Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.1997, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.1997, Blaðsíða 13
FÖSTUDAGUR 21. FEBRÚAR 1997 13 Óvera Þær stundir koma að íslending- ur í Danmörku hlýtur að spyrja sig hvort hann sé skáldskapur. ímyndun. ísland er ekki til i Dan- mörku. Ég held ég hafi varla sleppt úr eintaki af Politiken síð- ustu tvo mánuði og fullyrði að ís- land hefur ekki svo mikið sem borið á góma, utan hvað stöku sinnum bregður fyrir smáauglýs- ingu frá Flugleiðum þar sem ferð- ir til „Ævintýraeyjunnar" eru fal- boðnar. Danmörk sífellt baksviöiö Sama gegnir um útvarp og sjón- varp, ekki vottur af íslandi. Og það sem meira er: það er hægt að fletta heilu sögubókunum án þess að ísland komi þar fyrir. í Dan- merkursögu Eriks Kjersgaards fær ísland eina línu við sambands- slitin 1918 og ekki einusinni nefnt á nafn þegar fjallað er um tímabil- ið 1940-1950. í Danmerkursögu Palle Laurings er ______ sagt frá sjálfstæði ís- lands í einni og hálfri línu (til sam- anburðar fær Nor- egur eina og hálfa síðu i sitt uppgjör). Þetta þykir ís- lendingi þeim mun undarlegra sem það er óhugsandi að fjalla um íslenska sögu án þess að Dan- mörk sé þar bak- sviðið. Nýlendukúg- unin, einokunar- verslunin, blóð- mylking Dana á ís- lenskri þjóð og gott ef ekki Kaupmanna- höfn reist fyrir gróð- ann af íslandsversl- uninni ... Þegar þessar og svipaðar sakir eru bom- ar upp á Dani fer þeim eins og pró- fessomum sem var vanur að slá úr pípunni sinni í gluggakistu niðri í háskóla. Einusinni vildi svo illa til að glóðin sveif alla leið niður á stétt Borgin sem kvikar. - Frá Kaupmannahöfn: Hér er stiginn ... þarna brúin ... þetta er kirkjan ... Kjallarinn Pétur Gunnarsson rithöfundur þar sem hún lenti á hausnum á ungum syni kollega. Sá kom rjúkandi inn til pró- fessorsins og spurði með þjósti: „Gerirðu þér grein fyrir því að þú varst næstum því búinn að stórslasa son minn?“ Og prófessor- inn svaraði: „Ég vissi ekki einusinni að þér værað giftur!" Á íslendingaslóð- um Danir vita ekki einusinni að við vor- um hjón! Hvað er hér á _________ ferðinni? Stalinísk hreinsun eða erflður hjónaskilnaður þar sem makinn hefur verið klipptur út úr fjölskyldualbúmi og fjarlægð öll verksummerki? Nú ber þess að geta að Danir eru einstaklega óforvitnir um aðr- ar þjóðir. Þeim er tamast að hugsa um sitt, ekki ósvipað taóistunum í Bókinni um veginn sem hirtu ekki um hundgá og hanagal í næstu sveit. Öfugt við íslendinga sem virðast oft á tíðum vera meira heima í útlöndum en heima hjá sér. Og hefur kannski alla tíð ver- ið raunin, samanber að íslending- ar skuli hafa skrifað sögu Norður- „Danir vita ekki einusinni að við vorum hjón! Hvað er hér á ferð■ inni? Stalinísk hreinsun eða erf- iður hjónaskilnaður landa í ótal Hryggjarstykkjum og Heimskringlum á miðöldum. En aftur að Dönum. Þessi ís- lenska gloppa er holl áminning um hve sagan getur verið huglæg, það sem einn tekur fyrir veruleika er öðrum bóla. Hjóm. Hér gefst færi á að setja sig í spor þeirra sem hafa orðið fyrir barðinu á óverunni (konur, svertingjar, minnihlutahópar). En ná líka fram hefndum í klassísku verki Björns Th.: Á íslendingaslóðum í Kaup- mannahöfn. Þar er taflinu snúið við: borgin sem kvikar með gný sinn og læti verður eins og hver önnur hilling hjá hinni sem býr á bak við með ör- lög og afdrif allra íslendinganna. Hér er stiginn ... þama brúin ... þetta er kirkjan ... Og þegar við göngum fram hjá