Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1997, Síða 16
16
íþróttir
Baldur fer
ekki til
Odd í Noregi
Baldur Bragason, knatt-
spymumaður úr Leiftri, er hætt-
ur við að ganga til liðs við
norska 1. deildarliðið Odd. Liðið
hafði boðið honum samning eins
og áður hefur komið fram í DV.
„Við náðum ekki saman þegar
á reyndi, þeir vildu þá gefa mál-
inu lengri tíma en ég var ekki
tilbúinn til þess. Ég hef hinsveg-
ar áfram áhuga á að leika erlend-
is og það eru ýmsir möguleikar
þar fyrir hendi hjá mér, bæði í
Noregi og Svíþjóð," sagði Baldur
við DV í gærkvöldi.
-VS
Fýrsta konan
komin á
KSÍ-samning
Guðlaug Jónsdóttir úr KR
varð í gær fyrsta knattspymu-
konan til að skila inn leik-
mannasamningi við sitt félag til
KSÍ.
Á siðasta ársþingi KSÍ var
samþykkt að knattspyrnukonur
gætu gert leikmannasamninga
og búast má við að fleiri fylgi í
kjölfar Guðlaugar. -ih/VS
Rósa til KR
Rósa M. Sigbjörnsdóttir, knatt-
spyrnukona frá Akureyri, er
gengin til liðs við KR. Rósa er
aðeins 16 ára en var samt marka-
hæst hjá 1. deildarliði ÍBA síð-
asta sumar með 6 mörk í deild og
bikar og hún lék alla leiki
stúlknalandsliðsins á síðasta ári.
-ih/VS
Júlli með fimm
Júlíus Jónasson skoraði 5
mörk fyrir Suhr þegar liðið tap-
aði fyrir Stans, 29-26, í úrslita-
keppninni um svissneska meist-
aratitilinn í handknattleik í
fyrrakvöld. Suhr er neðst í úr-
slitakeppninni með aðeins 2 stig.
-DVÓ/VS
Besl í heimi í
tveimur greinum
Chioma Ajunwa frá Nígeríu,
Ólympiumeistari í langstökki
kvenna í fyrra, gerði sér lítið fyr-
ir í gærkvöldi og náði besta
heimsárangri í ár í tveimur
greinum á innanhússmóti í Er-
furt i Þýskalandi.
Fyrst stökk Ajunwa 6,97 í
langstökki, 12 sentímetrum
lengra en Heike Drechsler sem
áður hafði náð 6,95 í ár, og síðan
hljóp hún 60 metra á 7,05 sek-
úndum og bar þar meðal annars
sigurorð af Ólympíumeistaran-
um í 100 metra hlaupi, Gaii
Devers. -VS
Wuppertal
með útisigur
íslendingaliðið Wuppertal
komst í gær í efsta sætið í norð-
urriðli þýsku 2. deildarinnar í
handbolta með því að vinna
Tarp-Wanderup á útivelli, 23-30.
Lemgo náði 10 stiga forskoti í
1. deild með útisigri á Grosswall-
stadt, 25-26, og Rheinhausen
vann óvæntan útisigur á Kiel,
23-25. -VS
Juventus vann
Juventus sigraði Paris SG,
3-1, í síðari leik liðanna um stór-
bikar Evrópu í knattspymu í
gærkvöldi. Leikurinn var nánast
formsatriði eftir 6-1 útisigur
Juventus í fyrri leiknum. Del
Piero skoraði tvö mörk og Vieri
eitt fyrir Juventus. Rai svaraði
fyrir St. Germain. -VS
Hermann hafnaöi
boði Palace
- halda að ísland sé bananalýðveldi, segir Jóhannes Ólafsson
1_________________________________
; DV, Eyjum:
Hermann Hreiðarsson, lands-
liðsmaður í knattspyrnu úr ÍBV,
hafnaði í gær tilboði enska 1. deild-
arliðsins Crystal Palace og skrifaði
undir nýjan samning við ÍBV sem
gildir til ársloka 1998.
„Þetta eru mikil gleðitíðindi fyr-
0 ir okkur og stuðningsmenn ÍBV að
Hermann skuli hafa ákveðið að
vera áfram í herbúðum ÍBV. Hann
er mikilvægur hlekkur í liðinu.
