Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.1997, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.1997, Blaðsíða 14
14 FIMMTUDAGUR 6. MARS 1997 Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: EVJÓLFUR SVEINSSON Ritstjóri: JÓNAS KRISTJÁNSSON Aðstoðarritstjóri: ELlAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjóri: PÁLL STEFÁNSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLTI 11,105 RVÍK, SlMI: 550 5000 FAX: Auglýsingar: 550 5727 - RITSTJÓRN: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5999 GRÆN númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777 Stafræn útgáfa: Heimasíða: http://www.skyrr.is/dv/ Ritstjórn: dvritst@centrum.is - Auglýsingar: dvaugl@centrum.is. - Dreifing: dvdreif@centrum.is AKUREYRI: Strandgata 25, sfmi: 462 5013, blaðam.: 462 6613, fax: 4611605 Setning og umbrot: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Filmu- og plötugerð: ISAFOLDARPRENTSMIÐJA HF. - Prentun: ÁRVAKUR HF. Áskriftarverð á mánuði 1700 kr. m. vsk. Lausasöluverð 150 kr. m. vsk., Helgarblað 200 kr. m. vsk. DV áskilur sér rétt til aö birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og f gagnabönkum án endurgjalds. Kerfið skóp arðinn Samkvæmt greinum Sigurðar Líndal lagaprófessors í DV hefur Alþingi ekki tekizt sú ætlun að koma í veg fyr- ir, að úthlutuð veiðileyfi verði eign útgerðarfélaga. Hann telur orðalag um þetta efni í fyrstu grein laga um stjórn fiskveiða stangast á við stjómarskrána. Sigurður Líndal telur, að atvinnuréttindi á borð við rétt til nýtingar fiskistofna njóti verndar eignaréttar- ákvæða í stjómarskránni, þótt atvinnuréttur feli ekki í sér fullgildan eignarétt. Þessa atvinnuréttar hafi útgerð- armenn aflað sér með nýtingu almannaréttar. Sigurður telur ennfremur, að sjómenn hafi ekki aflað sér slíks réttar, þar sem þeir hafi tekið laun fyrir störf sín. Útgerðarmenn hafi hins vegar hætt fjármunum sín- um í ótryggan rekstur á eigin ábyrgð og áhættu og séu því handhafar atvinnuréttar til fiskveiða í sjó. Sigurður telur samt, að Alþingi geti sett atvinnurétti takmörk, sett reglur um kvótaviðskipti og skattlagt at- vinnuréttinn, auk þess sem það geti afnumið kvótakerf- ið og gefið veiðar frjálsar. En hann spyr, með hvaða rök- um eigi að skattleggja kvótaréttinn sérstaklega. Þvi er til að svara, að ríkið hefur búið til atvinnuverð- mæti með kvótakerfinu. Ef veiðar væru frjálsar eins og þær voru í gamla daga, hefði ofveiðin gengið miklu lengra, afli væri snöggtum minni og afkoma útgerðar hörmuleg. Þetta ástand hefur kvótakerfið hindrað. Það er því aðgerðum ríkisvaldsins að þakka, að afkoma er bærileg í sjávarútvegi um þessar mundir. Ef ofurfram- tak útgerðarmanna hefði verið eitt um hituna, væru flest fyrirtæki þeirra fyrir löngu gjaldþrota. Ríkið hefur hing- að til ekki sent útgerðarmönnum reikning fyrir þetta. Ríkið getur sagzt hafa sjálft framleitt arðinn í sjávar- útvegi með sértækum aðgerðum á borð við kvótakerfið og geti því skattlagt arðinn með sértæku veiði- leyfagjaldi. Með því að notfæra sér ekki þessa málsaðild er ríkið óbeint að