Friðriksspítala sem nú hefur ver- ið breytt í safn og lesum á skildi að hér hafi Sören Kirkegaard dáið, snúum við ósjálfrátt plötunni við og sjá: hér var það sem ástmögur þjóðarinnar hvarf í fjaðrabliki. Pétur Gunnarsson Atvinnuréttur til sölu Margt hefur verið sagt í umræð- um um kvótakerfið og kvótabrask- ið á fyrstu vikum ársins 1997 sem vert er að hugleiða betur. Einkum virðist vera þörf á því að skoða og rökræða margt af því sem sjávar- útvegsráðherra hefur látið hafa eftir sér eða sagt í beinni útsend- ingu við þjóðina. Jafnframt er rétt að skoða það sem framkvæmt hef- ur verið af stjómvöldum og tO þess fallið að auka enn meir á kvótabraskið. Skoöum fyrst stjórnarat- hafnir Ráðherra gaf út reglugerð um veiðar skipa á Flæmingjagrunni. Þeir aflakvótar sem þar voru ákveðnir voru einnig gerðir fram- seljanlegir með sömu reglugerð. Ráðherra lýsti því yfir í DV 30. janúar sl. að þessi kvótasetning væri gerð að ósk útvegsmanna, enda voru það þeir sem fengu rétt- inn til þess að selja kvótann og gátu hagnast um tugi milljóna með því að fá nú að selja veiðirétt sem myndaður var með vinnu og sókn íslenskra sjómanna á fjarlæg mið. Þau sjónarmið sjómanna að kvótinn og veiðirétturinn eigi ekki að vera sér söluvara era einskis virði í augum sjávarút- vegsráðherra, með þau er ekkert gert en um leið og LÍÚ vill auka kvótabraskið er strax orðið við þeirra óskum. Það er hins vegar afar athyglisvert að það skuli fúll- yrt af ráðherranum að kvótakerfi sé miklu hag- kvæmara en veiðidagakerfi á Flæmingja- granni. Þessi fullyrðing er ekki rökstudd og reyndar segir ráðherrann að hann þurfi að fá upplýsingar frá NAFO um hvemig veiði- dagar á Flæmingjagrunni séu tald- ir. Hvemig getur sjávarútvegsráð- herra gefið út reglugerð um fyrir- komulag veiða á Flæmingjagranni og haldið því fram að það sé hag- kvæmt fyrir íslensku þjóðina að úthluta kvóta og leyfa frjálst fram- sal ef hann veit ekki hvað sókn- ardagar gátu gefið í afla væru þeir skilgreindir eins og veiðidagar samanber DV-frétt 30. janúar 1997? Það kann að vera að ráðherranum finnist varasamt að styðjast við réttlætið og að réttlætið hafi stundum leitt menn á villigötur, eins og hann sagði í beinni útsend- ingu í Ríkissjónvarpinu sunnu- daginn 26. janúar en varla verður efast um að þjóðin vill réttlætið frekar en kvótabrask- ið. „Hiö fullkomna kvótakerfi" Nú er greinilega farin af stað fjöl- miðla- og fundaher- ferð þeirra aðila sem vilja festa kvótakerf- ið í sessi óbreytt og halda því fram að önnur eins hag- kvæmni fyrir land og lýð hafi ekki áður verið fundin upp í víðri veröld og kvóta- kerfi fiskveiðanna sé fyrir alla íslendinga. Einkum segja postul- ar kvótabrasksins að landsbyggðin hafi mikinn hag af kvóta- kerfinu. Ég ætla að leyfa mér að halda því fram að með kvótakerfinu hafi atvinnurétti sjómanna og fisk- verkafólks verið stolið og sá réttur hafi með óheftu sölukerfi á óveidd- um fiski horfið úr byggðum víða um land án þess að hægt sé að sýna fram á að frá viðkomandi stöðum sé óhagkvæmt að gera út skip eða vinna fisk. Á réttlætið og sannleikur- inn aö ráöa för? Ég hafði lengi vonað að Sjálf- stæðisflokkurinn yrði trúr stefnu sinni og stæði vörð um frelsi ein- staklingsins á sem flestum sviðum og að kjörorðið stétt með stétt væri í heiðri haft. Því miður virð- ist mér nú margt í orðum og athöfnum forystumanna í sjáv- arútvegsmálum benda til þess að þar á bæ finnist mönnum ekkert athugavert við það að færa