IHermann hafði i höndunum tilboð
frá Crystal sem var ekki það freist-
andi að hann ákvað að framlengja
samning sinn við okkur,“ sagði Jó-
hannes Ólafsson, formaður knatt-
spyrnuráðs ÍBV, við DV í gær.
„Auðvitað er tímaspursmál
hvenær Hermann verður atvinnu-
maður því hann er án efa efnileg-
asti vamarmaður sem fram hefur
komið hér á landi síðustu ár. Ég
veit að mörg lið í Evrópu eru að
fylgjast með honum og hann á
betra skilið en þann samning sem
Palace bauð honum. Framundan
eru landsleikir þar sem Hermann
verður án efa með og svo íslands-
mót og Evrópukeppni hjá ÍBV þar
sem hann hefur enn tækifæri til aö
sýna sig,“ sagði Jóhannes.
Óhress með vinnubrögð
Palace
Hermann æfði í tvær vikur hjá
Palace og lék tvo leiki með varaliði
félagsins, gegn Swansea og Chel-
sea, og bæði Dave Bassett, fram-
kvæmdastjóri Palace, og Steve
Kember, þjálfari liðsins, voru mjög
hrifnir af honum. Jóhannes segir
hinsvegar að framkoma forráða-
manna Palace við ÍBV hafi verið
með ólikindum. Þeir hefðu aldrei
sett sig í samband við félagið og
hafi greinilega haldið að ísland
væri bananalýðveldi.
„Ég hélt að það væri liðin tíð að
svona vinnubrögð væru viðhöfð.
Þetta er spurning um samspil leik-
manna og stjórnarmanna, hvað er
til hagsbóta fyrir leikmanninn og
liðið,“ sagði Jóhannes Ólafsson.
-ÞoGu
Veszprem mætir með
tólf landsliðsmenn
- eitt sterkasta lið Evrópu mætir KA á Akureyri á sunnudag
DV, Akuieyri:
„Ég er nokkuð viss um að þetta er
með því sterkara sem hefur komið í
KA-heimilið. Ungverjarnir eru
geysilega öflugir, þeir spila hraðan
og skemmtilegan handbolta, eru
mjög góðir með boltann og eitraðir í
hraðaupphlaupunum," segir Alfreð
Gíslason, þjálfari KA, en fyrri leik-
ur KA og ungversku bikarmeistar-
anna Fotex Veszprém i 8 liða úrslit-
um Evrópukeppni bikarhafa verður
á Akureyri á sunnudag.
Lið Ungverjanna er ekki árenni-
legt. I því eru hvorki fleiri né færri
en 12 landsliðsmenn og 8 þeirra
léku í Evrópukeppni landsliða. Lið-
ið hafnaði í 2. sæti í deildarkeppn-
inni í Ungverjalandi á síðasta ári
eftir að hafa sigrað í deildinni fjög-
ur ár þar á undan. Liðið komst í úr-
slitaleiki Evrópukeppni bikarmeist-
ara árin 1992 og 1993 en tapaði í
bæði skiptin og liðið er ungverskur
bikarmeistari sl. þrjú ár.
Heimavöllur liösins er
rosalegur
Alfreð segist hafa skoðað liðið á
myndbandi, m.a. heimaleik liðsins
gegn Viking frá Noregi í Evrópu-
keppninni í vetur. Ungverjamir töp-
uðu í Noregi með 9 mörkum á úti-
velli en unnu með 12 mörkum
heima. „Heimavöllur liðsins er
rosalegur og leikmenn Vikings fóru
á taugum þar. Ég lít þó ekki þannig
á að dæmið sé vonlaust fyrir okkur,
en við þurfum að sýna allt okkar
besta í þessum leikjum. Með bjart-
sýni get ég sagt að líkur okkar á að
komast áfram séu 40%“ segir Al-
freð.
Fimm marka sigur er
lágmarksveganesti
Forráðamenn Veszprém segjast
sjálfir vera með eitt af 7 bestu fé-
lagsliðum í Evrópu. Þar er valinn
maður í hverju rúmi en þekktustu
leikmennimir eru útispilararnir
József Éles sem á 130 landsleiki og
hefur nýlega spilað bæði með
heims- og Evrópuúrvali, og Janos
Gyurka sem á 219 landsleiki og er
geysilega öflug skytta. „Það er sama
hvar á þetta er litið, liðið er geysi-
lega öflugt. En ég hef áhuga á að við
KA-menn látum þá hafa fyrir hlut-
unum og með hjálp áhorfenda stefn-
um við á a.m.k. 5 marka sigur á
sunnudag sem er lágmarksnesti í
útileikinn,“ segir Alfreð.
