Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.1997, Page 24
32
FIMMTUDAGUR 3. APRÍL 1997
Sviðsljós
DV
enfiíTHRH'
DVfilfiTUUIflHH
Fjörkálfinum í DV á lasludögum
• MíJflHíWLflflflflHH
Á Bylgjunnl á fimmludögum kl. 20
og endurlliiltur á
laiigardögum kl. 16
i(Oflí(iTOTÖHIHH
Dennis Farina og Bette Midler í
sínu fínasta pússi.
Öllum leið svo
ósköp vel á
fnunsýningu
Afskaplega vel fór um nokkur
hundruö frumsýningargesti
myndarinnar That Old Feeling
vestur í Hollywood að kvöldi
annars dags páska, enda ástin í
fyrirrúmi eins og á RÚV sama
kvöld. Gestir voru boðnir hjart-
anlega velkomnir til sýningar-
innar og voru leiddir eftir hvít-
um dregli inn i salinn sem var
skreyttur tjulli og fogrum blóm-
um. Eins og heiti myndarinnar
ber með sér fjallar hún um end-
umýjaðar ástir fólks á miðjum
aldri. Aðalhlutverkin leika þau
Dennis Farina og Bette Midler.
Meðal frægra gesta á fmmsýn-
ingunni vom m.a. Tom Selleck
og Barbara Hershey.
Faðir Macaulays gafst
upp í forræðisdeilunni
Leikkonan Brooke Shields og ofurfyrirsætan Claudia Schiffer létu sig ekki vanta
í opnunarveislu mikillar sýningar á skrautmunum frá hinum fræga skartgripa-
framleiðanda Cartier. Munirnir á sýningunni í Metropolitan listasafninu í New
York eru frá árunum 1900 til 1939 þegar Louis Cartier stjórnaði fyrirtækinu.
Rúmlega 200 hlutir eru til sýnis og verða það til 3. ágúst. simamynd Reuter
Faðir Macaulays Culkins, stjöm-
unnar í Home Alone myndunum,
hefur látið undan í harðvítugri og
langri forræðisdeilu við móður
hans. Dró faðirinn, Christopher
„Kit“ Culkin, sig í hlé áður en rétta
átti í málinu fyrir hæstarétti á Man-
hattan í New York. Macaulay er eitt
sjö bama Kits og Patriciu Brentrap
sem voru sambýlisfólk.
Deila þeirra um forræði yfir
bömunum sjö hefur staðið síðan
1995. Patricia sakaði Kit um að
reyna að eyðileggja leiklistarferil
bamanna. Hún sakaði einnig fyrr-
um sambýlismann sinn um óhóflega
drykkju og líkamlegt ofbeldi. Kit
Macaulay Culkin.
bar hins vegar á Patriciu að hún
leyfði bömunum að sjá um sig sjálf.
Lögfræðingur Kits, Donald
Frank, lýsti því yfir að faðir bam-
anna hefði gefið eftir forræðið þar
sem hann vildi hlífa fjölskyldunni.
„Hann var að reyna að bjarga fjöl-
skyldunni," sagði Frank.
Patricia brosti breitt er hún frétti
af breyttri afstöðu Kits. „Þetta er
mikill léttir. Ég ætla að fara heim
að fagna með bömunum mínum,“
sagði Patricia er hún kom úr dóm-
húsinu á Manhattan í vikunni.
Sjálfur hafði Macaulay tilkynnt
að hann vildi heldur búa hjá móður
sinni. Að undanfömu hafa birst
blaðafregnir um að Macaulay, sem
er orðinn stálpaður táningur, hafi
stundum sést drukkinn og illa til
reika á götum New York-borgar.
Hann lék í tveimur Home Alone
myndum og einnig í kvikmyndinni
Richie Rich og hefur þénað um 17
milljónir dollara fyrir leik sinn.
í fyrra vom foreldrar Macaulays
sviptir umsjón með fjármálum pilts-
ins. Að sögn dómara var efnahagur
Culkin fjölskyldunnar svo slæmur
að hún átti á hættu að vera borin
út. Dómarinn sagði það oft hafa
komið fyrir að fjölskyldan borgaði
ekki leigu af ibúðinni sem hún leig-
ir á Manhattan í New York.
Mynd um nunnur á eyðieyju:
Winona veit
ekkert um
karlpeninginn
Bandaríska leikkonan Winona
Ryder hefur mikinn hug á að leika
nunnu sem ekkert veit um heiminn
í dag eða karlmenn. Nunna þessi
heldur til, ásamt tveimur stallsystr-
um sínum, í yfirgefhu klaustri á
hitabeltiseyju þar sem smjör drýpur
af hverju strái og þær una glaðar
við sitt. Dag nokkurn kemur hins
vegar prestur nokkur, maður sem
hefur tekið alla nýjustu tækni í sína
þágu og tileinkað sér nútímahug-
myndir, og gerir tilkall til eyjarinn-
ar fyrir hönd páfa. Nunnumar vita
ekki sitt rjúkandi ráð en þær em
ekki á því að gefast upp baráttu-
laust. Sú barátta verður ekki háð
með hnúum og hnefum, heldur hug-
myndum og sá sigrar sem vitið hef-
ur meira.
Winona Ryder.
Burt Reynolds gjaldþrota og
skuldar tæpan milljarð
Kvikmyndaleikarinn Burt
Reynolds, sem er orðinn 62 ára,
hefur verið lýstur gjaldþrota.
Kappinn er sagður skulda hvorki
meira né minna en tæpan milljarð
íslenskra króna, að sögn erlendra
slúðurblaða. Þau greina einnig frá
því að því miöur hafi hann ekki
sömu möguleika og Fergie, her-
togaynjan af Jórvik og fyrram eig-
inkona Andrésar prins, til að
lappa upp á fjárhaginn. Hún þyk-
ir nefhilega enn þá spennandi og
fyrirtæki hafa boðið henni dágóð-
ar fúlgur fyrir að auglýsa vörur.
i