Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.1997, Síða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.1997, Síða 16
16 MIÐVIKUDAGUR 19. FEBRÚAR 1997 íþróttir Keflavík slapp fyrir hornið Keflavíkurstúlkumar lentu í miklum vandræðum með ÍS í 1. deild kvenna í körfuknattleik í fyrrakvöld. Allt stefndi i sigur Stúdína en Keflavík náði að jafna á lokasekúndunum og sigr- aði síðan í framlengingu, 79-85. Keflavík hefur þar með unnið alla 14 leiki sína en það hefur lengi legið fyrir að Keflavík, KR, Grindavík og ÍS leika til úrslita um meistaratitilinn. Staðan í 1. deild kvenna: Keflavík 14 14 0 1259-728 28 KR 14 11 3 1010-676 22 Grindavík 15 9 6 1018-902 18 ÍS 15 9 6 916-736 18 Njarðvík 14 5 9 782-972 10 ÍR 15 2 13 633-1195 4 Breiöablik 15 1 14 676-1085 2 IHGLAWD Leicester og Wimbledon gerðu markalaust jafntefli í undanúr- slitum enska deildabikarsins i gærkvöld. Leikmenn Leicester sóttu nær látlaust allan leikinn en þrátt fyrir aragrúa góðra færa tókst þeim ekki að sigra og liðin verða að eigast við að nýju. -SK 2. DEILD KARLA Breiðablik-ögri..............34-20 Kristján Halldórsson hefur náö mjög góðum árangri með lið Larvik- ur í norska handboltanum. Evrópukeppni félagsliða í handknattleik: Kristján og Larvik í undanúrslitin - árangur íslensku liðanna er umhugsunarefni Þátttöku íslensku liðanna á Evrópumótunum í handknatt- leik er lokið en á sama tíma eiga Norðmenn tvö karlalið og tvö kvennalið í undanúrslitum. Árangur norska kvennaliða þarf ekki að koma neinum á óvart en norskum karlaliðum hefur vaxið fiskur um hrygg á síðustu árum. Hvað veldur þessum stakkaskiptum? kunna ef til vill margir að spyrja. Norskir handknattleiksmenn geta nú í enn meira mæli en áður helgað sig alfarið íþróttinni með bættum árangri eins og raun ber vitni. Talsverðum fjármunum hefur verið ýtt í karlahandknattleikinn og geta leikmenn nú að mestu leyti einbeitt sér að handboltanum. Komast tvö norsk liö alla leiö í úrslitaleik Tvö norsk lið, Drammen og Sandefjord, komust í undanúr- slit borgakeppninnar en dregið var í keppninni í gær. Drammen mætir danska liðinu Kolding og Sandefjord þýska liðinu Nettelstedt. Þetta var dráttur eins og Norðmenn höfðu óskað sér þvi nú er möguleiki á að tvö norsk lið leiki til úr- slita. Drammen á titil að verja í borgakeppninni. Auk íslenskra liða sitja sænsk félög einnig eftir. Þar í landi er engin kátína með þá niðurstöðu. Ljóst er að Norð- menn hafa tekið forystuna, enda markmið og skipulagning allt önnur og beittari en hjá öðrum Norðurlandaþjóðum. Kristján Halldórsson er þjálfari norska kvennaliðsins Larvik en liðið er komið í undanúrslit og mætir þar rúss- neska liðinu Istotsjnik Rostov. Kristján sagði i samtali við Aftonbladet í gær að hann hefði helst af öllu vfljað leika fyrri leikinn í Rússlandi en það hefði þvi miður ekki gengið eftir. -JKS Barði konuna og reyndi að fremja sjálfsmorð Einn stuðningsmaður Fenerbache í Tyrklandi tók ósigri sinna manna gegn Besiktas í tyrknesku 1. deild- inni heldur illa en liðin, sem eru bæði frá Istanbul, mætt- ust í nágrannaslag um helg- ina. Eftir leikinn gekk hann í skrokk á konu sinni og barði hana illa en hún er stuðn- ingsmaður Besiktas. Þar á eftir reyndi hann að fremja sjálfsmorð með því að henda sér út um glugga á fimmtu hæð en rétt áður en hann stökk öskraði hann: „Ég skil bömin mín eftir hjá móður rninni." Ekki tókst karlinum ölóða ætlunarverk sitt því hann lifði fallið af. Nokkur rifbein brotnuðu auk þess sem hann fótbrotnaði á báðum fótum. Hann var fluttur á sjúkrahús, það sama og eiginkona hans var flutt eftir á barsmiðam- ar, en ekki fylgir sögunni hvort þau voru sett á sömu stofu. -GH Belglnn Bart Veldkamp varö heimsmeistari á dögunum í 10 km skautahlaupi en heimsmeistaramótiö