-gk
1. deild kvenna í handknattleik:
Óvæntur sigur Vals
Valur vann óvæntan sigur á
Fram, 16-17, í 1. deild kvenna í
Framhúsinu í gærkvöldi. Staðan í
hálfleik var 7-7.
Mörk Fram: Hekla Daðadóttir 5, Guð-
ríður Guðjónsdóttir 4, Svanhildur Þeng-
ilsdóttir 3, Steinunn Tómasdóttir 1, Þór-
unn Garðarsdóttir 1, Hrafiihildur Sæv-
arsdóttir 1, Ólöf Jónsdóttir 1.
Mörk Vals: Gerður Jóhannsdóttir 5,
Ágústa Siguröardóttir 3, Eva Þórðardótt-
ir 3, Hafrún Kristjánsdóttir 3, Sigurlaug
Rúnarsdóttir 2, Júlíana Þórðardóttir 1.
Stórsigur Hauka
Haukar unnu auðveldan sigur á
KR í Hafnarfirði, 27-17. Staðan í
hálfleik var 14-8 fyrir Haukastúlk-
umar sem voru aldrei í vandræð-
um.
Mörk Hauka: Thelma Ámadóttir 11,
Hulda Bjamadóttir 7, Ragnheiður Guð-
mundsdóttir 4, Kristín Konráðsdóttir 2,
Harpa Melsteð 1, Hanna Stefánsdóttir 1,
Andrea Atladóttir 1.
Mörk KR: Sæunn Stefánsdóttir 5,
Brynja Steinsen 4, Edda Kristinsdóttir 3,
Harpa Ingólfsdóttir 2, Valdís Fjölnisdótt-
ir 2, Brynja Jónsdóttir 1.
Staðan í 1. deild:
Haukar 12 9 2 1 302-221 20
Stjaman 11 9 0 2 261-200 18
Vikingur 12 7 2 3 217-206 16
FH 12 6 2 4 246-234 14
Fram 13 5 3 5 242-236 13
KR 12 4 1 7 210-247 9
Valur 12 3 2 7 192-223 8
ÍBA 11 2 2 7 207-256 6
ÍBV 13 2 0 11 236-290 4
-VS
Guðni hvíldur
vegna meiðsla
Guðni Bergsson, fyrirliði
Bolton, lék ekki með þegar liðið
fékk skell gegn 2. deildarliði
Chesterfield, 2-3, í ensku bikar-
keppninni í knattspymu í fyrra-
kvöld.
Guðni og tveir aðrir fasta-
menn voru hvíldir þar sem þeir
áttu við smávægileg meiðsli að
striða. -VS
City komst áfram
Manchester City komst í gær-
kvöld í 5. umferö ensku bikar-
keppninnar í knattspyrnu með
því að sigra Watford, 3-1. City
fær þar heimaleik gegn Midd-
lesbrough. Swindon og QPR
skildu jöfn, 1-1, í 1. deild. -VS
Ásthildur þýskur meistari
Ásthildur Helgadóttir varð um
síðustu helgi þýskur meistari í inn-
anhússknattspyrnu með hinu nýja
liði sínu, SG Praunheim. Liðið sigr-
aði erkióvini sína, FSV Frankfurt,
4-3, í vítaspymukeppni í úrslitaleik
mótsins.
„Þetta var alveg frábært og
stemningin mikil í liðinu, enda var
þetta fyrsti meistaratitill Praun-
heim. Mér hefur verið vel tekið og
mér gekk mjög vel á þessu móti þó
ég hafi ekki verið í byrjunarliðinu.
Þjálfarinn valdi varnarmann fram-
yfir mig í byrjunarliðið, ætli það
séu ekki skilaboð til mín um að
bæta vamarleikinn. En ég lék samt
mjög mikið og skoraði nokkur
mörk,“ sagði Ásthildur í samtali við
DV í gær.
Praunheim sigraði af öryggi í sín-
um riðli og þar skoraði Ásthildur
t.d. bæði mörkin í 2-0 sigri á
Niederkirchen. í úrslitaleiknum tók
hún fyrstu vítaspyrnuna og skoraði
af öryggi.