mismuna skattgreiðendum í landinu. Alþingi getur sett lagaákvæði um, að ríkinu beri sér- stakt gjald fyrir að hafa framleitt hagkvæmni í sjávarút- vegi með sértækum hætti. Um leið getur Alþingi auðvit- að hnykkt á þeirri skoðun þingmanna, að þjóðin eigi auðlindina og að ríkisvaldið fari með það umboð. Alþingi getur meira að segja sett lög um, að útboð veiðileyfa komi í stað skatts. Það getur sagt, að útboð skerði ekki atvinnurétt útgerðarmanna, því að þeir megi bjóða í leyfin að vild og þannig áfram tekið áhættuna, sem löngum hefur fylgt atvinnurétti í útgerð. Ekki mætti takmarka útboð veiðileyfa við þá, sem þeg- ar eru í útgerð, því að þar með væru aðrir aðilar hindr- aðir í að afla sér atvinnuréttar á sama hátt og menn öfl- uðu sér atvinnuréttar fyrir tíð kvótakerfis, með því að leggja í íjárfestingar og aðra áhættu. Ef kvótakerfi væri lagt niður og hafin útboð veiðileyfa á skilgreindu aflamagni, væri endurvakinn hinn almenni atvinnuréttur, sem áður gilti, en um leið spillt þeim rétti, sem kann að hafa myndazt í tíð kvótakerfisins. Líklegt er, að greiða þyrfti útgerðinni bætur vegna þessa. Af öllu þessu má ráða, að eignarhald á auðlindum hafsins er ekki einfalt mál, en samt ekki flóknara en svo, að Alþingi og ríkisstjóm geta komið fram þeim meiri- hlutavilja þjóðarinnar, að greitt verði fyrir þau forrétt- indi að fá að stunda arðbæra útgerð hér við land. Enda er svo komið, að stjómarmenn í sumum stærstu útgerðarfyrirtækjum landsins eru farnir að mæla með hóflegu afgjaldi til að mynda þjóðarsátt um málið. Jónas Kristjánsson íslensk afbrot eru annaö hlátursefni en útlend, segir m.a. í grein Guöbergs aö þessu sinni, íslensk siðfræði Hvert er viðhorf okkar til hegð- unar og siðferðis manna, annars en þess sem varðar kynlif? Þetta var góð spurning segðu margir og vildu svara svo öllum líki. Það er engin spurning að íslenskur ein- staklingshyggjumaður kemur með sín svör fyrir alla, svari hann nokkru. íslenskir dólgar og erlendir í byrjun nóvember á liðnu ári barst frétt um dólg í Rússlandi sem drap í kirkjugarði félaga sem fylgdu öðrum úr glæpagengi. Það fannst mörgum vera fólskuverk en hagkvæmt og jafnvel sniðugt, því hægt var að jarða hinn myrta á staðnum. „Stutt fyrir morðingja í Rússlandi að fara með fómarlömb- in,“ sagði fólk í forkaupum fyrir jólin og hafði þær skýringar að þjóðin hafði verið undir hælnum á kommúnistum. Það mótar siðferði og viðhorf. Nokkru síðar kom sú frétt, að drengir hefðu skor- ið félaga sinn á háls á leiðinni úr safhaðarheimili kirkju í Reykjavik. „Þetta eru meiri fósarnir," sagði fólk og hló. „Einhvern tímann verða þeir góðir.