Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.1997, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 21.02.1997, Blaðsíða 4
4 FÖSTUDAGUR 21. FEBRÚAR 1997 Fréttir Islensku tónlistarverölaunin 1997 afhent i gærkvöldi: Yndislegt að fá þennan titil - segir bjartasta vonin, Anna Halldórsdóttir eins og iðnaðarráð- herra, Finnur Ing- ólfsson, var kallað- ur í gær, segist vera sannfærður um að íslensk tón- list geti orðið upp- spretta mikillar verðmætasköpunar á næstu árum. „Mér leist ágætlega á það sem ég heyrði í kvöld en ég hugsa fyrst og fremst um hversu mikilvæg tónlist gæti orðið útflutningi okkar íslendinga," sagði iðnaðarráðherra. Bjartasta vonin á góöa vini „Það er yndis- legt, alveg stórkost- legt að fá þennan titil,“ sagði Anna Halldórsdóttir sem valin var bjartasta vonin. Hún sagðist vonast til þess að titillinn myndi hjálpa sér til þess að ná lengra á sínu sviði. „Ég veit ekkert um hvernig það muni ganga en ég þakka sérstaklega góðum vinum mínum eins og Orra Harðarsyni, móður minni og útgefanda minum, honum Rabba.“ Gunnlaugm- Briem var valinn trommuleikari ársins fjórða árið í röð. Hann segir að það sé margt á döfinni hjá sér en var þögull sem gröfín um hvað það nákvæmlega væri. „Ég ætla að láta verkin tala,“ sagði Gunnlaugur, íbygginn á svip. Eins og stór fjölskyIda Páll Óskar Hjálmtýsson var tillnefndur söngvari ársins og plata hans, Seif, var tilnefnd geislaplata ársins. Hann segir að ekki megi taka verðlaun sem þessi of alvar- lega. „Þegar jafnfámennur hópur og íslenskir tónlistarmenn koma sam- an á svona samkomu er þetta eins og þegar fjölskylda hittist og velur uppáhaldsættingjann. Það verður því að taka þessum verðlaunum með smá húmor en hann bætti því líka við að honum þætti þetta stór- skemmtileg samkoma. -JHÞ Það var mikið um dýrðir þegar ís- lensku tónlistarverðlaunin voru af- hent á Hótel Borg í gærkvöldi. Þar gaf að líta fríðan hóp tónlistar- manna sem var kominn saman til þess að verðlauna þá sem hafa þótt bera af í íslensku tónlistarlífi und- anfarið ár. Þar voru tónlistarmenn eins og Botnleðja (þeir einfaldlega áttu kvöldið), Tríó Guðmundar Steingrímssonar (heiðursverðlauna- hafans í fyrra), Todmobile og Anna Halldórsdóttir (hún fékk hinn eftir- sótta titil Bjartasta vonin) komu meðal annars fram. Kynnir kvölds- ins var Helgi Pétursson. Senuþjófarnir Hljómsveitin Botnleðja stal sen- unni í gærkvöldi með frábærri sviðsframkomu. Að vonum voru þeir félagar mjög sáttir við gott gengi sitt á íslensku tónlistarverð- laununum 1997. „Við erum bara ánægðir," sagði Heiöar Örn Krist- jánsson, einn meðlima Botnleðju, um úrslit kvöldsins (auk hans skipa þeir Ragnar Páll Steinsson og Har- aldur Freyr Gíslason Botnleðju). Að hans sögn eru aðdáendur sveitar- innar flestir af yngstu kynslóðinni. „Það getur hins vegar vel verið að eldra fólk hafi gaman af okkur en það er þá álitið stórskrýtið,“ sagði Heiðar. Hann sagði að það sem væri á dagskrá hjá þessu kraftmikla tríói væri að reyna enn frekar fyrir sér erlendis. Samkvæmt því sem Friðrik Karlsson segir, sem valinn var git- arleikari ársins, ættu þeir Botn- leðjumenn að