Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.1997, Page 2
16
FÖSTUDAGUR 4. APRÍL 1997 T^V
Topplagið
Hljómsveitm U2 situr með lag
sitt, Staring at the Sun, í efsta
sætinu þriðju vikuna í röð og
ætti það að koma fáum á óvart.
Lagið rauk beint í toppsætið
fyrstu viku sína á lista og má telj-
ast líklegt að það láti það ekki
eftir baráttulaust.
Hástökkið
Það er enginn annar en
spænski hjartaknúsarinn frá
Malaga, Antonio Banderas, sem
á hæsta nýja lagið. Það er High
Flying, Adorer úr kvikmynd-
inni Evitu sem stekkur upp í 14.
sætið. Flestir vissu um leikhæfi-
leika kappans en nú þykir sann-
að mál að sönghæfileikar hans
séu engu síðri.
Hæsta nýja lagið
Hæsta nýja lagið á listanum
þessa vikuna er Encore Une Fols
með Sash en það rýkur beint upp
í 10. sæti listans. Ekki slæmur
árangur þar.
Oasis græðir mest
Síðan Oasis gaf út fyrstu smá-
skífu sína (Supersonic) í apríl
1994 hefur hún halaö inn hálfan
milljarð króna. Það gerir sveit-
ina tekjuhaestu „nýju“ rokk-
hljómsveit Breta frá byrjun.
Morrissey vanstilltur
Þó Morrissey (fyrrverandi
söngvari The Smiths) hafi ekki
klárað nýju plötuna sina er búið
að ákveða útgáfúmánuö og nafh
á gripinn. Hún á að heita Mala-
djusted og ef allt gengur sam-
kvæmt áætlun þá á platan að
koma út í september næstkom-
andi. Fyrsta smáskifan kemur
hins vegar út í ágúst og mun
heita Alma Matters. Aðrir
lagatitlar eru Roy’s Keen og Sat-
an Rejected My Soul. Upptöku-
stjóri á plötunni er gamaÚ sam-
starfsmaður Morrissey, Steve
Lillywhite.
A
I
b o ð i
B y I g j u n n i
Kynnir: ívar Gudmundsson
Listinn er niðurstaða skoðanakönnunar sem framkvæmd er af markaðsdeild DV i hverri
viku. Fjöldi svarenda er á bilinu 300 til 400, á aldrinum 14 til 35 ára, af öllu landinu. Jafnframt er tekið mið afspilun þeirra á íslenskum útvarpsstöðvum. Islenski listinn
J ‘ J* B-.i-t.í—n., •»« ««------------------•* L rjum föstudegi i DV. Listinn er iafnframt endurflutturá Bylgjunni á hverjum laugardegi kl.
Islenski listinn tekur þátt i vaíi „World Chart" sem framleiddur er af Radio Express 7Los
tónlistarblaðinu Music & Media sem er rekið af bandariska tónlistarblaðinu Billboard.
Yfirumsjón meö skoðanakönnun: Halldóra Hauksdóttir - Framkvæmd könnunar: Markaðsdeild DV * Tölvuvinnsla: Dódó - Handrit heimildaröflun og
yfirumsjón með framleiðslu: Ivar Guðmundsson -Tæknistjórn og framleiðsla: Þorsteinn Ásgeirsson og Þráinn Steinsson - Útsendingastjórn: Ásgeir Kolbeinsson
og Jóhann Johannsson - Kynnir: Jón Axel ólafsson