Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.1997, Side 11

Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.1997, Side 11
MIÐVIKUDAGUR 26. FEBRÚAR 1997 Menningarverðlaim DV 1997: enmng 11 ( < J < < < ( i < Tllnefningar í leiklist Það sem einkennir leikhúsárið 1996 öðru fremur er hversu margar sýningar vöktu at- hygli fyrir sterkan heildarsvip. Þegar best tekst til við uppfærslu leikverks ríkir jafn- vægi milli útfærslu og inntaks þannig að eng- inn einn þáttur í uppfærslunni tranar sér fram á kostnað annarra. Leikur, umgjörð og leikstjórn hljóma saman. Á bak við slíka sýningu, þar sem allt geng- ur upp, er örugg listræn yfirsýn og fag- mennska á öllum sviðum. Það segir sína sögu um árið í leikhúsinu að eftir miklar pælingar voru það fjórar leiksýn- ingar auk tveggja leikara sem eftir stóðu og voru tilnefnd til menningarverðlauna DV að þessu sinni. Úr sýningu Þjóðleikhússins á Sem yður þókn- ast. Edda Heiðrún Backman og Elva Ósk Ólafsdóttir undirbúa flótta. DV-mynd ÞÖK Sem yður þóknast, sýningin í heild. (Þjóð- leikhúsið, stóra svið) Þríeykið Guðjón Pedersen, Hafliði Am- grímsson og Gretar Reynisson er margreynt í uppsetningu verka Shakespeares. Þó að þeir byggi á hefðinni er útkoman ávallt frumleg, enda bera þeir hæfilega virðingu fyrir textan- um sem slíkum. Hugmyndir og útfærsla eru samstiga og þar sem rækt er lögð við öll hlut- verkin nær leikhópurinn að verða jafn og samstæður. Leitt hún skyldi vera skækja, sýningin í heild. (Þjóðleikhúsið, Smíðaverkstæði) Á „Skækjunni“ er sterkur heildarsvipur og jafhræði milli allra þátta, hvort sem þeir lúta að umgjörð eða öðru. Þó að leikritið sé fomt og í bundnu máli höfðar sýningin mjög til nú- Úr sýningu Þjóðleikhússins á Leitt hún skyldi vera skækja. Stefán Jónsson og Edda Arn- Ijótsdóttir í illum hugleiðingum. DV-mynd ÞÖK timans, og er það frekar framsetningarmátan- um en umljöllunarefninu að þakka. Leikur er áberandi góður og sjónræn upplifun á sýning- imni sterk. Kúnígúnd og Birtingur í brúðuleik. Jóna Guð- rún Jónsdóttir og Gunnar Helgason í hlutverk- um sínum. DV-mynd ÞÖK Birtingur, sýningin í heild (Hafnarfjarðar- leikhúsið Hermóður og Háðvör) Það ber vott um djörfung að leggja í jafn þekkt bókmenntaverk og Birtingur er og gera úr því leiksýningu. Dirfskan hefur borgað sig, því að leikgerðin er einstaklega vel heppnuð. Allt útlit sýningarinnar er veisla fyrir augað og vankantcir rýmisins eru nýttir til ávinn- ings, svo sem í lýsingu. Leikarahópurinn er samstæður og leikstíllinn sem lagt er upp með heldur vel alla sýninguna. Úr sýningu LA á Undir berum himni. Arnar Jónsson, Þráinn Karlsson og Eva Signý Berger í hlutverkum sínum. Myndina tók Páll A. Pálsson. Undlr berum himni, sýningin í heild. (Leikfélag Akureyrar, Renniverkstæði) Undir berum himni gerist á vígvelli þar sem öll sund virðast lokuð, en engu að síður streitast saklaus fórnarlömb styijaldarinnar við að halda lífi. Við uppsetninguna á Renni- verkstæðinu tekst að skapa nöturlegar að- stæður, sem hæfa leikritinu fullkomlega. Þrá- inn Karlsson og Arnar Jónsson eiga stjömu- leik í aðalhlutverkrmum og leikmynd Magn- úsar Pálssonar er sannkallað umhverfislista- verk. Sýningin er gegnumvönduð. Benedikt Erlingsson, Ormstunga, ástar- saga (Ormstunga i Skemmtihúsinu við Lauf- ásveg) Frammistaða Benedikts í Ormstungu er einkar athyglisverð. Þó að leikur hans sé ag- aður, geislar hann af krafti, sem helst mætti líkja við einhvers konar fmmkraft. Benedikt hefur gott vald á list leikarans og tvinnar saman af úthugsaðri leikni söguþráð og inn- skot úr ólíklegustu áttum. Hæfni hans til að túlka ólíkar persónur og mismunandi aðstæð- ur nýtur sín til fullnustu. Svanurinn slæst viö útvarpstækiö. Ingvar E. Sigurðsson í hlutverki sínu. DV-mynd Pjetur Ingvar E. Sigurðsson, Svanurinn (Annað svið í samvinnu við Leikfélag Reykjavíkur) Ingvar hefur frá fyrstu tíð sýnt óvenjulega fjölhæfni sem leikari og Svanurinn er enn einn