Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.1997, Page 8
8
MIÐVIKUDAGUR 26. FEBRÚAR 1997
Útlönd
DV
Tilræði í vestasta héraði Kína eftir útför Dengs Xiaopings:
Tímasprengjur í strætó
urðu fjórum að bana
Vildi drepa sem flesta
Palestínumaðurinn sem skaut
einn mann til bana i Empire State
byggingunni í New York og síöan
sjálfan sig hafði í hyggju að drepa
sem flesta, að því er segir í bréfi
sem hann lét eftir sig.
Afsögn hjá Sumitomo
Stjómarformaður japanska fyr-
irtækisins Sumitomo hefur sagt af
sér vegna taps fyrirtækisins á
koparbraski.
Fjórir menn að minnsta kosti
týndu lífi þegar þrjár tímasprengjur
um borð í strætisvögnum sprungu
hver á eftir annarri í vestasta hér-
aði Kína undir kvöld í gær að stað-
artíma, sama dag og útfór leiðtog-
ans Dengs Xiaopings var gerð.
Toyota Corolla XL ‘92, ssk., 5 d„ blár,
ek. aöeins 45 þ. km. Verö 800.000.
Peugeot 605 SRi ‘91, ssk., 4 d„ svart-
ur, ek. 113 þ. km. „Lúxusvagn áfínu
veröi“. Skipti. Verö 1.290.000.
Range Rover 2,5 DSE ‘97, ssk„ grasnn,
ek. 5 þús. km, leöur, ABS, álf„ o.fl. Skipti
Grand Cherokee Limitec V8 ‘93, ssk„
rauöur, ek. 65 þús. km. Einn meö öllu.
Skipti. Verö 3.300.000.
BMW 325ix 4x4 touring ‘88, 5 g„ 5 d„
svartur, ek. 112 þ. km, hlaöinn aukahl.,
2 eigendur. Skipti. Verö 1.350.000.
Opel Astra ‘96, 5 g„ 5 d„ rauöur, ek. 22
þ. km, álf„ spoiler. Skipti. Verö 1.250.000.
Honda Civic LSi ‘92, 5 g„ 3 d„ hvítur,
ek. 90 þ. km. Verö 850.000.
Toyota Corolla XLI ‘94, 5 g„ 5 d„ blár,
ek. 60 þ. km. Verö 980.000. Ath. skipti.
MMC Lancer GLXI 4x4 ‘92. 5 g„ 5 d„
blár, ek. aðeins 47 þ. km.Verö 950.000.
Lögregla hélt uppi eftirliti 1 morg-
un á götum úti og skoðaði grunsam-
lega pinkla og pakka í Urumqi, höf-
uðborg Xinjiang-héraðs þar sem
íbúamir eru flestir múslimar.
„Ég held að fjórir til flmm að
minnsta kosti hafi týnt lífi, þar af
eitt barn sem lést samstundis,"
sagði starfsmaður sjónvarpsstöðvar
í héraðinu sem vildi ekki láta nafn-
greina sig.
Embættismenn sögðu að sextíu
manns að minnsta kosti hefðu slas-
ast í sprengingunum sem urðu með
nokkurra mínútna millibili, hver í
sínum borgarhlutanum. Urumqi er
miðstöð yfirráða Kínveija yflr hér-
aðinu og þjóðarbrotinu sem þar býr.
„Fólk er óttaslegið og mikill við-
búnaður er í borginni," sagði sjón-
varpsstarfsmaðurinn.
Þetta voru fyrstu ofbeldisverkin
sem skýrt hefur verið frá í Xinjiang-
héraði, sem aðskilnaðarsinnar mú-
slíma kalla Austur-Túrkestan, frá
því níu manns létust í óeirðum sem
beindust gegn Kínastjórn í Yining 5.
og 6. febrúar. Enginn hefur enn lýst
ábyrgð á sprengjutilræðunum í gær
á hendur sér.
Xinjiang-hérað liggur að landa-
mænnn Afganistans og Pakistans
og þriggja Mið-Asíuríkja sem eru að
mestu byggð múslímum. Á síðasta
ári voru gerðar árásir þar á embætt-
ismenn stjórnvalda og leiðtoga mú-
slíma sem taldir voru hallir undir
Kínverja.
Að sögn Davids Levys, utanríkis-
ráðherra ísraels, sem er í heimsókn
í Peking, hafa kínverskir ráðamenn
lýst yfir áhyggjum sínum af ógninni
sem stafar af bókstafstrúuðum
múslímum.
Reuter
Ibúar í Dannenberg í Þýskalandi og umhverfisverndarsinnar efndu í gær til mótmæla gegn fyrirhuguðum flutningi
kjarnorkuúrgangs til Gorleben þar sem er vinnsiustöb fyrir slíkan úrgang. simamynd Reuter
Rasmussen ætlar ekki
að flýta kosningum
Poul Nyrup Rasmussen, forsætis-
ráðherra Danmerkur, lýsti því yfir í
gær að hann ætlaði ekki að nýta sér
ólguna í íhaldsflokknum með því að
flýta þingkosningum sem fram eiga
að fara í september á næsta ári.
Sagði forsætisráðherrann að minni-
hlutastjórn jafnaðarmanna hefði
svo mikið verk að vinna að kosning-
ar væru ekki á dagskrá.
Samkvæmt niðurstöðum Gallup-
könnunar, sem birt var í Berlingske
Tidende í gær, höfðu jafnaðarmenn
aukið fylgi sitt á kostnað íhalds-
manna. Hins vegar hlyti bandalag
íhaldsmanna og Venstre, flokks Uffe
Ellemann-Jensens, mestan stuðning
ef kosið yrði núna.
