Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.1997, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.1997, Blaðsíða 28
52 MIÐVIKUDAGUR 19. FEBRÚAR 1997 Bein í poka til fólksins „Við önsum því ekki lengur að ríkisstjórnin geti komist upp með það að í hvert sinn sem samningar nálgast safni hún ein- hverjum beinum í poka og hendi út til fólksins." Pétur Sigurðsson, forseti Al- þýðusambands Vestfjarða, í DV. Tíföld meðallaun „Heildarlaun bankastjóra eru út úr íslensku veruleikakorti, þetta eru tíföld meðallaun ann- arra bankastarfsmanna og eru þá allir taldir." Friðbert Traustason, form. Fél. islenskra bankamanna. Ummæli Peningar bættu ekki „Ef við ætlum okkur að kom- ast í fremstu röð þarf að auka æfingaálagið. Eftir að leikmenn fóru að fá greitt er eins og þeir reyni að sleppa frá þessu eins létt og hægt er.“ Valdimar Grímsson, landsliðs- maður í handbolta, í Morgun- blaðinu. Klepraður mömmudrengur „íslendingar bíða í ofvæni eft- ir Dagsljósinu á kvöldin til að ganga úr skugga um hvort hin- um klepraða mömmudreng, tákni velmegunaráranna, hafi tekist að verða einni fellingu fá- tækari.“ Guðbergur Bergsson rithöf- undur, í DV. Hluti tunglsins er þegar farinn að skyggja á solina á myndinni sem tekin er í byrjun sólmyrkva. Sólmyrkvar og tunglmyrkvar Tunglmyrkvar hafa verið reiknaðir út aftur til ársins 3450 f.Kr. og sólmyrkvar til 4200 f.Kr. Fyrsta almyrkva á sólu sem heimildir greina frá er getið á leirtöflu sem fannst 1948 í rúst- um borgarinnar Ugarit í Sýr- landi. Rannsóknir á töflunni benda til að myrkvi þessi hafi orðið 5. mars 1223 f.Kr. Lengsti sólmyrkvi sem mælst hefur var 7 mín. og 8 sek. en hann var 20. júní 1955. Sást hann frá Filipps- eyjum. Samkvæmt útreikning- um á að vera 7 mín. og 29 sek. langur sólmyrkvi 16. júlí 2186. Blessuð veröldin Sólblettir Til þess að sólblettur sjáist án stækkunar verður hann að þekja að minnsta kosti 1/2000 hluta af sólinni og vera þar með um 1300 milljónir km2 að stærð. Stærsti sólblettur sem sögur fara af sást á suðurhveli sólar 8. april 1947. Flatarmál hans var um 18 millj- ón km2. Sólblettir eru dekkri að sjá af því að þeir eru meira en 1500° C kaldari en umhverfi þeirra sem er 5500° C. í október 1957 töldust 263 sólblettir sem er hæsta tala sólbletta sem vitað er mn. Árið 1943 varaði einn sól- bletturinn í 200 daga, frá því í júní fram i desember. Vaxandi norðanátt Á vestanverðu Grænlandshafi er nærri kyrrstæð 950 mb lægð sem grynnist smám saman en um 500 km vestur af írlandi er 970 mb vax- andi lægð sem hreyfist norðaustur i stefnu á Færeyjar og siðar til norð- urs eða norðvesturs. Veðrið í dag Fram eftir degi verður allhvöss suðvestanátt með éljum um landið suðvestan- og vestanvert en mun hægari og úrkomulaust austan til á landinu, snýst í vaxandi norðaust- an- og norðanátt í kvöld. Hvasst verður með snjókomu í nótt en víð- ast annars staðar á landinu verður veður fremur skaplegt. Frost verður á bilinu 0 til 3 stig. Á höfuðborgarsvæðinu lægir smám saman þegar líður á daginn. Sunnan- og suðaustankaldi verður og áfram dálítil él í kvöld og nótt. Frost verður 1 til 2 stig. Sólarlag í Reykjavík: 18.15 Sólarupprás á morgun: 09.06 Síðdegisflóð í Reykjavík: 17.19 Árdegisflóð á morgun: 05.34 Veðrið kl. 6 í morgun: Akureyri snjóél -2 