Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.1997, Blaðsíða 9
MIÐVIKUDAGUR 19. FEBRUAR 1997
Vafasamt tilboð
í Bandaríkjunum tíðkast að lög-
sækja fólk og fyrirtæki fyrir nánast
allar sakir. Til eru fjölmargir veit-
ingastaðir í landinu sem bjóða gest-
um sínum að borða og drekka eins
og þeir geta í sig látið fyrir ákveðna
peningaupphæð. Þó gæti svo farið
að þessum stöðum fækki á næst-
unni vegna válegra tíðinda. Nokkr-
ir gesta, sem notfært hafa sér tilboð
sem þessi en hafa drukkið helst til
ótæpilega af bjór, hafa lent í slysum
vegna áfengisneyslunnar eftir að
hafa yfirgefið veitingastaðinn.
Margir hafa gripið til þess snilld-
arráðs að lögsækja veitingastaðinn
fyrir að hafa veitt þeim áfengið og
telja veitingastaðinn bera sökina.
Til eru nokkur dæmi þess að við-
skiptavinimir hafi unnið málið.
Pallhús sf.
auglýsir
Nú er rétti tíminn
að panta hin frábæru
Shadow Cruiser
pallhús því
afgreiðslufrestur er
minnst2 mánuðir.
Hafið samband.
Pallhús sf.
Borgartúni 22
sími 553-7730 &
561-0450
Blómleg þjónusta
Ferðamannaþjónusta í Suð-
ur-Afríku blómstraði á síðasta
ári og komur erlendra ferða-
manna námu 4,7 milljónum.
Það kemur mörgum á óvart,
vegna þess hve ótryggt stjóm-
málaástandið er viða í landinu,
þrátt fyrir að kynþáttaaðskiln-
aðarstefnan sé liðin undir lok.
Nýtt safn
Nýtt og athyglisvert safn hef-
ur verið opnað í París og er vel
þess virði að heimsækja það.
Safnið er ítarlegt tónlistarsafn
og ber heitið „The Musée de la
Musique“. Þaö er opið frá
þriðjudögum til fostudaga í
viku hverri og aðgangur að
safninu kostar um 450 krónur
fyrir ftdlorðinn.
Breytingar
Þeir sem komið hafa til
heimsborgarinnar New York
hafa margir hverjir gaman af
því að fara upp í topp bygging-
anna World’s Trade Center til
að virða fyrir sér Manhattan-
eyju ofan frá. Þeir sem eiga leið
þangað næsta mánuðinn geta
þó sparað sér ómakið því bygg-
ingarnar em lokaðar feröa-
mönnum fram til 18. mars
vegna breytinga. Verið er aö
bæta aðstöðuna fyrir kostnað
sem nemur um 400 milljónum
króna. Stendur meðal annars
til að bjóöa ferðamönnum upp á
6 mínútna þyrluflug yfir Man-
hattan-eyju fyrir hóflegt gjald.
Tónlistarhátíð
t mörgum löndum heims em
haldnar árlegar tónlistarhátíðir
sem jafnan laða að sér tugi ef
ekki hundmð þúsunda gesta.
írar ætla að reyna að koma af
staö tónlistarhátíö í bænum
Galway sem hefst á morgun og
verður haldin með fjölda tónlist-
arviðburða. Tónlistarhátíðin
verður fyrst í Galway en færist
síðan í bæina Cork, Limerick og
loks til Dublin þegar henni lýk-
ur í marsmánuöi. Stefht er að
því að þessi tónlistarhátíð verði
að árlegum viðburöi.
njulegt
skemmd-
Oven
arvei
Veggjakrot hefúr hingað til
verið talið til hálfgerðar
skemmdarstarfsemi en allt er
breytingum háð. íbúar í bæn-
um Venice Beach í Kalifomíu
em æfir vegna þess að
„skemmdarvargur" tók sig til
og málaði vegg - sem þakinn
var veggjakroti - hvítan.
Loka flugvelli
Yfirvöld í Mexíkó hafa ákveð-
ið að loka alþjóðlega flugvellin-
um San Juan de los Llanos við
San Christobal sem annar meg-
inhluta flugs til suðurhluta
landsins. Ástæðan er sú að flug-
völlurinn er byggður á hásléttu
og þoka er svo algengt vanda-
mál á þessum tima árs. Vissara
þykir að loka flugvellinum fyr-
ir allri umferð fram í apríl.
^ETLAR
Þ Ú
A Ð
FER0AST
FRAMANDI
SLÓÐ I R ?
"
- þú þarfnast þess!
ATIAS er alþjóðlegt EUROCARD kreditkort sem veitir þér aðgang að einu stærsta kortaneti
heimsins. ATLA5 er jafnframt ferða- og fríðindakort sem veitir þér margskonar hlunnindi sem
fela í sér aukna þjónustu og umtalsverðan sparnað:
l; ATIAS er alhliða kreditkort sem veitir þér aðgang að allri annarri þjónustu EUROCARD:
Raðgreiðslum til allt að 36 mánaða, greiðsludreifingu til allt að 6 mánaða, úttekt á reiðufé
í hraðbönkum, sjálfvirkum boðgreiðslum o.fl.
Allir ATLAS korthafar fá Einkaklúbbsskírteini sérað kostnaðarlausu sem tryggirþeim afslátt og sérkjör
hjá meira en 250 aðilum innanlands af margskonar vörum og þjónustu.
Víðtæk tryggingarvernd fyrir korthafa, fjölskyldu hans og farangur.
||* Staðgreiðsluafsláttur af pakkaferðum þegar ferð er greidd að minnsta kosti 4-6 vikum fyrir brottför.
[}# 4.000 króna ávísun sem nýta má sem afslátt afeinni pakkaferð íleiguflugi sem farin er á árinu 1997.
| - Aðgangur að kortasíma EUROCARD sem tryggir lægri símgjöld afhótelum erlendis.
P' ATIAS ferðir á sérstökum afsláttarkjörum.
ATIAS korthafar eiga möguleika á að verða dregnir úr bónuspotti og vinna utanlandsferð sem þeir
greiða aðeins 30 krónur fyrir.
| Handhafar ATLAS kreditkortsins njóta sjálfkrafa þess öryggis sem GESA-neyðarþjónustan veitir.
Hún er starfrækt um allan heim, allan sólarhringinn. Þar er veitt margvísleg neyðarþjónusta, s.s.
læknishjálp, peningaaðstoð og ráðgjöf. GESA annast einnig og greiðir fyrir sjúkraflutninga og
heimferð til Islands í neyðartilvikum.
EUROCARD ATI+AS - þú þarfnast þess!
Ármúla 28 - 30 • 108 Reykjavík
Sfml: 568 5499 • Fax: 568 0619