Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.1997, Page 11
FIMMTUDAGUR 3. APRÍL 1997
Fréttir
11
10 ofurhugar í hættulegri jeppaferð:
Einn jeppinn valt
niður snarbratta hlíð
- en allir komust heilir á leiðarenda
„Þetta var alveg mögnuð ferö.
Leiðin er mjög erfið og reyndar
stórhættuleg. Við komumst allir
heilir á leiðarenda þrátt fyrir ýmsa
erflðleika og erum stoltir af því. Við
vitum ekki til þess að nokkur hafi
keyrt þessa leið fyrr,“ segir Guð-
mundur Símonarson en hann fór
ásamt 9 öðrum ungum ofurhugum í
hættulega jeppaferð á páskadag.
Félagamir fóru frá Heydalsvegi
upp í Kerlingarskarð og keyrðu all-
an tímann eftir fjallgarðinum. Ferð-
in tók um 10 klukkustundir. Leið-
angursmenn fóru á flmm jeppum og
voru tveir í hverjum jeppa.
„Við lentum í alls konar hremm-
ingum á leiðinni. Einn jeppinn valt
niður snarbratta hlið. Strákamir
sem í honum vom sluppu alveg
ómeiddir og það var mikið lán.
Jeppinn er mjög mikið skemmdur
eftir veltuna. Við keyrðum á snjó-
brúm yfir nokkrar ár þarna. Jepp-
amir biluðu á leiðinni en sem betur
fer höfðum við mikið af varahlutum
og gátum gert við jafnóðum. Þetta
er algert ævintýri að fara í svona
ferð og gefur manni mikið,“ segir
Guðmundur. -RR
Börnin í leikskólanum taka viö safnkassanum af Helga Halldórssyni, bæjarstjóra á Egilsstöðum DV-mynd sigrún
Leikskólabörn á Egilsstöðum:
Safna lifandi rusli
DV, Egilsstöðum:
„Vitið þið hvað á að gera við
þessa kassa?“
„Já, setja í þá rusl.“
„Hvemig rasl?“
„Lifandi."
„Og skríður það þá sjálft upp í
kassann?"
„Nei, við hendum því upp í.“
Þetta skemmtilega samtal átti sér
stað þegar bæjarstjórinn á Egils-
stöðum, Helgi Halldórsson, afhenti
bömunum á leikskólanum tvo safn-
kassa að gjöf frá bænum. Greinilega
var búið að kenna bömunum allt
um hvemig á að nota safnkassa og
þau lofuðu að vera dugleg að safha
lifandi rasli, en bæjarstjórinn
áminnti þau um að gleyma ekki að
borða matinn sinn í ákafanum. Það
voru þrjár litlar skólastúlkur sem
tóku við kössunum, þær Kristín,
Kolbrún og Anna Berglind.
LOLin
KOPAVOGS#
Snælandsskóli - 200 Kópavogur
Tölvunámskeið:
WORD fyrir byrjendur og
kynning á WINDOWS 95
EXCEL fyrir byrjendur
Matreiðslunámskeið:
Gómsætir bauna-, pasta- og
grænmetisréttir.
Trjáklippingar
Trölladeig
Innritun í símum 564 1507 og
564 1527 kl. 18.00-21.00.
staðgreiðslu-
og greiðslukortaafsláttur oWmill lhlrr)inSo
og stighœkkandi
Smáaugiýsingar
birtingarafsláttur
DV
550 5000
í BOÐI KRAKKAKLÚBBS DV OG STJÖRNUBÍÓS
í tilefni af 5 ára afmæli Krakkaklúbbs DV
bjóða klúbburinn og Stjörnubíó öllum
Krakkaklúbbsfélögum í bíó
á myndina Gullbrá og birnirnir þrír.
Krakkaklúbbssýningar verða alla laugardaga og sunnudaga í
apríl, kl 15. Miðar verða afhentir á laugardögum hjá DV,
Þverhotti 11. frá kl 10-14. Hver félagi fær tvo bíómiða.
Munið að koma með Krakkaklúbbsskírteinin.
’ A V"
WBIft
r
IJLOMKAR!
Þeir sem geta ekki nýtt sér
bíómiðana fá í staðinn
gómsætan Kjöríshtunk.
Ávísanir á Kjöríshlunkana
verða afhentar hjá
umboðsmönnum DV
um land allt.
Afhendingartími
á hverjum stað verður
auglýstur í DV
þriðjudaginn 8. aprit.