útgerðar- mönnum eignarétt- indi í þeim viðbót- arafla sem íslenskir sjómenn hafa unnið upp fyrir islensku þjóðina með sókn út úr lögsögunni á und- anfórnum árum. Hvort skyldi það nú vera að við væram að ræða um réttlætið eða sannleikann þeg- ar atvinnuréttur sjómanna er af- hentur útgerðinni til sölu hvar sem er i Norður-Atlantshafi og nýtingarréttur þjóðarinnar að þeim réttindum er skráð söluvara þess sem á fiskiskip, aðrir hafa ekki neitt þar um að segja? Guðjón A. Kristjánsson „Ég ætla að leyfa mér að halda því fram að með kvótakerfinu hafí at- vinnurétti sjómanna og fískverka- fólks verið stolið og sá réttur hafí með óheftu sölukerfí á óveiddum físki horfið úr byggðum víða um land Kjallarinn Guðjón A. Kristjánsson forseti Farmanna- og fiskimannasambands Islands Meö og á móti Skaða hvalveiðar ferða- þjónustu? Stórskaðar okkur „Það er ekki nokkur spurning að ef við hefjum hvalveiðar stór- skaðar það ferðaþjónustuna. Imynd íslands sem auðugs lands hvað varðar náttúrufegurð myndi skekkj- ast verulega því umheimur- inn skilur ekki að umhverfis- væn ferðaþjón- usta og hval- veiðar fari saman. Aukn- ingin í ferða- þjónustu í heiminum er hvergi meiri en í hvalaskoðun og það er talað um aukningu sem nemur á annan tug prósenta á ári. Það er alþekkt að viðskipta- vinir okkar í ferðaþjónustunni er fólk sem hugsar mikið um um- hverfismál og náttúruvernd. Það er rannsakað aö yfir 90% feröa- manna sem kemur til íslands kemur vegna óspilltrar náttúru sem er ekki bara gróðurfar og landslag, heldur einnig dýralíf og hvalir eru hluti af því. Ef við för- um að hefja hvalveiðar og skekkja þessa mynd, hverfur all- ur trúverðugleiki í ferðaþjónustu okkar og af verður stórskaði. Það mætti líkja því við að við mynd- um hefja malarnám í Jökulsár- gljúfrum." Engin hætta „Allar upplýsingar, sem menn hafa um þetta frá aðilum sem hafa reynslu í þessum málum, segja að hvalveiðar skaði ferða- þjónustu alls ekki. Á fundi í Reykjavík fyrir skömmu talaði norskur emb- ættismaður sem þekkir vel til þessa máls og í máli hans kom fram að frá því Norð- menn hófu hvalveiðar hef- ur ferðamönn- um þar í landi fjölgað um pró- sentutugi, mig minnir að sú tala sé 40%. Ferðamálastjóra var boð- ið að senda fulltrúa á þennan fund en sendi engan en Ferða- málaráð var á sama tíma með fund á Hótel Sögu og menn gengu um eins og grenjandi ljón í leit að hvalkjöti til að éta þar. Mín skoðun er afdi-áttarlaust sú að feröaþjónustunni stafi alls engin hætta af hvalveiðum. Ég vil spyrja: Hvert fóra rúturnar með feröamenn þegar hvalskurð- ur fór fram í Hvalfirði? Ég get svarað þessu sjálfur því rúturnar fóru beinf upp í Hvalfjörð og svo mikill var atgangurinn að oft varð að ýta fólkinu frá, allir vildu skoða hvalskurð. Ég er sjálfur í ferðaþjónustu og hef flutt ferðamenn um ísafjarðar- djúp og víðar. Það er byssa á bátnum og fólk var að spyrja út í það mál. Þá kom í ljós að þetta fólk vissi nákvæmlega ekkert um hvali eða hvalveiðar en þegar því var sagt að íslendingar lifðu af hvalveiðum sýndi það hvalveið- um skilning. Ég hef ekki nokkr- ar áhyggjur af því að hvalveiðar skaði ferðaþjónustuna, ekki nokkra." -gk Kjallarahöfundar Athygli kjallarahöfunda er vakin á því að ekki er tekið við greinum í blaðið nema þær ber- ist á stafrænu formi, þ.e. á tölvu- diski eða á netinu. Netfang ritstjómar er: dvritst@centrum.is Páll Þór Jónsson, hótelstjóri á Húsa- vík.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.