Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.1997, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.1997, Blaðsíða 9
MIÐVIKUDAGUR 26. FEBRÚAR 1997 9 r Vísindamenn reyna að eyða ótta við einræktaða kind: Enn langt í ein- ræktun manna Bresku vísindamönnunum, sem tókst að einrækta kindina Dolly, mistókst aftur á móti í gær að eyða ótta manna um að einræktun á mannfólki væri á næsta leiti. Þvert á móti fór óttinn eins og eldur í sinu um alla heimsbyggðina. Dolly er fyrsta dýrið sem tekist hefur að einrækta úr frumu fullorðins dýrs. Bill Clinton Bandaríkjaforseti fyrirskipaði að þegar í stað yrði gerð könnun á siðfræði einræktun- ar, landbúnaðarráðherra Frakk- lands kallaði fram hryllingsmyndir af „sexfættum kjúklingum" og nóbelsverðlaunaþeginn Joseph Rot- blat líkti vísindaafreki þessu við smíði kjamorkusprengjunnar. Clinton hafði ekki fyrr heyrt tið- indin en hann fyrirskipaði sér- stakri nefnd að kanna siðfræðileg- ar og lagalegar hliðar einræktunar, einkum þó hvernig þær koma við mannfólkið. Nefndin á að skila af sér innan þriggja mánaða. Á sama tíma leiddi skoðana- könnun vestra í ljós að 87 prósent Bandaríkjamanna telja að banna eigi einræktun manna, þó svo sex prósent aðspurðra segðust ekkert hafa á móti þvi að láta einrækta sig. Ian Wilmut, sem fór fyrir hópn- um sem skapaði Dolly, sagði í gær að hann fengi ekki martraðir, auk þess sem erfðavísindin ættu enn langt í land áöur en hægt væri að einrækta fólk. „Við höfum gert það ljóst að við sjáum ekki ástæðu fyrir því að það yrði gert,“ sagði Wihnut við frétta- menn sem heimsóttu hann og Dolly á Roslin-stofnuninni nærri Edin- borg. „Ég trúi því að við sem tegund höfum siðfræðina að leiðarljósi. Gagnið að þessu er hugsanlega mjög mikið. Kjarnorkuvopn eru miklu hættulegri en þetta,“ sagði Wilmut. Reuter Nemendur í skóla rétttrúnaðarkirkjunnar í Moskvu læra hvernig hringja á kirkjuklukkum. Smíði kirkjuklukkna var bönnuð í Rússlandi eftir byltinguna 1917 og ekki heimiluð aftur fyrr en seint á síðasta áratug. simamynd Reuter AÐALFUNDUR 1997 Aðalfúndur Félags fasteignasala og Ábyrgðarsjóðs Félags fasteignasala verður haldinn í fúndarsalnum Háteigi á 4. hæð á Grand Hótel Reykjavík við Sigtún fimmtudaginn 27. febrúar 1997, kl. 17.00 síðdegis. A dagskrá aðalfúndarins verða efitirtalin mál: 1. Skýrsla stjórnar um starfsemina á liðnu starfsári. 2. Endurskoðaðir reikningar lagðir fram. 3. Lagabreyting. 4. Kosning stjórnar. 5. Kjör endurskoðenda. 6. Ákvörðun félagsgjalda. 7. Önnur mál. Stjómin Aðalf undur Nýherja 1997 Aðalfundur Nýherja hf. verður haldinn miðvikudaginn 12. mars 1997 Fundurinn fer fram í Ársal Hótel Sögu og hefst stundvíslega kl. 16:00 ingur og skýrsla endur- skoðenda munu liggja frammi á skrifstofu félagsins, hluthöfum til sýnis, tveimur vikum fyrir aðalfund. Atkvæðaseðlar og fundargögn verða afhent á fundarstað. Hluthafar sem ekki geta sótt fundinn, en hyggjast gefa umboð, verða að veita slíkt skriflega. - Venjuleg aðalfundarstörf - Tillaga urn heimild íélagsins til kaupa á eigin hlutum skv. 55. gr. hlutabréfalaga - Önnur mál, löylega upp borin Kínverjar láta andófsmenn lausa Eftir sjö mánaða leynilegar viðræður eru þáttaskil talin vera í sjónmáli í deilu Bandaríkjanna og Kína um mannréttindi. Kín- veijar hafa látið lausa þrjá and- ófsmenn sem voru á lista sem Anthony Lake, ráðgjafi BUls Clintons Bandaríkjaforseta, kynnti kínverskum ráðamönnum í júlí síðastliðnum. Andófsmaö- urinn Chen Ziming, sem sakaður var um að vera einn af þeim sem báru ábyrgð á uppreisninni á Torgi hins himneska friðar, var skyndilega látinn laus úr fangelsi í nóvember en er þó hafður í stofufangelsi núna. Stuttu síðar var andófsmaðurinn Ulan Shovo ffá Mongólíu látinn laus og í jan- úar fékk blaðamaðurinn Xi Yang ffelsi. Deilt um útlend- ingafrumvarp Leiðtogi franskra sósíalista, Laurent Fabius, réöst harkalega á þingi í gær á lagafrumvarp um hert eftirlit meö útlendingum. Alain Juppe forsætisráðherra sagði gagnrýnendur ffumvarps- ins skara eld að köku öfgamanna til hægri með því að gera ekki mun á löglegum og ólöglegum innflytjendum. 30 þúsund manns efndu til mótmæla gegn frum- varpinu i París í gær. Loksins! Loksins! Loksins! Það sem allir hafa veríð að faíða eftir. Sérsmíðaðar álrímlagardínur á verði sem á engan sinn líkan, framleiddar af Sólargluggatjöldum með sömu frábæru þjónustunni eins og alltaf. Tökum mál - Gerum tilooð - Setjum upp. Gerið samanburð. Veljum íslenskan iðnað.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.