fór fram í Japan. Hér sést hinn frægi Johan Olav Koss óska Veldkamp til lukku meö gulliö. Franski skipstjórinn Christophe Auguin hefur örugga forystu í siglingakeppni þar sem siglt er kringum hnöttinn. Taliö er víst aö hann muni setja heimsmet og sigla vegalengdina á 106 dögum. Haröur árekstur varö í Daytona kappakstrinum á dögunum ( Bandaríkjunum er tveir bílar skullu saman. Vélarhlíf annars þeirra þeyttist upp í áhorfendastæöin og einn áhorfandi slasaöist illa. Cantona í bann Eric Cantona, fyrirliði Man- chester United, er kominn í tveggja leikja bann. Hann missir af stórleikjimum við Arsenal í kvöld og Chelsea á laugardag. Gary Pallister tekur líklega viö fyrirliðastöðunni á meðan. Þrír í leikbann Þrír leikmenn Nottingham Forest eru komnir í leikbann, Ian Woan í tvo leiki og þeir Col- in Cooper og Mark Crossley, markvörður, í einn leik hvor. Stockport græöir Stockport úr 2. deild, sem mætir Middlesbrough í undanúr- slitrnn deildabikarins í kvöld, hefur þegar grætt um 170 millj- ónir á góðu bikargengi á þessu tímabili. En framkvæmdastjórinn, Dave Jones, er mjög ósáttur þrátt fyrir mjög gott gengi hjá Stockport. Hann hefur verið hjá félaginu í tvö ár án þess að gera skrifleg- an samning og hótar nú að hætta þar sem stjórnin vill ekki hækka launin hans. Var ekki að físka Leikmenn Derby og Jim Smith framkvæmdastjóri gefa lítið fyrir fullyrðingar Julians Dicks, leikmanns West Ham, aö Asa Asanovic, hinn snjalli miðjumaður Derby, hafi sifeflt verið að reyna að „fiska“ víta- spymur og aukaspymur í leik liðanna á laugardaginn. „Asa er ótrúlega leikinn og fljótur og það er mikið brotið á honum, oft án þess að það sé dæmt,“ segir Christian Daifly, leikmaður Derby. Asanovic skoraði einmitt sigurmark. Sheríngham heill Enski landsliðsmaðurinn Teddy Sheringham er búinn að ná sér eftir meiðsli sem hann varð fyrir á æfingu á nýársdag. Hann verður væntanlega með Tottenham gegn West Ham næsta mánudag. Ekki veitir af því sóknarleikur liösins hefur verið bágborinn síðustu vikur. Leicester kaupir Leicester hefúr keypt miðju- manninn Robert Ullathome frá Osasuna á Spáni fyrir 66 milljón- ir króna. Fær Juninho fríið? Bryan Robson, framkvæmdastjóri Midd- lesbrough, hefur beðið Mario Zagalo, landsliðsþjálfara Brasilíu, um frí fyrir hinn snjalla Juninho í næstu viku. Brasil- ía á þá að leika vináttulandsleik við Pól- land en á sama tíma leikur Middlesbrough við Manchester United i úrvalsdeildinni. Ginola til Inter? Franska blaðið Football France birti í gær bréf frá David Ginola, leikmanni Newcastle, þar sem hann heimilar um- boðsmanni stnum að ganga frá sölu sinni frá Newcastle til Inter Milano. Roberto Baggio ekki glaður á 30 ára afmælisdaginn: ,.Eins og fastur Ferrari" ítalski knattspyrnumaðurinn Roberto Baggio hélt upp á 30 ára afmæli sitt í gær. Hann sagð- ist ekki hafa yfir miklu að gleðjast á þessum tímamótum enda hefur keppnistímabUið hjá AC Milan í ár ekki veriö neinn dans á rósum fyrir hann. Eftir að hafa átt í meiðslum í upphafi tíma- bilsins hefur hann þurft að verma varamanna- bekkinn meira eöa minna og Arrigo Sacchi, sem tók við liöi Milan eftir að Oscar Tabarez var rekinn, sá ekki ástæðu til þess að velja hann í liðið þegar Milan sigraði Bologna um síðustu helgi. „Ég vil hitta Silvio Berlusconi, forseta félags- ins, og ræða við hann hvers vegna ég fékk ekki að spila um helgina. Ég myndi sætta mig við að sitja á bekknum ef það væri einhver ástæða fyr- ir því en Sacchi hefur ekki haft hugrekki til að segja mér sannleikann. Ég hef aldrei verið betri á mig kominn líkamlega og mér finnst ég ekki degi eldri en 30 ára. Ég á erfitt með að sætta mig við að hafa ekki fengið að spila gegn Bologna, sérstaklega þar sem þjálfarinn var búinn að hrósa mér fyrir góða