Akurnes snjókoma -2 Bergstaöir skafrenningur -3 Bolungarvík snjóél -1 Egilsstaöir léttskýjaó -.2 Keflavíkurflugv. snjóél -2 Kirkjubkl. alskýjaö -2 Raufarhöfn léttskýjaó -2 Reykjavik skýjaö -2 Stórhöfði snjóél á síö. kls. -1 Helsinki skýjaó -7 Kaupmannah. skýjaö 3 Ósló snjókoma -1 Stokkhólmur snjókoma 0 Þórshöfn hálfskýjaö 3 Amsterdam léttskýjaö 3 Barcelona þokumóöa 8 Chicago léttskýjað 9 Frankfurt skýjaö 4 Glasgow alskýjaö 5 Hamborg skýjaö 4 London alskýjaö 4 Lúxemborg skýjaö 1 Malaga þokumóöa 9 Mallorca Miami þoka i grennd 4 París skýjaö 3 Róm þokumóöa 5 New York skýjaö 11 Orlando léttskýjaö 18 Nuuk alskýjað -19 Vín alskýjaö 5 Winnipeg léttskýjað -18 Jón Hörður Elíasson, umdæmisstjóri Vegagerðarinnar á Hólmavík: Hörmmig að horfa á krakka vinna nú til dags „Það er slæmt að krakkar skuli nær ekkert fá að vinna nú orðið fyrr en þau verða 16 ára. Þegar þau þá koma til vinnu vita þau mörg hver ekkert hvað er að vinna og er alveg hörmung upp á að horfa, það er ekki góð stefna að mínu mati.“ Umdæmið sem Jón Hörður stjómar nær alveg frá Brú í Hrúta- firði í botni ísafjarðar og norður í Árneshrepp Hann segir það allvel búið tækjum og þegar verkefni komi upp t.d. í sambandi við snjó- mokstur þá sé frekar auðvelt að leita til aðila sem bregðist jafnan fljótt við og eigi margir stór og af- kastamikil tæki til þeirra nota. Góð tengsl eru við stöðvar Vegagerðar- innar, öll þjónusta í sambandi við stærri viðgerðarverkefhi er sótt til Borgarness en yfirstjórn þessa svæðis er á ísaflrði þar sem Gísli Eiríksson verkfræðingur er yfir- maður. Fastir starfsmenn em fimm en þeim er fjölgað þegar leysa þarf stærri verkefiii. Jón Hörður segir helsta áhuga- mál sitt vera að stunda stangaveiði í ám og vötnum því hvergi sé auð- veldara að gleyma áhyggjum líðandi stundar en þar. Kona hans er Jenný Jensdóttir, skrifstofustjóri hjá Kaldrananes- hreppi, og eiga þau þrjú böm. -GF DV, Hólmavík: „Ég var ekki nema 9 ára þegar ég fór fyrst á sjó með fóður mínum. Hann átti litla trillu og stundaði hrognkelsaveiðar á hverju vori. Tólf ára gamall byrjaði ég að vinna í frystihúsinu á Drangsnesi. Allur fiskur var þá handflakaður og mitt verk var m.a. að taka körfumar með beingarðinum og fara með þær að hakkavélinni. Ég þurfti að lyfta þeim í brjósthæð til þess að geta los- að úr þeim en þær gátu verið um 40 kg að þyngd, marningurinn var sett- ur á pönnur og síðan i frystitækin. Ég vildi ekki hafa misst af þessari reynslu. Á þessum árum fóra allir krakkar og unglingar að vinna um leið og þau gátu eitthvað gert. í frystihúsinu var manni sagt að ef maður gæti ekki það sem fyrir var lagt þá gæti maður bara farið heim,“ segir Jón Hörður Elíasson, umdæmisstjóri Vegagerðarinnar á Hólmavík en hann tók við því starfi 1. janúar sl. Jón Hörður rifjar það upp að á meðan bróðir hans var enn þá innan við fermingu hafi það komið nokkrum sinnum fyrir að þeir bræður hafi farið á trillunni ffá Drangsnesi til Hólmavíkur og eins yflr að Smáhömrum, oftast í sam- bandi við fólksflutninga. Þá var Jón Hörður Elíasson vegasamband verra en nú. Jón Hörður stundaði sjómennsku frá 15 ára aldri, fyrst á bát fóður sins á sumrin, síðan á vertíðum bæði á Vestfjörðum og Suðurnesjum. Maður dagsins Jón Hörður minnist enn frekar vinnureynslu sinnar og jafhaldra