Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.1997, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.1997, Blaðsíða 8
8 FIMMTUDAGUR 3. APRÍL 1997 Útlönd Netanyahu, forsætisráöherra ísraels, undirbýr fund meö Bill Clinton: Ætlar að verja réttinn til frekari nýbygginga Benjamin Netanyahu, forsætisráð- herra ísraels, ræðir hugsanlega við Hussein Jórdaníukonung í Banda- ríkjunum í næstu viku áður en hann heldur til fundar við Bill Clinton Bandaríkjaforseta í Washington. „Það er hugsanlegt að forsætisráð- herrann muni verða við beiðni Hus- seins um að hitta hann á sjúkrahús- inu i Minnesota, þar sem hann gengst undir aögerð, á leið sinni frá ísrael til Washington," sagði tals- maður Netanyahus í morgun. Fundur Netanyahus með Clinton á mánudag er liður í viðleitni banda- rískra stjómvalda til að bjarga frið- arferlinu í Mið-Austurlöndum sem Benjamin Netanyahu, forsætisráö- herra ísraels. Símamynd Reuter er í uppnámi eftir að Netanyahu heimilaði framkvæmdir við nýja byggð gyðinga í arabíska hluta Jer- úsalem. Á fundinum mun ísraelski forsætisráðherrann verja rétt gyð- inga til að reisa sér nýjar byggðir. Netanyahu sagði í gær að ísraels- menn mundu ekki hefja friðarum- leitanir á ný á meðan Palestinumenn héldu áfram sprengjutilræðum sín- um. Arabar segja aftur á móti að ísraelsmenn verði að taka fyrsta skrefið og stöðva framkvæmdirnar í Jerúsalem. „Ekki er hægt að ræða frið á með- an sprengjur springa á kaffihúsum og í strætisvögnum eða á meðan börn eiga það á hættu að hryðju- verkamenn sprengi þau í tætlur," sagði Netanyahu við fréttamenn í gær. Nokkrum klukkustundum áður hafði bensínsprengju verið varpað að ísarelskum strætisvagni á Vest- urbakkanum. Vagninn valt og ellefu hermenn slösuðust. James Baker, fyrrum utanríkis- ráðherra Bandaríkjanna, gagnrýndi stjóm Clintons í gær fyrir að hafa í tvígang beitt neitunarvaldi sínu gegn ályktunum Öryggisráðs SÞ þar sem ísraelar voru hvattir til að stöðva byggingaframkvæmdirnar umdeildu. Reuter Átök brutust út í gær í Minsk í Hvíta-Rússlandi milli lögreglu og sjálfstæðissinna sem mótmæltu samkomulaginu um ríkjasamband viö Rússland. Slmamynd Reuter Mótmæli í Minsk vegna ríkjasambandsins við Rússa: Átök milli lögreglu og sjálfstæðissinna Forsætisráð- herra Albaníu til Grikklands Bashkim Fino, forsætisráð- herra Albaníu, hittir fulltrúa Evr- ópusambandsins og Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu (ÖSE), þá Hans van Mierlo, utan- ríkisráðherra Hollands, og Franz Vranitzky, fyrrum kanslara Aust- urríkis, að máli í Grikklandi í dag til að fara yfir áform um að senda erlenda friðargæsluliða til Alban- íu. Háttsettur grískur embættis- maður sagði í gær að koma yrði tafarlaust í veg fyrir að sfjórn- leysið í Albaníu breiddist út ef friður ætti að ríkja á Balkanskaga. Fino kom til Grikklands í gær og ræddi lengi dags við Costas Simitis forsætisráðherra. Nokkrir helstu ráðherrar úr þjóðstjórn Al- baníu munu ræða við gríska starfsbræður sína. Væntanlegir kviðdómendur í samviskuglímu Hugsanlegir kviðdómendur í málinu gegn Timothy McVeigh, sem er ákærður fyrir sprengjutil- ræðið í Oklahoma fyrir tveimur árum þar sem 168 týndu lífl, þurftu að glíma við samvisku sína í gær þegar þeir voru spurð- ir hvort þeir gætu dæmt aðra manneskju til dauða. Ýmsir kandídatar þurftu að skoða hug sinn vandlega á meðan aðrir sögðu fullum fetum að það mundi ekki valda þeim neinu