Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.1997, Page 8
8
MIÐVIKUDAGUR 19. FEBRUAR 1997
Útlönd
Stuttar fréttir i>v
Deng Xiaoping milli heims og helju í nokkra daga:
Fékk heilablæðingu og
var fluttur á sjúkrahús
Deng Xiaoping, æðsti leiðtogi
Kína, fékk heilablæðingu á heimili
sínu í Peking á fostudag og hefur
verið fluttur á sjúkrahús, að því er
japanska fréttastofan Kyodo skýrði
frá í morgun.
í frétt frá Peking, sem höfð var
eftir kinverskum heimildarmönn-
um, sagði að hinn 92 ára gamli Deng
hefði verið milli heims og helju í
nokkra daga og að hann þarfnaðist
enn mikillar aðhlynningar.
„Jiang Zemin forseti stytti ferð
sína til Jiangsu-héraðs vegna
heilsufars Dengs og kallaði þegar í
stað saman stjómamefnd kínverska
kommúnistaflokksins til að ræða
heilsu Dengs og tilraun háttsetts
norður-kóresks embættismanns til
landflótta um Kína,“ hafði Kyodo-
fréttastofan eftir heimildarmönnum
sínum.
Stjómarerindrekar og kínverskur
heimildarmaður sögðu í morgun að
leiðtogar Kína hefðu leyst upp
einkaskrifstofu Dengs og þykir það
jafnvel til merkis um að heilsu
æðsta leiðtogans fari hrakandi.
Miklar vangaveltur hafa verið
um heilsufar Dengs álla vikuna og
hafa fréttimar haft áhrif á gengi
hlutabréfa á mörkuðum i Kína,
Deng Xiaoping.
Hong Kong og Taívan.
Þótt japanskir fjölmiðlar segi að
Deng hafi verið fluttur hættulega
veikur á sjúkrahús kom fram í blað-
inu Ming Pao í Hong Kong að leið-
toginn væri að ná sér heima eftir
heilablæðingu og væri ekki i lífs-
hættu.
Skrifstofa Dengs var leyst upp
skömmu fyrir nýja tunglárið sem
hófst 7. febrúar, að sögn heimildar-
manns sem hefur náin tengsl við
kommúnistaflokkinn. Skrifstofan
gaf áður fyrr út tilskipanir fyrir nú-
verandi leiðtoga landsins en hennar
var ekki lengur þörf. Reuter
Perú:
Tugir létust og
yfir hundrað
saknað eftir
aurskriðu
Að minnsta kosti 33 létu lífið
°g yfir 100 er saknað eftir að
aurskriða hreif með sér tvö þorp
í Andesfjöllum í Perú fyrir dög-
un í gær að staöartíma.
Björgunarstarfsmenn, sem í
gær fundu á fjórða tug líka,
urðu að hætta leit í gærkvöldi
vegna mikillar þoku, myrkurs
og nokkurra lítilla skriðna. Leit
var hafin aftur er birti í morg-
un.
Tvö þorp, þar sem 250 manns
bjuggu, hurfu gjörsamlega er
skriðan féll á þau. Að sögn lög-
reglu höfðu íbúar þegar yfirgef-
ið þorpin vegna flóða um helg-
ina. Þeir höfðu leitað skjóls í
skomingi í fjallshlíðinni rétt
fyrir ofan þorpin og urðu því
beint fyrir skriðunni er hún féll.
Bæjarstjóri i nálægu þorpi tel-
ur að allir í þorpunum tveimur
hafi látið lífið og því sé á þriðja
hundrað saknað. Björgunar-
sveitir bjuggu sig undir í morg-
un að flytja á brott fjölskyldur
úr nálægum þorpum því hætta
er talin á frekari skriðum.
Reuter
Japanskt dagblað greindi frá því í morgun aö kínversk og suður-kóresk yfirvöld hefðu náö samkomulagi um aö
helsti hugmyndafræðingur N-Kóreu, Hwang Jang-yop, gæti fariö frá Peking þegar í þessari viku. Óeiröalögregla í
Suður-Kóreu hefur veriö í sérstakri viöbragðsstööu vegna spennunnar sem ríkt hefur í kjölfar flótta Hwangs.
Símamynd Reuter
Menntamálaráöuneytið
Styrkveiting úr Þróunarsjóði leikskóla
Auglýst er eftir umsóknum í Þróunarsjóð leikskóla.
Tilgangur sjóðsins er að stuðla að þróunarverkefnum í leikskólum.
Með þróunarverkefnum er átt við nýjungar, tilraunir og nýbreymi í upp-
eldisstarfi. Um styrki geta sótt sveitarstjómir/leikskólastjórar/leikskóla-
kennarar. Sækja má um styrki til nýrra verkefna og verkefna sem þegar
em hafin.
Umsóknum skal fylgja umsögn viðkomandi rekstraraðila leikskóla.
Styrktaramsóknir skulu berast menntamálaráðuneytinu fyrir 1. apríl næst-
komandi á þar til gerðum eyðublöðum sem liggja frammi í afgreiðslu
menntamálaráðuneytisins, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík.
FJÁRMÁLARÁÐUNEYTIÐ
Amarhváli
105 Reykjavík
Hella - húsnæði óskast
Ríkissjóður leitar eftir kaupum á skrifstofu- og geymsluhúsnæði fyrir
Skattstofu Suðurlandsumdæmis á Hellu, samtals u.þ.b. 450-500 m2.
