Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.1997, Blaðsíða 19
MIÐVIKUDAGUR 19. FEBRÚAR 1997
Sumarhús í Hollandi:
Verðlaunaður staður
Water Spin og Bat Flyer, eiga trú-
lega eftir að slá í gegn en sjón er
sögu ríkari.
Yngri börnin hafa sérstakt leik-
svæði með ýmsum leiktækjum og
þar er einnig brúðuleikhús.
Skemmtidagskrá með töframanni
er frá 5. júlí til ágústloka og
skrautlegir og skemmtilegir trúð-
ar leika við krakkana. í garðin-
um er Tiki-sundlaugin sem er
frekar ætluð til skemmtunar en
sundiðkunar, ein fullkomnasta
skemmtisundlaug í heimi með
öldulaug og hreint ótrúlegu úr-
vali vatnsrennibrauta og fjöl-
breyttra tækja. í lauginni er oft
þröngt á þingi og mikið um að
vera þegar kraftmiklir krakkar
ærslast og skemmta sér.
I Tiki-lauginni er gufubað,
bæði tyrknesk gufa og finnsk
sauna, nuddpottur, sólarlampar,
hvíldaraðstaða, sturtur og sól-
baðsaðstaða. Greiða þarf 20 hol-
lensk gyllini eða um 750 krónur
fyrir aðgang að gufunni.
í Duinrell eru veitingastaðir af
öllum gerðum, bæði fínni staðir
og skyndibitastaðir, bar, snakkb-
ar, pönnukökuhús og pitseria.
Matvöruverslun staðarins selur
helstu nauðsynjar og þar má með-
al annars kaupa ódýr grill með
kolum fyrir 9,95 gyllini eða um
400 krónur.
Verðið skemmir ekki fyrir;
44.085 krónur á mann miðað við 2
fullorðna og 2 böm i 2 vikur í
Sumarhús i Evrópu njóta vax-
andi vinsælda hjá fjölskyldufólki.
Sumarhúsahverfi eru yfirleitt
byggð með allar þarfir fjölskyld-
unnar i huga og stutt er til at-
hyglisverðra staða i nágrenninu.
Ferðaskrifstofan Úrval-Útsýn
býður nú í annað sinn á íslandi
sumarhúsa- og skemmtigarðinn
Duinrell, allt í einum pakka, ein-
göngu fyrir farþega sína. Aðgang-
ur að tívolítækjum staðarins er
innifalinn í verðinu
Nálægðin við Amsterdam,
Haag og baðströnd auka enn á
gildi staðarins. Lítið mál er að
taka sér frí frá skemmtigarðinum
og fara í menningar- eða verslun-
arrispu í stórborgimar eða verja
góðum degi við sjóinn.
Duinrell hefur unnið til fjölda
verðlauna. Tiki-sundlaugin í
Duinrell hlaut verðlaun árin 1990,
1992 og 1994, meðal annars frá
samtökum vatnsskemmtigarða í
Bandaríkjunum, og eins hefur
Duinrell hlotið verðlaun fyrir fal-
legan gróður og óspillta náttúru.
Hann hefur og fengið viðurkenn-
ingu fyrir öryggi. Öryggisgæsla
er við inngang og lokað eftir
klukkan 22 fyrir alla nema þá
sem gista. Allt svæðið er ramm-
lega girt af.
Tívolí innifalið
Skemmtigarðurinn er opinn
frá 10-22 alla daga en tívolítækin
loka klukkan 17 eða 18 eftir mánuð-
um. í garðinum er fjöldi tækja fyrir
Sumarhúsahverfið Duinrell hefur unnið til fjölda verðlauna.
alla aldurshópa; hringekja, vatnar-
ússibani, bobsleðabraut, klessubát-
ar, hjólabraut, vatnakönguló, dverg-
agolf, keila og fleira. Nýju tækin,
fferðir -
Stærsti þjóðgarðurinn
Á Nova Scotia er stærsti
S þjóðgarður Kanada, Cape
| Breton Highiands. Hann liggur
| meðfram ströndinni og útsýn-
I inu á Cabot Trail- leiðinni inn-
| an þjóðgarðsins geta fair lýst
í með orðum. Mjög vinsælt er að
1 leigja sér hjól til að skoða
í skallaöminn, hvali undan
1 ströndinni og líklegt er að hjóla
' fram á dádýr eða elgi á leiöinni.
f Hjólreiðar og göngur
J Aðstaða fyrir hjólreiöamenn
| eða göngugarpa á Nova Scotia
I er með því besta sem gerist.
| Vegir em breiðir og þægilegir,
1 sérstaklega með tilliti til hjól-
J reiða og það þykir ekki tiltöku-
I mál að gerast puttaferðalangur
| á svæðinu. Hjól er alls staöar
j hægt að fá leigð og íþrótta-
j mennirnir leigja sér að sjálf-
> sögðu fjallahjól og fara leiðir
sem reyna á þrekið.
