Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.1997, Blaðsíða 6
MIÐVIKUDAGUR 19. FEBRÚAR 1997 Jj"V
'férðir__________________________________________________________
Úrvals fólk. 60 ára og eldra:
Ferðir við allra hæfi
Úrvalsfólk á góóri stundu.
Félagsmenn í Ferðaklúbbi fólks,
60 ára og eldra, á vegnm Úrvals- Út-
sýnar eru orðnir 4.000 talsins. Þeir
hafa gert víðreist og á síðastliðnu
ári fóru 800 manns í skipulagðar
ferðir með fararstjórum. Sólarstað-
imir Mallorca, Portúgal og Kanarí-
eyjar voru í fyrra vinsælastir, en
farið var í fjölda ferða á vegum
klúbbsins auk þessa. í ár eykur
Ferðaklúbbur Úrvals fólks enn við
fjölbreytnina með nýjum skemmt-
anastjórum auk þess sem hjúkrun-
arfræðingar eru til taks í vissar sól-
arlandaferðir.
Almanak ársins
Fyrsta ferð ársins verður skíða-
ferð til Saalbach-Hinterglemm í
Austurríki þann 2. mars í 7 daga.
FcU'arstjóri í þeirri ferð verður
Valdimar Örnólfsson. Fjögurra
vikna ferð til Kanaríeyja er ráðgerð
með brottfarardegi miðvikudaginn
2. apríl. Skemmtanastjóri í þeirri
ferð er Skapti Ólafsson, en þetta er
þriðja ferð hans
á þessum vetri.
Örvar Kristjáns-
son verður með
í fór og spilar að
sjálfsögðu á
nikkuna.
Golfáhuga-
menn fá að sjálf-
sögðu eitthvað
fyrir sinn snúð,
því ráðgerð er 10
daga og tveggja
landa golfferð til
Brisa Sol i
Portúgal og
Islantilla á
Spáni. Brottfar-
ardagur er mið-
vikudagurinn 9.
apríl og dvalið
er í 7 daga i
Portúgal og 3
daga á Spáni.
Fararstjóri verð-
ur Sigurður Haf-
steinsson. Mall-
orca heldur
ávallt vinsæld-
um sínum í hugum Islendinga og 1.
maí verður farið í 20 daga ferð þang-
að. Skemmtanastjóri er Sigvaldi
Þorgilsson danskennari og hjúkrun-
arfræðingurinn Sigrún Óskarsdótt-
ir er með í for.
Sigriður Hannesdóttir (Didda)
leikkona og harmonikkuleikarinn
Sigurgeir Björgvinsson (Siffi) sjá
um að halda uppi fjörinu í 21. dags
langri ferð til Portúgal sem hefst
miðvikudaginn 30. apríl. Hjúkrun-
arfræðingur í þeirri ferð verður
Margrét Halldórsdóttir. Austur-Evr-
ópa þykir spennandi eftir að jám-
tjaldið féll. Tilvalið tækifæri til að
kynnast því, er að bregða sér í 5
daga ferð til Portoroz, í norðurhluta
fyrrum Júgóslavíu við Adríahafiö.
Flogið er til Ljubljana og þaðan
haldið til Portoroz, hafnar
blómanna sem margir ferðalangar
kannast við frá fyrri tíð. Fararsljóri
verður Rebekka Kristjánsdóttir en
brottfór er 20. maí.
Fjöll og
fjorur
Danmörk á
djúpar rætur í
hugum margra
íslendinga. í
byijun sumars
á íslandi verð-
ur farin 9 daga
ferð til Dan-
merkur sem
skiptist í
tveggja daga
dvöl í kóngsins
Kaupinhavn og
vikudvöl í sum-
arhúsum í Ribe
á Jótlandi.
Brottfarardag-
ur er miðviku-
dagurinn 4.
júní og farar-
stjóri er Böövar
Guðmundsson.
Peter Salmon
verður farar-
stjóri í 15. daga
langri ferð til
Flórída. Lagt verðir i þá ferð mið-
vikudaginn 9. Júní, dvalið 5 fyrstu
dagana í Orlando en síðan koma 10
dagar á himneskri strönd í Naples
við Mexíkóflóann. Boðið verður upp
á spennandi kynnisferðir. í byijun
ágúst, þriðjudaginn 5. Þess mánaðar
verður lagt í 14 daga Alpaævintýri
um fógur fjallahéruð Sviss og Ítalíu.
Guðmundur Karlsson sér um farar-
stjóm.
Önnur Mallorcaferð ársins á veg-
um Úrvals-fólks stendur í þrjár vik-
ur og brottfor er 10. September. Á
dagskrá þeirrar ferðar er leikfimi,
skemmtikvöld, minigolf, gönguferö-
ir og leiðbeiningar í golfi. Skemmt-
anastjóri verður Sigriður Hannes-
dóttir leikkona og hjúkmnarfræð-
ingur Sigrún Óskarsdóttir. Að lok-
um er einnig ráðgerð þriggja vikna
Portúgalsferð þann 10. September
með Sigvalda Þorgilssyni danskenn-
ara sem skemmtanastjóra. Hjúkrun-
arfræðingur í þeirri ferð er Margrét
Halldórsdóttir.
