Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.1997, Blaðsíða 14
w
MIÐVIKUDAGUR 19. FEBRÚAR 1997 JLÞ\r
30 %prðir
Ítalía er eitt helsta ferðamanna-
land Evrópuálfu og margir lofa sjálf-
um sér því að fara einhvern tíma á
ævinni í ferð þangað. Til langs tíma
voru ferðir til Ítalíu í áætlunarflugi
ekki á boðstólum hjá ferðaskrifstof-
um fyrir íslendinga. Ferðaskrifstof-
an Úrval-Útsýn verður með beint
flug til Mílanó sumarmánuðina ág-
úst og september. Þær ferðir eru
bæði fyrir fólk sem ferðast á eigin
vegum, til dæmis á bílaleigubíl, en
einnig eru í boði vikuferðir að
Gardavatni þar sem innifalið er
flug, akstur frá Mílanó að Garda og
hótel með morgunverði í viku.
Gardavatnið
Guðrún Sigurgeirsdóttir, skipu-
leggjandi hópferða hjá Úrvali-Útsýn
er nákunnug staðháttum við Garda-
vatnið. „í faðmi Dólómítafjallanna
er vatnið Garda, sem margir telja
einn fegursta stað Evrópu.
Skemmtilegir bæir standa við vatn-
ið og hafa þeir notið mikilla vin-
sælda meðal ferðamanna um árabil.
Náttúrufegurð á staðnum er stór-
brotin og margt hægt að gera sér til
gagns og gleði. Vinsælt er að leigja
fjallahjól og þeysa um brekkurnar
eða fara í gönguferðir um fjöllin eða
bæina. Götulíf er líflegt í bæjunum
við vatnið og maturinn hreint frá-
bær, ekta ítalskur og að sjálfsögðu
má ekki gleyma hinum ítölsku eðal-
. víniim,“ sagði Guðrún.
“Á kvöldin er notalegt að sitja á
einhverju af hinum fjölmörgu veit-
inga- og kaffihúsum og teyga ilminn
af Ítalíu. Gardavatnið er miðsvæðis
og því auðvelt að skreppa til
Mílanó, Verona, Feneyja eða í dags-
ferðir um Dólómítafjöllin, annað
hvort á eigin bílaleigubíl eða fara í
skipulagðar skoðunarferðir með
enskumælandi fararstjórum. Upp-
lýsingar um þær ferðir er að fá í
gestamóttökum hótelanna."
Vinalegir bæir
„Bæimir við Garda eru hver öðr-
um vinalegri, Torbole er lítill og fal-
legur bær, örstutt frá Riva. Þar er
miðstöð seglbrettasiglinga við
Garda og síðdegis þegar hlýr vindur
blæs úr suðri, flykkjast brettamenn
út á vatnið í marglitum búningum
og láta vindinn og öldumar bera
sig. í Riva, sem er einn stærsti bær-
inn við vatnið, ber klettabelti fjall-
anna við himin og útsýnið yfir fag-
urblátt vatnið er geysifagurt. í Riva
er skemmtilegur útimarkaður í
hverri viku.
Limonia er lítill snotur bær við
sunnanvert vatnið. Brenzone stend-
ur í hæðum við vatnið austanvert
þar sem undirlendi er lítið, en út-
sýni mikið. Pechiera del Garda er
fremur stór bær við suðurenda
vatnsins og hefur verið fjölsóttur
ferðamannastaður síðastliðin 10
ár.“
Skemmtilegir bælr standa við vatnið og hafa þeir notið mikilla vinsælda meðal ferðamanna um árabil.
Víð Adríahafið
Cervia og Milano Marittima,
skammt sunnan borgarinnar Ra-
venna, eru fallegir ítalskir bað-
strandarbæir á Adríahafsströnd-
inni. Umhverfi þeirra er skógi vax-
ið og glæsilegir golfvellir í nágrenn-
inu. Bæimir, sem liggja nánast hlið
við hlið, standa á gömlum merg.
Ráðhúsið er frá 18. öld, dómkirkjan
frá 1699. Saltvinnsla hefúr verið þar
mikil í nokkrar aldir og er elsti salt-
tuminn síðan 1712. í bæjunum em
fallegar verslanir og góðir bekkir á
ströndinni. Einn stærsti skemmti-
garður Ítalíu, Mirabilandia, er í 15
mínútna göngufjarlægð frá hóteli
Ú/Ú á staðnum. Hægt er að fara í
skoðunarferðir á eigin bílaleigubíl,
til Ravenna (30 km), Bologna (90
km) og enn fleiri staða sem em ekki
langt frá, eins og smáríkisins San
Marinó, Feneyja, Flórens, Verona
og Padova," sagði Guðrún.
Kortaferð til Rómar
Vanir ferðamenn halda því fram
að nauðsynlegt sé að fara til Rómar
að minnsta kosti einu sinni um æv-
ina. Róm var vagga heimsveldis,
þar gerðist sagan og í borginni ei-
lífu reis menning Rómverja hæst.
Colosseum, Vatikansafnið, Fomm
Romanum, Péturskirkjan og margt
fleira er svo sannarlega þess virði
að skoða. Máltækið segir að allar
leiðir liggi til Rómar, en þaðan
liggja líka leiðir til ýmissa átta, til
dæmis til Flórens, Napolí og
Pompei.