frammistöðu á æfingum fyrir leikinn. í augnablikinu finnst mér ég vera eins og Ferrari bifreið sem er fost vegna umferðaröng- þveitis," segir Roberto Baggio. ítalska íþróttablaðið Gazzetta dello Sport greindi frá því í gær að Baggio hefði verið í sambandi við spænska stórliðið Real Madrid fyrir tveimur vikum en þjálfari Madridarliðs- ins er Fabio Capello, fyrrum þjálfari AC Milan. „Ef Capello vill fá mig til Real Madrid fer ég til Spánar" „Ég veit ekki á þessari stundu hvort ég verð áfram hjá Milan eða fer frá félaginu. Aðalmálið er aö ég vil fá að spila. Ef Capello kallar á mig fer ég til Spánar," sagði Baggio í viðtali við Gazetto dello Sport. -GH gleöjast á afmæ7isclaginneKkl áStæÖU “ aö MIÐVIKUDAGUR 19. FEBRÚAR 1997 41 NBA í nótt og fleiri íþróttafréttir á bls. 42 i>v Hættir Vinnie? Svo gæti farið að Winnie Jo- nes hætti að leika knattspyrjiu eftir þetta tímabil. Samningur hans við Wimbledon rennur út í vor og bendir fátt til þess að hann verði endurnýjaður. Vinnie hefur gef- ið það í skyn að fái hann ekki samning muni hann leggja skóna á hilluna. Ágætávöxtun í breskum dagblöðum í gær mátti sjá að ítalska liöið Roma væri á höttunum eftir Brasilíu- manninum Juninho. Þau sögðu frá því að Roma væri búiö að bjóða í hann 850 milljónir. Ef Middlesbrough fengi þetta verð fyrir leikmann- inn hefði hann hækkað um 350 milljónir króna á einu ári. Ágæt ávöxtim það. Góð staða Arsenal Arsenal vegnaði vel fjárhags- lega á síðasta ári. Hagnaður fé- lagsins fyrir skatta var um 285 milljónir króna. Liðið komst hins vegar illa frá kaupum og sölum en halli var á þeim viðskiptum. Ekki stytta fríið Þjálfarar í þýsku deildinni í knattspyrnu vilja ekki stytta vetrarfríið en það hefur verið gagnrýnt af mörgum leikmönn- um. Á hverju tímabili er gert tveggja mánaða frí á deildinni. Berti Vogts landsliðsþjálfari vill stytta fríið næst til að Ijúka deildinni fyrr og landsliðið fái meiri tíma til undirbúnings fyr- ir HM. Ekki hefur verið tekið vel í þessa beiðni. Wenger að leita Arsene Wenger, stjóri hjá Arsenal, hefur að undanfómu verið að líta i kringum sig með / það í huga að styrkja sókn liðs- ins. Hann ku vera yfir sig hrif- inn af Ariel Ortega hjá River Plate í Argentínu en honum er líkt við Maradona. Það kæmi ekki á óvart þótt Wenger gerði tilboð í þennan leikmann upp á 800 milljónir. Herrakvöld hjá ÍR Handknattleiksdeild ÍR stend- ur fyrir herrakvöldi á laugardag- inn kemur, 22. febrúar, í ÍR- heimilinu . Húsiö verður opnað klukkan 19. Aðalfundur deildarinnar verður síðan haldinn miðviku- daginn 26. febrúar klukkan 20.30. Rubin aftur heim Einn sterkasti handknattleiks- maður Sviss, Martin Ruben, hef- ur ákveðið að snúa aftur til Sviss en síðustu tvö árin hefur hann leikið með Bayer Dormagen. Ruben hefur gert samning við Wacker Thun. Ástæðan fyrir því að hann snýr aftur er að hann vill geta verið meira með landsliðinu. Tekur keisarinn við? Joe Havelange hinn, aldni for- seti Alþjóða knattspyrnusam- bandsins, FIFA, sagði í gær að hann vildi sjá Franz „keisara" Beckenbauer sem eftirmann sinn í embættinu. Svíinn Lennart Johannsen, forseti evrópska knattspymu- sambandsins, UEFA, hefur lýst því yfir að hann vflji taka við Havelange þegar hann hættir á næsta ári en fari svo Beckenbeu- er bjóði sig fram má búast við hörðum slag. Iþróttir „íslensk félagslið hafa miklu oftar en ekki dottið úr keppni í 8 liða úrslitum þannig að það sem er að gerast núna kemur mér ekkert á óvart. Það er örsjaldan sem lið héðan hafa komist lengra. Þetta er mælikvarðinn á okkar félagslið og siðan er þetta alltaf spuming um heppni hvort lið in komast lengra. Ég er ósammála því að Norðmenn séu að sigla fram úr okkar félagsliðum. Til að sporna við því að bestu leikmenn Norðmanna fari til liða á