Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.1997, Page 5

Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.1997, Page 5
FIMMTUDAGUR 3. APRIL 1997 5 Fréttir Atkvæðagreiðslu 47 félaga innan VMSÍ á að vera lokið 14. apríl: Erfið staða ef einstök félög fella samningana - hvert félag sem fellir tekur þá viö samningsgerðinni, segir Snær Karlsson „Það er misjafnt hvenær atkvæðagreiðsla fer fram í verkalýðsfélög- unum um nýju kjara- samningana. Henni á þó að vera lokið í síðasta lagi 14. apríl næstkom- andi. Það verður ekki talið úr sameiginlegum potti heldur hjá hverju félagi fyrir sig þannig að einhver félög geta því fellt samningana. Fari svo verða þau félög sem fella að taka við samn- ingsgerðinni sjálf og ljúka henni,“ sagði Snær Karlsson, framkvæmda- stjóri Verkamannasam- bands íslands, í samtali viö DV. Innan Verkamanna- samhandsins eru 52 fé- lög. Dagsbrún og Fram- sókn stóðu sáman og sér í samningunum, þrjú fé- lög á Vestfjörðum standa sér. Það eru því 47 verka- lýðsfélög sem fólu aðal- samninganefnd Verka- mannasambandsins að semja fyrir sig. Sam- Einu sinni stýrði Ásmundur Stefánsson, fyrrverandi forseti ASÍ, kjarasamningagerð fyrir Alþýðusamband íslands í Karphúsinu. Nú er hann í Karphúsinu í samninganefnd bankanna gegn bankastarfsmönnum og kann eflaust fræðin. Hér ræðir hann við Þóri Einarsson rík- issáttasemjara. DV-mynd Hilmar Pór kvæmt lögunum um stétt- arfélög og vinnudeilur, frá i vor, verða félögin að boða kjörfund, alveg burt séð frá hve fjölmenn þau eru eða hversu auðvelt er að ná til félagsmanna. Snær var spurður hvort menn óttist ekki að verk- föll hjá verkalýðsfélögun- um á Vestfjörðum, sem ekki voru með hinum í samningunum, og hærri launakröfur þeirra geti haft þau áhrif að einhver verkalýðsfélög felli samn- ingana. „Ekki hafa menn merkt það hér. Frekar að menn horfi með ugg til þess hvemig verkfallinu reiði af hjá þeim á Vestfjörðum. Það virðist allt vera í mol- um og hvert félagið á fæt- ur öðra að fresta boðuðu verkfalli. Það sýnist ljóst að það hafi ekki verið samstaða á Vestfjörðum fyrir því að berjast fyrir hærri kröfum,“ sagði Snær Karlsson. -S.dór Iðjusamningurinn í atkvæðagreiðslu um allt land: Ég legg til að þessi samningur verði felldur - segir Aðalsteinn Baldursson, formaður VH DV, Akureyri: Samningur Iðju, Landssambands iðnverkafólks, og Vinnuveitenda- sambands íslands er nú til kynning- ar og atkvæðagreiðslu hjá Iðjufélög- um víðs vegar um land en atkvæði verða talin á öllum kjörstöðum á landinu nk. fóstudag. Mikil óánægja er víða með samninginn og ekki óraunhæft að ætla að hann verði víða felldur. „Ég mun leggja til á fundi Iðjufé- laga hér á Húsavík að þessi samn- ingur verði felldur og vonandi verð- ur það gert bæði hér og annars stað- ar,“ segir Aðalsteinn Baldursson, formaður Verkalýðsfélags Húsavík- ur. Þar verður kynning og atkvæða- greiðsla um samninginn í kvöld en Iðjufélagar á Húsavík tilheyra Verkalýðsfélagi Húsavíkur. „Menn vora gáttaðir á þessum samningi þegar frá honum var gengið og ég trúi ekki að það iðn- verkafólk sem er á hvað slökustu kjöranum muni samþykkja þennan samning. Þessi samningur er verri en aðrir