Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.1997, Blaðsíða 2
MIÐVIKUDAGUR 19. FEBRÚAR 1997 3D"V
Plúsferðir:
Sumaráætlun Plúsferða er að
koma út og á þeirra vegum eru
gefnir út einblöðungar sem eru
tengdir hverjum ákvörðunarstað.
Plúsferðir hafa fengið til liðs við
sig 8 nýja umboðsaðila sem eru
beintengdir við sölukerfi þeirra.
Plúsferðir hafa breytt afgreiöslu-
tíma skrifstofu sinnar til þæginda
fyrir viðskiptavini sína. Nú er
opiö frá 9-18 alla virka daga,
10-14 á laugardögum og 12-15 á
sunnudögum.
Spánn í einum pakka
I sumar verður flogið í beinu
leiguflugi til Benidorm sem er
einn vinsælasti sólarstaöur ís-
lendinga. Benidorm er einn sól-
ríkasti staður Spánar og Costa
Blanca, hvíta ströndin, ber nafn
með rentu. Gististaðir Plúsferða
eru alveg við Levante-ströndina
sem af flestum er talin besti stað-
urinn á Benidorm.
Hótel Plúsferða er Halley-
íbúðahótelið með íbúðum með
einu eða tveimur svefnherbergj-
um. Að auki er einnig í boði íbúða-
hótelið Trebol sem líka er í hjarta
Benidorm á Levante-ströndinni.
Verðið er hagstætt. Ef miðað er við
fjögurra manna fjölskyldu, 2 full-
orðna og tvö böm á aldrinum 2-11
ára, er verðið 38.810 krónur á mann.
Innifalið í því er flug, gisting í 2 vik-
Benidorm er einn sólríkasti staöur Spánar og Costa Bianca, hvíta ströndin, ber nafn meö rentu.
ur, flugvallarskattur og akstur til og
frá flugvelli erlendis.
Mallorca og Danmörk
Plúsferðir verða með pakkaferð
til Mallorca. Sá staður nýtur jafnra
vinsælda og Plúsferðir bjóða upp á
íbúðahótelið Pil Lari á ströndinni
Playa de Palma. Örstutt er þaðan
inn í höfuðborgina, Palma. Verð-
dæmi fyrir fjögurra manna fjöl-
skyldu er 39.800 krónur á mann.
Innifalið í því verði er flug, gisting,
flugvallarskattm- og ferð til og frá
flugvelli erlendis.
Eins og áður leggja Plúsferðir
mikla áherslu á ferðir til Danmerk-
ur. í sumar verður vikulegt flug til
Billund í Danmörku. Fyrsta flugið
verður 28. maí og ferðirnar standa
fram í byrjun september. Ferðir í
beinu flugi til Billund hafa notið
vinsælda, enda margir sem notfæra
sér ferðina til að heimsækja ætt-
ingja og vini í sumarleyfinu á
Jótlandi. Verðdæmi fyrir Qögurra
manna fjölskyldu hljóðar upp á
27.975 krónur á mann. í því verði
er innifalið flug, flugvallarskattur
og bílaleigubíll í A-flokki í eina
viku.
Hagstæðir samningar
Plúsferðir hafa náð hagstæðum
samningum við bílaleigur á Jót-
landi og bjóða auk þess i fyrsta
sinn sumarhús í Middelfart og á
Römö í Borkhavn. Húsin eru
mjög góð og rúma allt að 8
manns. Að auki eru Plúsferðir
með sumarhúsin vinsælu í Ribe,
elsta bæ Danmerkur.
Plúsferðir eru einnig með góð
verðtilboð á flugi og bíl til Kaup-
mannahafhar í sumar. Ef fjög-
urra manna fjölskylda er eina
viku í Kaupmannahöfn og leigir
sér bíl í A-flokki með öllum skött-
um er verðið 27.650 krónur á
mann.
Flug og bíll er einnig vænlegur
kostur í Þýskalandi á vegum
Plúsferða og þar að auki verða í
boði sumarhús í Hostenberg. Einnig
er gistimöguleiki í Himmelberg-
sumarhúsagarðinum í Hunsruck.
Einnig ættu viðskiptavinir Plús-
ferða að athuga tilboðsverðið á flugi
og bíl í Bretlandi. -ÍS
Fjölbreyttar ferðir með Guðmundi Jónassyni:
svo
með
til
Prag f Tékklandi er bæöi falleg og þægileg borg að ferö-
ast um, tiltölulega lítil svo fólk getur veriö fótgangandi.
skrifstofan
beint flug
Flugleiðum
borgarinnar
Graz í Austur-
ríki og síðan
heim aftur frá
Vínarborg þann
14. júní. Fyrir þá
sem vilja verður
í framhaldi af
þessu boðið upp
á ævintýralega
þriggja borga
ferð um Austur-
ríki og Ung-
verjaland, þ.e.
frá Graz verður
farið til Búda-
pest í Ungverja-
landi og þaðan
er farið til Vín-
arborgar. Að
sjálfsögðu verð-
ur stoppað í öll-
um borgunum og
fólki geflnn kost-
ur á að skoða sig
um. Einnig verður boðið upp á sér-
stakar skoðunarferðir en áætlaður
fjöldi í ferðina er 50-60 manns. Verð
á mann er 65.310 krónur og innifalið
er flug, flugvallarskattur, gisting I
tveggja manna herbergi með baði,
morgunverður, akstur frá flugvelli í
Graz á hótel, skoðunarferð um
Gr£iz, akstur til Búdapest og skoðun-
arferð þar, akstur til Vínar og skoð-
unarferð þar, akstur út á flugvöll í
Vín og íslensk fararstjórn.
