Dagblaðið Vísir - DV - 04.04.1997, Blaðsíða 5
tás&jS^GUR 4. APRÍL 1997
Þrjátíu ár voru liðin í síðasta
mánuði frá því að norður-írska ry-
þmablúshljómsveitin Them var
nánast þurrkuð út af kortinu. Þá
gerði söngvari hljómsveitarinnar
plötusamning fyrir sjálfan sig við
Bang Records, sló í gegn í eigin
nafhi með laginu Brown Eyed Girl
nokkrum vikum síðar, hefur ætíð
síðan sent frá sér hverja plötuna á
fætur annarri, sumar meistaraverk,
aðrar bara góðar. Plötumar eru
orðnar samtals tuttugu og átta og fá
teikn eru á lofti um að söngvarinn
ætli að sefjast í helgan stein á næst-
unni. Listamaðurinn norður-írski
er vitaskuld Van Morrison. Platan
hans númer tuttugu og átta, The
Healing Game, er nýkomin í versl-
anir hér á landi. Hún er sú fyrsta
sem hann sendir frá sér síðan hann
skelfdi trausta aðdáendur sina árið
1995 með eins konar virðingarvotti
við djasstónlist sjötta áratugarins,
plötunni Days Like This. Nú er
Morrison hins vegar kominn á
kunnuglegar tónlistarlegar slóðir.
Flest eru lögin tíu á plötunni af-
fíJÖjjjJUijJÖÍ
★★★
Older - George Michael:
Platan er lyllilega samboöin fólki sem
kann aö meta þaegilega hljómandi og
vel samansettar iagltnur. -AT
★★★
Fjall og fjara - Anna Pálína og Að-
alsteinn Ásberg:
Þetta er jassskotin vísnatónlist meö
tangóívafi á köflum; ákaflega einlæg
og stílhrein. Allir textarnir eiga þaö
sameiginlegt aö vera I mjög háum
gæöaflokki, vel samdir og innihaldsnk-
ir. Fjall og tjara er vönduö og góö plata
sem á alla athygli skiliö. -SÞS
★★■i
All This Useless Beauty - Elvis
Costello:
Hér er á feröinni ein besta plata
Costellos síöan Imperial Bedroom
kom út 1982. All This Useless Beauty
er í fáum oröum sagt firnasterk plata
þar sem saman fara frábærar laga-
smíöar og fiutningur í hæsta gæöa-
flokkiSÞS
★★★
Mersybeast - lan McNabb:
Þaö er sama hvar boriö er niöur,
hvergi er veikan punkt aö finna; hvert
lagiö er öðru betra og þetta er besta
rokkplata ársins þaö sem af er. -SÞS
★★★-i
Ledbetter Heights - Kenny Wayne
Shepard:
Kenny Wayne er kornungur, hvítur
strákur sem afsannar þaö aö hvítir
geti ekki leikiö blús enda hlaöa gamlir
blúshundar hann lofi. Tónlistin er rokk-
skotinn gítarblús í anda Stevie Ray
Vaughans og ef hann heldur rétt á
spilunum gæti Kenny Wayne orðiö arf-
taki Stevie Ray. -SÞS
★★★
Lesters Bowie Brass Fantasy-The
FireThisTime:
Rutningurinn spannar marga stíla og
kynslóðir í djassi. Tónlistin vill stund-
um hljóma dálítiö tómleg í neöri reg-
istrum, þar sem túba gefúr ekki sömu
fyllingu og rafmagns- eöa kontrabassi,
en þaö venst bærilega. Það er nóg af
góöri tónlist hér en þaö er uppáfinn-
ingasamúr gleöskapur sem er T fýrir-
rúmi frekar en nákvæmni.-IÞK
Van Morrison er aftur kominn á kunnuglegar slóðir á plötunni The Healing Game.
slappaðir ópusar, blanda af rokki,
soultónlist og ryþmablús. Með öðr-
um orðum dæmigerð Van Morri-
sonplata. Eitt lag sker sig reyndar
nokkuð úr. Piper at the Gates of
Dawn er útsett í hefðbundnum írsk-
um þjóðlagaanda. Hér er ekki um
að ræða samnefiit lag úr smiðju
Pink Floyd heldur nýja tónsmíð
Morrisons sem syngur það og leik-
ur á gítar. Það sem gefúr laginu þó
fyrst og fremst sjarma er flautuleik-
ur Paddys Maloneys, forsprakka
hljómsveitarinnar Chieftains. Leið-
ir hans og Morrisons hafa óhjá-
kvæmilega legið nokkrum sinnum
saman á löngum tónlistarferli
beggja og er útkoman ætíð eftirtekt-
arverð þegar þeir vinna saman.
