Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.1997, Side 8
MIÐVIKUDAGUR 19. FEBRÚAR 1997
24 #fldfT
m' ■*3K'
i Bannið framlengt
| Stjómmálaástand hefur batn-
i aö í Líbanon á síðustu árum og
yflrvöld eru áfram um að fá
ferðamenn aftur til landsins til
þess að verða sér úti um tekjur
af þeim. Yfirvöld í Bandaríkj-
unum hafa um nokkurt skeið
| bannað þegnum sínum að ferð-
| ast til Líbanons vegna þess að
| þeir eru taldir vera í hættu þar.
Yfirvöld í Líbanon hafa reynt
að fá þessu banni aflétt en War-
ren Christopher utanríkisráð-
herra framlengdi bannið um
hálft ár í síðustu viku, yfirvöld-
S um í Líbanon til mikils ama.
Friður er fallegur
ísraelar, Jórdanar og Kilest-
ínumenn sömdu ekki einungis
um frið sín á milli og skiptingu
landsvæða nýverið heldur
gerðu þeir og með sér sameigin-
legan samstarfssamning um að
reyna að lokka ferðamenn til
landanna þriggja. Ferðamenn
eru lokkaðir til landsins undir
j kjörorðinu „Friður - það er fal-
leg sjón“. í þessari viku birtast
sameiginlegar auglýsingar
ferðamálayfirvalda landanna í
>: stórblöðunum The New York
Times, Los Angeles Times og
Washington Post.
írsk krá
Kína er óðum aö opnast fyrir
\ vestrænum áhrifum og í síð-
ustu viku var opnuð írsk krá í
kínversku borginni Shanghai
sem selur meðal annars hinn
j fræga írska Guinnessmjöð. íbú-
ar i borginni hafa tekið honum
j vel og er alltaf fullt út úr dyr-
um. Sumum þykir það þó
hljóma sérkennilega aö heyra
Kinverja kyrja írska alþýðu-
| söngva á milli þess að þeir
svolgra í sig Guinnessinn.
Gegn klámþjónustu
Brasiliska ríkisstjórnin hefur
sett ný lög til að reyna að koma
jj í veg fyrir kynferðislega mis-
notkun á börnum. Yfirvöld hóta
því að ef þeir ná í ferðamenn
sem hafa keypt sér kynferðis-
lega þjónustu bama muni þeir
J verða að greiða þungar sektir
og sæta fangelsisvist. Eftir að
| yfirvöld í Asíulöndum skáru
upp herör gegn barnavændi
j hefur tilfellum mjög tjölgað í
j löndum S-Ameríku. Sérstaklega
| er talað um að koinurn Evrópu-
búa hafi fjölgað.
Kína í 5. sæti
Mikil aukning hefur orðið á
j ferðamannastraumnum til
j Kína á síðustu árum. Á síðasta
j ári komst Kina í fimmta sætið í
s vinsældum en 26 milljónir
ferðamanna komu í heimsókn
\ tii landsins 1996. Tekjur af þeim
j námu yfir 700 milljörðum
j króna. Bretland var áður í
j fimmta sæti í vinsældum en
j datt niður í það sjötta, þrátt fyr-
ir að ferðamönnum hefði fjölg-
að. Löndin fyrir ofan í vinsæld-
I um eru Ítalía, Spánn, Bandarik-
j in og Frakkland sem er vin-
I sælasta ferðamannalandiö.
Græða mest
Frakkland er það land sem
j fær fiesta ferðamenn í heim-
sókn á ári hverju en landsmenn
j eru samt sem áður ekki sú þjóð
3 sem hefur hæstu tekjumar af
ferðamönnum. Frakkar era að-
eins í þriðja sæti. Bandaríkin
eiga þann heiður að fá mestu
tekjumar. Ferðamenn til
Bandaríkjanna voru 44,8 millj-
I ónir á síðasta ári en tekjumar
yfir 4.000 milljarðar króna.
j Tekjur Frakka voru hins vegar
ekki nema rúmlega 2.100 millj-
> arðar. Spánverjar græddu næst-
mest á sínum ferðamönnum en
■ voru í fjórða sæti heims yfir
'í fjölda þeirra.
Nova Scotia og Halifax:
Heitasti staður Kanada
tónleikar og svo mætti lengi
telja. í Nova Scotia era á hverju
sumri um 600 listviðburðir.
Sagt er að hvergi annars staðar
í Kanada sé hægt að verða vitni
að eins fjölbreyttri tónlist og
sjá jafnmarga hæfileikamenn
eins og í Nova Scotia. Þar er
þjóðleg tónlist í hávegum höfð,
skosk þjóðlagatónlist, frönsk
sveitatónlist og dans, gospeltón-
list, keltnesk rokktónlist og
tónlist og dansar Mi’kmaq.-
indíánanna, svo aðeins fátt eitt
sé nefnt.
Náttúrufegurð á Nova Scotia
er með eindæmum enda eru
íbúarnir hreyknir af því að lít-
ið ber á mengun þrátt fyrir ná-
lægðina við stórborgir Banda-
ríkjanna á austurströndinni.
Með fram suðurströnd Nova
Scotia eru margir gamlir og
snyrtilegir fiskibæir sem eiga
sér aldalanga sögu. Fólkið þyk-
ir sérlega vinsamlegt og er
þekkt fyrir að taka öfium ferða-
mönnum opnum örmum. Það á
sér eðlilegar skýringar því íbú-
amir búa nánast aUir við góð-
an kost og viija hvergi annars
staðar eiga heimUi. Auðvelt er
að komast í kynni við inn-
fædda, ekki ólíkt því sem ís-
lendingar kannast við frá ír-
landi og Skotlandi. Hvar ann-
ars staðar en á Nova Scotia
myndi þjónustustúlkan þín
ávarpa þig með heitinu „dear“?