Stóra Evrópuferðin
Loks má nefna Stóru Evrópuferð-
ina sem nú verður farin 10. árið í
röð en þá fer hópurinn út með eigin
rútu, íslenskan bílstjóra og íslensk-
an fararstjóra og ferðast þannig rnn
gjörvalla Evrópu. Flogið er til
Frankfúrt, ekið milli áfangastaða i
Evrópu og síðan siglt heim frá Nor-
egi með viðkomu í Færeyjum. Farið
verður þann 1. júní og komið heim
þann 19. júní. Áætlaður fjöldi í ferð-
ina er 25-30 manns og kostar hún
139.800 krónur fyrir manninn. Inni-
falið er flug, flugvallarskattur, sigl-
ing, gisting 1 tveggja manna her-
bergi með baði og i fjögurra manna
klefúm með baði á Norrænu. Einnig
er morgun- og kvöldverður innifal-
inn þar til siglt er frá Bergen, allur
akstm: og fararstjóm.
Prag er yndisleg borg. Við byrjuð-
um með ferðir þangað í fyrra og
áhugi fólks fyrir henni er sífellt að
aukast. Þetta er bæði falleg og þægi-
leg borg að ferðast um, þ.e. tiltölu-
lega lítil, svo fólk getur verið fót-
gangandi," sagði Emil Öm Krist-
jánsson, forstöðumaður utanlands-
deildar Ferðaskrifstofu Guömundar
Jónassonar ehf.
Prag er höfuðborg Tékklands og
þar búa mn 1,2 milljónir manna.
Þetta er fom og sögufræg borg og
litrík saga hennar hefur sett mark
sitt á útlitið. Þar er m.a. að finna
óspilltar gotneskar byggingar í bar-
okk- og Jugendstíl og fjölda stór-
merkilegra bygginga og annarra
mannvirkja. Moldá rennur í gegn-
um borgina og er spannað af mörg-
Guömundur Jónasson
pest.
um brúm, m.a. hinni stórmerkilegu
Karlsbrú sem byggð var á 14. öld.
Prag hefúr eitthvað að bjóða öllum,
þar er t.d. að finna góða veitinga-
staði, tónleikahallir, söfti, nætur-
klúbba, bjórstofur og kirkjubygging-
ar, svo fátt eitt sé nefnt. „Þama eru
þrjú óperuhús og því mikið um tón-
leika, sérstaklega þó á vorin, og við
getum jafnvel útvegað fólki miða.”
Mikil ferðamannaborg
„Prag er mikil ferðamannaborg
og ferðamönnum hefur líkað vel að
vera þar. Við bjóðum upp á ferðir
þangað síðla vors og snemma
hausts en þá er veðurfarið einna
best, eða rúmlega 20 stiga hiti yfir
daginn.
Þsima er
hins vegar
mjög heitt
yfir hásum-
arið og get-
ur orðið
frekar kalt í
lok sept-
ember,”
sagði Emil.
Aðspurður
um verðlag
sagði hann
það ódýrt
fyrir íslend-
inga að
ferðast um
Prag, verð-
lag á hótel-
mn og veit-
ingahúsum
væri mun
ódýrara en
hér þó það
hefði hækk-
að eitthvað
skipuleggur skoöunarferö tii Búda-
sl. 8-10 ár. „Þama er mjög ódýrt að
vera samanborið við önnur vinsæl
ferðamannalönd og almenningssam-
göngur era t.d. mjög ódýrar.”
Boðið er upp á tvær ferðir til
Prag i ár, sú fyrri er 17.-24. maí en
sú seinni 21.-28. ágúst. Flogiö er
með Flugleiðum. Einnig er boðið
uppá vikuferð til Prag sem innifelur
flug, flugvallarskatt, akstur til og
frá flugvelli, gistingu með morgun-
verði á 3 eða 4 stjömu hóteli, skoð-
unarferðir mn borgina og íslenska
fararstjóm. Sé gist í tveggja manna
herbergi á 3 stjömu hóteli kostar
það 49.900 krónur fyrir manninn en
78.500 krónur fyrir manninn sé gist
í tveggja manna herbergi á 4 stjömu
hóteli.
Veiði- og skíðaferðir
Undanfarin þrjú ár hefur ferða-
skrifstofan boðið upp á sérstakar
ferðir til Grænlands í silungsveiði
sem að sögn Emils er best að stimda
í lok júlí og fram í september.
„Einnig verður hin árlega skíða-
ferð til Sviss áfram í boði, nú 17.
árið í röð, en það er 10 daga páska-
ferð til Crans Montana. Það er eig-
inlega allt innifalið í henni, þ.e. flug
til og frá Zurich, ferðir milli flug-
vallar og Crans Montana, gisting í 9
nætur, morgimverður og fjórrétta
kvöldverður og íslensk fararstjóm,”
sagði Emil. Gist verður á Hótel du
Parc og kostar það 105.930 krónur á
mann í 2 manna herbergi og 113.300
krónur á mann í eins manns her-
bergi.
Graz, Búdapest og Vín
Þann 7. júní í sumar býðm ferða-
Beint flug til Prag