sigur á ferli hans. Hann „er“ einfaldlega svanurinn. Togstreitan milli eðlisþátta manns og fugls er frábærlega útfærð og fyrir vikið verður „persónan" tragísk. Nærvera Ingvars er óvenjulega sterk allt verkið út í gegn. Lík- amstjáning hans er einstök og sjaldgæft að leikarar hafi jafn fullkomna stjórn á þvi marg- brotna tæki sem líkaminn er. í nefndinni sátu: Halldóra Friðjónsdóttir, Oddur Bjömsson og Auður Eydal Allt er fertugum fært Á fertugsafmælistónleikum Kammermúsíkklúbbsins á sunnu- dagkvöldið lék Bemardel- kvartett- inn þrjú verk; Strengjakvartett | Haydns í G-dúr ópus 77, nýjan strengjakvartett eftir Jón Nordal og Strengjakvartett nr. 13 í B-dúr ópus 130 eftir Beethoven. Strax í upphafi gaf leikur Bemardel fyrirheit um góða og gefandi kvöldstund. Haydn- kvartettinn var leikinn með mikl- 1 um glæsibrag, af öryggi og krafti. Léttleikinn var í fyrirrúmi, styrk- leikabreytingar einstaklega fallega mótaðar; hendingar risu og hnigu á músíkalskan máta og samspilið var afar gott. Bemardel-kvartettinn vex með hverju viðfangsefni og var leik- urinn í kvartett Haydns með því allra besta sem hér heyrist. Augljóst var að tónleikagestir biðu fmmflutnings á kvartetti Jóns Nordals með eftirvæntingu. Kvar- tettinn er þríþættur, en öfugt við viðtekna hefð er hraður þáttur í miðjunni, umlukinn tveimur hæg- um þáttum. Hver þeirra ber ljóð- ræna yfirskrift auk hraðamerking- Tónlist Bergþóra Jónsdóttir anna, og em heitin fengin úr Sökn- uði, ljóði Jóhanns Jónssonar. Verk- ið hófst á angurværu stefi sem sell- óið kynnti; stefi sem gekk í gegnum upphafsþáttinn eins og rauður þráð- ur. Með þessu stefi var tónninn gef- inn; tónn angurværðar sem var þó ekki blandin depurð eins og stund- um er, heldur miklu frekar sætleika gamals unaðstrega. Tónmál verks- ins er fremur hómófónískt, þar sem raddimar eru ekki að keppa hver við aðra, heldur styðja hver aðra í samhljómi sem er þéttur og spennt- ur, en umfram allt hlýr og ljóðrænn. Fegurð er einkennisorð þessa verks og víst að það á eftir að heyrast oft um ókomin ár. Kammermús- íkklúbbnum skal þakkað frnrn- kvæðið að fá tónskáldið til að semja þetta verk. Bemardel-kvartettinn lék vel og átti sinn þátt í áhrifamik- illi upplifun. Lokaverkið á tónleikunum, kvart- ett Beethovens nr. 13 ópus 130, er eitt af kunnustu verkum kammer- tónlistarinnar; sex þátta bálkur sem á sinni tíð þótti svo torskilinn og hrjúfur að tónskáldiö þurfti að sníða siðasta þáttinn af og semja nýjan. Þannig öðlaðist Stóra fúgan sjálfstætt líf; - en í staðinn lauk Beethvoen-verkinu með laufléttum dansþætti. Verkið er reyndar fullt af dansi, auk lokaþáttarins bæði annar þátturinn, prestó, og fjórði þátturinn, þýskur dans, og erfitt að skilja í dag, hvað það var, sem þótti svona framandi við þessa tónsmíð. Bemardel lék verkið af krafti og drift, þó herslumuninn vantaði á að það væri með sama bravúr og sömu fágun og leikurinn í Haydnkvartett- inum í upphafi tónleikanna. Bernar- del- kvartettinn spilar ekki í nein- um hálfkæringi; gefur allt í flutn- inginn, og þegar svo er, er gaman að hlusta. 40 ára afmælistónleikar Kammermúsíkklúbbsins voru til marks um að afmælisbaminu heils- ist vel og eigi bjarta daga fyrir höndum. Tónleikar Bernardel-kvartettsins hjá Kammermúsíkklúbbnum í Bú- staðakirkju, 23. febrúar 1997. Flytj- endur: Zbigniew Dubik og Greta Guðnadóttir fiðlur, Guðmundur Kristmundsson víóla og Guðrún Sigurðardóttir selló. Bernardel-kvartettinn. Vandaöur flutningur. Mynd: Gunnar L. Jónasson Þessi mynd af listaverkinu Auö göng og rauöar traöir eftir Kristján Guö- mundsson birtist í blaöinu á mánudaginn meö greininni Ut pictura theoria eftir Ólaf Gíslason myndlistargagnrýnanda. Þá var myndin meö lituöum ramma sem ekki á heima meö listaverkinu, því er hún birt aftur til leiörétting- ar. Listaverkiö hangir uppi í Gallerí Ingólfsstræti 8 sem er opið fimmtudaga til sunnudaga kl. 14-18.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.