Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.1997, Síða 2
2
FIMMTUDAGUR 3. APRÍL 1997
Fréttir
Hafnarverkamenn í Sundahöfn:
Vilja íslenska áhöfn á
skip í stað Vikartinds
- íhuguðu að vinna ekki við þýskt leiguskip með erlenda
„Hafnarverkamenn vilja, og
styöja þar Sjómannafélag Reykja-
víkur, að íslenskar áhafnir séu á
millilandaskipunum. Þeir eru nú
með kröfur um að islensk áhöfh
verði á því leiguskipi sem kemur í
stað Vikartinds. Ég veit til þess að
hafnarverkamenn hafa verið að
reyna að fá yflrlýsingu þess efnis
frá Eimskip en gengið heldur tregt,“
sagði Ágúst Þorkláksson, trúnaðar-
maður Dagsbrúnar í Sundahöfn, í
samtali við DV.
Hann staðfesti að á þriðjudaginn
hefði verið rætt um það meðal
hafnarverkamanna að vinna ekki
við þýskt leiguskip með erlendri
áhöfn sem er í Sundahöfn. Eftir
einhver fundahöld var hætt við
þetta, ekki síst fyrir það að skipið
verður tímabundið í íslandssigl-
ingum.
Hafnarverkamenn íhuguðu að neita að vinna við þetta þýska leiguskip
vegna þess aö það er mannað erlendri áhöfn. Þeir hurfu þó fró því en krefj-
ast þess að áhöfn þess skips sem kemur í stað Vikartinds verði íslensk.
DV-mynd BG
áhöfn í Sundahöfn
Jónas Garðarsson, formaður Sjó-
mannafélags Reykjavikur, sagðist
kannast við það að hafnarverka-
menn hefðu ætlað að neita að vinna
við þetta þýska skip.
„Þetta umrædda skip er bara
einn Vikartindurinn enn með Asíu-
búum í áhöfn að mestu. í hvert sinn
sem við ræðum við þá hjá Eimskip
um þessi mál er svarið að stefna fé-
lagsins sé að hafa íslenskar áhafnir
á skipunum. Svarið er að verða
ósköp þvælt og má nefna sem dæmi
að nú eru 3 skip hjá félaginu með
erlendum áhöfnum," segir Jónas
Garðarsson.
Það er greinilegt að krafan um ís-
lenskar áhafnir á millilandaskipin
hefur fengið byr undir báða vængi
við hið makalausa strand Vikart-
inds á Þykkvabæjarfjöru í síðasta
mánuði. -S.dór
Akureyri:
Birgðu sig
upp af áfengi
DV, Akureyri:
Fimm menn um tvítugt á Akur-
eyri töldu sig heldur betur hafa kom-
ist í feitt í gærmorgun þegar þeir
stálu úr flutningabifreið 7 kössum af
áfengi og 4 kössum af bjór, en send-
ingin var ætluð ÁTVR á Akureyri.
Lögreglan handtók mennina
grunaða xun ölvunarakstur og að
aka án ökuréttinda. í framhaldi af
því var gerð húsleit á heimili eins
þeirra og fannst þá þýfið úr flutn-
ingabifreiðinni. Mennirnir viður-
kenndu sök sína við yfirheyrslur í
gær og var sleppt lausum í gær-
kvöld, en þrír þeirra eru svokallað-
ir góðkunningjar lögreglunnar. -gk
Borgarnes:
Sex ára
stúlka lést
Sex ára gömul stúlka lést í
bílslysi í Borgamesi í gærmorgun.
Stúlkan var farþegi í bíl sem móð-
ir hennar ók. Bíllinn hafnaði á
ljósastaur skammt frá vegamótun-
um til Ólafsvíkur en tildrög slyssins
eru ekki að fullu ljós, að sögn lög-
reglu. Móðir stúlkunnar slapp án
teljandi líkamlegra meiðsla. -RR
Haröur árekstur varð á Kjalarnesi um klukkan 20 í gærkvöld. Ökumaður pallbíls missti stjórn á bílnum í mikiili hálku
með þeim afleiðingum að hann snerist ytir á öfugan vegarhelming og í veg fyrir jeppabifreið sem kom úr gagnstæöri
átt. Þrennt var flutt á siysadeild og í rannsókn þar. Ekki fengust upplýsingar um líðan fólksins i morgun. Bóðir bíl-
arnir eru mjög mikið skemmdir eftir áreksturinn. DV-mynd S
Þrennt slasaðist
Þrennt slasaðist í mjög hörðum
árekstri tveggja bifreiða í Ljósavatns-
skarði í S-Þingeyjarsýslu í gær.
Bílamir, sem voru að mætast,
skullu saman af miklu afli. Talið er
að bílstjórnar hafi blindast í miklu
kófi. Fólkið var flutt á Fiórðungs-
sjúkrahúsið á Akureyri og er líðan
þess eftir atvikmn góð. -RR
Hrafn Jökulsson kæröur fyrir ritstuld:
Aldrei kynnst slíkum ódrengskap
- segir Pálmi Jónasson blaðamaður
„Ég var beðinn um að vinna flók-
ið og viðamikið verkefni sem ég
gerði samviskusamlega en ritstjór-
Þú getur svarað þessari
spurningu meö því að
hringja i síma 9041600.
