Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.1997, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.1997, Blaðsíða 2
2 FÖSTUDAGUR 21. FEBRÚAR 1997 Fréttir Tólf ára dreng bjargað frá að hrapa átta metra ofan í gil: Hann hékk á fingur- gómunum á brúninni - segir bjargvætturinn Gunnar M. Guðmundsson - var svolítið mikið hræddur - segir drengurinn DV, Akureyri: „Þaö er óneitanlega gaman að geta komið á réttu augnabliki og hjálpað,“ segir Gunnar M. Guð- mundsson, framkvæmdastjóri Sér- leyfísbíla Akureyrar hf., en Gunnar bjargaði á mánudaginn 12 ára göml- um dreng, Sigmari Karli Ágústs- syni, frá því að falla í Glerá skammt frá skólanum. Þar rennur áin í gili sem er 7-8 metra djúpt. Gunnar segir að dreng- ir úr Oddeyrarskóla, sem hann hafði keyrt í tölvufræðslu í Glerár- skóla um morguninn, hafi verið að leika sér nálægt ánni þegar einn þeirra hrasaði. Hann hafði runnið fram af gilbrúninni en þó náð taki á brúninni með fingurgómunum og hékk þar þangað til hjálp barst. „Þegar ég sótti strákana og þeir komu inn í bílinn kom í ljós að einn þeirra vantaði. Ég sagði þeim að fara út að leita að honum og einn strákanna hljóp þá niður að ánni. Hann veifaði svo til mín að koma og þá sá ég hvað um var að vera. Ég fikraði mig varlega að piltinum, svo ekki færi fyrir mér eins og honum, og tókst síðan að kippa honum upp. Þetta gekk mjög vel og pilturinn bar sig bara nokkuð vel þótt hann skylfi svolítið en ætli mesta sjokkið hafi ekki komið seinna,“ segir Gunnar. Sigmar Karl segist hafa ætlað að kíkja ofan í gilið þegar óhappið varð og hann rann af stað fram af hrún- inni. „Ég rann á klaka og var næstum farinn niður þegar ég náði að gripa í klettinn. Strákamir voru famir og heyrðu ekki þegar ég kallaði á hjálp. En svo komu þeir og bílstjór- inn bjargaði mér. Ég veit ekki hvað ég hékk lengi þama en ég var dálít- ið mikið hræddur," segir Sigmar Karl. -gk Norsk-íslenska síldin: Frjálsar veið- ar þvert á hugmynd Halldórs „Við í sjávarútvegsnefnd bið- um bara eftir því að ráðherrar ríkisstjómarinnar og/eða meiri- hluti nefndarinnar geri það upp við sig hvort þar séu óskir um að taka upp lögin um úthafsveiðar. Þar til þessir aðilar hafa tekið ákvörðun gerist ekkert í málinu í sjávarútvegsnefnd," sagði Stein- grímur J. Sigfússon, formaöur sjávarútvegsnefndar Alþingis, í samtali við DV. Halldór Ásgrímsson var mjög andvígur þeirri ákvörðun Þor- steins Pálssonar sjávarútvegsráð- herra að gefa veiðamar úr norsk- íslenska síldarstofninum frjálsar i vor. Hann sagði opinberlega að taka þyrfti lögin um úthafsveiðar til endurskoðunar vegna þess að þau heimiluðu ekki kvóta á síld- ina þar sem engin veiðireynsla væri fyrir hendi. Menn hafa undrast mjög hin hörðu viðbrögð Halldórs Ásgrims- sonar í þessu máli. Þeir sem hins vegar muna enn ræðu hans á flokksþingi Framsóknarflokksins síðstliðið haust eru ekki hissa. í þeirri ræðu opnaði Haildór í fyrsta sinn á það að hann og flokk- urinn gætu verið til viðtals um gjald fyrir kvóta. í ræðunni nefndi Halldór