Siglingar
Það þarf ekki að láta sér leið-
ast í Nova Scotia. Fuglalíf er
með eindæmum fjölbreytt og
auðvelt að komast í skoðunar-
ferðir til að sjá skaUaöminn
ameriska eða fara í siglingu um
nágrennið frá Halifax tfi að
virða fyrir sér fjölbreytt sjó-
fuglalíf.
Þeir sem vilja prófa önnur
sjávarævintýri geta leigt sér
kajak víða með fram austur-
Veitingastaöir í Halifax eru þekktast-
ir fyrir stórkostlega humarrétti og
reyktan iax úr Atlantshafinu.
strönd Nova Scotia. Kunnáttuleysi
er ekkert vandamál, leiðbeinendur
eru á hverju strái. Einnig er upplagt
að kynnast því hvemig indíánar
ferðuðust á vötnunum. í fjölmörg-
um vötnum eða á lygnum ám er
hægt að leigja sér kanó og róa á vit
ævintýranna. Ekki þarf að hafa
áhyggjur af því að vötnin vanti því
þau eru um 5.400 talsins á Nova
Scotia. Annars konar siglingar bjóð-
ast einnig ferðamönnum, eins og
bátasiglingar um flúðir („riverraft-
ing“).
Ferðir til Halifax bjóðast á sér-
lega hagstæöu verði hjá Flugleiðum.
Flug og gisting í 4 daga er á bilinu
38.500- 43.300 (miðað við tvo í her-
bergi) eftir því hvaða hótel er valið
en hægt er að velja um 4 hótel í
borginni. Flug og gisting í 7 daga er
á verðbilinu 45.700-54.000 krónur.
-ÍS
Kanadíska borgin Halifax á
Atlantshafsströnd Kanada er
einn af nýjum áfangastöðum
Flugleiða. Flugleiðir verða með
reglubundið síðdegisflug þang-
að tvisvar í viku, á mánudög-
um og fimmtudögum, mánuð-
ina apríl til september. Halifax
er á Nova Scotia-skaganum á
einum syðsta hluta Kanada.
Borgin er á sömu breidd-
argráðu og Miðjarðarhafsborg-
ir Frakklands, enda er Halifax
hlýjasti hluti Kanada. Meðal-
hiti að sumarlagi á Nova Scotia
er á bilinu 16-24 gráður en fell-
ur niður fyrir frostmark köld-
ustu vetrarmánuðina. í Halifax
er meðalhiti júnímánaðar 21,8
gráður. Nova Scotia-skaginn er
tæplega 53.000 ferkílómetra
svæði, með 7.400 km langa
strandlengju, og ávallt er stutt
til sjávar, aldrei meira en 56
km.
Vegna þess að sjórinn er
alltaf nálægur byggist atvinna
fólksins í Nova Scotia að miklu
leyti á hafinu og afurðum þess.
Það kemur því fáum á óvart að
í Halifax era margir frábærir
sjávarréttastaðir. Borgarbúar
era þekktastir fyrir stórkost-
lega humarrétti og reyktan lax
úr Atlantshafinu.
Margir íbúar í Halifax eiga rætur sínar aö rekja til Skotlands.
Evrópskir innflytj-
endur
Nova Scotia er ekkert sérlega
þéttbýlt svæði - þar búa sam-
kvæmt nýjustu tölum 923.000
manns. íbúar í Halifax og nær-
liggjandi svæðum era um 340
þúsund. Þeir hafa flestir á sér
evrópskt yfirbragð, enda voru
fyrstu innflytjendumir til Nova
Scotia að mestu leyti frá
Englandi, Skotlandi, Þýska-
landi og Hollandi. Þegar Evr- j Nova Scotia eru á hverju sumri haldnir um 600 listviöburöir. Sagt er aö hvergi annars
ópubúar komu þangað árið staöar í Kanada sé hægt aö veröa vitni aö eins fjölbreyttri tónlist og sjá jafnmarga hæfi-
1497 vora fyrir um 25.000 inn- leikamenn eins og í Nova Scotia.
fæddir indíánar sem kallaðir
voru Mi’kmaq en þeir hafa
margir blandast Evrópubúum. Nova
Scotia er með fyrstu svæðum Norð-
ur-Ameríku sem byggðust upp af
landnemum. Frakkar settust þar að
fyrstir Evrópuþjóða árið 1604 en
landsvæðið komst undir stjóm Eng-
lendinga árið 1713.
Halifax er stundum sögð vera sú
borg í N-Ameríku þar sem era mest
bresk áhrif. Hún var stofnuð af
Bretum árið 1749 í þeim tilgangi að
tryggja yfirráð breska heimsveldis-
ins á þessu svæði. Halifax er mikil
menningarborg: söfn, leikhús, lista-
gallerí og háskólar setja svip sinn á
þjóðfélagið. Sagt er að meðalaldur
íbúanna í borginni sé með því
lægsta sem gerist. Það á sér eðlileg-
ar skýringar því fimm háskólar
borgarinnar og tveir framhaldsskól-
ar hýsa 25.000 nemendur á ári
hverju. Næturlífið einkennist mjög
af þessum mikla fjölda ungs fólks,
enda er þar oft líflegt á kvöldin.
Listamiðstöð
Miðborgin í Halifax er sérlega
snyrtileg, með fallegum háreistum
byggingum og mikið af grænum
svæðum. Það er gaman að vera þar
að sumarlagi en þá er mikið um list-
viðburði: djasshátíðir, gamanleikir,