“ íslensk afbrot eru annað hlátursefni en útlend og flestir töldu þetta vera barnaskap og óvitahátt. Hvort tveggja virðist fylgja okkur á grafar- bakkann, svo ef ís- lenskur dólgur hefði verið að verki í nefndum kirkju- garði, hefði ódæðið flokkast eftir því. @.mfyr:Stúlkan og negrinn Fyrir nokkru fékk íslensk stúlka í Kaupmannahöfn átta ára dóm fyrir eitur- lyfjasmygl. Hjón sem léttu sér upp á balli ræddu um dóminn á milli dansa, um- ræðna um veðrið, hverjum dóttursonur þeirra ætlaði að líkj- ast og hvers vegna Kartöfluprinsessan hefði ekki farið til Noregs með Ólafi forseta og frúnni, hannyrða- konu sem prjónar peysur kvenna best og stoppar ágætlega í sokka. Öll voru sammála um að stúlk- an hefði leiðst út í eitthvað sem hún vildi ekki sjálf. Það sannaðist að hún fór í sólbað i Ríó og gleymdi næstum hass- inu. Samt fékk hún jafn þungan dóm og negrinn sem spanaði hana upp í smyglið. Að láta leiða sig til að gera skammarstrik einkennir íslenskt sakleysi. Svo hjónin vonuðu að stúlkan yrði send heim, ekki væri hægt að halda henni hér í fangelsi, hún væri síst verri en aðrir, öll þjóðin sæti í steininum fyrir afbrot ef dönsk ólög fengju að ráða. Ástríður stráksa Þetta er númer eitt, tvö og þrjú í viðhorfl okkar til afbrota - ann- arra - sjálf erum við saklaus en treystum öðrum. Það er engin spurning. En bæta má við fjórða atriðinu frá Austíjörðum um strák sem lagði næstum bæli Alla ríka í eyði, því ástríður hans rústuðu staðinn eftir að hafa orðið sundurorða við kærustuna. Sem er ekki orð á ger- andi af því hvorki er hægt að flokka lætin undir einelti né kyn- ferðislegt áreiti við löggu með lyft- ara. Guðbergur Bergsson „Öll voru þau sammála um að stúlkan hefði leiðst út í eitthvað sem hún vildi ekki sjálf. Það sannaði að hún fór í sólbað í Ríó oggleymdi næstum hassinu. “ Kjallarinn Guðbergur Bergsson rithöfundur Skoðanir annarra Islenzk hugbúnaðargerð „Enginn vafi er á því, að íslenzk hugbúnaðargerð er ört vaxandi atvinnugrein og útflutningur þegar farinn að skila verulegum tekjum í þjóðarbúið. Ljóst er hins vegar, að ákveðinn flöskuháls er í skólakerf- inu, sem gerir að verkum, að atvinnulífið fær ekki nægjanlegan fjölda menntaðs starfsfólks og þá ekki sízt tölvufyritækin. Laun í þessari atvinnugrein eru yfirleitt há og þvi eðlilegt, að ungt fólk leiti þangað.“ Úr forystugrein Mbl. 5. marz. Breytt viðhorf „Það viðhorf hefur lengst af verið ríkjandi hér, að verkalýðshreyfingin eigi að setja fram miklu hærri kröfur en gert er ráð fyrir að samið verði um. Þótt þess verði vart, að enn eimi eftir af þessum hugsun- arhætti, þá er enginn vafi á að þessi viðhorf hafa breyst á síðustu árum. Eftir að stöðugleikinn náðist, sem allir finna að er forsenda aukins kaupmáttar, telja flestir að skynsamlegast sé að setja fram kröfur sem byggðar eru á þeim grunni, að sem mest trygg- ing sé fyrir því að þær leiði til aukins kaupmáttar, ef samið er á grundvelli þeirra.“ MLS í 2. tbl. VR-blaðsins. Kristnihátíðin - drjúgur skildingur „Allir kristnir menn eiga eðlilega að koma að há- tíðarhöldunum árið 2000, hver á sinn hátt. ... í raun er hér verið að fagna stærstu tímamótum í sögu ís- lensku þjóðarinnar, svo samofm er kirkjan þjóðinni þessi þúsund ár, og óumdeilt að hún hefur haft mik- il áhrif á alla þróun íslensks samfélags.... Það er al- veg ljóst að Kristnitökuhátíðin mun kosta drjúgan skilding. En hátiðin mun án efa verða íslendingum sem og gestum okkar eftirminnileg." Júlíus Hafstein í Degi-Tímanum 5. mars.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.