sinna frá æskuárum. Foreldrar hans áttu nokkrar kindur og það var vinna hinna yngri að snúa heyi.Fór hann til þeirrar vinnu á hjólinu sínu því túnin voru utan við kauptúnið. DV Þrír leikir í 2. deild- inni í handbolta Deildakeppninni i handbolta fer nú bráðum að ljúka og ljóst er hvaða lið keppa um sæti í úr- slitakeppninni. Ekkert er leikið í 1. deildinni fyrr en um helgina en í kvöld eru þrír leikir í 2. deild. Víkingur, sem hefur unnið alla leiki sína og er nánast búinn að tryggja sér setu í 1. deild í haust, keppir við HM í Mosfells- bæ og hefst leikurinn kl. 20. í Laugardalshöll veröa tveir leik- ir. Kl. 18.30 leika KR og Keflavík og kl. 20.30 Ármann og ÍH. íþróttir í körfuboltanum er einn leik- ur á dagskrá, viðureign KR og Keflavíkur i 1. deild kvenna. Leikurinn fer fram í Hagaskóla og hefst kl. 20. Söngur Passíusálmanna Passiusálmamir hafa verið lesnir í útvarpinu og á síðustu árum hafa einstaka kirkjur tekið upp þann siö að lesa þá á fóstunni og eins í heild á föstudaginn langa. Það er gamall siður að syngja Passíusálmana, siður sem lagst hefur af. Það tókst að varð- veita hluta af þessari gömlu þjóð- menningu með hljóðritunum sem gerðar vora á árunum 1960 til 1970 og eru þessar hljóðritanir ómetan- legar heimildir um þessa gömlu þjóðmenningu. Tónleikar Á fóstunni verða Passíusálm- amir sungnir í Friðrikskapellu við Valsheimilið og hefst söngur- inn í kvöld, kl. 19.30. Smári Óla- son kirkjutónlistarmaður mun leiða sönginn sem verður á mið- vikudögum og fóstudögum fram að dymbilviku. Bridge ' Tvímenningur er allt annað keppn- isform en sveitakeppni og allt önnur lögmál gilda í tvímenningi en sveita- keppni. Hér er eitt dæmi frá Flug- leiðamótinu í bridge, sem sýnir glögglega þennan mun. Spilið kom fýrir í tvímenningskeppninni og al- gengasti samningurinn á hendur ns, var 4 hjörtu spiluð á norðurhendina. 4 K3 44 ÁD10742 •f Á3 4 1042 4 ÁG1097 «4 863 ♦ D 4 8753 4 D542 44 G95 4 K84 * KDG Vestur gjafari og av á hættu: Eftir að ns hafa sagt sig upp í 4 hjörtu er eðlilegt að hefja vömina á því að spila út tígli. Ef útspilið er tígulgosi, setur sagnhafi væntanlega kónginn i blindum til að taka hjarta- svíninguna og sér drottninguna koma siglandi frá hendi vesturs. Á hann að taka svíninguna i hjarta eða ekki? Ef vestur á einspil í tígli og austur hjartakónginn, er hætta á stungu í tígullitnum. Hins vegar er vestur líklegri til að eiga lengd í hjarta og þar með hjartakónginn. Þess vegna svínuðu margir spilar- arnir í norður hjartanu, fengu á sig stungu í tígli og gáfu auk þess slagi á lauf og spaða. En refsingin var ekki mikil og skorið fyrir að spila 4 hjörtu og fá 9 slagi var ekki langt frá meðal- talinu. Með því að spila tígli í upp- hafi, er austur að sjálfsögðu að fiska eftir tígulstungu, en með tígulgosa út, upplýsir drottningin nánast leg- una í tiglinum. Vel ígrundað útspil hjá austri væri að hefja vömina á tígultvisti, en það útspil hefur tvenn- an tilgang. Annar er sá að benda á laufmnkomu og hinn sá að fela leg- una í tígli. Spilið hefur allt aðrar áherslur í sveitakeppni. Eftir tígul- gosa út, lyftir sagnhafi einfaldlega hjartaás (því hann hefur efiii á að gefa slag á litinn) og vinnur þannig 5 hjörtu. fsak Örn Sigurðsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.