Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.1997, Qupperneq 6
6
MIÐVIKUDAGUR 26. FEBRÚAR 1997
Viðskipti
Verkföll rýra
kaupmátt
í nýjasta hefti Vísbendingar
segir að ekki sé hægt að merkja
fylgni á milli kaupmáttaraukn-
ingar og verkfalla. Ef eitthvað
er þá hefur kaupmáttur rýmað í
kjölfar stórra verkfallsára, svo
sem áranna 1982 og 1988. Reynd-
ar segir í blaðinu að erfitt sé að
fullyrða nokkuð um þetta því
spyrja megi hver kaupmáttur-
inn hefði orðið ef ekki hefði
komið til verkfallanna.
Byggingavísitala:
4,6% tólf mán-
aða hækkun
Hagstofan hefur reiknað vísi-
tölu byggingarkostnaöar eftir
verðlagi um miðjan febrúar
1997. Vísitalan reyndist vera
218,6 stig (júní 1987=100) og
hækkaði um 0,2% frá janúar
1997. Þessi vísitala gildir fyrir
mars 1997. Síðastliðna tólf mán-
uði hefur vísitalan hækkað um
4,6%. Undanfama þrjá mánuði
hefr vísitala byggingarkostnað-
ar hækkað um 0,4% sem jafn-
gildir 1,5% verðbólgu á ári.
Launavísitalan, miðað við með-
allaun í janúar 1997 er 148,8 stig
og hækkar um 0,1% frá fyrra
mánuði.
Rafmagnsveitan:
Fjölbreyttari
þjónusta
Nýtt viðskipta- og upplýsinga-
kerfi verður tekið í notkun hjá
Rafmagnsveitu Reykjavíkur í
lok þessa árs en það mun stór-
bæta möguleika fyrirtækisins
til markvissari og fjölbreyttari
þjónustu við viðskiptavini sína.
Hugbúnaöurinn mun gegna fjöl-
þættu hlutverki í þjónustu Raf-
magnsveitu Reykjavíkur. Hon-
um er ætlað að geyma allar
nauðsynlegar upplýsingar um
viðskiptavini fyrirtækisins, þ.e.
orkukaup og viðskiptasögu
hvers og eins, orkumæla og önn-
ur mælitæki sem tengjast orku-
viöskiptunum, sögu þeirra og
eftirlit með þeim. Tæknival sér
um uppsetningu kerfisins.
Eimskip:
Viðskiptateng-
ing á Interneti
Eimskip býður nú viðskipta-
vinum sínum aðgang að Brúnni,
fjartengingu við gagnagrunn fé-
lagsins, í gegnum Internetið.
Brúin veitir viðskiptavinum
Eimskips auðveldan og öruggan
aðgang að upplýsingum um ein-
stakar sendingar og stöðu
þeirra, opnar þeim möguleika á
að skoða reikninga og fylgiskjöl
og panta komutilkynningar á
faxi. Á vefsíöum Eimskips á
Intemetinu eru nú einnig sér-
stök tölvupóstform fyrir við-
skiptavini til að senda beiðnir
um tilboð, flutning og aðra þjón-
ustu beint til flutningadeilda fé-
lagsins. Þar eru einnig sem fyrr
hagnýtar upplýsingar um skrif-
stofur félagsins og umboðsmenn
hérlendis og erlendis, skipakom-
ur, búslóðaflutninga, þjónustuá-
ætlanir og aðra flutningatengda
þjónustu. Til aðgangs að Brúnni
þarf notendakenni og aðgangs-
orð og er slóðin að heimasíðu
Eimskips http://www.eim-
skip.is.
Dagsektir
Þau ríki sem fylgja ekki lög-
um ESB, sem þau hafa sjálf átt
þátt í að samþykkja, geta átt það
á hættu að verða dæmd til að
greiða dagsektir. Framkvæmda-
stjóm ESB hefur nú samþykkt
reglur um hversu háar slíkar
bætur geta orðið og hvemig eigi
að reikna þær út, að þvi er seg-
ir í Fréttum frá ESB.
-sv
DV
„Það má hver sem er eiga eins
mikið og hann vill í þessu félagi,
bara ef hann borgar rétta verðið fyr-
ir það. Hafi menn ánægju af því að
eiga fé í þessu frekar en öðm er
ekkert það í nýgerðum samningum
sem bannar þeim það,“ segir Har-
aldur Haraldsson i Andra, einn af
eigendum íslenska útvarpsfélagsins,
í samtali við DV í gær, aðspurður
hvort gert væri ráð fyrir einhverj-
um forkaupsrétti að því hlutafé sem
kynni að losna í nýju félagi.
Chase Manhattan Bank hefúr lagt
töluverða peninga í íslenska út-
varpsfélagið, með svokölluðu víkj-
andi láni, og hefur hann möguleika
á því að breyta því i hlutafé eftir
ákveðnum reglum. Samkvæmt upp-
lýsingum DV nemur það um 20 pró-
senta hlutafjár félagsins. Kæmi til
þess að bankinn leysti það til sín og
ákæði að selja það segir Haraldur
að enginn samningur hafi verið
gerður um forkaupsrétt að því
hlutafé.
„Það er skilningur fyrir því að ef
þetta hlutafé losnar myndu nýju
aðilarnir að félaginu geta fengið það
keypt. Þetta er allt spurning um
verð,“ segir Haraldur og neitar því
að ákvæði í samningnum hindri
menn í því að kaupa meira hlutafé
en sem nemur einhverri ákveðinni
prósentu.