norsk-íslenska síldar- stofninn sérstaklega. Hann sagði hann dæmi um veiðistofn þar sem ekki væri veiðireynsla fyrir hendi og að komið gæti til greina að leigja einhvem hluta þess kvóta sem íslendingar fengu af heildar- kvótanum í sinn hlut. Því er haldið fram að Þorsteini Pálssyni hafi mislíkað þessi hug- mynd HaUdórs mjög mikið, alveg eins og LÍÚ-forystunni. Þorsteinn sé því í raun að sýna það núna í verki. Alla vega er fúllyrt að það hafi ekki áður verið kaldara á milli þeirra tveggja en nú. .S.dór 100 íslenskir reiðhestar voru í gær sendir vestur um haf til Bandaríkjanna. Útflytjandinn, Valur Blomsterberg, segir nægan markaö vera fyrir íslenska hesta þar og þeir njóti vaxandi vinsæida. Stór markaður fyrir íslenska hestinn í Ameríku: Hundrað tamdir gæöing- ar vestur um haf í gær - þetta er bara byrjunin, segir Valur Blomsterberg „Þetta era hundrað tamdir, þægir og fallegir reiðhestar sem fara bæði til Kanada og Kalifomíu. Geti mað- ur orðið við þessum óskum manna fyrir vestan tel ég að markaðurinn sé ótrúlega stór og möguleikamir miklir. Þetta er bara byrjunin hjá okkur. Ameríkanamir gera miklar kröfur en geti maður uppfyllt þær er borgað vel fyrir vöruna,“ sagði Valur Blomsterberg, sem í gær var að senda eitt hundrað hross með flugvél vestur um haf. Hann sagði að í hópnum væra nokkrar hryssur og stóðhestar líka en stærsti hlutinn væri tamdir og J rödd FOLKSINS 904 1600 Á að birta myndir af dæmdum mönnum? þægilegir reiðhestar. „Það er mikill áhugi á íslenska hestinum fyrir vestan en þessu svæði hefur litið verið sinnt. Þó era um 300 íslenskir hestar á Los Angel- es-svæðinu. Þaö sem við erum að gera er að efia þennan áhuga og verða við óskum fólks um að fá ís- lenska hesta," segir Valur. Hann segist hafa verið búsettur fyrir vestan og það hafi lengi blund- að í sér að gera þetta vegna þess að hann sagöist ailtaf hafa fúndið fyrir áhuga hjá fólki á íslenska hestinum. Hann segir að það séu fyrst og fremst sportreiðmenn sem kaupa ís- lensku hestana. Það era til sérstök íbúðahverfi í Kalifomíu fyrir fólk sem er með hesta. Fólkið er þá með hestana heima við hús, eiginlega í bakgarðinum, þannig að þeir verða um leið eins konar heimilisdýr. Eins eiga margir litla búgarða þar sem þeir era með hestana sína. Valur segir kröfumar miklar. Hestamir verða að vera fulltamdir, alþægir og hágengir töltarar. Töltið segir'hann vera gagn númer eitt. Hann vildi ekki gefa upp verð en sagði að borgað væri vel fyrir góða vöra. Verðið á islensku hestunum vestra væri jafnvel betra en í Evr- ópu. „Það þykir ef til viil skrýtið en skjótt er uppáhaldslitur Bandaríkja- manna. Það er erfitt að verða við þeim óskum því það er stutt síðan öllum skjóttum hrossum var slátrað á íslandi. Eins era mósóttir og móálóttir og glófextir hestar eftir- sóttir,“ segir Valur Blomsterberg. -S.dór DV, Ólafsfirði: Pallbíll út af við Sauðanes niður brekkuna við Sauðanes þegar hann ók skyndilega inn i svolítinn skafl sem hafði myndast í hægri vegarkanti en ökumaður sá ekki. Skipti engu