Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.1997, Page 21

Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.1997, Page 21
JLí’^7" MIÐVIKUDAGUR 19. FEBRÚAR 1997 Kyrrahafsströnd Mexíkó: Vilja fá Evrópubúa Ferðaskrifstofur á íslandi hafa hingað til ekki boðið upp á dvöl á Kyrrahafsströndum Ameríku. Úr- val-Útsýn ætar að bæta úr því og bjóða nú ferðir á sögufrægan stað, Puerta Vallarta í Mexíkó. Ferðin verður með nokkuð óvenjulegu sniði, því seldar eru tvær vikur í einum pakka með öllu saman, flug, hótelgistingu og allan mat. Verðið er aðeins 140.000 krónur á mann. Ingóifur Margeirsson rithöfundur er einn fárra íslendinga sem þekkir þennan stað. „Ég kom til Puerta Vallarta (borið fram Vajarta) á Kyrrahafsströnd Mexíkó fyrir tveimur árum síðan og við vorum þar nokkrir blaðamenn á vegum ferðamálaráðs Mexíkó. Þessi staður varð frægur fyrir þremur áratugum af því gerð var þama kvikmyndin „The Night of The Iguana“ með Ric- hard Burton (1964). Það var á þess- um stað sem ástarævintýri Elisa- beth Taylor og Richards Burtons hófst,“ sagði Ingólfur. Hús stjörnunnar „Vegna myndarinnar varð stað- urinn heimsnafn, enda var hann stöðugt í heimspressunni á þeim tíma sem myndatökur stóðu yfir. Elisabeth Taylor á meira að segja hús þama sem við skoðuðum á ferð okkar. Þrátt fyrir frægðina, þá er þetta enn þá frekar lítill og hreinleg- ur staður, fallegar strendur og geysileg náttúrufegurð. Þarna eru virkilega góð hótel enda búið að byggja mikið af stór- um og nýjum hótelum á síðustu árum. Bærinn liggur eiginlega bara eftir ströndinni og fer ekkert inn í landið. Hann byggir algerlega á ferðamannaþjónustu og þama er mengun ekki sjáanleg. Þarna er heitt á sumrin en staðurinn er fyrir opnu hafi og því alltaf kæling frá því. Fram að þessu hafa aðallega ver- ið þarna ferðamenn frá Kanada og Bandaríkjunum, um 9 af hverjum 10 sem koma þangað, en Mexíkóbúar vilja breyta því mynstri og fá fleiri Evrópubúa. Veitingastaðir eru þama fjöl- margir, sérlega ódýrir og góðir, enda er mexíkóskur matur algert æði. Morgunmaturinn er alveg sér- Það væri ekki amalegt að fó eina mexíkóska hljómsveit eins og þessa á sundlaugarbarminn hjá sér. Nýr sumarbæklingur Samvinnuferða-Landsýnar fyrir sumarið 1997: Mikil uppbygging á sér stað á Puerto Vallarta og hótelin eru flestöll fyrsta flokks. stakur, ótrúlega fjölbreytt ávaxta- hlaðborð og margir ávextirnir era algerlega framandi." Hlægilegt verðlag „Mexíkó er almennt séð mjög ódýrt land, ekki bara i mat, heldur einnig í öllum varningi. Miðbær Puerto Vallarta er eitt stórt verslun- arsvæði, bæði stórar verslanir og mikið af litlum. Þar er gegnumgang- andi miklu lægra verð en nokkurs staðar finnst í Evrópu. Mexíkóar eru með mikið af skartgripabúðum, silfri og gulli á sérlega lágu verði. Annað er á ótrúlegu verði, en það era bílaleigubílar en þeir fást á miklu lægra verði en í Evrópu. Þarna er hægt að fá ágæta bíla, til dæmis opna jeppa sem eru tilvaldir í ferðalög á þessum slóðum og kosta nánast ekki neitt. Hægt er að fara með bílum eða bátum eftir strönd- inni og eftir aðeins 15 mínútur er komið í algerlega ósnert land. Það má segja að eftir að komið er þangað, léttist pyngjan lítið því verðið þama er miklu lægra en menn eiga að venjast,“ sagði Ingólf- ur. -ÍS Nýr áfangastaður á Spáni Samvinnuferðir-Landsýn býður sumarleyfisdvöl á nýjum dvalarstað