meginlandinu hafa þeir komið upp kerfi hjá sér, ef svo mætti segja. Það er byggt þannig upp að ef þeir leika í Noregi og eru landsliðsmenn fá þeir um þrjár milljónir króna á ári beint frá norska handknattleikssamband- inu,“ sagði Þorbjöm Jensson landsliðsþjálfari i samtali við DV í gær. Vigo mætir Virum í gær var dregið til undanúrslita á Evrópu- mótunum í handknattleik. í EHF-keppninni dróst Octavio Vigo, andstæðingur Stjömunn- ar, gegn danska liðinu Virum og Granollers leikur gegn Flensburg. í Evrópukeppni bikarhafa mæta KA-ban- amir í Veszprém franska liðinu Irvy og Mag- deburg leikur gegn Bidasoa. í Borgakeppninni mætast annars vegar Nettelstedt og Sandefjord og hins vegar Kold- ing og Drammen. í Evrópukeppni meistaraliða mætir Barcelona Piovama Lasko frá Slóveníu og Kiel leikur gegn Badel Zagreb. -GH Þorbjörn sagði ennfremur að á meðan Lotto- keppnin stóð yfir í Noregi á dögunum hefði Gunn- ar Solberg verið mjög ósáttur viö þetta kerfi og jafnvel að hugsa um að gefa ekki kost á sér í landsliðið. Solberg fannst að með því væri verið að refsa þeim sem gerðu samning við erlend lið. - Hvað finnst þér sjálfum um stöðu ís- lenskra liöa gagnvart öðrum liðum í Evrópu? „Mér finnst mjög slæmt að hægt sé að kaupa leikmenn héðan. Það er hins vegar mjög fátt sem getur stöðvað þá þróun. íslenska sambandið getur eins og málum háttar í dag ekki tekið upp sama kerfi og þeir í Noregi. Við verðum eins og áöur nokkurs konar útungunarstöð fyrir lið í Evrópu sem ekki era tilbúin að byggja sig upp innan frá. Það kemur hiklaust niður á liðum hér þegar bestu leikmenn þeirra eru að fara til liða í Evr- ópu. Það segir sig alveg sjálft að með þá innan- borðs væra liðin hér heima betur í stakk búin til að taka á móti liöum í Evrópu," sagði Þorbjöm. - Ertu með þessu að segja að þetta verði fyr- irsjáanlegt vandamál næstu árin? „í augnablikinu sé ég ekki ekki fram á breyt- ingu í þeim efnum. Ég sá á dögunum blaðaviðtal við Roger Karlsson, fyrrverandi landsliðsþjálfara Svía, þar sem hann óttast að að þeim tímapunkti komi að leikmenn í Þýskalandi fái ekki laun sín greidd. Hann bendir á að mörg liðanna þar komi ekki til með að standa í skilum við erlenda leik- menn og nefndi dæmi því til staðfestingar. í des- ember sL þurftu leikmenn Gummersbach að gefa eftir laun sín þess mánaðar til að klúbburinn færi ekki einfaldlega á hausinn. Ef fjárhagslegt hrun verður í Þýskalandi þá hættir um leið innrás leik- manna þangað. Ef þessi þróun heldur áfram þá sé ég ekki fram á annað en að fleiri leikmenn eigi eftir að fara þangað í víking. íslenskir leikmenn era þar að sjálfsögðu ekki undanskildir." - Þvl hefur verið haldið fram að það væri gott fyrir landsliðið að sem flestir leikmenn héðan lékju með erlendum félagsliðum. Er ■ r skoðun á þeim málum eitthvað aö breytast? „Deildinni hrakar hér heima eftir því sem fleiri fara út. Það verður um leið ekki landsliðinu til góða. Það er alveg á hreinu.“ - Eru engin teikn á lofti um að á næstunni verði hægt að borga leikmönnum einhverja þóknun fyrir að leika handknattleik með sfn- um liðum hér á landi? „Það vita allir að nú þegar eru einhverjir að fá peninga en það eru kannski bara örfáir í liðun- um. Á meöan félögin eru að berjast í bökkum þá sé ég ekki fram á það að hægt sé að breyta þess- ari þróun. Við verðum bara að verða duglegir að byggja upp handboltann og sjá hvernig þetta þró- ast. í dag eigum við enga möguleika gagnvart fé- Ú* lögunum erlendis. Við erum blankir og verðum að horfast í augu við það,“ sagði Þorbjörn Jens- son. -JKS Eru íslensk félagsliö í handknattleik aö dragast aftur úr? „Útungunarstöð fyrir lið í Evrópu“ - segir Þorbjörn Jensson, landsliðsþjálfari í handknattleik

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.