Æskilegt er að húsnæðið sé á einni hæð og allt aðgengi innan dyra sem
utan í góðu lagi með tilliti til fatlaðra. Tilboð er greini staðsetningu,
stærð, byggingarár- og efni, bmnabóta- og fasteignamat, afhendingar-
tíma og söluverð, sendist eignadeild fjármálaráðuneytisins, Amarhváli
150 Reykjavík, fyrir 28. febrúar 1997.
Fjármálaráðuneytið, 17. febrúar 1997
Albright blíðkar Rússa:
Sameiginlegt lið
Rússlands og NATO
AÍo/IoIqÍmo A 1 VivirrVif nlom'íl/ior'óA. Cnlntio m'oin/ii fV»ó V\trí ó fnn/ii mn
Madeleine Albright, utanríkisráð- herra Bandaríkjanna, sem reynir nú að draga úr andstöðu yfirvalda í Kreml við stækkun Atlantshafs- bandalagsins, NATO, stakk í gær upp á sameiginlegu gæsluliði bandalagsins og Rússlands. Hug- myndimar lagði Albright fram í Brussel á fyrsta fundi sínum með utanríkisráðherrum NATO. Albright, sem fer til Moskvu á fimmtudaginn til viðræðna viö rússneska ráðamenn, tók það fram að yfirvöld í Moskvu gætu ekki hindrað stækkun NATO í austur. Framkvæmdastjóri NATO, Javier w Solana, greindi frá því á fundi með fréttamönnum í gær að öll aðildar- ríki bandalagsins hefðu staöfest að þau væru fylgjandi stækkun. Þau íegðu hins vegar áherslu á að sam- fara stækkuninni yrði gert viðtækt samkomulag við Rússland. Kvaðst Solana vonast til að Rúss- land og NATO gætu náð samkomu- lagi á sérstökum leiðtogafundi sem ráðgert er að halda fyrir leiðtoga- fund NATO í Madrid í júlí. Á Ma- drid-fundinum er ætlunin að bjóða fyrrum kommúnistarikjum form- lega aðild að bandalaginu. Reuter
Löggan yfirhey ísraelska lögreglan yfirheyrði Benjamin Netanyahu forsætisráð- herra í rúmar fjórar klukkustundir í gær vegna meintrar spillingar í tengslum við skipan í embætti æðsta lögfræðilegs ráðgjafa ríkis- stjórnarinnar. ísraelska sjónvarpið staðhæfði að lögfræðingurinn Roni Bar-On hefði verið skipaður í embættið í skiptum rir Netanyahu fyrir stuðning leiðtoga Shas-flokks- fns við Hebron-samkomulag Net- ányahus við PLO. Bar-On sagði af $ér samdægurs eftir að lögfræðing- ar og stjómmálamenn fullyrtu að hann væri ekki maður til að valda starfinu. Lögreglan segir að Netanyahu hafi svarað öllum spurningum sem fyrir hann vom lagðar. Reuter
Hvetur til vopnahlés
Öryggisráð SÞ hvetur til
vopnahlés strax í Saír þar sem
enn er hart barist í austurhluta
landsins.
Voðaskot við höllina
Lögreglan í Stokkhólmi telur
að um voðaskot hafi verið aö
ræða þegar lífvörður við kon-
ungshöllina skaut á foringja sinn
og félaga.
Undanþága frá skatti
Forseti Albaníu, Sali Berisha,
bauð í gær íbúum suðurhluta
landsins undanþágu frá skatti í
tvö ár vegna gjaldþrota
pýramídasjóðanna.
Viðræöur í Moskvu
Klaus Kinkel, utanríkisráð-
herra Þýska-
lands, hélt til
Moskvu í gær
til að ræða
stækkun
NATO. Ekki
voru teikn á
lofti um aö við-
ræöuaðilar
hefðu nálgast
hvorn annan eftir fyrsta dag við-
ræðnanna.
Samvinna um loftsteina
Bandaríkjaher er nú í sam-
vinnu við bandarísku geimvís-
indastofnunina til að geta betur
spáð fyrir hrapi loftsteina til
jarðar.
17 létust í árekstri
Að minnsta kosti sautján
manns týndu lífl í árekstri fjöl-
margra bíla í Mexíkóborg í gær.
Olíuflutningabíll sprakk við
áreksturinn.
Clinton til Köben
Bill Clinton Bandaríkjaforseti
fer í heimsókn
til Danmerkur
þann 21. mars
næstkomandi
eftir fund hans
með Borís
Jeltsin Rúss-
landsforseta í
Helsinki. í
þessari fyrstu
heimsókn Bandaríkjaforseta til
Danmerkur mun Clinton ræða við
Margréti drottningu og Poul Nyr-
up Rasmussen forsætisráðherra.
Hubble frjáls
Geimfarar um borð í geim-
skutlunni Discovery hafa lokið
viðgerðum og endurbótum á
Hubble geimsjónaukanum og
sleppt honum aftur á braut um
jörðu.
Drepið í Rúanda
Mannréttindasamtökin Am-
nesty Intemational segja aö
hundruð manna hafl verið drep-
in í Rúanda það sem af er árinu.
Litháar fyrstir í ESB
Litháar stefna að því að verða
fyrstir þjóða til að ganga í Evr-
ópusambandið þegar sambandið
verður stækkað.
Ciller sleppur við ákæru
Tyrkneska þingið hefur fallið
frá tveimur spillingarákærum á
hendur Tansu Ciller, fyrrverandi
forsætisráðherra og núverandi
utanríkisráðherra landsins.
Á hægri uppleið
Vinsældir Jacques Chiracs
Frakklandsfor-
seta og Alains
Juppés forsæt-
isráðherra eru
á hægri upp-
leið en flestir
kjósendur eru
þó óánægöir
með hvemig
landi þeirra er
stjórnað, að því er fram kemur í
nýrri skoðanakönnun.
Árásir í Dusjanbe
Sex manns týndu lífi í árásum
í Dusjanbe, höfuðborg Tadsjikist-
ans, í gærkvöldi. Reuter