„Mér líkar mjög vel héma þó
maður sakni að sjálfsögðu félag-
anna að heiman. Ég kem til með að
hitta íslenska landsliðið á móti í
Portúgal í mars og svo kem ég heim
og leik með Breiðabliki í sumar,“
sagði Ásthildur Helgadóttir. -ih
FIMMTUDAGUR 6. FEBRÚAR 1997
FIMMTUDAGUR 6. FEBRÚAR 1997
25
I>V DV
Tvöfaldur sigur heimamanna á HM
ítalska stúlkan Deborah Compagnoni sigraði í svigi kvenna á heimsmeistaramótinu í alpagreinum í Sestriere í gærkvöldi.
ítalir unnu tvöfaldan sigur í greininni því Lara Magoni lenti í öðra sæti og austurríska stúlkan Karin Roter varð í þriðja
sæti en hún var í fyrsta sæti eftir fyrri umferðina. Compagnoni, sem er einnig tvöfaldur ólympíumeistari, sagði eftir sigurinn
að þetta væri stærsti dagur í sínu lífi. Hún sagði að það jafnaðist ekkert á við það að vinna gullverðlaun á heimsmeistaramóti
og það á heimavelli. Á myndinni er Compagnoni á fljúgandi ferð í síðari umferðinni í gærkvöldi. Símamynd Reuter
„Það blundaði í manni að
Guðmundur tæki vítið"
- Guðmundur varði vítakast í lokin og Valur vann Hauka
Guðmundur Hrafnkelsson tryggði
Val sætan sigur á toppliði Hauka í
Strandgötunni í gær, 23-24, þegar hann
varði vítakast frá Petr Baumruk eftir
aö leiktimanum lauk.
Það er óhætt að segja að mikið hafi
gengið á í þessum leik. Leikmenn
gerðu aragrúa mistaka og ekki siður
dómaramir sem gerðu hverja vitleys-
una á fætur annarri.
Valsmenn virtust með unninn leik í
höndunum. Þeir hðfðu þriggja marka
forskot þegar tvær og hálf minúta voru
eftir en Haukamir höfðu ekki sagt sitt
síðasta orð. Þeir minnkuðu muninn í
eitt mark og á milli varði Bjarni
Frostason vítakast frá Valgarð
Thoroddsen. Valsmenn misstu svo bolt-
ann þegar 15 sekúndur vora eftir. Þeg-
ar 2 sekúndur voru eftir fékk Bjami
Frostason markvörður dæmt vítakast
eftir að brotið hafði verið á honum á
línunni en Guðmundur, kollegi hans í
Valsmarkinu, sá til þess að stöðva
langa sigurgöngu Hauka með því áð
verja vítakastið.
„Það var barátta liðsheildarinnar
sem skóp þennan sigur. Það blundaði í
manni að Guðmundur tæki vítið þama
í lokin, enda ekki i fyrsta sinn sem
hann gerir það. Þetta er allt á uppleið
hjá okkur og þessi sigur er gott vega-
nesti fyrir næsta leik gegn KA,“ sagði
Ingi Rafn Jónsson, leikmaðurinn sterki
hjá Val, eftir leikinn.
Guðmundur var bestur Valsmanna
og hann varði oft vel á mikilvægum
augnablikum. Aziz Mihoubi var at-
kvæðamikill en skotnýting hans var
ekki góð. Ingi Rafn var sterkur í vörn
og sókn og Einar Örn Jónsson gerði
góða hluti. Meistararnir era greinilega
á uppleið eftir brösótt gengi framan af
móti en eiga þó enn nokkuð í land til
að teljast í hópi bestu liða.
Haukar léku sinn langlélegasta leik í
langan tíma og sérstaklega var sóknar-
leikurinn slakur og óyfirvegaður.
Haukarnir létu hina slöku dómara fara
í skapið á sér og náðu aldrei upp þeirri
stemningu og baráttu sem einkennt
hefur þá í vetur. Bjami Frostason,
Aron Kristjánsson og Gústaf Bjamason
komust best frá leik Haukanna en aðr-
ir léku undir getu.