Jafnaðarmenn hlytu 57 þingsæti
samkvæmt niðurstöðum skoðana-
könnunarinnar en fengu 50 sæti
samkvæmt skoðanakönnun í des-
ember síðastliðnum. Jafnaðarmenn
hafa nú 62 sæti á þinginu þar sem
sætin eru alls 179. Fylgi íhalds-
manna minnkaði úr þeim 27 sætum
sem þeir hafa núna í 23. Venstre
eykur fylgi sitt um 9 sæti, úr 42 í 51.
Reuter
Tyrkir vilja olmir i ESB en
þar er þeim ekki vel tekið
Tyrknesk stjórnvöld leggja nú
mikla áherslu á að fá inngöngu i
Evrópusambandið en þeim hefur
þó ekki enn tekist að fá aðildarrík-
in til að opna dymar. Tyrkir eru
enda farnir að líta svo á að Evrópu-
þjóðimar vilji ekkert með þá hafa
og velta því nú fyrir sér hvort þeir
eigi að leita vina annars staðar.
Leiðtogar Evrópuríkja hafa
margsinnis ítrekað að Tyrkir verði
að bæta ástand mannréttindamála,
hætta stríði sínu gegn kúrdískum
uppreisnarmönnum og finna lausn
á deilum sínum við Grikki áður en
farið verður að íhuga inngöngu
lands þeirra í ESB. Margir Tyrkir
segja þessi rök hræsni eina sem
ætlað er að dylja andúðina á
íslamstrúarmönnum.
„Það er alls staðar komið fram
við Tyrki af lítilsvirðingu," segir
Baran Tuncer, hagfræðingur og
fyrrum starfsmaður Alþjóðabank-
ans, í viðtali í International Herald
Tribune. „Verið er að íhuga að
taka lönd eins og Búlgaríu inn á
undan okkur, lönd sem í áranna
rás hafa ekki haft nein tengsl við
Evrópu á pólitíska og efnahagslega
sviðinu."
Tyrkir og ESB gerðu með sér
tollabandalag í janúar 1996 þar sem
flestir tollar og aðrar viðskipta-
hindranir voru afnumin. Evrópu-
þjóðirnar héldu þar með að Tyrkir
mundu láta sér það nægja að sinni.
Tyrkir litu hins vegar svo á að
tollabandalagið væri aðeins áfangi
á leið til fullrar aðildar að ESB inn-
an eins eða tveggja ára. Misskiln-
ingur þessi af beggja hálfu hefur
leitt til kólnandi sambúðar sem
ráðamenn eru staðráðnir i að bæta.
Arafat í Marokkó
Yasser Arafat,
forseti Palest-
ínumanna, er í
heimsókn í Ma-
rokkó þar sem
hann hvatti Evr-
ópuríki og
Bandaríkin til
að bjarga frið-
arferlinu í Mið-
Austurlöndum vegna sífelldra
brota ísraela á geröum samningum.
Du Pont fundinn sekur
Bandaríski milljónamæringur-
inn var fundinn sekur um morð
fyrir að hafa skotið fyrrum glímu-
kappa til bana en um leið var
hann úrskurðaður geðveikur.
Þungt er hljóðið
Hljóðið er sagt þungt í leiðtoga
uppreisnarmanna, sem halda gísl-
um í japanska sendiherrabústaðn-
um í Perú, eftir sjötta fundinn
með fulltrúum stjómvalda.
Þing kallað saman
Borís Jeltsín Rússlandsforseti
fyrirskipaði starfsmönnum sínum
í gær að kalla þing saman 6. mars
næstkomandi þegar hann flytur
árlega ræðu sína um ástand og
horfur í landsmálum.
Beta á batavegi
Kvikmynda-
leikkonan
Elizabeth
Taylor er á góð-
um batavegi eft-
ir skurðaðgerð
þar sem læknar
fjarlægöu æxli
úr heila heniiar
og hún gerir sér
vonir um að komast heim af spít-
alanum fyrir 65 ára afmælið sitt
sem er á morgun.
Hætta á ofbeldi
Hætta er talin á ofbeldi samþykki
ísraelsstjóm uppbyggingu nýs svæð-
is fyrir gyðinga í austurhluta Jer-
úsalem í dag eins og búist er við.
Betri samvinnu
Bill Clinton Bandaríkjaforseti
tjáði varnarmálaráðherra Sádi-
Arabíu að Bandaríkin vildu betri
samvinnu í rannsókn á sprengju-
árás á bandaríska hermenn I
Sádi-Arabíu í fyrra.
íranar kjósa
íranar munu velja eftirmann Raf-
sanjanis forseta í kosningum 23.
maí.
Sinjavski látinn
Rússneski
rithöfundurinn
Andrei
Sinjavski lést
úr krabbameini
í París í gær.
Sinjavski, sem
var orðinn 71
árs, var árið
1965 dæmdur í 7
mánaöa fangabúðavist fyrir
andsovésk rit. Réttarhöldin eru af
mörgum talin hafa markað upp-
haf andófsins í Sovétríkjunum.
Ósammála um NATO
Utanríkisráðherra Rússlands,
Primakov, ítrekaði í Ósló í gær and-
stöðu Rússa við stækkun NATO í
austur. Thorbjem Jagland, forsæt-
isráðherra Noregs, lýsti yfir stuðn-
ingi við stækkunina.