Haraldur segir að gagnkvæmur
skilningur ríki milli manna um að
hlutimir þróist á þann veg sem
hverjum þóknast á hverjum tíma.
Einn eigi peninga í dag, annar á
morgun.
DV hafði tal af Sigurjóni Sig-
hvatssyni í gær en hann er í hópi
stærstu hluthafa í íslenska útvarps-
félaginu. Hann vildi hvorki játa því
né neita að til væri samkomulag
milli hans og Jóns og Stöðvar 3
manna og vildi ekkert láta hafa eft-
ir sér um málið. Hann sagði það eitt
að það væri of mikið talað á íslandi.
Um það hvort til væri nefnt
óformlegt samkomulag milli þess-
ara aðila sagði Haraldur Haraldsson
að væri það til væri það eitthvað
sem aðrir í fyrirtækinu vissu ekki
um. Hann sagðist þess reyndar full-
viss að ekkert slíkt samkomulag
hefði verið gert.
Starfsmenn í óvissu
Starfsmannamál á Stöð 3 eru enn
í algerri óvissu en fundur var hald-
inn með starfsmönnum i gærmorg-
un. Þar segist Hreggviður Jónsson,
stjómarformaður íslenskrar marg-
miðlunar, hafa farið yfir stöðu mála
eins og hægt sé. Hann segir að reynt
verði að ráða sem flesta til þess að
byggja upp Sýn sem á næstunni
hyggst færa út áhorfendasvæði
stöðvarinnar. Reynt verði að fara
sem víðast um Suðurland í mars og
norður til Akureyrar. Hann sagði
að ekki væru búið að ákveða hvort
og þá með hvaða hætti hægt væri að
nýta þá myndlykla sem keyptir hafi
verið til Stöðvar 3. Þeir munu sam-
kvæmt heimildum DV vera mun
fullkomnari en þeir sem Stöð 2 hef-
ur yfir að ráða. -sv
Blaöamönnum og Ijósmyndurum var ekki heimilaður aðgangur að starfs-
mannafundinum á Stöð 3 í gær og starfsmenn vildu ekkert tjá sig um stöðu
mála. Bjarni Kristjánsson, fjármálaráðgjafi íslenskrar margmiðlunar, og Sig-
urður G. Guðjónsson, varaformaður stjórnar íslenska útvarpsfélagsins,
voru að störfum í húsakynnum Stöðvar 3 í gær. Dv-mynd Hiimar
Engin ákvæði í samningum um forkaupsrétt að hlutabréfum í sameinuðu sjónvarpsfélagi:
Hver má eignast
það sem hann vill
- segir Haraldur Haraldsson, einn af eigendum íslenska útvarpsfélagsins
Skinnaiðnaður hf. á Akureyri:
Tæplega 80 milljóna
króna hagnaður
DYAkureyri:
Rekstur Skinnaiðnaðar hf. á Ak-
ureyri skilaði tæplega 77,6 milljóna
króna hagnaði á síðasta ári, eða
sem nemur rúmlega 8% af veltu fé-
lagsins. Velta félagsins nam rúmum
967,2 milljónum króna og jókst um
131,7 milljónir króna á milli ára.
Brúttótekjur Skinnaiðnaðar hf. af
útflutningi námu rúmum milljarði
króna og er það í fyrsta sinn í sögu
félagsins sem það flytur út vörur
fyrir meira en milljarð króna á einu
ári. Horfur um sölu á erlendum
mörkuðum eru góðar og útlit fyrir
áframhaldandi hagnað af rekstrin-
um.
Eignir Skinnaiðnaðar hf. námu í
árslok tæpum 867,3 milljónum
króna en skuldir 532,1 milljón. Eig-
ið fé var því 335,2 milljónir eða
38,6%. Á árinu störfuðu að meðal-
tali 147 starfsmenn hjá fyrirtækinu
og námu launagreiðslur til þeirra
236,2 milljónum króna.
Aðalfundur fyrirtækisins verður
haldinn 11. mars og gerir stjóm fé-
lagsins tillögu um að hluthöfum,
sem era 255 talsins, verði greiddur
10% arður. -gk
Hlutabréfamarkaðurinn:
Mest keypt
í Eimskip
Töluverð sala varð á Verð-
bréfaþingi íslands og Opna til-
boðsmarkaðnum í síðustu viku
en bréf fyrir rúmar 340 milljónir
skiptu um eigendur. Mest varð
salan í Eimskip en hlutabréf í
fyrirtækinu seldust fyrir tæpar
95 milljónir króna. Hlutabréf í ís-
landsbanka ganga áfram kaup-
um og sölu en bréf fyrir um 30
milljónir skiptu um eigendur í
liðinni viku og bréf seldust fyrir
34 milljónir í Hampiðjunni. Mjög
lítil hreyfing varð á bréfum oliu-
félaganna.
Álverðið hefur stigið nokkuð
að undanfömu og er tonnið kom-
ið upp í 1630 dollara. Það hefur
hækkað um 100 dollara frá því í
síðustu viku.
Dollarinn er farinn að síga aft-
ur, eftir gott skrið upp á við á
undanförnum vikum, og pundið
heldur áfram að sækja í sig veðr-
ið. Markiö er á hægri uppleið og
jenið sömuleiðis. Þá er þingvísi-
tala hlutabréfa enn á uppleið.
-sv