„Menn mættu greinilega allt of
værakærir til þessa leiks og það kann
aldrei góðri lukku að stýra. Liðið var
andlaust og baráttulaust og því fór sem
fór. Við látum okkur þetta að kenningu
verða og mætum sterkir í næsta leik,“
sagði Aron Kristjánsson, leikmaður
Hauka, við DV. -GH
íslensku stúlkurn-
ar stóðu sig vel
- en féllu út gegn þýskum mótherjum
Hrafnhildur Hannesdóttir og Stefanía
Stefánsdóttir féllu í gær út í 1. umferð
tvíliðaleiksins á alþjóðlega kvennamót-
inu í tennis sem nú stendur yfir í Kópa-
vogi.
Þær mættu Camillu Kremer og Ninu
Nittinger frá Þýskalandi og töpuðu, 6-4
og 6-1. Hrafnhildur og Stefanía stóðu sig
þó vel og unnu tvær fyrstu lotumar ör-
ugglega og komust í 4-2 í fyrsta settinu.
í öðra settinu stóð 2-1 en eftir það sagði
reynslan til sín og þýsku stúlkumar
kláraðu leikinn.
Þátttöku íslendinga á mótinu er þar
með lokið en það heldur áfram af fullum
krafti allt til laugardags. Þá fara fram úr-
slitaleikirnir og hefjast þeir klukkan 14,
fyrst í einliðaleik og síðan í tvíliðaleik.
-VS
Haukar (10) 23
Valut (13) 24
0-1, 3-2, 5-5, 6-9, 8-11 (10-13), 10-14,
13-16, 17-16, 18-20, 20-21, 21-24, 23-24.
Mörk Hauka: Aron Kristjánsson
8/2, Gústaf Bjamason 6, Rúnar Sig-
tryggsson 3, Petr Baumruk 3, Þorkell
Magnússon 1, Óskar Sigurösson 1,
Einar Gunnarsson 1.
Varin skot: Bjami Frostason 15/1,
Sigurður S. Sigurðsson 1/1.
Mörk Vals: Aziz Mihoubi 10/5,
Ingi Rafn Jónsson 3, Einar Öm Jóns-
son 3, Valgarð Thoroddsen 2, Jón
Kristjánsson 2, Skúli Gunnsteinsson
2, Davíð Ólafsson 1, Ari Allansson 1.
Varin skot: Guðmundur 16/1.
Brottvísanir: Haukar 10 min.,
Valur 10 mín.
Dómarar: Egill og Öm Markús-
synir, vilja örugglega gleyma þessum
leik sem allra fyrst.
Áhorfendur: 400.
Maður leiksins: Guðmundur
Hrafhkelsson, Val.
NBA í nótt og fleira á bls. 26
íþróttir
Ari Bergmann Einarsson, ritari Ólympíunefndar:
„Læt ekki
í rétt eins
Eftir uppákomuna á aðalfundi
Ólympíunefndar í fyrrakvöld
sakaði Júlíus Hafstein, fráfarandi
fomiaður, Ara Bergmann, ritara
nefndarinnar, um ódrenglyndi.
DV náði tali af Ara Bergmann í
gær og bar þessi ummæli Júlíusar
undir hann.
„Ég ætla að segja það í fyrsta
lagi varðandi drengskap minn að
þá er best að spyrja aðra í íþrótta-
hreyfingunni um hann en mig
sjálfan. Ég tel að vinnubrögð mín á
leiða mig
og rollu"
saman til að velja okkur fiúltrúa
fjórða hvert ár og þar á maður að
nýta sér atkvæðisréttinn íþróttun-
um til heilla og gera það af fyllstu
sannfæringu. Þetta er þess vegna
leynilegt. Ég tók þátt í þessari um-
ræddu atkvæðagreiðslu og hef ekk-
ert meira að segja um það,“ sagði
Ari Bergmann Einarsson í samtali
við DV í gær. Hann var endurkjör-
inn ritari ólympíunefndar á aðal-
fundinum í fyrrakvöld.
