Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1997, Blaðsíða 29
FIMMTUDAGUR 6. FEBRÚAR 1997
37
í efri sölum Nýlistasafnsins er
sýningin: Súmsalur: Ég - pallur:
ímyndaðir vinir.
Fjögur stór
myndverk og
ímyndaðir vinir
Tvær sýningar voru opnaöar
í Nýlistasafninu við Vatnsstíg
um síðustu helgi. Hollendingur-
inn Joris Rademaker sýnir í
neðri sölum safnsins fjögur stór
myndverk unnin í blandaða
tækni. Megináhersla í verkun-
um er lögð á hreyfíngu og rými.
í efri sölum Nýlistasafnsins hef-
ur Helgi Hjaltalín Eyjólfsson
umsjón með sýningu sem ber
heitið: Súmsalur: Ég - pallur:
ímyndaðir vinir. Sýningarnar
eru opnar daglega nema mánu-
daga kl. 14-18 og þeim lýkur 16.
febrúar.
Tónleikar
Og að vatnið sýni
hjarta sitt
Um helgina lýkur í sýning-
arsalnum Ingólfsstræti 8 sýn-
ingu Halldórs Ásgeirssonar.
Sýningin hefur nokkra sérstöðu
en á henni er lituðu vatni undir
gleri varpað á vegg með
halogenljósum. Yfirskrift sýn-
ingarinnar, „og að vatnið sýni
hjarta sitt“, er tekin úr ljóðlínu
eftir mexíkóska ljóðskáldið Oct-
avio Paz. Sýningin er opin
fimmtudaga til sunnudaga frá
kl. 14-18.
Vísur og
bundin ljóð
1 dag, kl. 17, efnir Ritlistar-
hópur Kópavogs til upplestrar í
kaffistofu Gerðarsafns. Þau sem
lesa eru Auðunn Bragi Sveins-
son, Böðvar Guðlaugsson,
Ragna S. Gunnarsdóttir og
Valdemar Lárusson.
Láttu verkin tala
Gæðastjórnunarfélag íslands
stendur fyrir ráðstefnu í dag um
gæðamál, undir yfirskriftinni
Láttu verkin tala, á Hótel Loft-
leiðum. Ráðstefhan samanstend-
ur af sameiginlegri dagskrá með
einum erlendum fyrirlesara,
Eric Harvey, fyrir hádegi, fyrir-
lestrum í fjórum þemasölum eft-
ir hádegi og sýningu.
Samkomur
Aglow Reykjavík
Fundur fyrir konur á öllum
aldri í kvöld, kl. 20, í Kristni-
boðssalnum, Háleitisbraut
58-60. Boðun orðsins, lofgjörð og
fyrirbæn.
Kínversk áramót
í dag er gamlársdagur í Kína
og samkvæmt kínverskri hefð
verður gamla árið kvatt með
flugeldasýningu við Perluna í
kvöld, kl. 21. Nýju ári verður
síðan fagnað í Perlunni í fyrra-
máliö.
Skíðasvæði Víkings
Sir Oliver:
Blús með vinum Dóra
Það hefur gustað um veitingastaðinn Sir Oli-
ver, sem er við Hverfisgötu, gegnt Landsbóka-
safninu, eftir að hann komst I eigu hins kunna
skemmtikrafts, Þórhalls Sigurðsson, betur
þekkts sem Ladda. Um helgar er á Sir Oliver
boðið upp á skemmtiatriði, oft með Ladda sjálf-
an í broddi fylkingar. í kvöld er það hins veg-
ar blúsinn sem er í fyrirrúmi og hver er betri
til að túlka okkur hina seiðandi hljóma blúsins
en Halldór Bragason (Dóri) sem mun mæta á
staðinn með hljómsveit sína, Vini Dóra, um
tíuleytið og leika þá tónlist sem þessi hljóm-
sveit hefur haldið uppi merki fyrir undanfarin
ár. Á fostudags- og laugardagskvöld verða það
svo grínistamir Björgvin Franz og Laddi sem
skemmta gestum
Skemmtanir
Halli Reynis á Fógetanum
Trúbadorinn vinsæli, Halli Reynis, skemmt-
ir á Fógetanum í kvöld, frá kl. 22-01. Mun hann
svo aftur skemmta á sunnudagskvöld. í milli-
tíðinni er það hljómsveitin Babylon sem
skemmtir á föstudags- og laugardagskvöld.
Dóri mun leiöa hljómsveit stna, Vini Dóra, um leyndardóma
blúsins á Sir Oliver í kvöld.
Aöeins
jeppafært um
Suðursveit
Á Snæfellsnesi er þungfært um
Kerlingarskarð og þæfmgur á Fróð-
árheiði, en ófært frá Stykkishólmi
og um Álftafiörð. Verið er að moka
frá Búðardal um Svínadal og Gils-
fiörð til Reykhóla. Á Vestfiörðum er
verið að moka heiðar á sunnanverð-
um fiörðunum, norðan til er ófært
Færð á vegum
um Steingrímsfiarðarheiði. Nokkuð
góð færð er á Norðurlandi. Norð-
austan til er hafinn mokstur á Mý-
vatns- og Möðrudalsöræfum og
Vopnafiarðarheiði. Suðaustanlands
er aðeins fært fyrir jeppa og stóra
bíla um Suðursveit vestan Hafnar.