togum að bíllinn snar- snerist, fór út af og lenti á hvolfi hægra megin við veg en á vinstri hönd er aflíðandi halli niður í sjó. -HJ Pallbíll fór út af veginum við Sauðanes, mitt á milli Ólafsfjarðar og Dalvíkur, skömmu eftir hádegið í gær. Ökumaður, sem var einn á ferð á leið frá Ólafsfirði til Akureyrar, slapp ótrúlega vel en bíllinn er tals- vert skemmdur. Hann var að aka Hvalveiðimálið: Gengur hægt vegna viðkvæmni Eins og skýrt var frá í DV í síðustu viku mun nefndin sem skipuð var til að fjalla um hugs- axdegar hvalveiðar hér við land leggja til að veiðar verði hafnar aftur sem fyrst. Þegar DV upp- lýsti þetta má segja að allt hafi farið á hvolf sökum þess hve málið er viðkvæmt. Nú er unnið að því að semja skýrslu nefndarinnar til ríkis- stjómarinnar. Það gengur afar hægt, samkvæmt heimildum DV, vegna þess að embættis- mennimir í nefndinni era svo hræddir og viðkvæmir að þeir þora ekki annað en að bera hverja setningu undir yffrmenn sína. Ekki er vitað hvenær skýrslu- gerðinni lýkur. -S.dór Stuttar fréttir Gunnlaugur ósáttur Gunnlaugur Sigmundsson, for- maður nefndar sem samdi frum- varp um einkavæðingu ríkisbank- anna, segir að krukkað hafi verið í það og það sem forsætisráðherra sagði um málið sé annaö en nefndin lagði tiL Alþýðublaðið segir frá. Hafísinn á förum Hafisinn hefur fjarlægst landið og er nú rúmlega 50 sjómílur frá landi þar sem hann er næstur. Ferskur fjárbóndi rekinn Formaður félagsins - Ferskir fjárbændur, sem stofnað var í fyrra, hefur verið rekinn úr Kaup- félagi V-Húnvetninga fyrir að standa að sjálfstæöum innkaup- um aðfanga og sölu afurða. RÚV sagði frá LÍÚ vill Fiskveiðasjóð Kristján Ragnarsson, formaður LÍÚ, viÚ síður að Fiskveiðasjóður gangi inn í nýjan framkvæmda- banka atvinnulífsins. Hami telur hann í raun eign sjávarútvegsins. RÚV sagði frá. Sátt um loönuveiðar Grænlendingar og íslendingar hafa samið um loðnuveiðar og mega hvorir um sig veiða 8.000 lestir úr loðnukvóta hvorir ann- ars sem úthlutað verður í júlí í sumar. Tamningamaður rekinn Hinrik Bragasyni hefur verið vikið úr félagi tamningamanna í kjölfar Hæstaréttardóms í Gýmis- málinu. Gýmir fótbrotnaði í keppni eftir að hafa verið deyfður í kíölfar meiðsla. Járnblendið í uppnámi Líkur á samkomulagi við El- kem um stækkim jámblendiverk- smiðjunnar fara minnkandi. Fundur í Kaupmannahöfn varð árangurslaus og komu samninga- menn heim í gær. Tæpar tvær vikur eru þar til frestur Lands- virkjunar vegna raforku í stærri verksmiðju rennur út eftir tvær vikur. Stöð 2 sagði frá. Vafi um sjómanna- afslátt Ríkisstjórnin vinnur að út- færslu lækkunar skattprósentu. Stöð 2 segir að hugmyndir séu um að afnema sjómannaafslátt í því sambandi. Nýrskelbátur álOOmillj. Vestffrskur skelfiskur, sem er í eigu Einars Odds, hefúr fest sér 100 milljón króna bát til skelfiskveiða í stað Æsu. Byggðastofnun ætlar að lána 40 milljónir kr. til kaupanna og beðið um 60 milljónir hjá Fisk- veiðasjóði. Stöð 2 sagði frá. -SÁ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.