-ÍS
Fjögurra vikna ferð fyrir Úrvalsfólk til
Kanaríeyja er ráðgerð í apríl.
eðan sumir eru að heiman
eim
eru
Heimavöm Securitas, fullkomið öryggiskerfi, að láni
og þú getur farið áhyggjulaus að heiman.
Heimavörn Securitas er í senn innbrota- og brunaviðvörunarkerfi. Kerfið er sett á með einu handtaki þegar
hemilið er yfirgefið eða þegar gengið er til náða og eftir það er varsla þess í öruggum höndum Securitas.
Fyrir kerfið sjálft og uþþsetningu þess þarf ekkert að borga. *
Mánaðarlegt þjónustugjaíd felur í sér útköll, viðhald
og þjónustu við kerfið allan sólarhringinn.
Siðumúla 23 • 108 Reykjavtk
Sími: 533 5000
* Heimavömin er samsett af ákveðnum fjölda skynjara, en er stcekkanleg eftir þörfum bvers og eins.
Ródeósýningar
Þegar talað er um ródeó-
* hestasýningar dettur öllum í
hug starfsemi sem fram fer I
S Bandaríkjum N-Ameríku. Þeir
sem hugsa þannig verða samt
| að fara að endurskoða afstöðu
I sína. Vinsældir ródeósýninga í
Bandaríkjunum komast ekki í
) hálfkvisti við vinsældimar í
t Brasilíu. Vissulega eru Banda-
ríkin upphafsland slíkra sýn-
í inga en á örfáum árum hefur
Brasilía tekið afgerandi for-
ystu. Á síðasta ári voru haldnar
hvorki meira né minna en 1200
! ródeósýningar í Brasilíu. Þær
1 drógu að sér 30 milljónir gesta
sem er 25% fjölgun frá árinu
S 1995.
Atvinnuskapandi
Þessar sýningar nafa gert
| mikið fyrir ferðamannaþjón-
ustu í landinu. Yfir 200.000
j manns hafa beint eða óbeint at-
! vinnu af þessum sýningum.
Formaður samtaka ródeósýn-
I inga í Brasilíu, Jeronimo Luiz
1 Muzzetti, segist ekki vera hissa
á vinsældunum. „í landi þar
1 sem knattspyma er nánast eins
| og trúarbrögð getur 90 mínútna
1 knattspyrnuleikur liðið án þess
; að nokkurt mark líti dagsins
ljós. Hver sekúnda á ródeósýn-
ingu er hins vegar á við mark,
j skorað í knattspymuleik,“ seg-
§ ir Muzzetti.
Risabúgarðar
1 Stærsti ródeoDúgarður og
keppnissvæði í Brasilíu,
fi Barretos, er á 10 ekra svæði
I með áhorfendasæti fyrir 35.000
| manns. Það eru ekki margir
knattspymuvellir sem státa af
I svo mörgum sætum. Á síðustu
| 10 daga sýningu Barretos kom
| ein milljón gesta. Það eru ekki
s aðeins hestar og nautgripir sem
draga gesti að. Haldnar era feg-
urðarsamkeppnir og kosin ung-
frú ródeó, kántrítónleikar á
hverju kvöldi og danssýningar.
Ródeósýningin er þó ávallt það
Isem mesta athygli vekur. í síð-
ustu keppni Barretos komu 250
„kúrekar" og kepptu um 17
milljón króna verðlaun.
Þjóðgarði lokað
í. Yosemite-þjóðgarðurinn í
! Kalifomíu er einn af þekktustu
i þjóðgörðum heims og dregur
1 árlega að sér fjórar milljónir
ferðamanna. En stórum hluta
þjóðgarðsins hefur nú verið
| lokað um stundarsakir - að
I minnsta kosti fram yfir næstu
mánaðamót. Vetrarstormar og
(vatnsflóð í þjóðgarðinum hafa
skemmt vegi, byggingar og raf-
magnslínur. í 106 ára sögu þjóð-
garðsins hefur aldrei þurft að
Íloka svo stórum hluta hans svo
lengi.
Ferðamenn á
hljóðhraða
Að ferðast á jörðu niðri á allt
að mörkum hljóðhraða (mach
1) er nokkuö sem flestir myndu
telja að væri óæskileg lífs-
reynsla fyrir ferðamenn. En við
| Höfðaborg í Suður-Afríku er
I farið að reyna að lokka að
j ferðamenn til þess að taka þátt
í þessari lífsreynslu. Ferða-
menn fá tækifæri til að vera
farþegar i sérlega hraðskreið-
;! um farartækjum með sérþjálf-
j uðum bilstjórum. Einn ferða-
Smaður hélt upp á 40 ára afmæl-
ið með þvi að rjúfa hljóðhrað-
I ann og lét vel af ferðinni.
„Spennan felst fyrst og fremst í
hraðanum því hættan er nánast
§ engin,“ lét afmælisbarnið hafa
f eftir sér.