Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.1997, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.1997, Blaðsíða 3
FÖSTUDAGUR 4. APRÍL 1997 ic w ilr * - *' tónlist 17 Michael Jackson hefur unn- niö áfangasigur í dómsmáli sem hann er sakbomingur í á Ítalíu. í þetta skipti snýst mál- ið ekki um unga drengi held- ur var hin fóla ofurstjama sökuð um aö hafa stolið lagi ítala nokkurs, A1 Bano , 'psJJÍJ vjjíiijjjjuj" Carrisi. Carrisi þessi er höfund- ur að laginu I Cigni Di Balaka (Svanirnir í Balaka) og kœröi Jackson fyrir lagastuld að áeggj- an sonar síns. Sonur Carrisi taldi að augljóst væri að hlutar úr laginu Will You Be there (smellur af plötu Jacksons, Dan- gerous) væm stolnir. Jackson neitaði þessu harðlega og dómar- arar í undirrétti í Róm vom sammála hinum lipra og bam- góða söngvara. Jackson mun gefa út nýja plötu er kallast Blood on the Dance Floor- HlStory in the Mix þann 22. apríl næstkomandi vest- anhafs. Platan inniheldur fjögur ný lög og endurhljóðblönduö lög af HlStory (sem er nýjasta plata Jacksons). Fyrsta smáskífan, Blood on the Dance Floor, er þeg- ar farin að hljóma erlendis. Einnig er fariö að sýna mynd- bandiö en Jackson leikstýrir því ásamt Vincent Paterson en Pa- terson þessi var dansahöfúndur myndarinnar um Evitu. HLJÓMPLðTU Kinks-Tothe Bone Lopinn teygður Kinks sendi fyrst frá sér plötuna To the Bone fyrir þremur árum. Þetta var ein- fold, þrettán laga plata. Tek- ið var upp i Konk-stúdíói hljómsveitar- innar og á tón- leikum, ýmist órafmagnað eða i sambandi með allt á útopnu. Nýlega kom platan aft- ur út, nú tvö- föld, með tutt- ugu og níu lög- um og er hún ætluð aðdáendum í Vesturheimi. Lög gömlu útgáfúnnar era nánast öll á fyrri plötu Ameríkuútgáf- unnar, að Waterloo Sunset frátöldu. Það veikir þann hlut verulega aö sleppa því lagi, einhverri bestu tónsmíö Rays Davies. Seinni plat- an fyllir vissulega upp í myndina en í raun og vera var maður al- veg búinn að átta sig á því hvemig Kinks hljómar lágstemmd eftir að hafa hlustað á fyrri plöúnia. Gallharðir aðdáendur Davies- bræðra og undirleikara þeirra fagna eflaust tvöfóldu To the Bone útgáfunni. Hinrnn nægir alveg sú gamla frá 1994, meö Waterloo Sunset sem besta lag plötunnar. Ásgeir Tómasson Jan Johansson Jazz paa ungerska/ln pleno Einn þekkt- asti djasspíanó- leikari Svíþjóð- ar, Jan Johans- son, lést í bílslysi árið 1968, aðeins 39 ára að aldri. Hann hafði þá hljóðritað um 20 hljómplötur í eigin nafni auk ýmissa annarra, leikið með fjölda frægra djass- leikara víða um heim og skrifað músík fyrir sjónvarp. Hér á landi er hann trúlega kunnast- ur sem höfundur lagsins mn Línu langsokk og fyrir plötuna „Jazz paa svenska" sem oft var leikinn á Gufunni á árum áður. Hann gerði líka plötumar „Jazz paa ryska“ og „Jazz paa ungerska" sem hefur nú verið endurútgefm á geisladiski ásamt plötunni „In pleno“. Ungversku þjóðlögin era Qutt af úrvali sænskra djasspilara og fiðlu- leikaranum danska, Svend Asmussen. Eitt af þessu lögum er „Bara en Qicka“ sem betur er þekkt hér á landi undir heitinu „Til era fræ“ og hefur löngum verið talið fmnskt en á greinilega ættir að rekja til Ungverjalands. „In pleno“ geymir lög eftir Johansson, Omette Coleman, Georg Riedel (sem leikur á plötunni) og Qeiri og er gott dæmi um hversu góða djassmúsík Johansson og hans Qinku félagar, Rune Gustafs- son, Egil Johansen, Palle Danielsson og Qeiri vora að búa til fyrir 33 áram. - Báðir helmingamir á geisladiskinum era einstaklega ljúf- ir, hvor á sinn hátt, og óhætt að mæla með þessum tveimur sígildu plötum sem hér era í einum pakka. Ingvi Þór Kormáksson Áður en Johnny Rotten og félagar í hljómsveitinni Sex Pistols sögðu öllum og öllu að fara til fjandans í lögum eins og God Save the Queen og Anarchy in the UK hafði pönkið lengi ólgað „neðanjarðar" í klúbb- um New York borgar allan áttunda áratuginn. Þá tróðu upp sveitir eins og Richard Hell, Blondie, Patti Smith, the Ramones, the B-52s