGUR 6. FEBRÚAR 1997 7 Fréttir Vestfirskur skelfiskur á Flateyri: Sýnilegur áhugi hjá nýjum fjárfestum - segir Guölaugur Pálsson framkvæmdastjóri DV, Flateyri: „Við höfum enga ástæðu til ann- ars en að vera bjartsýnir, við höfum þegar lokið nauðasamningaferlinu og með því lækkað skuldir fyrirtæk- isins um áttatíu prósent jafnframt því sem hlutafé hefur verið aukið um 24 milijónir króna. Það hefur komið okkur skemmtilega á óvart að þrátt fyrir að fyrirtækið hafi þurft að leita nauðasamninga hefur verið sýnilegur áhugi hjá nýjum fjárfestum að koma inn í félagið þó enn hafi ekkert verið ákveðið í þeim efnum," sagði Guðlaugur Pálsson, framkvæmdarstjóri hjá Vestfirsk- um skelfiski á Flateyri. En sem kunnugt er hefur öll starf- semi fyrirtækisins legið niðri frá því að skip félagsins, Æsa ÍS, fórst á Amarfirði á fyrra ári. „Það hefur þegar verið fundið skip í Bandaríkjunum sem mundi henta vel fyrir verksmiðjuna hjá okkur. Þetta nýja skip hefur t.d. ríf- lega tvöfalt meiri burðargetu en gamla skipið hafði. Þá vonumst við eftir því að Fiskveiðasjóður komi að málinu. Ef þetta gengur eftir gerum við ráð fyrir að vinnslan verði kom- in 1 fullan gang um miðjan apríl og þá með tvöfalt meiri afköstum en áður,“ sagði hann. Það gætir nokkurs taugatitrings meðal íbúa á Flateyri eftir að Stöð 2 greindi frá því í fréttum að til stæði aö flytja verksmiðju fyrirtækisins til Þingeyrar enda mikið í húfi fyrir atvinnulif á Flateyri. „Þetta var nú í fysta skipti sem ég heyrði þetta, það var í fréttunum. Ég lít nú fýrst og fremst á þessa frétt sem létt grín. Við erum þegar með okkar eigin borholur og við öfl- um sjálfir með eigin veitu 90% þess vatns sem við notum, þannig að við erum sjálfum okkur nógir með vatn. Það er því algerlega rangt sem fram kom I fréttinni að við þurfúm að flytja vegna vatnsskorts. Að flytja svona verksmiðju hefði í for með sér tugmilljóna kostnað sem við höf- um ekkert ráð á auk þess sem við ættum þá eftir hér óseljanlegt sér- hæft verksmiðjuhús. Þá er vafasamt að viðskiptamenn okkar i Banda- ríkjunum sættu sig við að bíða mán- uðum saman á meðan við værum að flytja verksmiðjuna. Ég skil ekki hvaðan þetta er komið,“ sagði Guð- laugur. -GS Húsnæði Vestfirsks skelfisks á Flateyri. DV-mynd Halldór c Útsalan í fullum gangi Kvengötuskór Póstsendum saindægurs Verð: 1.495 Stærð: 36-40 Litur: Svartur ATH. Hlýfóðraðir Verö á laxveiðileyfum í ár ^ Dagurinn í Laxá á Asum kostar 200 þúsund - veiðileyfin í Rangá hækka mest - sumar ár lækka í verði Nú liggur fyrir verðskrá í allar helstu laxveiðiár landsins. Enn sem fyrr er Laxá á Ásum í sérflokki hvaö verð snertir en dagurinn þar á dýrasta tíma kostar 200 þúsund krónur. Ódýrasti dagurinn þar kost- ar 20 þúsimd krónur. Rangámar hækka mest í verði. Þar kostaði dýrasti dagurinn í fyrra 28 þúsund krónur en í ár kostar hann 40 þús- und krónur. Nokkrar ár lækka örlít- ið í verði eins og Grimsá, Gljúfúrá og Hofsá i Vopnafirði. Lækkunin er þetta 1.500 til 2.000 krónur á dýrasta tímanum. Hér fer á eftir skrá yfir veiðileyfm í helstu Laxveiðiám landsins. -G. Bender Veiöimenn eru farnir aö kaupa veiöileyfi og spá fyrir um veiöina í sumar, von- andi verður betri veiöi en f fyrra. Veiöi- leyfin hækka lítiö á milli ára. Sala laxveiðileyfa: Gengur mjög vel Svo er að heyra á þeim sem selja veiðileyfi næsta sumar að salan gangi vonum framar og einhveijar ár eru uppseldar núna þessa dagana. Kemur þetta þó nokkuð á óvart vegna þess að laxveiðin í fyrra var alls ekki góð. En veiðimenn eru með þeim bjartsýnni sem fyrir finnast á landinu og þess vegna kemur þetta ekki á óvart „Salan gengur svakalega vel hjá okkur í Leirvogsá og virðist sem færri komist að en vilja. Ég man ekki áður eftir annarri eins eftirspum og veiðin verður vonandi eins góð og hún var síðasta sumar,“ sagði Guð- mundur Magnússon í Leirvogstungu er við spurðum um veiðileyfasöluna á sumri komanda. „Við erum búnir með allt hjá okk- ur næsta sumar," sagði Lárus Gunn- steinsson, einn af leigutökum Vestur- dalsár í Vopnafirði, og bætti við: „Það eru mikið sömu mennimir hjá okkur í ánni ár eftir ár.