samningar sem gerðir hafa verið, þar era t.d. engar tryggingar og ákvæði um fleytitíma sem heim- ilar að dagvinna sé unnin á bilinu 7-19 og þama eru „prinsippmál" sem menn era ósáttir við. Að mínu mati er tónninn sá að þessi samn- ingur verði felldur víðs vegar um land, enda er hánn mun lakari en samningurinn sem Verkamanna- sambandið gerði,“ segir Aðalsteinn. Iðjusamningurinn snertir hátt í 50 manns á Húsavík en þeir starfa flestir hjá Mjólkursamlagi og kjöt- vinnslu Kaupfélags Þingeyinga. -gk Atkvæðagreiðslu í Iðju að ljúka: Viðbúinn því að samn- ingarnir verði felldir - segir formaður sambandsins „Ég hef ekki trú á því að þau átök sem verkalýðsfélögin á Vest- fjörðum standa nú í hafi eitthvað að segja varðandi atkvæðagreiðsluna um kjarasamningana í Iðjufélög- unum. Átökin fyrir vestan gætu haft áhrif á atkvæðagreiðsluna inn- an Verkamannasambandsins. Ég er hins vegar alveg viss um að þegar stóra samninganefnd Dagsbrúnar felldi nýundirritaða samninga hafði það áhrif á Iðjufólk. Þess vegna er ég alveg jafnviðbúinn því að samn- ingarnir veröi felldir," sagði Guð- mundur Þ. Jónsson, formaður Iðju, landssambands iðnverkafólks, í samtali við DV, en atkvæðagreiðsl- unni lýkur á morgun, 4. april. Guðmundur sagði að atkvæða- greiðslan væri póstkosning. Sendir hefðu verið út á milli 1700 og 1800 atkvæðaseðlar. f gær voru komnir til baka á milli 700 og 800 seðlar. Samkvæmt nýju lögunum um stétt- arfélög og vinnudeilur þurfa minnst 20 prósent félagsmanna að taka þátt í atkvæðagreiðslu til þess að hægt sé að fella kjarasamninga. Sé þátt- takan minni og meirihlutinn á móti teljast samningamir samt sam- þykktir. -S.dór „Öko-System" sparar allt aS 20% sápu Taumagn: 5 kg VindingarhraSi: 1000 og 700 snúninga UKS kerfi: Jafnar tau í tromlu fyrir vindingu Variomatik vinding: Sérstakt vindingarkerfi fyrir viSkvæman þvott og ull Ullarkerfi: Ullarvagga; ullinni vaggaS „Bio kerfi" Fuzzy-logig: Sjálfvirk vatnsskömtun eftir taumagni, notar aldrei meira vatn en þörf er á Aukaskolun: Sér hnappur, skolar fjórum sinnum í staS þrisvar ...bjóðum við mest seldu AEGþvottavélina á íslandi á sénstöku afmælisverði Þýskt vörumepki þýskthugvR þýsk fpamleiðsla Þriggja Ara ÁBYRGÐ A ÖLLUM AEG ÞVOTTAVÉLUM Umboðsmenn: ■75.UUX- Eitt verð kr: B R Æ Ð U R N I— R Lágmúla 8 • Sími 533 2800 Vesturland: Málningarþjónustan Akranesi, Kf. Borgfiröinga, Borgarnesi. Blómsturvellir, Hellissandi. Guöni Hallgrímsson, Grundarfiröi. Ásubúð.Búðardal. Vestfirðir: Geirseyrarbúöin.Patreksfirði. Rafverk, Bolungarvík.Straumur.ísafiröi.Noröurland: Kf.Steingrímsfjaröar.Hólmavík. Kf. V-Hún., Hvammstanga. Kf. Húnvetninga, Blönduósi. Skagfiröingabúð.Sauöárkróki. KEA byggingavörur, Lónsbakka, Akureyri.KEA, Dalvík. KEA, Siglufiröi Kf. Þingeyinga, Húsavík.Urö, Raufarhöfn. Austurland: Sveinn Guðmundsson, Egilsstööum. Kf. Vopnfirðinga, Vopnafiröi.Verslunin Vík, Neskaupstað. Kf. Fáskrúðsfiröinga, Fáskrúðsfiröi. KASK, Höfn. Suðurland: Mosfell, Hellu. Árvirkinn, Selfossi. Rás, Þorlákshöfn. Jón Þorbergs, Kirkjubæjarklaustri. Brimnes, Vestmannaeyjum. Reykjanes: Stapafell, Keflavík. Rafborg, Grindavík.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.