-JKS
þeim vettvangi hafi ekki einkennst
að ódrengskap. Ég hef haft þann
stíl að taka mínar ákvarðanir sjálf-
ur og þannig ekki látið leiða mig
eins og rollu í rétt, hyorki af skrif-
stofu ÍSÍ, forseta ÍSÍ eða af for-
manni Ólympíunefndar. Þetta vita
menn í hreyfingunni. Ég læt ósvar-
að þeim ummælum um að menn
séu að kíkja á atkvæðaseðla í leyni-
legri atkvæðagreiðslu. Ég svara
ekki slíku. Ég tók þátt í atkvæða-
greiðslunni. Við komum þarna
Hrafn var I miklu stuöi
Það var hart barist í leik HK og
ÍR í Digranesinu í gærkvöldi, bæði
liðin í neðri hluta deildarinnar og
þurftu svo sannarlega á sigri að
halda. Jafnt var með liðunum fyrstu
mínútur leiksins en um miðjan hálf-
leikinn náðu heimamenn tveggja
marka forystu. Þá kom baráttan
upp í ÍR-liðinu og gerðu þeir sex
mörk gegn aðeins einu marki HK-
manna fyrir leikhlé.
í síðari hálfleik komu heima-
menn mun hressari og ákveðnari til
leiks og náðu aftur tveggja marka
forystu. Þar munaði mest um mark-
vörslu Hilmars Inga Jónssonar sem
leysti Hlyn af seint í fyrri hálfleik
sem og góða baráttu í vörninni.
Lokamínúturnar urðu síðan
æsispennandi. HK lét Hrafn Mar-
geirsson verja frá sér i tvígang í
opnum færum. . Heimamenn gerði
næsta mark en ÍR-ingar jöfnðu jafn-
harðan. Síðasta sókn heimamanna
fór forgörðum og tíu sekúndum fyr-
ir leikslok skoraði Ragnar Óskars-
son sigurmark ÍR-inga með góðu
undirhandarskoti.
„Það var gott að koma hingað og
vinna sigur á útivelli. Við ætlum
svo sannarlega ekki að fara tapa
enn og aftur með einu marki og
þetta hafðist með góðri baráttu í
lokin,“ sagði Matthías Matthíasson,
þjálfari ÍR.
HK-menn geta naga sér í handar-
bökin eftir þennan leik. Þeir voru
ekki nógu úrræðagóðir í sóknar-
leiknum í lokin, sem varð þeim að
falli, eftir að hafa sýnt góða baráttu
í seinni hálfleik. Óskar Elvar Ósk-
arsson var þeirra atkvæðamestur
Hjá ÍR-ingum var Hrafn í miklu
stuði í markinu og Magnús Már
Þórðarson átti mjög góðan leik og
gaman að sjá hversu sterkur og jafn
leikmaður hann er orðinn.
-ÖB
Meira hungur í
Gróttuliöinu
Grótta komst af botni 1. deildar
karla í handknattleik í gærkvöldi
þegar liðið sigraði FH, 25-23, á
heimavelli sinum vestur á
Seltjamarnesi. Gróttu-liðið kom
mun ákveðnara til leiks og var
greinilegt að það hungraði mun
meira í sigur en gestunum.
FH-ingar virkuðu ekki
sannfærandi í þessum leik og
verða að gera miklu betur en þetta
ætli þeir sér ofar á töfluna áður en
yfir lýkur. Það var aðeins síðustu
átta mínútur leiksins sem eitthvað
lífsmark var með FH-ingum. Þá
tóku þeir til bragðs að taka tvo
Gróttumenn úr umferð en það var
um seinan.
Sigur Gróttunnar var sanngjam,
barátta liðsins var góð og
uppskeran samkvæmt því.
Sigtryggur Albertsson átti stórleik
í markinu hjá Gróttu. Jens
Gunnarsson var einnig mjög
beittur á línunni og skoraði
grimmt af henni.
Guðmundur Pedersen stóö upp
úr hjá FH-ingum. Hyung-Lee varði
vel í síðari hálfleik. Aðrir
leikmenn liðsins léku undir getu.
-SS
Deportivo úr leik í bikarnum
Deportivo Coruna var slegið úr spænska bikamum í gærkvöldi þegar lið-
ið gerði markalaust jafntefli við Espanyol. Þetta var síðari leikurinn í 4. um-
ferð og kemst Espanyol áfram á samanlagðri markatölu, 2-2. Síðari leikur
Real Madrid og Barcelona verður í kvöld en Barcelona vann fyrri leikinn,
2-3. -JKS
HK (1020
ÍR (13) 21
I- 0, 1-1, 5-5, 9-7, 9-11 (10-13). 11-13,
II- 14, 15-15, 18-16, 19-19, 20-20, 20-21.