IKöfun
Hinn hreini og ómengaði sjór
sem umlykur Nova Scotia hefur
gert köfun að vinsælli íþrótt
fyrir ferðamenn. Undan strönd-
um Nova Scotia er mikið um
skipsflök (þau eru talin vera
3.000) og það þykir vera ævin-
týri að skoða þau. Einnig er
j möguleiki að taka sundsprett
f með selum sem algengir era
undan ströndum Nova Scotia.
-ÍS
HomeLink hefur milligöngu um heimilisskipti:
Okeypis gisting
hvert sem farið er
„Ég rak augun í forvitnilega aug-
lýsingu í erlendu blaði fyrir
nokkrum árum um alþjóðleg félaga-
samtök, HomeLink International,
sem snúast um heimilisskipti fé-
laga. Forvitni mín var vakin og ég
kynnti mér málið,“ sagði Hjördís
Sigurðardóttir sem nú er umboðsað-
ili samtakanna á íslandi.
Félagar í samtökunum hafa
áhuga á að koma sér saman um
hentugan
tíma til að
heimsækja
land hver
annars og
skiptast þá
á húsnæði
til þess að
þurfa ekki
að eyða
stórfé í
gistingu í
viðkom-
andi landi.
Umboðsað-
ilar safna
saman
nöfnun þeirra og upplýsingum og
gefa út í alls 5 bókum yfir árið sem
sendar era til félaga. Bækumar
hafa að geyma myndir af viðkom-
andi heimilum og lýsingum á stað-
háttum, aðstöðu og öllu því sem
stendur til boða. Þeir sem vilja geta
líka skipt á bílum, sumarhúsum eða
bátum ef því er að skipta.
„Það eina sem ég hafði ákveðið var
að fara í Euro Disney rétt fyrir utan
Paris með strákinn minn svo ég vildi
vera í París eða nágrenni. Ég skrifaði
6 aðilum og fékk eitt svar frá hjónum
á funmtugsaldri, verkfræðingum sem
sögðust hafa viljað heimsækja ísland
í mörg ár en þar væri aldrei neinn fé-
lagi!“ sagði Hjördis. Verkfræðingam-
ir áttu stúdíóíbúð í 19. hverfi Parísar
og sögðu henni frá því að þau ættu
reyndar líka einbýlishús i Arpajon,
sem er lítill bær suður af París, sem
hún mætti dvelja í líka. „Við skrifuð-
umst á fram að brottfór og töluðum
saman í síma og skiptumst á upplýs-
ingum. Einnig sendum við eitthvað
af bæklingum á milli en skildum þó
meira eftir á heimilum okkar. Við
ákváðum að skiptast á bílum líka og
ég setti minn bíl í kaskó og þefrra
var það einnig. Félagar erlendis hafa
allar sínar eign-
ir tryggðar,"
sagði Hjördís.
Hjónin voru
að sögn Hjördís-
ar sérstaklega
elskuleg því þau
buðust til að
kaupa dagpassa
fýrir þau í Euro
Disney með af-
slætti, höfðu út-
búið handhæg-
ar upplýsinga-
möppur með
upplýsingum
um lækna, lög-
reglu, slökkvilið, leiðbeiningar um
heimilistækin og merkt verslanir og
veitingahús í nágrenninu inn á kort.
Einnig gáfu þau þeim símanúmer
hjá nágrönnum og frændfólki, o.fl.
o.fl. Ættingjar hjónanna óku þeim
svo út á flugvöll þegar að heimfor
kom og tóku um leið á móti hjónun-
um.
Meðlimir í HomeLink eru nú 11
þúsund talsins í 25-30 löndmn víðs
vegar um heiminn. Fyrir 6 þúsund
króna árgjald fá félagar sendar 3
stórar bækur með myndum og upp-
lýsingum af heimilunum og enn-
fremur skráningu á sinni eign ef
þeir vilja. Þeir sem vilja fá frekari
upplýsingar geta haft samband við
Hjördísi í síma 557-8303 á kvöldin
eða sent til hennar símbréf 562-6576.
Þetta hús beið Hjördísar en það getur komið
sér vel að hafa allt til alls þegar maöur dvelur
erlendis.
Heimsferðir kynna glæsilega ferðaáætlun í sumar og bjóða þér
hagstæðustu tilboö sumarsins til Costa del Sol. Undirtektirnar hafa
verið hreint ótrúlegar, í gær bókuðu 458 manns sumarferðina sína í
sólina í sumar og nú bjóðum við 250 sæti með 8.000 kr. afslætti í
valdar brottfarir til Costa del Sol í sumar. Bókaðu þig strax og tryggðu
þér heitasta staðinn í sumar.
lllsÍÍÍllll
Verðdæmi miðað við hjón með 2 börn, 2-11 ára, 21. mai
í 2 vikur á Minerva Jupiter hótelinu - með afmælisafslætti
Miðað við 2 í stúdíóíbúð með
afmælisafslætti, 21. maí.
Austurstrœti 17 • Reykjavfk
Símí 562 4600 • Fax 562 4601
Ótrúlegar undirtektir:
458 sæti seld í gær.
Vikulegt flug í allt sumar.
HEIMSFERÐIR