hugarangri. Flestir viðurkenndu að þeir hefðu nú í fyrsta sinn þurft að hugsa af alvöru um dauðarefsingar. Reuter Aðeins nokkrum klukkustundum eftir aö Borís Jeltsin Rússlandsfor- seti og Alexander Lukasjenko, for- seti Hvíta-Rússlands, skrifuðu undir sáttmála um ríkjasamband efndu um fjögur þúsund sjálfstæöissinnar til mótmæla i Minsk. Til átaka kom milli lögreglu og mótmælenda eftir að um tvö þúsund þeirra síðar- nefndu héldu til rússneska sendi- ráðsins. Lögreglan beitti kylfum til að hindra göngu mótmælenda en þeir köstuðu hins vegar grjóti að lögregl- unni. Að sögn sjónarvotta særðust nokkrir í átökunum. Um hundrað manns voru handteknir. Breytingar voru gerðar á sam- komulaginu á síðustu stundu vegna andstöðu umbótasinna í Rússlandi. Bæði ríkin halda fullu sjálfstæði sínu og var Lukasjenko sjálfur óánægður með að lýðveldin tvö skyldu ekki sam- einast alveg. Frjálslyndir Rússar höfðu lýst yfir andstöðu sinni við ríkjasamband þvi þeir telja að Rússar hafi nóg með sín eigin vandamál. Mót- mælendumir í Minsk óttast að Hvíta- Rússland missi sjálfstæði sitt með samkomulaginu við Rússland. Reuter Stuttar fréttir pv Óvinur í ráöherrastól Helsti andstæöingur Mobutus Saírforseta, Etienne Tshisekedi, fékk í gær aftur fyrra starf sitt sem forsætisráðherra Saír. Rússar pynta Mannréttindasamtökin Am- nesty Intemational fordæma það sem þau kalla útbreiddar og kerf- isbundnar pyntingar rússnesku öryggislögreglunnar. Nýjar sannanir Hvíta húsið birti í gær skjöl sem sýna að mikill þrýstingur var á Bill Clinton Bandaríkj aforseta að afla fjár fyrir kosningabarátt- una í fyrra. Emb- ættismenn flokks- ins þrýstu á Clint- on, A1 Gore vara- forseta og Hillary Clinton að hringja beint í væntanlega gefend- ur. Forsetinn var ekki hrifmn af tillögunum og minnist þess ekki að hafa hringt. ETA á bak viö árásir Aðskilnaðarhreyfing Baska á Spáni, ETA, hefur lýst yfir ábyrgð á fimm árásum á undanfornum mánuðum, þar á meðal morðinu á hæstaréttardómara. Fangar flýja Fangar í Brasilíu létu lausa gísla sem þeir höfðu tekið gegn því að fá aíhent vopn og bíla. Tólf fangar flúðu síðan úr fangelsinu með nokkra gísla. Óttast ilm Dularfull lykt, sem minnir á ódýrt ilmvatn, fyllti vit manna í skrifstofubyggingu í Texas. Tugir voru fluttir á sjúkrahús og hund- ruð flúðu bygginguna. Enginn árangur Samningamönnum í Perú tókst ekki að ná árangri í viðræðum í gær við skæruliða sem halda 72 gíslum föngnum. Lofar vernd Newt Gingrich, forseti fulltrúa- deildarinnar á Bandaríkjaþingi, sem var í heim- sókn í Taívan í gær, lofaði eyja- skeggjum því að Bandarikjamenn myndu finna lausn til að vernda þá gegn árásum Kínverja. Gingrich sagði einnig að lýðræðið á Taívan væri góð fyrirmynd fyrir Kína. Efnahagur í ólestri Nýr íjármálaráðherra Suður- Kóreu viðurkenndi í morgun að efnahagur landsins væri í mikl- um ólestri vegna viðskiptahalla, ókyrrðar á vinnumarkaði, gjald- þrota og stjórnmálakreppu. Gegn veiöibanni Veiðimenn í Bretlandi og aðrir þeir sem hafa lifibrauð sitt af veiðum villtra dýra stofnuðu stéttarfélag í gær til að berjast gegn öllum tilraunum til að banna veiðar. Reuter UPPBOÐ Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins að Skógarhlíð 6, Reykjavík, sem hér seglr, á eft- irfarandl elgnum: Asparfell 4, 3ja herb. íbúð á 7. hæð, merkt E, þingl. eig. Gísli R. Sigurðsson og Ólöf Lilja Stefánsdóttir, gerðarbeið- andi húsbréfadeild Húsnæðisstofnunar, mánudaginn 