W
Astand vega
m Hálka og snjór 0 Vegavinna-aögát @ Öxulþungatakmarkanir
LokaörSt°ÖU ^ Þungfært (g) Fsert fjallabílum
Hólmfríður Eva
Litla telpan á mynd-
inni, sem hlotið hefur
nafhið Hólmfríður Eva,
fæddist á sjúkrahúsinu á
Blönduósi 25. desember
kl. 19.35. Hún var viö fæð-
ingu 3480 grömm að
Barn dagsins
þyngd og mældist 53
sentímetra löng. Foreldr-
ar hennar eru Inga Mar-
grét Guðmundsdóttir og
Bjöm Viðar Hannesson
sem búa á Skagaströnd.
Hólmfríður Eva á þijú
systkin, þau em Fjóla
Dögg, Ragnar Mar og
Guðmundur Bjöm.
Barbra Streisand leikur ekki aö-
eins aöalhlutverkiö, heldur leik-
stýrir hún og framleiöir myndina.
Tvö andlit
spegils
í Tvö andlit spegils (The Mir-
ror Has Two Faces) leikur Bar-
bra Streisand Rose Morgan sem
kennir rómantískar bókmenntir
við Columbia-háskólann í New
York. Líf hennar sjálfrar er aftur
móti allt annað en rómantískt.
Býr hún hjá ráðríkri móður og
systur sem hugsar meira um út-
litiö heldur en um sinn innri
mann, öfugt við Rose. Rose er
viss um að hún muni aldrei hitta
sinn draumaprins. Samkennari
hennar við háskólann er stærð-
fræðiprófessorinn Gregory Lark-
in sem hefur fengið nóg af
ástríðuþrungnum samböndum
Kvikmyndir
og setur því auglýsingu í einka-
máladálk þar sem hann auglýsir
eftir konu, 35 ára eða eldri, verð-
ur að vera með háskólagráðu, út-
lit skiptir ekki máli. Systir Rose
svarar auglýsingunni og kemur
þeim saman. Þau hittast og finna
strax hvort annað en Geoffry er
harður á því að sambandið eigi
að vera án kynlífs og Rose er
sama sinnis í byrjun.
Nýjar myndir:
Háskólabíó: Áttundi dagurinn
Laugarásbíó: Samantekin ráð
Kringlubíó: í straffi
Saga-bió: Dagsljós
Bíóhöllin: Kona klerksins
Bíóborgin: Kvennaklúbburinn
Regnboginn: Koss dauðans
Stjörnubíó: Tvö andlit spegils
Krossgátan
inn, 9 sjór, 10 spyrja, 12 dvergur, 14
tvihljóði, 15 spýja, 16 starf, 17 málm-
ur, 19 leiði, 21 eðja. 22 grasskeri.
Lóðrétt: 1 réttar, 2 svif, 3 lasleiki, 4
keyrir, 5 borðaði, 6 mjúkan, 7 fátæk-
ir, 11 kvabba, 13 rúlluðu, 15 espa, 16
vond, 20 leyfist.
Lausn á síðustu krossgátu:
Lárétt 1 feykja, 8 lina, 9 Óli, 10 ár,
11 droll, 13 aðild, 14 sá, 16 fita, 18
dár, 20 ali, 22 rusl, 23 ró, 24 narta.
Lóðrétt: 1 flá, 2 eirði, 3 yndi, 4 karl-
ar, 5 jó, 6 alls, 7 þil, 12 oddur, 13
afar, 15 árla, 17 tin, 19 ást, 21 ló.
Gengið
Almennt gengi LÍ nr. 42
06.02.1997 kl. 9.15
Eining Kaup Sala Tollaengi
Dollar 69,700 70,060 67,130
Pund 114,160 114,740 113,420
Kan. dollar 51,730 52,050 49,080
Dönsk kr. 11,0640 11,1220 11,2880
Norsk kr 10,7550 10,8140 10,4110
Sænsk kr. 9,4250 9,4770 9,7740
Pi. mark 14,2160 14,3000 14,4550
Fra. franki 12,4900 12,5610 12,8020
Belg. franki 2,0439 2,0562 2,0958
Sviss. franki 48,7500 49,0200 49,6600
Holl. gyllini 37,5400 37,7600 38,4800
Þýskt mark 42,1800 42,4000 43,1800
ít. lira 0,04297 0,04323 0,04396
Aust. sch. 5,9920 6,0290 6,1380
Port. escudo 0,4208 0,4234 0,4292
Spá. peseti 0,4990 0,5021 0,5126
Jap. yen 0,56310 0,56650 0,57890
Irskt pund 111,880 112,570 112,310
SDR 96,11000 96,69000 96,41000
ECU 81,9000 82,3900 83,2900
Símsvari vegna gengisskráningar 5623270