Á hverju ári býður Visa-ísland
farkorts- og gullkortshöfum sínum
upp á ferð á góðum kjömm. Úrval-
Útsýn hefur í samvinnu við Visa ís-
land skipulagt tvær slíkar ferðir til
Rómar í beinu flugi Flugleiða. Ferð-
imar em 28. febrúar til 8. mars og
8.-15. mars. Fararstjórar í þessar
ferðir verða Guðný Margrét Emils-
dóttir og Friðrik G. Friðriksson.
#í ferðunum er boðið upp á fjöl-
breyttar kynnisferðir, auk þess sem
farið verður út að borða á kvöldin.
Að sjálfsögðu verður fylgst með því
hvort eitthvað spennandi sé að ge-
rast í tónleikahúsum Rómar. Brott-
för í ferðirnar verður með Flug-
leiðavél klukkan 17, en það tekur
um 4 klst. að fljúga til Rómar. Akst-
ur á hótelið tekur innan við eina
klukkustund.
-ÍS
Italía heillar
SVAR
•• 903« 5670i
Aðeins 25 kr. mínútan. Sama verð fyrir alla landsmenn.
DV
IHollur flugvalla-
matur
Hér eru góðar fréttir fyrir þá
sem hugsa um heilsuna og
kviða tilhugsuninni um fitugar
pitsur á flugvöllum. Samkvæmt
könnun Matvælastofnunar
Bandaríkjanna er flugvallamat-
ur ekki eins slæmur og hann
hefur orð á sér fyrir að vera.
Reiknað er með því að um
550 milljónir manna muni ferð-
ast um flugvelli á þessu ári og
1 hvort sem þeir eru á leið í flug
§j eða bíðandi eftir því að vélar
|l lendi munu flestir þeirra fá sér
eitthvað að borða.
„Það er töluvert meira um
ferskan mat, rúnstykki og
g heilsusamlokur en áður og því
hægt að velja um ijölbreyttan
I og hollan mat,“ segir talsmaður
I samtakanna.
Seldust upp
Breska flugfélagið British
| Airways seldi nýlega 190 flug-
1 miða með Concorde vél félags-
ins á innan við hálftíma.
Ástæðan er sú að miðamir
vora seldir á rúmar ellefu
I hundruð krónur í tilefni af 10
• ára einkaleyfi félagsins.
Að sögn talsmanna hringdu
I yfir 20 milljón æstir ferðalang-
ar i flugfélagið þennan dag i
| þeirri von að vera á meðal
: þeirra heppnu.
Verðið enn
of hátt
Flugfargjöld til Evrópu hafa
j lækkað undanfarin ár en eru
; samt enn of há að margra mati.
1 Philip Lowe hjá Ferðamála-
nefnd Evrópu sagði að enn
væru 64% af flugferðum til Evr-
E- ópu í höndum einstakra flugfé-
1 laga og varaði við því að nefnd-
I in, sem er framkvæmdaraðili
| Evrópubandalagsins í þessum
::í málum, myndi fylgjast vel með
; óvenjulegri verðlagningu.
„Sumar flugleiðir eru óþarf-
1 lega hátt verðlagðar," sagði
| hann án þess þó að nefna neina
I sérstaka. Lowe sagði nefhdina
Sekki koma til með að útbúa
gjaldskrá yfir flugfargjöld held-
j ur bregðast við og hafa afskipti
| af ef henni bærust kvartanir
ji eða hana grunaði að hömlur
væru á samkeppni. Sem dæmi
má nefha að sérstök skrifstofa í
| Þýskalandi varaði Lufthansa
nýlega við því að rukka of hátt
| gjald fyrir flug frá Frankfurt til
: Berlínar.
Síðasta ár var gott
Ferðamálayfirvöld viðast
hvar í heiminum eru sammála
um að árið 1996 hafi verið gott
| fyrir ferðaþjónustuna. Ferða-
j mannastraumur jókst i flestum
álfum heims, mest þó í Asíu,
eða um 10% miðað við árið á
undan. Evrópuálfa er þó enn í
öruggu 1. sæti, með 347 milljón
gestakomur. Ferðamenn til
1 Asíulanda voru miklu færri á
síðasta ári, „aðeins 15 milljón"
manns.
IGræða mest
Frakkland er það land sem
fær flesta ferðamenn í heim-
sókn á ári hverju en landsmenn
eru samt sem áður ekki sú þjóð
sem hefur hæstu tekjurnar af
ferðamönnum. Frakkar eru að-
eins í þriðja sæti. Bandaríkin
eiga þann heiður að fá mestu
j tekjurnar. Ferðamenn til
Bandaríkjanna voru 44,8 millj-
ónir á síðasta ári en tekjurnar
I yfir 4.000 milijarðar króna.
| Tekjur Frakka voru hins vegar
ekki nema rúmlega 2.100 millj-
| arðar. Spánverjar græddu næst-
I mest á sínum ferðamönnum en
| voru í fjórða sæti heims yfir
S fjölda þeirra.
•fj
t