Mörk HK: Óskar Elvar Óskarsson
6/2, Sigurður Sveinsson 4/2, Hjálmar
Vilhjálmsson 3, Jón Bersi EUingsen 2,
Alexander Amarsson 2, Már Þórar-
insson 2, Gunnleifur Gunnleifsson 1.
Varin skot: Hlynur Jóhannesson
3, Hilmar I. Jónsson 8.
Mörk ÍR: Magnús Már Þórðarson
7, Ragnar óskarsson 4/2, Hans Guð-
mundsson 3, Ólafur Gylfason 3, Ólaf-
ur Sigurjónsson 2, Matthías Matthías-
son 2.
Varin skot: Hrafii Margeirsson 18.
Brottvísanir: HK 2 mín., ÍR 6 min.
Dómarar: Guðjón L. Sigurðsson
og Ólafur Haraldsson. Sæmilegir
þegar á heildina er litið.
Áhorfendur: 150.
Maður leiksins: Hrafn Margeirs-
son, ÍR.
Grótta (14) 25
FH (10) 23
3-3, 7-4, 10-5, 12-8 (14-10), 17-13,
20-14, 23-19, 24-21, 25-23.
Mörk Gróttu: Jens Gunnarsson 9,
Róbert Rafnsson 5, Juri Sadovski 4/3,
Einar Jónsson 3, Davíð Gíslason 2,
Guðjón Sigurðsson 1, Hafsteinn Guð-
mundsson 1. /
Varin skot: Sigtryggur Albertsson
20.
Mörk FH: Guðmundur Pedersen
8/2, Valur Arnarsson 5, Sturla Egils-
son 2, Guðjón Ámason 2, Stefán Guð-
mundsson 2, Láms Long 2, Knútur
Sigurðsson 1, Gunnar Beinteinsson 1,
Sigiuður Sigurjónsson 1.
Varin skot: Suk-Lee 9/1, Jónas
Stefánsson 1.
Brottvisanir: Grótta 6 mín., FH 6
mín.
Dómarar: Anton Gylfason og
Hlynur Leifsson, sæmilegir.
Maður leiksins: Sigtryggur Al-
bertsson, Gróttu
1. DEILD KARLA
Haukar 17 12
Afturelding 16 13
KA 16 11
ÍBV 15 9
Fram 16 8
Valur 17 7
Stjaman 16 7
FH 17 7
2 3 439 403 26
0 3 420-385 26
1 4 436-416 23
0 6 374-343 18
2 6 375-350 18
3 7 387-394 17
1 8 423-416 15
0 10 439454 14
ÍR 16 5 1 10 391-390 11
Grótta 17 4 2 11 398435 10
HK 17 4 1 12 384421 9
Selfoss 16 4 1 11 395-445 9
KA-Afturelding og Fram-Sel-
foss var frestað til kvöldsins í kvöld
vegna veðurs. Leikimir hefjast kl. 20.
Haukar töpuðu í gærkvöldi í fyrsta
skipti í 17 leikjum. Þeir höfðu ekki
beðið ósigur síðan þeir töpuðu fyrir
Creteil frá Frakklandi í Evrópu-
keppninni í byrjun nóvember.
Haukar léku með sorgarbönd gegn
Val í gærkvöldi til að minnast Guð-
sveins Þorbjömssonar, eins af frum-
herjum félagsins, sem lést í vikunni.
Halldór Ingólfsson, Hinrik
Bjamason og Magnús Sigmundsson
úr Haukum voru allir fjarri góðu
gamni i gærkvöld en allir gengust þeir
undir liðþófaaögerðir fyrir skömmu.
Valsmenn sóttu tvö stig í Hafnar-
fjörðinn í annað sinn á skömmum
tíma en þeir unnu FH þar á dögun-
um.
HK-menn voru mjög ósáttir i lokin
gegn ÍR þegar ÍR-ingar brunuðu upp
og skoruðu sigurmarkið. Þeir sögðust
hafa beðið um leikhlé en dómaramir
sögðust ekki hafa heyrt þá beiðni.
1. DEILD KVENNA
ÍR-KR . . . 35-100
Njarðvlk-Breiðablik 69-37
Keflavík 11 11 0 952-555 22
KR 13 10 3 946-631 20
Grindavík 13 8 5 886-801 16
ts 13 8 5 761-599 16
Njarðvik 13 5 8 734-868 10
ÍR 13 2 11 552-1057 4
Breiðablik 12 0 12 527-847 0