“ „Ég man ekki eftir annarri eins eft- irspum eins og í Álftá á Mýrum núna. Það vifja margir komast í ána,“ sagði Dagur Garðarsson í Veiðifelag- inu Straumum. „Mér sýnist menn bara vera bjart- sýnir fyrir sumarið og laxveiðin gæti orðið góð. Sala veiðileyfa gengur ágætlega," sagði Böðvar Sigvaldason á Barði í Miðfirði og formaður Lands- sambands Stangaveiðifelaga er við spurðum um stöðuna fyrir smnarið. Hækkun á miffl ára er lítil enda ekki hægt að hækka mikið veiðileyf- in þegar laxveiðin er ekki betri en hún var fyrir Norðurlandinu. En við skulum bara vona að veiðin verði góð á sumri komanda. -G. Bender Laxveiðiár: Ódýrast 97 Dýrast 97 Dýrast 96 Elliðaámar 7.400 7.400 Leirvogsá 10.000 31.000 31.000 Laxá í Kjós 12.000 26.000 26.000 Brynjudalsá 10.000 15.000 15.000 Laxá í Leir 9.000 23.000 20.000 Eyrarvatn 800 1.200 1.200 Þórisstaðavatn 800 1.200 1.200 Geitabergsvatn 800 1.200 1.200 Andakílsá 8.400 21.000 20.000 Norðurá(l) 11.500 48.900 47.600 Norðurá(2) 11.800 17.600 17.600 Norðurá (Flóðatangi 2.200 4.400 4.400 Þverá (Kjarrá) 10.000 50.000 50.000 Flókadalsá 8.600 21.300 21.300 Grimsá 11.000 47.000 45.000 Gljúfurá 7.600 16.400 14.900 Langá á Mýrum 5.000 32.000 32.000 Hítará 7.900 25.200 24.800 Hítará (II) 2.500 4.500 4.500 Hítará (vorveiði) 1.600 1.600 HaSjarðará 65.000 Alftá á Mýrum 12.000 29.000 28.000 Hörðudalsá 3.000 9.900 9.900 Laxá í Dölum 17.000 38.000 Hvolsá og Staðarhólsá (vorveiði) 3.500 Hvolsá og Staðarhólsá 7.000 15.000 15.800 Flekkudalsá 9.000 20.000 16.800 Miðfjarðará 13.000 45.500 45.500 Miðfjarðará (silungasvæðið) 4.000 4.000 Víðidalsá og Fitjá 14.000 58.500 58.500 Vatnsdalsá 14.000 23.000 Vatnsdalsá (silungasvæðið) 1.000 8.000 8.500 Gljúfurá 6.000 10.000 10.000 Laxá á Ásum 20.000 200.000 200.000 Svartá 20.000 30.000 25.000 Laxá á Refasveit 11.000 18.900 18.900 Laxá í Aðaldal 8.500 33.000 33.000 Selá í Vopnafirði (efra svæðið) 8.500 34.000 34.000 Selá í Vopnafirði (neðra svæðið) 8.500 50.000 44.000 Hofsá í Vopnafirði 11.000 47.000 43.000 Vesturdalsá 3.500 20.000 20.000 Breiðdalsá 1.800 6.500 6.500 Grenlækur (ýmis svæði) 1.000 7.000 7.000 Tungufljót 3.800 7.400 7.400 Stóra-Laxá i Hreppum 7.800 12.100 12.100 Rangámar 2.000 40.000 28.000 Minnivallarlækur (Landss.) 3.000 Snæfoksstaðir 3.700 4.500 4.500 Laugarbakkar 950 2900 2.000 Langholt í Hvitá 3.000 10.000 10.000 Sogið 1.800 13.300 13.300 Sogið (Þrastarlundur) 3.000 6.000 6.000 Hlíðarvatn í Selvogi 1.200 Þorleifslækur (Varmá) 1.400 bSpffl!!l pf œíl ln@ teféC # Vandað og margbreytilegt fjaðrakerfi sem tryggir réttan stuðning, þægindi og endingu. # Margar gerðir eru til þannig að allir geta fundið dýnu við sitt hæfi, þungir eða léttir -það skiptir engu máli. # Margar stærðir eru í boði, allt frá 80 sm. # Góð yfirdýna fylgir öllum Ide Box fjaðradýnunum. # Ide Box fjaðradýnurnar eru á tréramma og geta staðið einar sér eða passa ofan í flest öll rúm. # Hjón geta valið sitthvora dýnugerðina ef vill og eru þá dýnurnar einfaldlega festar saman. # Ide Box fjaðradýnurnar hafa leyst málin fyrir þær þúsundir Islendinga sem kusu betri svefn. # Ide Box fjaðradýnurnar eru alltaf til á lager # Ide Box fjaðradýnurnar eru ekki dýrar. Komdu og prófaðu Ide Box fjaðradýnurnar. Sérþjálfað starfsfólk okkar tekur vel á móti þér. / Munið bara _ ^ Ide Box fjaðra- \dýnurnar fást \ aðeins hjá \ okkur. ' HÚSGAGNAHÖLLIN Bildshofði 20 - 112 Rvik - S:587 1199

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.