á Spáni, Albir, skammt ffá lista- mannabænum Altea og Benidorm, sem er einn vinsælasti sólarstaður í Evrópu. í Albir er dvalið á íbúða- hótelinu Albir Garden. Gullfallegt umhverfi og einstök veðurblíða skapa ævintýralega um- gjörð um skemmtilegan gististað og fjölskrúðugt mannlíf í fallegum bæ. Her ríkir friðsæld jafnframt því að boðið er upp á flest það sem kröfu- harðir sólarsinnar vilja að ósvikin sumarparadís hafi til að bera. Sérstaða Albir felst meðal annars í nálægð bæjarins við listamanna- þorpið Altea og Benidorm. Hér er hægt að njóta kyrrðar og friðar í náttúrulegu umhverfi, bregða á leik, auðga andann eða skella sér í sparigallann og halda á vit fjöl- breytts skemmtanalífs. Glæsilegar aðstæður Albir Garden er raðhúsabyggð umvafin appelsínulundum og möndlutrjám. Húsin liggja dreift um svæðið og tengjast með fallegum göngustígum gegnum blómskrúð og suðrænan gróður. Aðstaðan til að njóta veðurblíðunnar er mjög góð. Má þar nefna sundlaugar, bama- laug, sundlaugarbar, grillbar, tenn- isvöll og sérlega góða leikaðstöðu fyrir böm. Þá vekur ferðaskrifstofan athygli á því að nú er á ný í boði dvöl í sum- arhúsunum í Kempervennen í Holl- andi, en þar hafa þúsundir ís- lenskra fjölskyldna dvalið sér til mikillar ánægju á undanfornum fimmtán árum. Sumarhúsin í Longleat á Englandi hafa vakið mikla athygli og verðskuldaða. Vinsælir dvalar- staðir eins og Cala d’Or og Palma Nova á Maflorka verða í boði og frá- bærir gististaðir. Samstarf Samstarf Samvinnuferða- Land- sýnar og Atlanta-flugfélagsins hefur opnað íslenskum ferðalöngum margar spennandi leiðir svo sem ferðir til nokkurra stórborga Evr- ópu á ótrúlega hagstæðu verði. All- ar eiga þessar borgir sameiginlegt að vera kjörinn upphafsstaður fyrir þá sem vilja taka bíl á leigu, á vit gróðursældar, fegurðar og ævin- týra. Hægt er að fljúga utan til einn- ar borgarinnar og heim aftur ffá annarri sem eykur enn á fjölbreytn- ina. Allt sólarlandaflug Samvinnu- ferða- Landsýnar er í flugi með breið- þotu frá Atlanta-flugfélaginu, en þessi tvö fyrirtæki hafa átt mjög gott samstarf undanfarin ár og bryddað upp á nýjungum eins og flugi til Kúbu, San Fransisco, Bahama-eyja og Dóminíska lýðveldisins, fyrir utan flug til Dublinar að haustlagi í sívin- sælar Dublinarferðir. Benidorm /^zz&Æzz- cs&rf&rt? |tI 26/3-9/4 - 2 vikur Verð miðað við 4 í íbúð , . , AO ~7A (2 börn og 2 fullorðnir) OA & * 2 í íbúð frá Ær, 52.260 st#r- rjóðiiM eítmíg gístíngu á jCes T>uues Suíts vtð strondina á mjög hagstœðu verði i Páskaferðíua Kynntu þér verðið lnnifalið:Flug, gisting, flutningur til og fró flugvelli erlendis - íslensk fararstjórn og allirskattar 9. apríl — 1 4.maí — ' frá kr 40.485 st#n Verð miðað við 4 í íbúð (2 börn og 2 fullorðnir) 2 í tbúð fráfcr 58.265 stgn lnnifalið:Flug, gisting, flutningur til og fró flugvelli erlendis • íslensk fararstjórn og allir skattar Á BENIDORM eru allir gististaðir Ferðaskrifstofu Reykjavíkur staðsettir miðsvæðis eða við ströndina. bæklingurmn er kominn Láttu sjá þig og fáðu EURO ATLAS VISA Pantið í síma 552 3200 FERÐASKRIFSTOFA “ REYKJAVÍKUR Aðalstræti 16 - sími 552-3200 Gullfallegt umhverfi og einstök veöurblíöa skapa ævintýralega umgjörö um skemmtilegan gististaö og fjölskrúðugt mannlíf í Albir, nýjum dvalarstað Samvinnuferöa-Landsýnar á Spáni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.