eiga góða möguleika. „Það vakti athygli mína að þessi tónlist, sem var flutt hérna i kvöld, er afar góð á alþjóðlegan mæli- kvarða. Það var sérstaklega gaman að heyra í þessum ungu tónlistar- mönnum eins og Emiliönu og Botn- leðju. Vandinn er helst sá að koma sér á framfæri erlendis," sagði Frið- rik. ■*» Anna Halldórsdóttir, sem kjörin var bjartasta vonin, heill- aöi áheyrendur meö söng sínum og skemmtilegri sviös- framkomu þegar íslensku tónlistarverölaunin 1997 voru afhent á Hótel Borg í gærkvöldi. Guöi til dýröar Söngvari ársins, Páll Rósinkranz, var ánægður með úrslitin en þau virtust koma honum á óvart. „Ég er ekki að leita mér að upp- hefð. Ég syng Guði til dýrð- ar.“ Trúarboð- skapurinn er honum afar mikilvægur og hann benti há- tíðargestum á að öll tónlist kæmi frá Guði. Emiliana Torrini var valin söng- kona ársins og fannst „frá- bært“ að hreppa hnoss- ið. Hún sagði þó að það sem hún hefði ver- ið að gera að undanfornu væru byrj- endaverk og tónlist hennar ætti ábyggi- lega eftir að þróast mikið. „Ég horfi til framtíðarinn- ar,“ segir Em- iliana Torrini en hún var einnig valin söngkona ársins fyrir tveimur árum. Ánægður meö unga fólkiö Heiðursverðlaunahafinn, Gunnar Þórðarson, sem starfað hefur að tón- list í um þrjá áratugi, var afar ánægður með það sem hann fékk að heyra í gærkvöldi á Hótel Borg. „Þetta er afar frísklegt og kraftmik- ið hjá þessu unga fólki sem hér hef- ur komið fram. Mikilvægast er að það hlusti á eigið hjarta í því sem það er að gera,“ sagði Gunnar. Kynnir hátíðarinnar, Helgi Pét- Móöir Bjarkar Guðmundsdóttur og Bragi Ólafsson frá Smekkleysu hampa gullplötum Bjarkar. Gulh og platínuverölaun afhent Viðurkenningar fyrir gull- og platínusölu voru einnig afhentar á Hótel Borg í gærkvöldi. Platinuplötur eru: Post með Björk Guðmundsdóttur, Gling gló með Björk og tríói Guðmundar Ingólfssonar, Þrír heimar með Buhha Morthens, Mermann með Emilönu Torrini og Strumpastuð. Þeir sem fengu viðurkenningar fyrir gullsölu voru Bubhi Morthens fyr- ir plötuna Allar áttir, Diddú fyrir plötuna Diddú, Hljómsveit Ingimars Ey- dal fyrir plötuna Kvöldið er okkar og Stone Free úr samnefndum söngleik. Safnplötumar Pottþétt 96, Pottþétt 3, Pottþétt 4, Pottþétt 5, Pottþétt 6 og Pottþétt jól fengu líka gullviðurkenningu. -JHÞ Páll Rósinkranz, söngvari ársins, flutti lagiö I believe in You við góöar undirtektir. Páll Óskar og Emiliana Torrini eru svalt par og hlaöin verðlaunum. í fyrra var þaö Páll Óskar sem var val- inn besti söngvarinn en nú var kom- iö aö Emilönu aö hampa verðlauna- grip, hún var valin söngkona ársins. Plata Páls Óskars, Seif, náöi gull- plötusölu en plata Emiliönu, Mer- mann, er söluhæsta plata ársins. DV-myndir PÖK Finnur Ingólfsson iðnaöarraöherra afhendir Gunnari Pórð- arsyni heiöursveröiaun íslensku tónlistarverölaunanna 1997. Ráöherra lagði áherslu á aö íslensk tónlist væri dýr- mæt útflutningsvara og uppspretta mikillar verðmæta- sköpunar. ursson, tók í sama streng. „Þetta er frjálslegt og skemmtilegt.“ Horfa til útflutnings „Ráðherra tónlistarútflutnings,“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.