Van Morrison hefur kvatt til
nokkra aðra víðkunna tónlistar-
menn til að hljóðrita með sér lögin
á The Healing Game. Fyrstan skal
frægan telja Georgie Fame sem leik-
ur á Hammondorgel í fimm lögum.
Blásturshijóðfæraleikarar setja
einnig sterkan svip á plötuna og fer
saxófónleikarinn Pee Wee Ellis
mikinn í flestum lögum plötunnar,
blæs jöfnum höndum í barítón- og
sópransax og útsetur gjaman blást-
urinn. Bakraddasöngvarar hafa
einnig getið sér góðan orðstír á
ýmsum vígstöðvum, Katie Kissoon,
Brian Kennedy og fyrmefhdur Ge-
orgie Fame. Öll tíu lögin á plötunni
em að sjálfsögðu eftir Van Morri-
son og hann stýrði sjálfur upptök-
um.
Verkamaður hjá Hooker
Van Morrison lætur til sín taka
víðar en á eigin plötu um þessar
mundir. Skömmu áður en The Heal-
ing Game kom út sendi hin
aldraði blúsmeistari, John
Lee Hooker, frá sér nýjustu
skífu sína, Don’t Look Back.
Morrison stýrði upptökum á
tíu af ellefu lögum plötunn-
ar. Hann syngur dúett með
Hooker í fjórum lögum,
þeirra á meðal bráð-
skemmtilegri útgáfu lagsins
The Healing Game sem er
sem sagt að finna á báðum
plötunum. Van Morrison
viðraði þá hugmynd fyrst
fyrir um það bil áratug að
vinna plötu með John Lee
Hooker. Atvikin höguðu því
hins vegar þannig að af
samvinnunni gat ekki orðið
fyrr en nú. Það þýðir þó
ekki að karlarnir séu að
vinna saman í fyrsta skipti
á ferlinum. Fyrir aldarfjórð-
ungi söng Van Morrison
með John Lee Hooker á
plötu þess síðamefnda,
Never Get out of These Blu-
es Alive. Árið 1989 voru tón-
leikar með Van Morrison
teknir upp á myndband og
gefnir út undir heitinu Van
Morrison: The Concert. Þar
var Hooker í gestahlutverki.
Morrison lét einnig í sér
heyra á plötum Hookers,
Mr. Lucky og Chill out. Af
þessu má sjá að löngu var
orðið tímabært að þeir gæfú
sér tíma til að vinna al-
mennilega saman. Árangur
samvinnunnar á plötunni
Don’t Look back sýnir að
Van Morrison gæti sem best
helgað feril sinn blústónlist
það sem eftir er og farið létt
með það. Enda má segja að
blúsinn hafi alla jafiia verið
undirliggjandi í tónlist hans allt frá
dögunum með hljómsveitinni Them
heima í Belfast á sjöunda áratugn-
um. Hann er nú orðinn fimmtíu og
eins árs, hefur verið einherji í tón-
listinni í þrjátíu ár og heldur eftir-
minnilega upp á afmælið með plöt-
unni The Healing Game og framlagi
sínu á Don’t Look back, plötu
Hookers.
Samantekt: ÁT
Stjörnugjöf
tónlistargagnrýnenda
★ Óútgáfuhæf
★ Slæm
★★ Slök
★★ í meðallagi
★★★ Sæmileg
★★★ Góö
★★★★ Frábær
★★★★ Meistaraverk
John Lee Hooker og Van Morrison hafa margoft tekiö lagiö saman á liönum árum.