7. apríl 1997 kl. 10.00. Asparfell 8, 4ra herb. íbúð á 2. hæð, merkt B, þingl. eig. Elín Áróra Jónsdótt- ir, gerðarbeiðandi D.N.G. ehf., mánudag- inn 7. apríl 1997 kl. 10.00. Bergþórugata 29, 2ja herb. íbúð á 1. hæð t.h., þingl. eig. Jósef Rúnar Magnússon, gerðarbeiðandi íslandsbanki hf., útibú 526, mánudaginn 7. april 1997 kl. 10.00. Bíldshöfði 18, 010103, atvinnuhúsnæði, þriðja eining frá austurenda 1. hæðar, 333,5 fm, þingl. eig. Víkurós, bílamálun, gerðarbeiðandi Gjaldheimtan í Reykja- vík, mánudaginn 7. apríl 1997 kl. 10.00. Fannafold 87, þingl. eig. Sveinn Hall- dórsson, gerðarbeiðandi Byggingarsjóður ríkisins, mánudaginn 7. apríl 1997 kl. 10.00. Fálkagata 25, 3ja herb. íbúð á neðri hæð auk viðbyggingar vestan húss og 1/2 lóð merkt 0102, þingl. eig. Sigurður Jónsson, gerðarbeiðandi Húsbréfadeild Húsnæðis- stofnunar, mánudaginn 7. apríl 1997 kl. 10.00. Flúðasel 67, 5 herb. íbúð á 3. hæð, merkt B, þingl. eig. Magnús Valur Albertsson og Guðný Guðmundsdóttir, gerðarbeið- andi Gjaldheimtan í Reykjavík, mánu- daginn 7. apríl 1997 kl. 13.30. Grýtubakki 12, 3. hæð t.v., merkt 3-1, þingl. eig. Elín Óskarsdóttir, gerðarbeið- andi Sameinaði lífeyrissjóðurinn, mánu- daginn 7. apríl 1997 kl. 13.30. Krummahólar 8, 6 herb. íbúð á 6. og 7. hæð, merkt C, þingl. eig. Margrét Hlín Sveinsdóttir, gerðarbeiðendur Bygging- arsjóður ríkisins, Gjaldheimtan í Reykja- vík og Krummahólar 8, húsfélag, mánu- daginn 7. apríl 1997 kl. 13.30. Lágaberg 1, þingl. eig. Úlfar Þorláksson, gerðarbeiðandi íslandsbanki hf., útibú 515, mánudaginn 7. apríl 1997 kl. 10.00. Ljósvallagata 18, rishæð merkt 0301, þingl. eig. Guðrún A. Kristjánsdóttir, gerðarbeiðandi húsbréfadeild Húsnæðis- stofnunar, mánudaginn 7. apríl 1997 kl. 10.00. Logafold 48,1. hæð ásamt tvöföldum bíl- skúr, þingl. eig. Linda Dís Guðbergsdótt- ir, gerðarbeiðendur Gjaldheimtan í Reykjavík og íslandsbanki hf., höfuðst. 500, mánudaginn 7, apríl 1997 kl. 10,00. Melsel 12, 1. og 2. hæð m.m., þingl. eig. Hinrik Greipsson, gerðarbeiðandi hús- bréfadeild Húsnæðisstofnunar, mánudag- inn 7. apríl 1997 kl. 13.30. Selbraut 44, Seltjamamesi, þingl. eig. Guðmundur Öm Ragnarsson, gerðarbeið- endur Byggingarsjóður ríkisins og Líf- eyrissjóður starfsm. ríkisins, mánudaginn 7. apríl 1997 kl, 10,00.________________ Skaftahlíð 4,71,3 fm íbúð íkjallara m.m., þingl. eig. Sesselja Sveinsdóttir, gerðar- beiðandi Ingvar Helgason hf., mánudag- inn 7. apríl 1997 kl. 10.00. Snæland 8, íbúð á 2. hæð t.h. m.m., þingl. eig. Ólöf Guðleifsdóttir, gerðarbeiðandi Húsasmiðjan hf„ mánudaginn 7. apríl 1997 kl. 10.00. Suðurhólar 20, 3ja herb. íbúð á 2. hæð, merkt 0204, þingl. eig. Jósep Kristjáns- son og Ásrún Sæland Einarsdóttir, gerð- arbeiðandi Gjaldheimtan í Reykjavík, mánudaginn 7. apríl 1997 kl. 10.00. Vesturgata 5A, 1/2 fasteignin, þingl. eig. Jarðvegur ehf., gerðarbeiðandi Fis sf„ mánudaginn 7. apríl 1997 kl. 13.30. Vesturgata 55, íbúð á 4. hæð til vinstri, merkt 0401 m.m„ þingl. eig. Gísli Ámi Böðvarsson, gerðarbeiðandi Byggingar- sjóður ríkisins, mánudaginn 7. apríl 1997 kl. 13.30.___________________________ Æsufell 2, 4-5 herb. íbúð á 4. hæð merkt D, ásamt tilh. sameign og leigulóðarrétt- indum, þingl. eig. Skúli Magnússon, gerðarbeiðandi Lífeyrissjóður starfsm. ríkisins, mánudaginn 7. apríl 1997 kl. 13.30._______________________________ SÝSLUMAÐURINN í REYKJAVÍK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.