Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.1997, Blaðsíða 5
MIÐVIKUDAGUR 26. FEBRÚAR 1997
5
DV
Fréttir
Verður metafli á loðnuvertíð?
I
DV, Akureyri:
Á ýmsu hefur gengiö á yfir-
standandi loðnuvertíð. Vertíðin
hófst í byrjun júlí og fyrri hluti
vertíðarinnar, frá þeim tíma og
fram að áramótum, var mjög góð-
ur. Reyndar var rnn metafla að
ræða en þá bárust á land 474 þús-
und tonn.
Geysilegur viðhúnaður var í
landi fyrir síðari hluta vertíðar-
innar sem stendur frá áramótum
og fram undir lok marsmánaðar.
Loðnubræðslum hefur fjölgað og
endurbætur farið fram á öðrum
þannig að þær afkasta nú mun
meira en áður. Viðs vegar um land
settu menn sig í stellingar til að
geta hafið frystingu á loðnunni og
víðs vegar í höfnum landsins, frá
Austfjörðum og vestur til hafna á
suðvesturhorni landsins, var tog-
urum komið fyrir við bryggjur og
ætlunin að frysta um borð í þeim.
Væntingar manna hafa þó ekki
gengið upp að öllu leyti. Sem fyrr
hefur loðnan, þessi dyntótti smá-
fiskur, gert mönnum lifið leitt með
ófyrirséðri „framkomu" sinni.
Loðnan hefur nefnilega reynst
bæði blandaðri og smærri en und-
anfarin ár og þá hefur hátt hlutfall
hænga í aflanum komið mönnum á
óvart, bæði fiskifræðingum sem
minna lærðum. Einnig hefur tíðar-
far verið sjómönnum mjög erfitt og
þeir verið lengst af á veiðum í
brælu og óhagstæðu veiðiveðri.
Frysting fyrir Japansmarkað
hefur gengið erfiðlega, enda gera
Japanir miklar kröfur um stærð
og hrognafyllingu loðnunnar.
Virðist borðleggjandi að ekki tekst
að frysta upp í samninga við Jap-
ani en menn hafa hins vegar ekki
gefið upp alla von um að frysta
megi 15-20 þúsund tonn af þeim 40
Loðnuveiðin
- yfirlit um veiöi á loðnuverötíöum á árunum 1990 til 1996 -
QQ1 Oflfi
1 millj. tonn VÍIT.fcUv
879535
800.000?
706.056 75029 . p!iiil§
635.953
600.000 " :
ít 1 ! m
wmJT* 1 SffJl'
400.000 ■f." 4r
287.515 WSp*’ kmmi'
BBSja || ■ v,
200.000
<iirVL ...pilk-
ÍMtfl. „.JBHmLz
| '90-'91 '91-'92 '92- 93 '93-'94 '94-'95 '95-'96 '96-'97
Stefán Benediktsson:
Góð tíðindi frá
Skeiðarársandi
„Ég held að það sé frekar að draga
úr rennslinu núna,“ sagði Stefán
Benediktsson, þjóðgarðsvörður í
Skaftafelli, í gærmorgun um rennsli
Skeiðarár sem hafði um helgina verið
í vexti - þó ekki í meira en „tæpu
sumarrennsli".
„Það er eins og hlaup hafi verið í
gangi frá því seint í nóvember eða
byijun desember," sagði Stefán sem
kvaðst því ekki telja að Skeiðará
mundi hlaupa í bráð - ekkert vatn
væri í Grímsvötnum - hlaup myndi
að líkindum gera hálfs til eins árs boð
á undan sér. Því væru þessi tíðindi
góð fyrir vegagerðarmenn sem höfðu,
eins og aðrir, óttast að eftir hlaupið
stóra á seinni hluta ársins fylgdi ann-
að hlaup síðar. -Ótt
PQWERTJZr
SN Ú NIN GSHRAÐTENGI
v Skútuvogi 12A, 5. 581 2530
þúsundum sem reiknað var með
að frysta fyrir Japansmarkað.
En loðnuveiðin heldur áfram
hvað sem líður Japansmarkað. Af
samtölum við skipstjórnarmenn
undanfarna daga virðist ljóst að
spár fiskifræðinga um geysilegt
loðnumagn ganga eftir og
mokveiði er dag eftir dag. Aflinn
frá áramótum er kominn vel yfir
300 þúsimd tonn og heildaraflinn á
vertíðinni því yfir 800 þúsund
tonn. Gangi veiðarnar vel næstu
3-4 vikur er því ekki óraunhæft að
ætla að um metveiði verði að
ræða, og nokkuð ljóst virðist að
vertíðin verður sú besta til þessa á
áratugnum hvað aflamagn snertir,
burtséð frá verðmæti loðnunnar.
-gk
Whirlpool ^
upphvottavéla
á snarlæhkuöu
verði!
^e&íúmtíídad
ADP941 með fjórum þvottakerfum, 44 db.
nú kr. eða 49.875 kr.stgr.
verðáður 63.100 kr.
ADP952 með fimm þvottakerfum, 39 db.
nú v^vctvv kr. eða 65.930 kr.stgr.
verð áður 79.900 kr.
Heimilistæki hf
Umboðsmenn um land allt.
SÆTÚNI 8 SfMI 569 1500
þ a d (t e tn u t e k, (i e * t a n ti a d t i t tn á t a l
I