og Talking Heads. Nú hefur verið gefin út bók í Bandaríkjunum sem kall- ast: „Blank Generation Revisited: The Early Days of Punk Rock“. Lenny Kaye, sem var gítarleikari í pönksveitinni the Patti Smith Group, skrifar formála að bókinni en í henni er að finna fjölda mynda frá þessu sérkennQega tónlistar- tímabili. Blúsjöfur gefur út Breski blúsarinn John Mayall hefúr verið að í þrjá áratugi. Á ferl- inum hefur hann mótað (og kennt) tónlistarmönnum eins og Eric Clapton, Peter Green, Mick Taylor (úr Rolling Stones), John McVie, Mick Fleetwood. Mayall hefur ákveðið að stíga aftin- í sviðsljósið og gefa út nýja plötu sem hann kall- ar „Blues for the Lost Days.“ Platan kemur út þann 15. apríl. Tónleikar í garðinum Garth Brooks er söluhæsti sóló- isti i Bandaríkjunum. Hann mun gefa út nýja plötu þann 7. ágúst sem ber vinnuheitið „Sevens." Þann sama dag mun hann halda risatón- leika í Central Park í New York. Ekki verður selt inn á tónleikana og er jafnvel búist við að Qeiri muni sækja tónleika Brooks en tónleik- ana sem Paul Simon hélt í Central Park árið 1991. Þá er talið að um 600 þúsund manns hafi mætt í Central Park. Væntingar til BIG Rapparinn Cristopher Wallace (betur þekktur sem rapparinn BIG er veginn var á dögunum) gæti vel slegið met næst þegar Billboard-list- inn verður birtur þann 12. apríl. Þannig er að nú er BIG í 176. sæti með plötu sina Life after Death en þann 12. apríl er fasQega búist við að platan stökkvi upp í fyrsta sæti á bandaríska Billboard breiðskífulist- anum. Það myndi slá rokkurunum í Pearl Jam við en þeir stukku upp úr 173. sæti listans upp í það fyrsta í desember 1994 með plötu sína, Vita- logy. Það er stærsta stökk sem plata hefur náð á bandaríska Billboard breiðskífúlistanum. Höfundur IfYou Don't Know Me by now látinn Stofnandi sálarsveitarinnar Harold Melvin & the Blue Notes, Harold Melvin, lést á dögunum. Hann kom hljómsveit sinni fjórum sinnum í efsta sæti á bandaríska smáskífulistanum á áranum 1972- 1975. Meðal laga sem sveitin kom í fyrsta sæti var lagið If You Don’t Know Me by now sem Simply Red tók upp á sína arma fyrir nokkrum árum við gífurlegar vinsældir. Óþarfa áhyggjur af Glastonbury Aðstandendur Glastonbury tón- leikahátíðarinnar, sem haldin verð- ur í Bretlandi dagana 27. til 29. júní, hafa ekki undan að svara fyrir- spumum fólks sem óttast að ekki séu til nægilega margir miðar á há- tíðamar. Orðrómur hefur gengið um að uppselt sé á hátíðina en hann mun vera úr lausu lofti gripinn. Meðal þefrra sem talið er að muni koma fram era Paul Weller, Neil Young, The Smashing Pumpkins, The Prodigy, The Bluetones, Ash, Ocean Colour Scene, Kula Shaker, Radiohead, Sheryl Crow og Van Morrison. Aðstandendur Glaston- bury vonast til þess að fá leyfi til þess að selja hundrað þúsund miða á hátíðina. Áhugasamir geta hringt í 0839 668 899 til að fá upplýsingar. Andar léttar Todmobile og fegurðin Hinir góðkimnu meðlimir Todmobile leika fyrir fogur Qjóð og gesti laugardagskvöldið 5. april þegar hljómsveitin leikur á fegurðarsamkeppni Suðumesja í félagsheimilinu Stapa í Njarðvík. Mikið verður um dýrðir og hefst dansleikurinn að lokinni krýningu eða QjóQega upp úr miðnæQi. Yfir strikið í Eyjum Gleðisveitin Yflr strikið heldur uppi fjörinu á Lundaninn í Vestmannaeyjum þessa helgina, bæði í kvöld og annað kvöld. Þeir félagar spila almenna danstónlist með blöndu af soul, rokki og blús. Sannkallaðir stórtónleikar Áhugamannafélagið Sígræna stendur fyrir tónleik- um í kvöld, fóstudagskvöld, í Rosenberg. Hér er um að ræða öðravísi skemmtikvöld en þau munu koma til með að verða haldin að minnsta kosti einu sinni í mánuði. Að þessu sinni koma fram þijá frábærar íslenskar hljómsveitir, Stolía, sem sló svo eftirminnUega í gegn á Músíktilraununum 1995, Andhéri, sem fór á kost- um nú í ár, og svo bjartasta vonin í íslensku tónlist- arlífi, hin víðfræga Botnleðja. Dagskráin hefst kl. 23.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.