Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.1997, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.1997, Blaðsíða 20
32 MIÐVIKUDAGUR 26. FEBRÚAR 1997 Sviðsljós Yfir fjörutíu alþjóölegir tískuhönnuöir sýna nú sköpunarverk sín í London á sérstakri tískuviku. Hér er fyrirsætan Jodie Kidd í fötum írska hönnuöarins Lainey Keogh. Slmamynd Reuter Júlía Roberts. Enn pískrað um karlamál Júlíu Roberts Aumingja Júlía Roberts. Hún fær aldrei að vera í friði með karlana sína. Nú herma fregnir að slest hafi upp á vinskap hennar og hins snoppufríða Pasquetles Manocchias sem hún kynntist við kvikmynda- tökur í fyrra. Til stóð að þau gengju i þaö heilaga en Pasquale mun víst hættur við allt saman. Júlía hefur ekki átt miklu láni að fagna í ástarmálum sínum. Hún hef- ur sést í fylgd fjölda frambærilegra sveina en aldrei hefur neitt orðið úr neinu, nema hvað hún giftist sveita- raularanum frábæra Lyle Lovett einu sinni. Það hjónaband entist þó ekki lengi. Afbv. kr. 117.500 IStóllínn ehf. Smiðjuvegi 6d, Kópavogi, sími 554 4544 Snyrtivörur fyrir hálfa milljón á ári Það er ekki bara náttúran sjálf sem sér til þess að kvikmynda- leikarinn Tom Cruise, sem er orðinn 34 ára, heldur drengjalegu útliti sínu. Kappinn, sem vill vera ungur að eilífu, notar neöii- lega í kringum hálfa milljón ís- lenskra króna í fegurðarmeðöl á ári. Hillurnar í baðherberginu hans eru að svigna undan rán- dýrum húðkremum og í hvert sinn sem hann fréttir af nýju undrakremi útvegar hann sér þaö strax. Carl Philip hamingjusamur Carl Philip Svíaprins, sem er orðinn 17 ára, er hamingjusamur þessa dagana, að því er erlend slúðurblöð fullyrða. Prinsinn er sagður eiga sérlega góða vinkonu á heimavistarskóla í Vármland í Svíþjóð og svo erföi hann draumavillu Bertils prins á Djurgárden í Stokkhólmi. Kryddstelpurnar þykja afskaplega Ifflegar þegar þær taka lagiö. Þá eru þær gjarnan fremur léttklæddar, eins og mynd þessi ber meö sér, og ögrandi í allri framkomu. Símamynd Reuter Bresku popptónlistarverðlaunin afhent í vikunni: Kryddstelpurnar elska Thatcher og sigruðu Margaret Thatcher og popptón- list. Heldur óvenjuleg blanda en engu að síður er jámfrúin helsta fyrirmynd Kryddstelpnanna, kvennasveitar sem kom, sá og sigr- aði við afhendingu helstu poppverð- launa Breta á mánudagskvöld. Kryddstelpurnar, eða Spice Girls, fóru heim með tvenn Brit-verðlaun. Stelpumar, sem vekja athygli fyr- ir djarflegan klæðnað hvar sem þær koma, hafa verið að gera það ákaf- lega gott að undanfornu. Þær hafa náð efsta sæti vinsældalistanna í 31 landi en hjólin fóra fyrst verulega GuHÉr LEÐURHORNSÓFI LEÐUR Á SLITFLÖTUM - ÝMSIR LITIR Listamaöurinn, maðurinn sem hét einu sinni Prince, tók lagiö í London. Símamynd Reuter að snúast þegar þær komust á topp- inn í Bandaríkjunum með fyrstu plötuna sína. Meira að segja Bítlun- um tókst það ekki. „Við emm sönnun þess að ýmis- legt er hægt þegar stelpur taka sig sarnan," sögu skvisumar fimm við verðlaunaafhendinguna. Kryddstelpur voru verðlaunaðar fyrir bestu litlu plötu ársins og einnig fyrir besta myndbandið. En Kryddstelpurnar voru ekki einar um að baða sig í sviðsljósinu í Earls Court í Lundúnum á mánu- dagskvöld. Velska rokkbandið Man- ic Street Preachers gerði líka storm- andi lukku en strákamir i sveitinni eru nú óðum að jafna sig eftir hvarf textahöfundar þeirra, Richeys nokk- urs Edwards. Sá var fyllibytta og lystarstolssjúkur og hvarf árið 1995 þegar hann var í meðferð vegna þunglyndis. Bíll hans fannst í nám- unda við hina frægu Sevem-brú en ekki hefur fundist tangur né tetur af popparanum sjálfum. Hann hefur þó ekki opinberlega verið úrskurð- aður látinn. Grínistinn Ben Elton sló á létta strengi og afsakaði að Margaret Thatcher skyldi ekki vera meðal gesta í salnum. „Thatch átti að vera uppi á sviði með Kryddstelpunum en það kom ígerö við naflahringinn hennar,“ sagði spaugarinn. Ýmsir fleiri fengu verðlaun, til dæmis George Michael, hin amer- íska Sheryl Crow og áströlsku falsettupoppararnir Bee Gees. Fræg- ir kollegar úr Ameríku sungu og léku á samkomunni og var Lista- maðurinn, sá sem einu sinni hét Prince, einn þeirra. —

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.