39,90 kr. mínútan
Jé
Nal
j rödd
FOLKSINS
904 1600
Í1K
Var páskaþáttur
Spaugstofunnar guðlast?
Tr
inn kaus að eigna sér einum heiður-
inn af allri þessari vinnu. Ég hef
starfað sem blaðamað-
ur hér heima og er-
leiidis í 7 ár og hef
aldrei kynnst slíkum
vinnubrögðum eða
ódrengskap sem þess-
um. Mér finnst reynd-
ar að jafn reyndur
blaðamaður og Hrafn
eigi ekki að þurfa að
skreyta sig með stoln-
um fjöðrum," segir
Pálmi Jónasson blaða-
maður en hann hefúr
kært Hrafn Jökuls-
son, ritstjóra Mann- ... ..............
lífs, til siðanefndar Hrafn Jokulsson kæröur.
Blaðamannafélagsins
fyrir ritstuld. að fjalla
Kæruefnið er forsíðuúttekt í
2. tbl. 1997, þar sem fjallai
Franklín Steiner. Kærai
hefur verið lögð fran
og mun siðanefm
Blaðamannafélags-
ins taka hana fyrir i
fundi sínum nk
mánudag.
„Aðalatriði í þessi
máli er þó að hér ei
um faglegt prófmá
að ræða fyrir stétt
ina sem ég tel mikils
vert að fá úr skorið
Ég hef verið undii
miklum þrýstingi fr:
kollegum mínun
sem telja þetta fá
dæma vinnubrögi
sem nauðsynlegt si
um faglega," segir Pálmi.
Akureyri:
Bruggverk-
smiðju lokað
DV, Akureyri:
Rannsóknarlögreglan á Akm’-
eyri gerði húsleit í tveimur hús-
um í bænum um páskana, og
hafði hendur í hári manna sem
brugguðu áfengi.
Á öðrum staðnum var fram-
leiðsla i gangi og þar var lagt
hald á 150 lítra af gambra og um
50 lítra af landa. Grunur er um
að sá sem þar var að verki hafi
selt landa en það er ekki sannað.
I hinu tilfellinu var lagt hald á
eimingartæki og viðurkenndi
eigandi þeirra að hafa notað
tækin en sagðist vera hættur
þeirri starfsemi. -gk
LÍN-málið:
Bankarnir sjái
um samtíma-
greiðslur
Menntamálaráðherra er með tilbú-
ið frumvarp um hið viðkvæma LÍN-
mál, sem svo hefur verið nefnt, þá
mánuði sem átökin um þetta mál hafa
staðið yfir milli stjórnarflokkanna.
Framsóknarmenn kröfðust þess
að Lánasjóður íslenskra náms-
manna tæki upp samtímagreiðslur
til námsmanna í stað greiðslna í lok
anna. í frumvarpinu gerir mennta-
málaráðherra ráð fyrir að bankam-
ir taki upp greiðslur til námsmanna
frá því að þeir hefja nám. Samtímis
fái þeir styrki úr LÍN til að standa
straum af fjármagnskostnaði vegna
þessa. Einnig að samið verði við
bankana um þau skilyrði, sem lán-
takendur með LÍN-ábyrgð, þurfa að
uppfylla.
I frumvarpinu er einnig gert ráð
fyrir að endurgreiðsluhlutfall
námslána lækki úr 7 prósentum nið-
ur í 4,75 prósent. Þetta var önnur
aðalkrafa framsóknarmanna.
Loks stendur til að íjölga í stjóm
LÍN í 8 manns. Iðnnemar fái aðal-
mann í stað áheymaifulltrúa og
menntamálaráðherra fái einn full-
trúa til viðbótar. -S.dór
Stuttar fréttir
Lög um vogrek
Dómsmálaráðherra ætlar að
láta endurskoða lög um skip-
strönd og vogrek í kjölfar
strands Vikartinds. Hann segir
óþolandi að ágreiningur um
lagatúlkun tefji hreinsunarað-
gerðir. RÚV sagði frá.
90 þús. kr.
lágmarkslaun
Fiskvinnsla Jakobs Valgeirs og
verkalýðsfélagið í Bolungarvik
hafa samið um 90 þúsund króna
lágmarkslaun, sem er 20 þúsund
krónum yfir því sem Dagsbrún
samdi um. RÚV sagði frá.
Leitað að gulli
Leitað verður að gulli á 10
svæðum í sumar. Hlutafélagið
Melmi, sem leitar gulls á ís-
landi, leitar að hlutafé erlendis,
að sögn Morgunblaðsins.
Hreppasameining kærð
Kosning um sameiningu Tungu-
Jökuldals-, og Hlíðarhreppa hefur
verið kærð. íbúar Tunguhrepps
felldu sameiningartillöguna en íbú-
ar hinna samþykktu.
Vantar útvarpsleyfi
Formaður útvarpsréttar-
nefndar segir í Viðskiptablað-
inu að Póstur og sími þurfi út-
varpsleyfi til að senda út sjón-
varpsefhi í hús um ljósleiðara.
Talsmenn Fjölmiðlunar hf. sem
á og rekur Stöð 2 og Sýn segja í
Morgunblaðinu að útsendingar
P&S vegi að viðskiptahagsmun-
um Fjölmiðlunar hf. -SÁ